Morgunblaðið - 13.12.1990, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1990
9
VIÐ ERUM
í KIRKJUHVOLI
gegnt Dómkirkjunni
Fjölbreytt úrval gjafavöru:
Kertastjakar, krossar, helgimyndir (ikonar)
biblíur, bækur og kirkjumunir.
Einnig mikið af jólavöru á hagstæðu verði.
Kirkjuhvoli, gegnt Dómkirkjunni, Rvík., sími 21090.
SENDUM í PÓSTKRÖFU UM ALLT LAND.
Stefanía Kalifeh ræðismaður íslands í Jórdaníu,
Gísli Sigurðsson læknir og Jóhanna Kristjónsdóttir
blaðamaður. Myndin er tekin í Amman.
Gleðitíðindi
Það voru sannkölluð gleðitíðindi fyrir
landsmenn alla þegar fréttir bárust af
heimkomu Gísla Sigurðssonar læknis,
en hann var innlyksa í Kúvæt og írak í
fjóra mánuði. Garri Tímans segir svo frá
þessum atburði í gær.
Sjaldgæfur at-
burður
Garri Tímans segir í
gær:
„Það gerist aðeins
sjaldan á þeim miklu fjöl-
miðlatímum sem við lif-
um að fjölmiðlamenn
sjálfir lendi í fréttum.
Hvenær sem það gerist
þykir það eðlilega tiðind-
um sæta, einkum fyrir
þann fjölmiðil þar sem
fréttamaður starfar.
Þetta gerist stúndum úti
í hinum stóra heimi, eink-
um á átakatímum og þá
eru skrifaðar bækur um
atvikið og gerðar kvik-
myndir. Ramisóknar-
blaðamennska er hluti af
þessu. En í staðinn fyrir
að verða óviljandi þátt-
takandi í atburðum
treðst blaðamaðuriim á
vettvang og gerir sjálfan
sig að aðalpersónu, þver-
öfugt við þá meginreglu,
að vera aðeins skráandi
atburða en ekki frum-
kvöðull þeirra. Nú hefur
það gerst hér að þekkt
blaðakona, Jóhanna
Kristjónsdóttir á Morg-
unblaðinu, hefur óvart
sjálf orðið fréttaefni
vegna heppilegra af-
skipta hennar af heim-
komu Gisla Sigiu-ðssonar
læknis úr gíslaprisund-
inni í Irak. Jóhanna naut
í því efni langvarandi og
ágætra kyima af Aröb-
um. En hún er eini frétta-
maðurinn hér á landi,
sem sinnt hefur málefn-
um Arabaþjóða og nýtur
þar vinsælda og virðing-
ar meðal ráðamanna.“
Hreinræktuð
blaðamennska
„Ekki eru kynni Jó-
hömiu af Aröbum tilkom-
in vegna þess að þar hafi
verið meira að gerast en
annars staðar í heimin-
um. Hhis vegar eru
Arabalöndin mikið óróa-
svæði, en þau eru nú
víðar. Jóhanna virðist
hafa lagt sig eftir Araba-
löndunum vegna þess að
þau hafa verkað dular-
full og svolítið spenn-
andi. Greinar hennar frá
ferðum um Arabalönd
hafa ekki flutt lesendum
nem ný tíðindi. Þar hefur
ekkert komið fram sem
ekki var vitað um Araba.
Hins vegar hafa grehiar
hennar verið merkilegar
vegna þeirra persónu-
legu sjónarmiða og þeirr-
ar forvitni, sem þar gæt-
ir. Greinar hennar um
Araba byggja á upplýs-
higum en ekki gagnrýni.
Þær eru því hreinræktuð
blaðamennska og er al-
veg augljóst, að Arabar
virða þessa íslenzku
blaðakonu vel. Hefði hún
valið leið rannsóknar-
blaðamciinskunnar, sem
koinst mjög í tisku eftir
Watergate-málið í
Bandaríkjunum og
sprakk m.a. út hér í Haf-
skipsmálinu, sem ekkert
var, liefðu Arabar tekið
allt öðruvísi við hemii. I
heimai' skrifum er enghi
„Deep throat", sem veitti
henni upplýsingar um
misferli í stjómkerfinu,
og vafasamt hvort Arab-
ar þekki hugtakið eða
noti það, þótt þeir séu
skrautlegir í ýmsum
blautlegum málum. Hug-
takið skrifast alfarið á
trúvillinga."
Margir reyndu
að hjálpa
„Gísli Sigurðsson
læknir er nú kominn
heim heilu og höldnu eft-
ir Iiarða útivist á vígvelli
í Kúvæt. Margir erlendir
læknar hyllast til að ráða
sig í olíuríkjum vegna
þess að þar eru laun
hærri en annars staðar.
Heim kemur Gísli slypp-
ur og snauður, en reynsl-
uimi ríkarL Hér heima
liafa verið sagðar miklar
fréttir af Gísla meðan
haim sat í gíslingu í Kúv-
æt. Það er ekki nema
eðlilegt, því sjaldgæft er
að Islendhigar lendi i
stríðsátökum erlendis,
nema þá sem hermenn.
Gerðar voru margar og
miklar tilraunir til að ná
Gísla frá Kúvæt og
Bagdad. Þær báru ekki
árangur. Sænski sendi-
herrann í Bagdad reynd-
ist honum vel, einnig
Stefania Rehihartsdóttir,
ræðismaður Islands í
Jórdaníu. Þá gerðu bæði
utanríkisráðuneytið og
forsætisráðherra tilraun-
ir til að fá hann lausan.
Uppi voru hugmyndir
um að senda einhvem
mann til Bagdad til að
freista að fá Gísla lausan.
En segja mátti að það
væri fast sem skratthin
hélt.“
Vantaði mann
ástaðinn
„Þegar hvorki gekk
né rak af hálfu íslend-
inga að fá Gísla lausan,
og liclstu aðgerðir vom
í höndum sænska sendi-
herrans, þótti sýnt að
írakar myndu fara sér
hægt, ncma á staðnum
væri íslendingur sem
gæti talað máli Gísla. Að
vísu vom þær breytingar
að verða á gíslastefnu
Saddams Hussein, að
hann kaus að láta þá
lausa í von um að milda
andstæðinga, svo hann
gæti haldið norðurhluta
Kúvæt eftir samningum.
En áður en til þess kom
ákvað Morgunblaðið að
senda sérlegan sendi-
lierra sinn í Arabaríkjum
til Bagdad til að freista
þess að vinsamlegt sam-
band Jóhönnu Kristjóns-
dóttur við Araba kynni
að bræða þeirra svörtu
hjörtu. Fór nú allt saman,
að Hussehi aflýsti
gislingu og Jóhanna birt-
ist. Margir áttu auðvitað
þátt í því að Gísli slapp.
En fyrir íslenska blaða-
meim, sem hafa útvaðist
dálítið á seinni árum
vegna örrar fjölgunar,
er það gleðiefni, að
blaðakonan kom þar við
sögu.“
HLUTABRÉFAS J ÓÐURINN
AUÐLIND HF.
I
Skattalækkun skiptir máli
fyrir fjárhag fjölskyldunnar
Þeir sem kaupa Einingabréf 2 fyrir ármót
-njóta lækkunar á eignaskatti
-njóta mjög góðrar ávöxtunar og íyllsta öryggis.
Þeir sem kaupa Auðlindarbréf fyrir áramót
-njóta lækkunar á tekjuskatti sem getur numið
verulegum fjárhæðum
-ávaxta fé sitt í hlutabréfum og skuldabréfum traustra og vel
rekinna fyrirtækja.
Leitaðu til sérfræðinga Kaupþings og kynntu þér ótvíræða kosti
þess að eignast Einingabréf 2 og/eða Auðlindarbréf áður en nýtt
ár byrjar.
Við minnum á að þessa viku höfum við til sölu hlutabréf í
Útgerðarfélagi Akureyringa.
KAUPÞING HF
Kringlunm 5, sími 689080