Morgunblaðið - 04.12.1990, Page 49

Morgunblaðið - 04.12.1990, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990 49 Höfn hf., Selfossi: Léttreykt rauðvínslæri fékk silf- urverðlaun á alþjóðlegri sýningu Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Kolbéinn I. Kristinsson og Björn Ingi Björnsson með verðlaunakjötið. Selfossi. KJÖTVINNSLA Hafnar hf. á Sel- ' fossi hlaut silfurverðlaun í sept- ember fyrir léttreykt rauðvíns- læri á alþjóðlegri samkeppnissýn- ingu, Inter Fair, í Herning í Dan- mörku. Sýning þessi er haldin annað hvert ár á vegum danskra kjötmeistara og dómarar frá mörgum löndum. A sýningunni fyrir tveimur árum fékk kjöt- vinnslan tvenn bronsverðlaun, fyrir rauðvínslærið og fyrir svo- nefnda Hafnarskinku. „Þessi viðurkenning, sem við met- um mjög mikils, sýnir að við erum hér að framleiða gæðavöru sem við bjóðum viðskiptavinum okkar sem fýrsta flokks möguleika nú fyrir jól- in,“ sagði Kolbeinn Kristinsson framkvæmdastjóri Hafnar hf. á blaðamannafundi sem fyrirtækið boðaði nýlega til í tilefni verðalaun- anna. „Við erum að bjóða upp á lúx- usvöru af íslenska lambinu, sann- kallaðan jólamat," sagði Bjöm Ingi Björnsson kjötvinnslustjóri Hafnar hf. „A bak við þennan árangur okkar er sú staðreynd að við erum með mjög gott starfsfólk og að við rekum sláturhús og höfum til úrvinnslu besta hugsanlega hráefni. Slátur- húsið gerir okkur kleift að vera með ferskt kjöt í framleiðslunni," sagði Kolbeinn. Sauðfjárslátrun hefur verið hjá Höfn allar götur frá 1932. Nýtt slát- urhús var reist 1965 og aukning í slátmn leiddi af ser þörf fyrir aukna úrvinnslu og stærra markaðssvæði vestan Hellisheiðar. 1984 var sett upp fullkomin kjötvinnslustöð sem hönnuð var af þýskum sérfræðingi í skipulagningu vinnslustöðva og sláturhúsa, C.E. Reich. 9 manns hófu störf við kjötvinnsluna 22. sept- ember 1984. Á fyrsta árinu var framleiðslan 158 tonn en árið 1989 var framleiðslan komin í 400 tonn af unnum vörum. „Með byggingu kjötvinnslu Hafn- ar hf. hefur verið sannað að hægt er að reka fullkomna vinnslustöð á Suðurlandi, þar sem hráefnið er upprunnið. Svo virðist sem fleiri séu að átta sig á því og er það vel,“ segir í fréttatilkynningu sem Höfn hf. sendi frá sér í tilefni silfurverðlaun- anna í Danmörku. Kolbeinn gat þess einnig að 54% heildarslátrunarinnar hjá Höfn hf. færi í gegnum kjötvinnsluna og það hlutfall færi vaxandi. Þá benti hann á að þegar sláturtíð hófst hefði ekk- ert kjöt frá fyrra ári verið í geymsl- um fyrirtækisins. Sig. Jóns. * Rokksaga Islands | BÓKAÚTGÁFAN Forlagið hefur sent frá sér bókina Rokksaga Islands — frá Sigga Johnnie til Sykurmolanna eftir Gest Guð- mundsson. Þar fjallar hann um rokktónlist og æskumenningu á íslandi 1955-1990. _ í kynningu Forlagsins segir m.a.: „í bók sinni fjallar Gestur Guð- mundsson um stefnur og strauma í íslenskri rokktónlist, hljómsveitir og einstaka tónlistarmenn, söng- texta, skemmtanalíf og hljómplötu- gerð. Bókin styðst við margra ára heimildasöfnun: Ritaðar heimildir, hljómplötur og ekki síst samræður við fjölda fólks sem hefur lifað og I hræst \ rokktónlist undanfarna ára- tugi. í bókinni eru um 300 ljós- myndir og ítarlegar skrár yfir , hljómsveitir og plötuútgáfu. Rokkið tekur á sig nýjar myndir þar sem æskan veitir tilfinningum I sínum og draumum útrás. Gestur Guðmundsson sýnir fram á að í rokkinu hefur íslensk æska í senn tengst jafnöldrum sínum erlendis, skapað eigin unglingamenningu og lagt dijúgan skerf af mörkum til íslenskrar þjóðmenningar. Rokk- saga Islands er án efa besta hand- bæra heimild um samfellda sögu rokktónlistar og æskumenningar hér á landi.“ Rokksaga íslands er 288 bls. AUK hf./Jón Ásgeir Hreinsson hannaði kápu. Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði. ■ BÓKAÚTGÁFAN Hildur hef- ur gefið út bókina Verndargripur Sets eftir Söru Hylton. Þetta er þriðja bók Söru Hylton sem út kem- ur á íslensku. I kynningu útgefanda segir m.a. um söguefnið: „Ensk stúlka, dóttir fornleifafræðings, er gædd yfirskilvitlegum hæfileika til að upplifa í draumum sínum mörg þúsund ára atburði úr lífí egypskrar prinsessu. Hörkuspennandi bók frá fyrstu til síðustu blaðsíðu." Bókin er 244 bls. Gestur Guðmundsson HEFURÞÚ KYIMNT ÞÉR EiAMAX SNJÓÞOTUR í KAUPFÉLAGINU OG SPORTVÖRUVERSLUNUM VERSLUNARDEILD HOLTAGÖRDUM SÍMI 681266 Sagan sem þú gefur þegarþú viltgleðja Ástin kemur segir frá lífi landnema í Ameríku á síðustu öld, starfi þeirra, sorgum, ást og gleði. Líkt og íslensku Vesturfararnir á sinni tíð, er þetta fátækt fólk sem vinnur hörðum höndum við að sjá sér og sínum farborða, en Iffshamingja þess er bundin öðrum gæðum en þeim sem við eigum að venjastídag. Þetta er frábærlega falleg ástarsaga, sem heldur athygli lesandans óskiptri frá byrjun til enda. Póntunarsimi (91) 25155 ÁstafSagari í áf/ Spennusaga um baráttuna milligóðs og ills, myrkurs og Ijóss. Petta er sagan sem heldur þér viö efnið frá fyrstu til síðustu blaðsíðu. Baráttan við heimsdrottna myrkursins fellur vel inn í þá umræðu um dulræn fyrirbæri, andlega vakningu og nýja öld, sem hefur verið svo áberandi á íslandi undanfarið. Pessari bók sleppir þú ekki fyrr en þú hefur lokið við að lesa hana. Spennubókin í ár! HAUSTHAPPDRÆTTI KRABBAMEINSFÉLAGSINS HLVBVimGS VINNINGAR: 3 VOLVO 460 GLE. 4 3 DAIHATSU CHARADE SEDAN SGi. 50 VINNINGAR Á 120.000 KR. OG 50 VINNINGAR Á 60.000 KR. Vörur eöa þjónusta frá BYKO, Hagkaupum, Húsgagnahöllinni, Radíóbúðinni, Úrvali-Útsýn eöa Útilífi. sameiginlegur vinningur: STUÐNINGUR YKKAR ER OKKAR VOPN • Öflugri krabbameinsvarnir! ir!A é Krabbameinsfélagið^r &

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.