Morgunblaðið - 13.12.1990, Síða 12

Morgunblaðið - 13.12.1990, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1990 Langdregin Bókmenntir Ingi Bogi Bogason Böðvar Guðmundsson: Bænda- býti. (236 bls.) Iðunn 1990. Það var með töluverðri eftirvænt- ingu sem undirritaður las þessa skáldsögu. Böðvar hefur nefnilega öðru hverju gefið út verk, ljóð og leikrit, sem eru athygli verð. Sömu- leiðis kom hann fróðlega á óvart með smásagnasafninu Sögur úr seinni stríðum (1978). Og nú höfum við í höndunum fyrstu skáldsögu hans, Bændabýti. Hvernig ætli hafi svo tekist til? Ekki nógu vel. Sé fyrst litið á þá hluti sem þokkalega eru gerðir má byija á stílnum. Hann er talmálslegur, gáskafullur og fullur af fyndni. Samtölin eru besta einkenni hans. Á einum stað í sögunni er t.d. sagt frá því þegar nærri liggur að aðal- söguhetjan, Þórður Hlíðar, missi hjásvæfu sína, Skjónu, í fangið á sveitunga sínum, Kobba. Hér. er komið í sögunni þar sem Skjóna er aftur orðinn fráhverf Kobba og dóttir hennar, Bína Dís, hefur ekki lengur gaman af kyndugum kúnst- um hans: „Hér var sól hans greinilega sig- in til viðar. ■ ÖRNOGÖRLYGUR hafagef- ið út bókina Barnagælur, Amma yrkir fyrir drenginn sinn, eftir Jóhönnu Á. Steingrímsdóttur með teikningum eftir Hólmfríði Bjartmarsdóttur. í kynningu út- gefanda segir m.a.: „Hér er á ferð- inni einstaklega falleg bók rrieð Ijóð- um Jóhönnu. Hér eru ljóðin hennar ömmu komin með gullfallegum myndum og Ijóðin og myndirnar tengja saman gamalt og nýtt. Svona er hægt að flytja menningar- arf okkar milli kynslóða." „Jæja, veriði nú sælar,“ - sagði hann og tvísté svolítið enn, ef henni mundi nú snúast hugur. „Já, bless, og þakka þér agalega vel fyrir,“ - sagði Skjóna. „Ætlarðu ekki að kveðja, Bína Dís?“ „Bæ,“ - sagði Bína Dís án þess að Iíta í áttina til hans. Þetta var ekki til neins.“ Síðan má hnýta í einstaka orð- notkun. Til að nefna eitthvað: Það orkaði einkennilega á þennan les- anda að sjá göróttan drykk af vissri tegund stafsettan ofursamvisku- samlega á útlenskan máta: „whisky“. Annað velgert er persónusköpun- in. Miðað við að hér er á ferðinni skopsaga - allar persónur yru ýkt- ar í eina eða aðra átt - þá eru þær yfirleitt trúverðugar innan síns ramma. Þórður Hlíðar er í smæstu sem stærstu athöfnum sínum sér- góður, jarðbundinn og ótrúlega blindur á önnur verðmæti en þau sem hægt er að telja í peningum. Og það sem meira er: Hann er fynd- in fígúra. Þá skal vikið að því sem spillir sögunni. Hún er alltof langdregin. Les- andinn gerír ósjálfrátt ráð fyrir að á 236 blaðsíðum gerist töluvert og að hann hafi að afloknum lestri lagt áð baki margslungið ferðalag sem færir honum nýja reynslu. En slík er ekki raunin. Frásögnin er þvert á móti afar eintóna og endurtekningasöm. Það eru engin merkjanleg afgerandi ris .í frásögninni. Einföldum uppákom- um, en ekki endilega hversdagsleg- um, er lýst í alltof löngu máli. Sem dæmi um þetta má nefna þegar Matti gamli deyr og Þórður Hlíðar fær það verkefni að útvega líkkist- una. Þá kviknar sú hugsun í kolli hans hvort ekki sé hægt að hafa dálítið upp úr því: „Spurningin var bara hvað. Fyrst datt honum í hug að leggja svolítið á líkkistuna, það hafði hingað ti! verið sá verslunar- háttur sem hann iðkaði, að kaupa ódýran varning í Reykjavík og selja hann dýrt á heimaslóðum. Við nán- ari athugun fannst honum samt að það væri óviðeigandi að leggja á kistuna. Það yrði hvort sem er eng- inn stórgróði, og svo var það ein- hvern veginn ekki hægt, Matti gamli hafði um langan aldur verið hjú Lárusar afa hans, og ef hann mundi standa straum af útförinni, þá var ástæðulaust að hagnast á honum. í langan tíma hafði Matti svo verið gamalmenni á framfæri Markúsar og Guggu, ef það yrðu þau sem bæru kostnaðinn af útför- inni, þá hafði hann takmarkaða löngun til að græða nokkrar auka- krónur á þeim. Það sama gilti, fannst honum, ef Matti gamli yrði jarðaður á eigin kostnað, þá hafði hann enga löngun til að hagnast á kistukaupunum." Sem sé: Mikið mál um litla hluti. Sé tilgangur höfundar með þess- ari sögu sá einn að segja sögu þá er hann býsna klénn. Einfaldlega vegna þess að söguefnið er ekki nógu sérstakt, nógu merkilegt. Það er svo oft búið að segja sögur um það hvernig peningavaldið útrýmir hefðbundnum lífsháttum af- skekktra sveita. Það er hins vegar trúlegt að höf- undi liggi eitthvað annað og meira á hjarta. Hér skín nefnilega í gegn eins konar tuttugustu aldar afbrigði af Faustminninu. Aðalsöguhetjan selur allt sem hún á - losar sig við dyggðir eins og trúmennsku, ná- Gudjón Sveinsson Snjóhjónin syngjandi SNJOHJONIN SYNGJANDI eftir Guðjón Sveinsson Guðjón Sveinsson er löngu þekktur fyrir barna- og unglingabækur sfnar. Nú kemur frá honum ævin- týri, sem pabbinn segir fjórum dætrum sinum siðustu dagana fyrir jól. Þetta er ævintýri með söngvum eins og þau gerást best. Bókin skiptist í sjö kafia og hentar því vel til að róa óþolinmóðar sálir á jóiaföstunni. I bókinni eru myndskreytingar eftlr Böðvar Guðmundsson ungakærleika og heiðarleika - og gefur sig hinu illa á valdi til þess að öðlast peninga og völd. Og sé þessi ályktun rétt þá er samt eitt- hvað bogið við afstöðu söguhöfund- ar í verkinu. Það er t.a.m. ekki auðfundinn vottur af gagnrýninni eða háðskri afstöðu til Þórðar Hlíðar. Þaðan af síður er um að ræða beina andúð söguhöfundar á tiltektum hans. Þórður Hlíðar er eingöngu skopleg persóna og ávinn- ur sér, ef eitthvað er, samúð lesand- ans en ekki andúð. Jafnt dulin sem opinber afstaða söguhöfundar til hans virðist einfaldlega týnd. Bændabýti endar á því að Þórður Hlíðar hefur unnið flesta þá fjár- hágslegu sigra sem hægt er að vinna í heimasveitinni. Hann er búinn að breyta æskustöðvum sínum í alþjóðlegan frístundastað. Fósturforeldrar hans hafa glatað sjálfsvirðingunni og hafa gefið upp heiðarlegan sveitabúskap til að vinna sem leiguliðar hjá kjörsynin- um. Tvílráður stendur fósturfaðir- inn, Markús, undir lok sögunnar og virðir ráðþrota fyrir sér hvernig búið er að umbreyta sveitinni hans. Um leið og hann stynur úr sér eftir- farandi orðum er eins og hann berg- máli álit lesandans á þessari sögu: „Ég veit það ekki,“ /.../ „Ég veit það andskotann ekki.“ Leiðrétting í ritdómi mínum um Hversdags- höllina eftir Pétur Gunnarsson (7. des. sl.) slysuðust inn villur í beina tilvitnun úr sögunni. Rétt hljómar hún svo: „Afi og amma - stækkun- argleði og segultá - og alveg jafn óbrigðul og þessi tvö: stækkunar- glerið stækkar í hvert skipti og það er borið að auga og segulstálið hleypir títuprjónunum í kekki, allt- af.“ Eru höfundur og lesendur beðnir velvirðingar á þessum mistökum. Annað bnidi af Sigl- firskri verkalýðssögu MYLLU Kobbi, forlag, hefur í samvinnu við Verkalýðsfélagið Vöku á Siglufirði gefið út annað bindi bókarinnar Brauðstrit og barátta - úr sögu byggðar og verkalýðshreyfingar á Siglu- firði, eftir Benedikt Sigurðsson kennara. Þessi bók er ívið stærri en fyrra bindið og eru þau samtals tæpar 1.000 blaðs- íður og prýdd fjölda mynda. í kynningu útgefanda segir m.a.: „Islensk söguritun hefur öld- um saman aðallega snúist um áhrifamikia einstaklinga, skoðanir þeirra og sjónarmið, en alþýðu manna tæpast verið getið öðruvísi en sem nafnlauss fjölda, fylgdar- liðs höfðingjans eða hluta af eign- um hans og búi. Hér er farin gagn- stæð leið, horft á sögusviðið frá sjónarhóli verkafólksins í sumar- verstöðinni og síldarbænum Siglu- firði, sagt frá hagsmunasamtökum þess, kjörum og bráttu, menning- arviðleitni, stjórnmáiastarfi og fé- lagslífi. Þá er jafnframt er gerð grein fyrir sérstöðu bæjarins á síldarár- unum og þeirri gerbreytingu at- Benedikt Sigurðsson vinnulífsins sem leiddi af hvarfi síldarinnar, en í baksýn er alltaf samtímasaga héraðs og þjóðar." Á fjórða hundrað myndir eru í þessu bindi og að sjálfsögðu nafna- skrá og atriðaorðaskrá eins og í fyrra bindinu. Bókin er gefin út í tilefni 70 ára afmælis verkalýðssamtakanna á Sigiufirði. Æviminningar Erlings Þorsteinssonar læknis IÐUNN hefur gefið út Æviminn- ingar Erlings Þorsteinssonar læknis, sem hann hefur sjálfur skrifáð. Fjöldi ljósmynda fylgir efni bókarinnar. í kynningu útgefanda segir: „Eri- ingur Þorsteinsson læknir hefur frá mörgu að segja af langri og við- burðaríkri leið. Frásögnin er krydd- uð glettni og gamansemi, víða er komið við og manna og málefna minnst af hreinskilni og einurð. Hann dregur upp persónulega mynd af föður sínum, Þorsteini Erlings- syni skáldi, og lýsir á eftirminnileg- an hátt æskuheimili sínu. Úr skjóli foreldrahúsanna liggur leiðin til náms og starfa, og að loknu sérnámi í háls-, nef- og eyrnalækn- ingum á stríðsárunum í Danmörku snýr hann heim reynslunni ríkari eftir að hafa lent í lífshættulegum ævintýrum þar. Af alúð og ein- beitni tekst hann á við læknisstarf- Erlingur Þorsteinnson, læknir. ið, hugðarefnin og baráttumálin. Hér er á ferðinni frásögn mikils athafnamanns." Bókin er prentuð í Odda hf.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.