Morgunblaðið - 04.12.1990, Síða 54

Morgunblaðið - 04.12.1990, Síða 54
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990 Guðný Þorsteins- dóttir - Minning Fædd 25. apríl 1926 Dáin 26. nóvember 1990 I dag, þriðjudaginn 4. desember, verður elskuleg tengdamóðir mín, Guðný Þorstéinsdóttir, jarðsungin frá Langholtskirkju. Guðný fæddist 25. apríl 1926. Foreldrar hennar voru Þorsteinn Sigfússon og Ingibjörg Geirmunds- dóttir sem bæði eru látin. Guðný var elst níu systkina sem öll ólust upp hjá foreldrum sínum á Sand- brekku í Hjaltastaðaþinghá. Ég veit að Guðnýju þótti afskaplega vænt um bernskuheimili sitt og oft sagði hún mér frá lífinu í sveitinni á bernskuárunum. Guðný var ung stúlka þegar hún fluttist til Reykjavíkur. í Reykjavík kynntist hún eftirlifandi manni sin- um, Jakob Þórhallssyni, sem ættað- ur er frá Ánastöðum í Vestur-Húna- vatnssýslu. Guðný og Jakob eignuðust þrjá syni. Þeir eru Ingi Þór sem fæddur er 1955, Hreinn fæddur 1960 og Þórhallur fæddur árið 1964. Á fyrstu hjúskaparárum sínum bjuggu Guðný og Jakob í Njörva- sundi, en seinna byggðu þau sér fallegt heimili í Karfavoginum. Guðnýju kynnist ég fyrir rúmum þremur árum. Þetta er ekki langur tími, en sannarlega góður tími í mínum huga. Guðný reyndist mér einstaklega vel og langar mig nú að rifja upp örfáar miningar mínar sem tengjast henni. Það var notalegt að heimsækja Guðnýju og Jakob í Karfavoginn. Alltaf var tekið vel á móti mér og gestrisni Guðnýjar var einstök. Áður en maður vissi af var hún búin að hafa til kaffí eða mat og dekraði við mann á allan hátt. Guðný var mikil fjölskyldumann- eskja og hun naut þess innilega að hafa strákana sína og fjölskyldur þeirra hjá sér. Þá var setið og spjall- að um fjölskylduna eða það sem ' mönnum var efstí huga hveiju sinni. Oft sagði hún okkur sögur frá þeim tíma er strákarnir voru litlir. Það var augljóst að líf hennar snerist um Jakob og strákana. Hún veitti þeim gott uppeldi og vildi hag þeirra allra sem bestan. Barnabömin hennar þijú, þau Guðný, Davíð Örn og Margrét skipuðu einnig stóran sess í huga ömmu sinnar. Ég veit að hún naut þess að hafa þau hjá sér og fylgjast með uppvexti þeirra og þroska. Nú þegar jólin nálgast koma margar minningar tengdar jólunum upp í hugann. Eins og á flestum heimilum voru ákveðnar venjur í Karfavpginum sem ekki var brugð- ið frá. í desember var laufabrauðið Jiakað og á Þorláksmessu eldaði Guðný hangikjöt til þess að allir gætu hist og fengið sér bita mitt í öllu jólaamstrinu. Fyrstu jólin sem ég var með Hreini í Karfavoginum eru mér ávallt minnisstæð. Ég hafði hugsað um það hvort það yrði ekki erfítt að vera fjarri foreldrum mínum og systkinum á aðfangadag. Slíkar vangaveltur voru algjörlega óþarf- ar, því svo vel hugsaði Guðný um mig. Við vorum líka orðnar ákveðn- ar í því að halda þessari hefð okkar áfram. Einn var sá staður sem var Guðnýju afar kær. Það var sumar- bústaðurinn sem þau Jakob áttu í Grímsnesinu. Fyrir nokkrum árum keyptu þau sumarbústaðarlandið og byijuðu að undirbúa byggingu bústaðarins. Af forsjálni sinni og áhuga byijaði Guðný fyrst að gróð- ursetja tré og annan gróður áður en bústaðurinn var byggður. Tijá- ræktin var líka aðaláhugamál Guðnýjar í sveitinni og var hún óþreytandi í því að hugsa um gróð- urinn. Guðný og Jakob notuðu allar frí- stundir sínar á sumrin til