Morgunblaðið - 13.12.1990, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1990
27
h
ríkisvaldsins. Og víst færir hann
sterk rök að því að Landakotsspít-
ali hefur verið fjárhagslega afskipt-
ur en samt ætlað að gegna sömu
skyldum og veita jafna þjónustu við
önnur sjúkrahús sem nær hafa ver-
ið ríkisjötunni. Það virðist alveg
ljóst að án fórnarlundar, hagsýni
og sparsemi systranna hefði Landa-
kotsspítali fyrir. löngu verið hættur
starfsemi sinni. Það er að vonum
að dr. Bjarna svelli nokkur móður
þegar hann hugsar til þess með
hveiju vanþakklæti hefui' verið tek-
ið við hinum stóru gjöfum Landa-
kotssystra.
Dr. Bjarni Jónsson hefur löngum
þótt einbeittur og leikinn með hníf-
inn. Hann er ekki miður einbeittur
og fær nú þegar hann hefur gripið
pennann. Hann veit hvers vegna
hann skrifar þessa bók og, hvert
hann er að fara. En það sem mest
er um vert er að hendinni stýrir
hugur hins trausta og vandaða
læknis, sem setur velferð sjúklinga
sinna öllu ofar. Þessi bók er þörf
og holl lesning.
Islensk alfræðiárbók
ÍSLENSK SAMTÍÐ, Alfræðiárbók Vöku-Helgafells 1991 er komin út.
I bókinni koma 1100 Islendingar við sögu á 364 litprentuðum blaðs-
íðum. Ljósinyndir í bókinni eru 343, tölvuunnar skýringamyndir um
80, teikningar og merki um 50 og margvíslegar töflur uin 150. Atriðis-
orð bókarinnar eru um 3000. Ritstjóri Islenskrar samtíðar er Vilhelm
G. Kristinsson.
Á blaðamannafundi sem efnt var
til í tilefni af útkomu bókarinnar
sagði Ólafur Ragnarsson hjá Vöku-
Helgafelli að alfræðiárbókinni væri
ætlað að veita nútímafólki handhæg-
ar upplýsingar um íslenskt þjóðfé-
lag. Fram kom að hugmyndin að
útkomu bókar af þessu tagi hafi
orðið til fyrir 10 árum en vinna við
bókin hafi staðið í rúmt ár. Ritstjórn
alfræðiárbókarinnar skipa Vilhelm
G. Kristinsson, ritstjóri, ásamt
Bryndísi Kristjánsdóttur, Kristni
Arnarsyni, Ólafi Ragnarsyni og Þór-
arni Friðjónssyni. Auk ritstjórnar-
innar unnu 150 aðilar að efnisöflun
í bókina.
Ólafur lagði í máli sínu áherslu á
myndræna framsetningu í bókinni
sem hann sagði vera til hægðarauka
fyrir nútímafólk. Einnig benti hann
á að auk þess sem ijallað væri um
samtímaatburði væri farið aftur í
tímann og rakið samhengi atburða.
Þá má í bókinni finna yfirlitskafla
um forvitnileg málefni.
Vilhelm G. Kristinsson, ritstjóri,
sagði að eitt aðalvandamál ritstjórn-
arinnar hefði verið að velja efni í
bókina í þeim tilgangi að hún veitti
sem heildstæðasta mynd af íslensku
þjóðfélagi á líðandi stundu. Hann.
sagði að þó margt væri í bókinni
þá ætti eftir að fjalla ’um önnur at-
riði og bæta við en það yrði væntan-
lega gert í næstu alfræðiárbók að
ári.
íslensk samtíð 1991 er að öllu
leyti unnin á íslandi. Hönnun bókar-
innar og uppsetning efnis önnuðust
Ólafur Ragnarsson og Vilhelm G.
Kristinsson. Kápuútlit var unnið hjá
Hvíta húsinu hf. og Vöku-Helgafelli
hf en prentstofa G.Ben sá um um-
brot, prentun og bókband.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Alfræðiárbókin kynnt. Frá vinstri: Þórarinn Friðjónsson, Vilhelm
G. Kristinsson og Olafur Ragnarsson.
HÓTEL LOFTLEIÐIR
REYKJAVÍKURFLUCVELLI. IOI R E Y KJ A V I K
51 M I: 9 1 - 2 2 3 2 2
^^as* ma/antfszasáisi áý’ýrw ídty&na
i
JOOP!
VEGURINN UPPÁ FJALLIÐ
Kjarngott mál, Ijóslifandi persónur, verðug
viðfangsefni og hlý kímni eru sem fyrr
aðalsmerki höfundar.
Ný bók eftir Jakobínu Sigurðardóttur sætir
alltaf tíðindum.
íjanúar mun forsefi íslands frú Vigdís Finnbogadóttir afhenda
íslensku bókmenntaverðlaunin. 15 bækur hafa verið tilnefndar
og eru 6 þeirra gefnar út afMáli og menningu.
Mál
Laugavegi 18. Simi 15199-24240. Síðumúla 7-9. Simi 688577.
og menning
HRAUNHELLAR Á ÍSLANDI
Hér er lýst öllum þekktum íslenskum
hraunhellum, myndun þeirra og sérkennum.
Fjöldi stórfallegra Ijósmynda lýkur upp
furðuheimi íslenskra hraunmyndana á
áhrifaríkan hátt.
SVEFNHJÓLIÐ
er önnur skáldsaga Gyrðis Elíassonar en hann
hlaut Stílverðlaun Þórbergs Þórðarsonar 1989.
Þessi saga er í senn kátleg, ævintýraleg og
ógnvekjandi, skrifuð á blæbrigðaríku og fallegu
máli.
/
i
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA