Morgunblaðið - 13.12.1990, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 13.12.1990, Qupperneq 1
96 SIÐUR B 284. tbl. 78. árg. FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1990 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sænska þingið: Stjórnin fær um- boð til að sækja um aðild að EB Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins. Reuter. ÞING Svíþjóðar samþykkti með miklum meirihluta atkvæða í gær að veita stjórn landsins umboð til að sækja um aðild að Evrópubandalag- inu (EB) vegna breyttra aðstæðna eftir hrun kommúnismans í Evrópu. Margir þingmenn sögðu þetta mikilvægustu samþykkt þingsins frá seinni heimsstyrjöldinni. Aðeins smáflokkar á vinstri væng stjórnmál- anna og umhverfisverndarflokkar i Svíþjóð leggjast nú gegn aðild að bandalaginu. . 287 þingmenn greiddu atkvæði með tillögunni og 40 á móti en 22 sátu hjá. Jafnaðarmannaflokkurinn, Hægri flokkurinn (Moderatarna), Bush aflétt- ir viðskipta- hömlum á Sovétríkin Washington. Reuter. GEORGE Bush Bandaríkjaforseti skýrði frá því í gær að hann hefði aflétt viðskiptahömlum á Sov- étríkin sem hefur það í för með sér að sovésk stjórnvöld geta tek- ið lán til að flytja inn bandarískar landbúnaðarvörur fyrir allt að einn milljarð dala (54 milljarða ÍSK). Bush skýrði einnig frá því að hann og Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi stefndu að þvi að undirrita samkomulag um fækkun langdrægra kjarnorkuvopna í Moskvu um miðjan febrúar næst- komandi. Bush átti í gær fund með Edúard Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, í Washington. She- vardnadze fór þar fram á aðstoð vegna matvælaskortsins í Sovétríkj- unu. Að fundinum loknum sagðist forsetinn fylgjandi því að nema úr gildi svokölluð Jackson-Vanik-lög sem setja skorður við viðskiptum Bandaríkjanna og Sovétríkjanna uns ferðafrelsi er komið á í síðarnefnda ríkinu. Þetta hefur meðal annars haft það í för með sér að banda- rískir aðilar hafa ekki mátt veita Sovétmönnum lán. Frjálslyndi flokkurinn og Miðflokkur- inn studdu tillöguna. Líklegt er að ■stjórnin sæki um aðild að bandalag- inu á næsta ári en hún býst ekki við að Svíar fái inngöngu fyrr en í lok ársins 1994. „Ákvörðun hefur verið tekin og nú verður ekki aftur snú- ið,“ sagði Carl Bildt, leiðtogi Hægri flokksins á þinginu. Anita Gradin, utanríkisviðskipta- ráðherra Svíþjóðar, vísaði því á bug í gær að sænska stjórnin hefði neyðst til að skipta um skoðun vegna efna- hagskreppu. „Þessi ákvörðun var tekin vegna gjörbreyttra aðstæðna í öryggismálum Evrópu," sagði hún. í samþykktinni er lögð áhersla á nauðsyn þess að EB og Fríverslunar- bandalag Evrópu (EFTA), sem Svíar eiga aðild að, geri bráðabirgðasamn- ing fyrir byijun ársins 1993. Poul Schliiter forsætisráðherra á kjörstað í gær ásamt eiginkonu sinni Anne-Marie Vessel. Reuter Fylgi danskra jafnaðarmanna eykst á kostnað Sósíalíska þjóðarflokksins; Schliiter hyggst mynda nýja fimm flokka stj órn Kaupmannahöfn. Reuter. DÖNSKIJ ríkisstjórnarflokkarn- ir töpuðu fylgi í þingkosningun- um í gær en borgaralegu flokk- arnir virðast halda meirihluta sinum á þingi. Poul Schlúter for- sætisráðherra og leiðtogi íhalds- flokksins fagnaði urslitunum og sagðist staðráðinn í að bæta tveimur flokkum inn í ríkis- stjórnina. Jafnaðarmenn eru sig- urvegarar kosninganna en þeir bættu við sig 14 þingmönnum, samkvæmt