að vera í bústaðnum og voru þau sífellt eitt- hvað að sýsla. Bústaðurinn þeirra er líka mjög fallegur og þau nutu sín vel í sveitinni. Guðný naut þess einnig að hafa Ijölskylduna hjá sér í bústaðnum og nú á þessari stundu koma upp í hugann margar^góðar minningar sem við Hreinn eigum frá liðnum sumrum. Alltaf sá Guðný til þess að við hefðum það sem allra best, veislumatur var framreiddur og reynt að hafa það eins notalegt og hægt var. Okkur Guðnýju fannst líka báðum svo gott að gista í bú- staðnum og töluðum oft um það hvað við værum úthvíldar eftir helgi í sveitinni. Fyrir tæplega einu ári veiktist Guðný alvarlega. Hún bar sjúkdóm sinn vel og aðdáunarvert var hversu sterk hun var. Hún var ákveðin í því að gefast ekki upp og það gerði hún heldur ekki. Jakob stóð líka við hlið hennar og sá til þess að henni liði eins vel og hægt var. Þó að Guðný hafí verið mikið veik að undanförnu kom kallið öllum að óvörum. Sterk trú hennar hreif okkur hin og við trúðum því að hún myndi ná sér á ný. Nú er kveðjustundin runnin upp.Ég þakka heilshugar stundirn- ar sem ég átti með henni og minn- ing um góðan vin og tengdamóður mun lifa áfram í huga mínum. Elsku Jakob, ættingjar og vinir, ég sendi mínar innilegustu samúð- arkveðjur til ykkar allra. Heiða Það var á fögrum og mildum vordegi árið 1954 sem ég sá hana fýrst. Hún kom sunnan úr Reykja- vík ásamt unnusta sínum, Jakob bróður mínum. Þau ætluðu að dvelja hjá okkur yfir hvítasunnuhátíðina sem þá fór í hönd. Eins og skiljan- legt er ríkti nokkur eftirvænting á heimilinu. Hvernig skyldi h ún nú líta út vera þessi tilvonandi kona hans Jakobs? En þegar hún kom var eins og maður hefði þekkt hana lengi. Hún hafði þetta glaðværa og hressilega viðmót sem entist henni alla ævi og gerði það að verkum að hún kynntist fljótt og öllum leið svo vel í návist hennar. En þegar kynnin urðu meiri og nánari fann maður líka að þar fór ákveðin og viljaföst kona, sem mundi hafa djörfung til að takast á við þau vandamál sem flestir þurfa að mæta á lfsleiðinni. Að þessu sinni dvöldu þau Jakob og Guðný aðeins tvo eða þijá daga t Ástkær eiginmaður minn, faðir og sonur, KARLÁ. ÚLFARSSON læknir, lést í Borgarspítalanum að morgni 1. desember. Henrietta 1. Haraldsdóttir, Charlotta Karlsdóttir, Jósefine Karlsdóttir, Charlotta Ó. Þórðardóttir, Úlfar Gunnar Jónsson. t Ástkær sonur okkar, fóstursonur og bróðir, JÓN STEINAR BERGSSON, lést 1. desember. Bergur Björnsson, Ingunn Jónsdóttir, Gunnar Þór Kristjánsson og systkini hins látna. t Móðursystir okkar, t Systir mín, DAGMAR EIRÍKSDÓTTIR SIGRÚN HELGADÓTTIR frá Sjávarborg, frá Grímsey, lést í Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar 3. desember. Hátúni 10a, Reykjavík, Þórdís Þórarinsdóttir, lést á heimili sínu 2. desember sl. Sveinhildur Þórarinsdóttir, Þorbergur Þórarinsson. Guðlaug Helgadóttir. t Bróðir okkar, t Ástkær eiginkona mín, móðir og amma, INGIMAR ÓLAFSSON, HALLDÓRA KRISTJÁNSDÓTTIR, Jaðarsbraut 39, Keldulandi 17, Akranesi, lést í Landspítalanum 2. desember. lést á heimli sinu laugardaginn 1. desember. Jarðarförin auglýst síðar. Agúst Sesselíusson, Kristín Ágústsdóttir Systkini hins látna. og barnabörn. t Ástkær dóttir mín, eiginkona, móðir, tengdamóðir og systir, t Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, DR. KATRÍN FRIÐJÓNSDÓTTIR, ODDUR GUÐBJÖRNSSON lést sunnudaginn 2. desember í Uppsala, Svíþjóð. bóndi Jarðarförin verður auglýst síðar. Rauðsgili, Hálsasveit, andaðist laugardaginn 1. desember. María Þorsteinsdóttir, Bo Gustafsson, Jarðarförin verður auglýst síöar. Fyrir hönd aðstandenda, Þorsteinn Rögnvaldsson, Lena-Karin Erlandsson, Ingibjörg Jónsdóttir, Herborg Friðjónsdóttir. Rauðsgili. hjá okkur. En þau áttu eftir að koma oftar að Ánastöðum og alltaf vakti það gleði og tilhlökkun þegar þau voru væntanleg. Guðný var fædd 25. apríl 1926. Dóttir hjónanna í Sandbrekku í Hjaltastaðaþinghá, Ingibjargar Geirmundsdpttur og Þorsteins Sig- fússonar. Hún var elst níu systkina og hefur vafalaust verið ung þegar hún fór að hjálpa til við heimiis- störfin. Enda hefur mér verið sagt að hún hafí snemma verið liðtæk við öll störf, bæði úti og inni. Guðný dvaldi svo fyrir austan sín bemsku- og unglingsár. En þegar hún var um tvítugt fór hún í Kvennaskólann á Blönduósi. Þótt námið þar væri aðeins einn vetur fengu stúlkur þar góða undirstöðumenntun, sem varð þeim gott veganesti, einkum þegar þær síðar stofnuðu sjálfar heimili. Eftir skólavistina á Blönduósi lá leið Guðnýjar fljótlega til Reykja- víkur. Þar kynntist hún Jakob Þór- hallssyni frá Ánastöðum á Vatns- nesi. Þau felldu hugi saman og gengu í hjónaband 30. apríl 1955. Þau byggðu fljótlega hús í Njörva- sundi 22 hér í borginni, ásamt Eg- gert, bróður Jakobs, og konu hans, Ástu. Þar bjuggu þessar ijölskyldur allmörg ár. En fyrir um það bil 20 árum reistu þau Guðný og Jakob einbýlishús við Karfavog. Þar bjó Guðný fjölskyldu sinni vistlegt heimili, sem ber þess glöggan vott hve smekkvís og góð húsmóðir hún var. Það var gott að dvelja á heim- ili þeirra hjóna, þar ríkti gestrisni og goður heimilisandi. Allt sem Guðný reiddi fram bar vott um myndarskap og rausn. Guðný Þorsteinsdóttir var frábær móðir. Þau hjón nutu þeirrar ham- ingju að eignast þijá heilbrigða drengi, sem nú eru allir fulltíða menn og hafa stofnað eigin heim- ili. Þeir eru Ingi Þór innanhússarki- tekt, Hreinn viðskiptafræðingur og Þórhallur flugmaður. Þau hjónin Guðný og Jakob voru mjög samhent með allt sem þau tóku sér fyrir hendur. Sem dæmi um það ætla ég að lokum að segja frá því að fyrir nokkrum árum keyptu þau dálitla landspildu austur í Grímsnesi. Þar reistu þau sumar- hús og byijuðu að planta tijám í landið. Guðný gekk að þessu starfi af sínum alkunna áhuga og dugn- aði og ég held að það hafí verið henni mikil lífsfylling að fást við þetta verkefni. Þama gátu þau not- ið friðsældar og kyrrðar og þess að sjá plönturnar þroskast og dafna. En skjótt skipast veður í lofti. Fyrri tæpu ári fór Guðný að kenna sjúkleika sem brátt ágerðist. Allt var gert sem í mannlegu valdi stóð til að hindra framgang sjúkdóms- ins. Það var aðdáunarvert að sjá hve Guðný sýndi mikinn hetjuskap í veikindunum. Varla heyrðist æðruorð þótt henni væri sjálfsagt fullljóst að hveiju stefndi. Fjölskylda mín öll vill að leiðar- lokum þakka Guðnýju vináttu og góðar stundir á liðnum ámm og óska henni fararheilla til eilífðar- landsins. Jakob, sonum þeirra og öðmm ástvinum sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Olafur Þórhallsson Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina. S.HELGASON HF STEINSNIIÐJA SKEMMUVEGI48. SlMI 76677

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.