Morgunblaðið - 04.12.1990, Page 62
62
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1990
Sauðárkrókskirkja
endurvígð á sunnu-
dag eftir stækkun
UNNIÐ hefur verið að endurbyggingu og stækkun Sauðárkróks-
kirkju undanfarið. Verkinu er nú að ljúka og verður kirkjan end-
urvígð næstkomandi sunnudag ai
syni.
Þegar leitað var góðrar og hag-
kvæmrar leiðar til að tryggja Sauð-
árkrókssöfnuði nægilegt húsrými
til nokkurrar framtíðar þóttu tveir
kostir fyrir hendi; annars vegar
bygging nýrrar kirkju, hins vegar
stækkun þeirrar gömlu. Báðir mög-
uleikar vora kannaðir og þótti sýnt
að miklum mun heppilega yrði að
velja þann síðari.
Athugun sérfræðinga leiddi í ljós
að vel færi á því að lengja þessa
fyrstu og einu kirkju bæjarins
umtalsvert án þess að spilla stíl
hennar. Með því að nýta betur rý-
mið með nýjum og fyrirferðarminni
bekkjum gæti kirkjan rúmað þriðj-
ungi fleiri í sæti eftir slíka stækk-
un. Tillaga um stækkun og endur-
gerð kirkjunnar var síðan sam-
þykkt á aðalsafnaðarfundi og að
fengnum tilskildum leyfum var
hafist handa við verkið.
Kirkjan er að mestu leyti smíðuð
að nýju. Af upphaflegu efni stendur
aðeins eftir hluti af burðgargrind
og þakviðum, auk nokkurs af inn-
viðum. Nýjar dyr eru á kirkjunni
sunnanverðri, sem m.a. auðvelda
aðgang fatlaðra. í nýju gluggana
tvo kemur litagler unnið af Guð-
rúnu og Jens Urup. Altari og pred-
ikunarstóll er hvort tveggja viðgert
svo og altaristafian. Orgelkaupa-
biskupi Islands, herra Olafi Skula-
nefnd, er skipuð var á síðasta ári,
ákvað að festa kaup á tiltölulega
ódýru orgeli, sem að flestra dómi
mun nýtast prýðilega.
Kostnaðaráætlun hönnuða nem-
ur 50 milljónum króna og er nú
að koma í ljós að sú áætlun er
mjög nálægt lagi.
Fjármögnun er með ólíkum hætti
frá því sem var þegar kirkjan var
upphaflega byggð. Þá stóðu fijáls
framlög undir kostnaði en lögbund-
in sóknargjöld eru nú aðal tekjulið-
ur kirkjunnar. Einnig er möguleiki
á framlögum úr Jöfnunarsjóði
sókna. Búnaðarbankinn, útibúið á
Sauðárkróki, hefur verið hjálplegur
með fyrirgreiðslu og gefur kost á
að lán verði greidd á næstu árum.
Margir hafa lagt fé til fram-
kvæmdarinnar og ákvað sóknar-
nefnd að skipa sérstaka fjáröfl-
unarnefnd. Hún hefur ákveðið, í
samráði við sóknarnefndina, að
standa fyrir safnaðarátaki og óska
eftir fijálsum framlögum frá
sóknarmönnum.
Þegar kirkjan verður nú tekin í
notkun að nýju með endurvígslu
verður aðeins eftir að ljúka máln-
ingu hennar að utan og frágangi
umhverfis bygginguna. Þau verk-
efni bíða næsta vors.
Aðalfundur Hins ís-
lenska þj óðvinafélags
AÐALFUNDUR Hins íslenska þjóðvinafélags var haldinn í alþingis-
húsinu, fundarsal sameinaðs alþingis, fyrir skömmu. Guðrún Helga-
dóttir, forseti sameinaðs alþingis, setti fundinn og stjórnaði honum.
Eiður Guðnason alþingismaður var fundarritari.
.Morgunblaðið/Anna Fjóla Gísladóttir
Forstöðumaður LSÓ; Birgitta Spur (í miðju), ásamt tveimur gefendum, Onnu Einarsdóttir og Kristj-
áni Guðmundssyni. I forgrunni listaverkið Úlfaldi.
Sýning á gjöfum til Lista-
safns Siguijóns Olafssonar
FRÁ upphafi hefur Listasafn Sigurjóns Ólafssonar notið velvildar
hjá ótal mörgu fólki og auk beinna fjárframlaga hefur safnið
þegið að gjöf merk listaverk, aðallega eftir Siguijón.
í einstökum tilfellum hefur
safnið einnig keypt verk eftir Sig-
uijón úr einkaeigu. Á sýningunni
„Málverk og aðföng“ veturinn
1989-90 voru þær gjafir sýndar,
sem safninu höfðu borist fram að
þeim tíma. Gjafir, sem síðan hafa
borist safninu eru:
1. Skissa að lágmynd fyrir
Búrfellsstöð, 1966, keypt í janúar
1990. _
2. Úlfaldi, tré, 1978-79. Gjöf
frá Valborgu Hallgrímsdóttur og
Kristjáni Guðmundssyni.
3. Börn í leik, gifsmyndir á
plötu, 1939. Verðlaunaverk, til-
laga að skreytingu á Bornenes
Hus í minningu H.C. Andersen.
4. Andlitsmynd af Margarethe
Krabbe (eiginkonu Thorvalds
Krabbe vitamálastjóra), frá 1931.
Gjöf frá Helgu Krabbe í Kaup-
mannahöfn.
5. Sjötíu teikningar frá náms-
árum Siguijóns bárust haustið
1989 frá mágkonu og bróður Sig-
uijóns, hjónunum Kristínu Einars-
dóttur og Gísla Ólafssyni. Þjóð-
hátíðarsjóður hefur veitt 165 þús-
und krónur upp í kostnað við við-
gerðir og frágang á þessum teikn-
ingum.
6. Bjarndýriðj grásteinn, 1946.
Gjöf frá Gísla Ásmundssyni.
7. Þess skal getið að á vordög-
um 1990 færði Anna Einarsdóttir
safninu að gjöf krónur 100.000 í
minningu foreldra sinna Einars
Andréssonar og Jófríðar Guð-
mundsdóttur. Verður fénu varið
til bronssteypu á mynd sem nú er
í einkaeigu og ekki í varanlegu
efni.
8. Fyrir skömmu bárust safninu
krónur 500.000 að gjöf frá aðila
sem óskar nafnleyndar.
Allar bera þessar höfðinglegu
gjafir vott um mikinn hlýhug tii
safnsins og virðingu við minningu
Siguijóns og vill Listasafn Sigur-
jóns Olafssonar hér með koma á
framfæri þakklæti til gefenda.
(Fréttatilkynning)
Júlíus Sólnes, formaður Borgaraflokksins:
Skil vel sjónarmið Guð'
mundar Agústssonar
JÚLÍUS Sólnes, formaður Borgaraflokksins, segist vel skilja sjónar-
mið Guðmundar Ágústssonar, formanns þingflokks Borgaraflokks-
ins, en sá síðarnefndi er hættur að styðja ríkisstjórnina og hefur
lýsti þvi yfir í bréfi til forsætisráðherra.
Jóhannes Halldórsson, forseti
félagsins, sat fundinn af hálfu for-
stöðunefndar þess, flutti skýrslu
forseta og skýrði frá reikningum
félagsins.
Stjórn félagsins var endurkjörin
til næstu tveggja ára. Hana skipa:
Jóhannes Halldórsson cand. mag.,
forseti, dr. Jónas Kristjánsson for-
stöðumaður Stofnunar Árna Magn-
ússonar, varaforseti, dr. Guðrún
Kvaran orðabókarritstjóri, Heimir
Þorleifsson menntaskólakennari og
Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörð-
ur. Endurskoðendur voru endur-
kjörnir Halldór Ásgrímsson sjávar-
útvegsráðherra og Ólafur Ólafsson
varaskrifstofustjóri Alþingis.
Guðrún Helgadóttir, forseti sam-
einaðs alþingis, mælti nokkur orð
til alþingismanna um nauðsyn þess
að styðja og efla þetta-sögufræga
og merka félag. Minnti hún á, að
forsetar aþingis hafa flutt tillögu
til breytingar á fjárlagafrumvarpi
fyrir árið 1991 um aukið framlag
til félagsins.
Ársrit Þjóvinafélagsins, Alman-
ak 1991, með Árbók íslands 1989
er komið. Hitt ársritið, Andvari, er
væntanlegt úr prentun innan
skamms.
(Fréttatilkynning)
♦ ♦-4---------
■ - TÓNLIS TARMENNIRNIR
Reynir Sigurðsson, Friðrik
Karlsson, Tómas R. Einarsson
og Sigurður Flosason munu flytja
lög eftir sænska vísnasöngvarann
Evert Taube á Háskólatónleikum
í Norræna húsinu miðvikudaginn
5. desember kl. 12.30. Evert Taube
(1890-1976) var einn af ástsælustu
listamönnum Svía og hafa djass-
leikarar ekki síður en tónlistarmenn
verið dugiegir við að leika tónlist
hans.
„Ég skil hans sjónarmið vel. Við
höfum oft rætt þetta í okkar þing-
flokki og það hefur ekki verið nein
ánægja í þingflokknum með
stjórnarsamstarfíð í heild sinni. Það
hefur valdið okkur vonbrigðum.
Við hefðum viljað ná meiri og betri
árangri í þeim málum sem við lögð-
um áherslu á; að lækka matvæla-
verðið og framfærslukostnað heim-
ilanna og sömuleiðis að aftengja
lánskjaravísitöluna og koma heil-
brigðu peningakerfi í framkvæmd,“
sagði Júlíus í samtali við Morgun-
blaðið í gær. Að meiri árangur
skuli ekki hafa tekist í þessum
málum sagði Júlíus sjálfsagt hafa
orðið til þess að Guðmundur hafí
tekið þessa ákvörðun, „en ég tel
að hitt markmiðið, að standa vörð
um þjóðarsáttina, þann efnahags-
lega árangur sem hefur náðst, verði
að hafa forgang."
Júlíus var spurður hvort hann
teldi ákvörðun Guðmundar ekki til
komna vegna vonbrigða hans um
að hafa ekki komist í bankaráð
Seðlabankans. Júlíus svaraði: „Nei,
því það var ekki farið að ræða það
formlega í okkar hópi, hver yrði
fyrir valinu af hálfu okkar þing-
flokks, ef það hefði fallið í okkar
skaut að fá mann í bankaráð Seðla-
bankans. Hins vegar sagði Guð-
mundur, og það hefur allur þing-
flokkurinn rætt oft, að okkur þyki
dálítið hafa verið gengið á okkar
hlut í þessu stjórnarsamstarfi. Við
erum auðvitað minnsti stjórnar-
flokkurinn, það er alveg rétt, en
stundum hafi verið óþarflega geng-
ið á okkar hlut þrátt fyrir það.“
í bréfi sínu til forsætisráðherra
segir Guðmundur Ágústsson að
kosningin í bankaráð Seðlabanka
hafí verið „dropinn sem fyllti mæl-
inn, en ekki höfuðástæða þessarar
ákvörðunar minnar. í langan tíma
hef ég haft miklar efasemdir hvort
það væri pess virði að styðja þessa
ríkisstjórn og einstaka ráðherra
hennar. Síðastliðið vor munaði að-
eins hársbreidd við afgreiðslu laga
um stjórn fískveiða að ég felldi
stjórnina, en með tilliti til ýmissa
aðila og þeirrar trúar minnar að
staða stjórnarsamstarfsins myndi
batna ákvað ég, andstætt sannfær-
ingu minni, að greiða frumvarpinu
atkvæði mitt. I dag er mér ljóst
að ég hefði betur hlýtt kalli sam-
viskunnar og fellt frumvarpið. Það
hefur ekkert gerst síðan sem breytt
hefur skoðun minni á þessu stjórn-
arsamstarfi. Þvert á móti hefur
ýmislegt komið fram sem fullvissar
mig í þeirri trú að Borgaraflokkur-
inn eigi ekkert erindi í þessa ríkis-
stjórn."
Guðmundur segist, í bréfinu, hér
eftir sem hingað til munu rækja
skyldur sínar á Alþingi, „en í stað
þess að vera dyggur stuðningsmað-
ur ríkisstjórnarinnar og greiða fyr-
ir málum hennar mun ég héðan í
frá taka af eigin sannfæringu af-
stöðu til hvers máls fyrir sig. Á
það jafnt við atkvæðagreiðslur í
þingsölum sem á nefndarfundum,
en ég er formaður fjárhags- og
viðskiptanefndar og allsheijar-
nefndar efri deildar."
Samleikur á gítar og klavikord
SKÍFAN hf. hefur gefið út geisladisk, í þjóðlagatón, þar sem
Símon H. ívarsson og Orthulf Prunner spila saman á gítar og
klavikord og segir í texta með diskinum, að þetta sé fyrsta
hljóðritun á samspili þessara hljóðfæra, sem vitað er um.
Þijú íslenzk lög eru fremst á
diskinurmHvert örstutt spor eftir
Jón Nordal við bamagælu úr
Silfurtunglinu eftir Halldór Lax-
ness, Maístjaman eftir Jón Ás-
geirsson við ljóð úr Húsi skálds-
ins eftir Halldór Laxness og
Kansóna eftir Askel Másson.
Önnur verk eru eftir Dowland,
Bach, Beethoven, Albeniz, de
Falla og Boccherini.
Þetta er önnur hljóðritunin
með samleik þeirra Símonar og
Orthulfs, en árið 1987 kom út
hljómpalata með samleik þeirra
á gítar og orgel.