Morgunblaðið - 13.12.1990, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1990
Bangladesh:
Ershad handtekinn og
þrettán ráðherra leitað
Dhaka. Reuter.
LÖGREGLU- og hermenn handtóku í gær fyrrverandi forseta Bangla-
desh, Hossain Mohammad Ershad. Talsmenn ríkisstjórnar landsins
sögðu að hann yrði leiddur fyrir rétt og ákærður fyrir ýmis afbrot,
allt frá gullsmygli til þjóðararðráns. Bráðabirgðaforseti landsins,
Shahabuddin Ahmed, fyrirskipaði handtöku 13 ráðherra úr ríkisstjórn
Ershads í gær og hóf lögregla þegar leit að þeim.
Ershad, sem komst til valda í dæma Ershad.
stjórnarbyltingu árið 1982, var hand-
tekinn ásamt konu sinni, Roushan
Ara, á heimili þeirra í bækistöðvum
hersins. Þar hafa þau búið síðan
Ershad var vikið úr embætti í síðustu
viku. Embættismenn sögðu að sér-
stakur dómstóll yrði skipaður til að
Sahabuddin Ahmed, bráðabirgða-
forseti Bangladesh, fyrirskipaði
handtö^u 14 ráðherra úr ríkisstjóm
Ershads, þ.á m. fyrrverandi inn-
anríkisráðherra, Mahmuduls Hasans,
sem verið hefur í stofufangelsi frá
því á þriðjudag. „Aðrir ráðherrar
Þegar spurt er um vandaðar og skemmtilegar,
barnabækur á ÁRILÆSIS
— sígildar sagnaperlur
Stefáns Júlíussonar.
í tilefni af 75 ára afmæli
Stefáns Júlíussonar og 50 ára afmæli
Kára litla hafa Kárabækurnar þrjár verið
endurútgefnar. Þetta eru bækumar
Kári litli og Lappi, Kári litli í skólanum
og Kári litli í sveit.
Af sama tilefni em Kárabækurnar
nú einnig boðnar í faUegri öskju.
Kárabækumar hafa margsannað gildi sitt
sém „tæki til að létta börnunum
lestramám", eins og höfundur stefndi að.
ÆSKAN
hafa verið í felum, en við höfum
skipulagt víðtæka leit til áð hafa upp
á þeim,“ sagði háttsettur embættis-
maður.
Andstæðingar Ershads hafa kraf-
ist þess að hann hljóti þunga refs-
ingu. „Ég krefst réttarhalda þegar í
stað og refsingar sem verði öðrum
víti til vamaðar svo engum geti í
framtíðinni dottið til hugar að traðka
á réttindum fólks og hrifsa völd með
ofbeldi," sagði einn þeirra, Begum
Khaleda Zia, leiðtogi Þjóðemisflokks
Bangladesh. „Við höfum nægar
sannanir fyrir sekt Ershads," sagði
hún á flokksfundi.
Nokkur ótti hafði gripið um sig í
Bangladesh þegar Ershad lýsti yfir
því að hann þyrfti ekki að biðjast
afsökunar vegna neins í stjómartíð
sinni og að hann myndi heyja kosn-
ingabaráttu fyrir forsetaembættinu.
Reuter
Varð fyrir lest og lifði af
Sara Gillies, 9 mánaða' gömul, varð fyrir lest í Perth í Ástralíu á
þriðjudag eftir að kerra, sem hún sat í, rann fram af brautarpalli og
lenti á teinunum í þann mund er lest kom inn á stöðina. Móðir henn-
ar, sem er til vinstri á myndinni, hafði litið af Söm eitt augnablik.
Sara dróst með lestinni eina 25 metra áður en sjálfboðaliði í sjúkra-
flutningum, Liz Maisey, til hægri á myndinni, náði henni undan lest-
inni og veitti henni aðhiynningu þá er sennilega hefur bjargað lífí
hennar.
Nýi’ vanianiiíílaráð-
herra skipaður í Irak
Bagdad. Reuter.
SADDAM Hussein, forseti íraks, skipaði í gær þaulreyndan undirhers-
höfðingja, Saadi Tu’ma Abbas al-Jubouri, í embætti varnarmálaráð-
herra í stað Abdul-Jabbars Shanshals hershöfðingja.
Jubouri gat sér gott orð í Persa-
flóastríðinu fyrir raunsæi á vígvelli.
Fráfarandi varnarmálaráðherra hef-
ur gegnt embættinu í meira en tvö
ár. Hann er á áttræðisaldri og var
aðeins skipaður í embættið tjl bráða-
birgða.
Þetta er í annað sinn sem breyting-
ar em gerðar á yfirstjórn íraska hers-
ins frá innrás íraka í Kúvæt 2. ágúst.
Edúard Shevardnadze, utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, útilokaði í
fyrrakvöld að sovéskir hermenn yrðu
sendir til Persaflóa og lagði áherslu
á að deilan yrði leyst í fýrirhuguðum
Eystrasaltsbotn:
Fjórðungur
lífvana
Kaupmannahöfn. Frá N. J. Bruun, frétta-
ritara Morgunblaðsins.
ALLT bendir til þess að um fjórði
hluti hafsbotns Eystrasaltsins sé
nú gjörsneyddur öllu lífi vegna
súrefnisskorts í hafinu.
Þetta kom fram á ráðstefnu um-
hverfissinna og vísindamanna í
Warnemiinde í Þýskalandi. Til um-
ræðu var m.a. gffurlegt magn meng-
andi efna sem streyma út í Eystra-
salt frá verksmiðjum og landbúnaði.
viðræðum Bandaríkjamanna og ír-
aka. Talsmaður bandaríska utanrík-
isráðuneytisins, Richard Boucher,
sagði í gær að írakar kæmu í veg
fyrir að viðræðumar gætu hafist.
írakar vildu að James Baker, ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna,
kæmi til Bagdad til viðræðna við
Saddam Hussein 12. janúar. Banda-
ríkjastjórn hefur hafnað þessu þar
sem fresturinn sem Öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna hefur gefið írökum
til að kalla hersveitir sínar í Kúvæt
heim rennur út aðeins þremur dögum
síðar.
Samningar EB og EFTA:
Agreiningur um físk
tefur pólitíska lausn
Brusscl. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
FRANZ Blankart, aðalsamningamaður Svisslendinga og talsmaður
Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA) í samningaviðræðunum við
Evrópubandalagið (EB), sagði við blaðamenn í Brussel í gær að
engin pólitísk lausn væri hugsanleg á viðræðunum án þess að við-
unandi lausn fengist á ágreiningi um fisk. I nýlegum tillögum
EFTA-ríkjanna er krafist tollfijáls aðgangs fyrir sjávarafurðir inn
á markaði EB og öllum hugmyndum um að tengja hann aðgangi
að fiskimiðum hafnað.
I gær lauk í Brussel sameigin-
legum fundi yfirsamninganefnda
EFTA og EB um Evrópska efna-
hagssvæðið (EES). Eftir fundinn
þykir ljóst að sú pólitíska lausn sem
stefnt er að í viðræðunum finnst
ekki á þessu ári en vonir hafa ver-
ið bundnar við að slíkur árangur
næðist á sameiginlegum ráðherra-
II
MEÐ ALLT I ROÐ OG REGLU
með D seven star
ÚTSÖLUSTAÐIR:
GRÍMA, GARÐATORGI3, GARÐABÆ
ÍSAFOLD, AUSTURSTRÆTI10, RVK.
KIRKJUHÚSIÐ, KIRKJUHVOLI, RVK.
MÁL OG MENNING, LAUGAVEGl 18, RVK.
MÁL OG MENNING, SÍÐUMÚLA 7-9, RVK.
NESBÓK, HAFNARGÓTU 36, KEFLAVÍK
KIRKJUFELL
HEILDVERSLUN
SÍMI 666566
fundi bandalaganna 19. desember.
Það var samdóma álit talsmanna
EFTA og EB að nokkuð hefði mið-
að í samkomulagsátt og ýmis atr-
iði hefðu skýrst, t.d. hvað varðar
stjórn EES.
Enn sem komið er hefur EB
ekki lagt fram neinar tillögur til
lausnar deilunum um físk og ekki
er búist við þeim fyrr en í fyrsta
lagi í janúar á næsta ári en það
útilokar möguleikana á því að sá
hnútur, sem viðræðumar hafa ver-
ið í, leysist. EFTA hefur fyrir sitt
leyti fallið frá kröfunum um
fríverslun með sjávarafurðir og er
jafnframt reiðubúið til að viður-
kenna viðmiðunarverð EB á fisk-
mörkuðum bandalagsins en ekki
hafi öll efnisatriði samkomulags
um þessi efni verið til umræðu til
þessa.
Innan EB er litið svo á að um-
ræðumar einkennist nú af raunsæi
sem hafi verið takmarkað áður. Á
talsmönnum bandalagsins er helst
að skilja að það sé í valdi EFTA-
ríkjanna hvenær höggvið verður á
hnútinn og ef ráðherrar EFTA
kjósi að horfast í augu við raun-
veruleikann verði eftirleikurinn
auðveldur. í viðræðunum um sam-
eiginlegar ákvarðanir sem varða
EES er samkomulag um að þær
verði samhljóða teknar á sama
tíma af báðum aðilum og taki gildi
á sama tíma.