tölum sem birtar voru þegar drjúgur hluti atkvæða hafði verið talinn. Sósíalíski þjóð- arflokkurinn sem er vinstra meg- in við jafnaðarmenn galt afhroð og tapaði 15 þingmönnum. Ríkisstjórnarflokkarnir þrír, íhaldsflokkurinn, Venstre og Rad- ikale höfðu samtals 67 þingmenn en fá að líkindum 66. Venstre bætti við sig 9 þingmönnum en íhalds- menn töpuðu talsverðu fylgi. Þrír Fjölmennur mótmælafundur í Albaníu: Slj órnarandstæðing- ar stofna nvjan flokk Vínarborg. Reuter. ** ** TUGÞÚSUNDIR Albana tóku í gær þátt í stofnun fyrsta stjórn- málaflokksins í landinu í 45 ár að kommúnistaflokknum frátöld- um. „Þetta er stórkostlegur áfangi á leið til lýðræðis," sagði Sali Berisha, einn frammámanna flokksins, við viðstadda á torgi við háskólann í Tirana. ægja með bág kjör en Albanía er fátækasta land Evrópu. Síðar varð lýðræði aðalkrafan. Nýi flokkurinn nefnist Lýðræð- isflokkurinn. Arben Imami, einn flokksstofnenda, las upp stefnu- skrá hans á fundinum í gær. Þar var því heitið að vernda mannrétt- indi eins og tjáningar- og ferða- frelsi kæmist flokkurinn í áhrifa- stöðu. Mikil áhersla var lögð á að flokkurinn væri friðsamur og Sjónárvottar sögðu í símavið- tali við fieutei's-fréttastofuna að um 50.000 námsmenn og mennta- menn hefðu tekið þátt í stofnfund- inum. Á þriðjudag tilkynnti mið- stjórn kommúnistaflokksins að hún væri reiðubúin að leyfa starf- semi annarra stjórnmálaflokka. Gerðist það í kjölfar þess að mikl- ir mótmælafundir voru haldnir í ijóra daga samfleytt i háskólanum í Tirana. Upphaf þeirra var óán- Ramiz Alia, forseti Albaníu, (til vinstri með gleraugu) hlýddi á þriðjudag á umkvartanir námsmanna í höll sinni. vildi ekki efna til illdeilna. Imami sagði að flokkurinn myndi fara þess á leit við dómsmálaráðuneyti landsins að hann yrði skráður. Ætlunin væri að bjóða fram í kosningunum í febrúar. Hermt er að margir fundar- manna hafi hrópað slagorð til stuðnings Ramiz Alia, forseta landsins, sem fylgt hefur varfærn- islegri umbótastefnu frá því hann tók við af Enver Hoxha árið 1985. borgaraflokkar hafa varið stjórnina vantrausti, Kristilegi þjóðarflokkur- inn, Miðdemókratar og Framfara- flokkurinn. Þessir flokkar fá sam- tals 25 þingsæti en höfðu 29. Sam- tals hefur ríkisstjórnin því 91 þing- mann á bak við sig en þarf 90. Poul Schlúter sagðist í gær staðráð- inn í að halda áfram um stjórntaum- ana í Danmörku og vildi hann bæta Miðdemókrötum og Kristilega þjóð- arfiokknum inn í ríkisstjórnina. „Því fleiri borgaralegir flokkar i ríkisstjórn, því betra,“ sagði forsæt- isráðherrann í samtali við danska sjónvarpið. „Mikilverðast er að danskir kjósendur hafa snúið baki við öfgafullum vinstrisinnum. Það auðveldar samstarfið við Evrópu- bandalagið og Atlantshafsbanda- lagið.“ Jafnaðarmenn bættu við sig miklu fylgi og fengu 69 þingsæti en höfðu 55 eftir þingkosningarnar í maí 1988. Svend Auken leiðtogi jafnaðarmanpa sagði að úrslitin sýndu að Danir vildu breytingar. Hann sagðist vongóður um að geta myndað rikisstjórn með hluttöku einhvers borgaralegu flokkanna. Boðað var til kosninganna í gær þótt enn væri eitt og hálft ár eftir af kjörtímabilinu. Skýringin var ágreiningur milli stjórnar og jafnað- armanna um skattkerfisbreytingar. Schlúter hefur verið í forsæti danskra ríkisstjórna síðan 1982.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.