Morgunblaðið - 13.12.1990, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 13.12.1990, Blaðsíða 46
Búfjárhald: Trygg vel- líðan og örugg gæsla STEINGRÍMUR J. Sigfússon, landbúnaðarráðherra mælti á 19. fundi efri deildar fyrir stjórnar- frumvarpi um búfjárhald sem hef- ur þann tilgang að „tryggja vell- íðan búfjár, góða meðferð og að það hafi ætíð nægilegt fóður og drykkjarvatn". I framsögu ráðherrans kom m.a. fram að frumvarpinu er ætlað að koma í stað ákvæða í búfjárrækt.ar- lögum frá 1973 varðandi lausagöngu gripa og forðagæslu, svo og laganna um búfjárhald í kaupstöðum og kauptúnum frá 1964. Frumvarps- drög voru send Búnaðarþingi og gerðar nokkrar breytingar til sam- ræmis við ábendingar þingsins eftir því sem fært þótti. Landbúnaðarráðherra sagði það mikilvæga kerfisbreytingu að færa framkvæmd lagaákvæða um búfjár- hald á eina hendi, þ.e.a.s. sá mála- flokkur væri nú vistaður í einu ráðu- neyti. Einnig væri að finna í frum- varpinu ákvæði um heimildir land- búnaðarráðherra til að gefa út reglu- gerðir um aðbúnað og meðferð ein- stakra búfjártegunda, þar væri og að finna mikilvægt ákvæði um leyfi- sveitingu til búfjárhalds og væri gert ráð fyrir að unnt væri að ten'gja slíkt leyfi framleiðslustýringu. Ennfremur kom fram í ræðu landbúnaðarráð- herra að frumvarpið hefði ekki í för með sér kostnaðarauka fyrir ríkis- sjóð. Frumvarpið gerir m.a. ráð fyrir að sveitarstjórnum sé heimilt með samþykktum staðfestum af landbún- aðarráðherra að ákveða að búfjár- hald sé með öllu bannað í viðkom- andi sveitarfélagi eða takmarkað við tiltekin svæði innan sveitarfélagsins. Ennfremur er sveitarstjórnum heim- ilt til að .koma í veg fyrir ágang búfjár, að ákveða að eigendum búfj- ár sé skylt að hafa það í vörslu allt árið eða tiltekinn hluta ársins. Frum- varpið kveður á um að landbúnaðar- ráðherra setji með reglugerð almenn ákvæði urn vörslu búfjár en þó Ijóst: „Graðpeningi skal haldið í öruggri vörslu sem hér segir: 1. Naut, 6 mánaða og eldri, allt árið. 2. Hrútar og hafrar á tímabilinu frá 1. nóvemb- er til 1. maí.ár hvert. 3. Graðhgstar eða laangraðir hestar, 18 mánaða Og.eíthfij^aftt á<iðj* í áðtugasem^iim með frumvarp- • . iWierr'fea: ságbað nýverið hafr nefnd sem.-jfjáltáði/ilmvhúfé ávþjóðvegum Séui Íbéndingar" ubt iiiörg. máí ‘ '. <þ.ör£*.sé 0 að skðþa í sambandi fþiðj’ þannan raálitflókk. Ljóst sé. að hér.séumgffurlega míkið hagsmúna- mál að ræðá þar sem eftir sé að fjalla um marga þætti málsins áður en til endanlegra ákvarðaná koml í frumvarpinu er gert ráð fyrir 'sérstökum búfjáreftirlitsmönnum og skulu þeir launaðir af sveitarsjóði en sveitarstjómum skal helmilt að inn- heimta gjald- af búfjáreigendum til að standa undir kostnaði. Frumvarpið er nú í vörslu og með- ferð landbúnaðarnefnar en um það hafði landbúnaðarráðherra gert til- lögu. MORGUNBLADH) FIMMTUDAGÚu ÚV. bESEkÚÉÍt I99ö' • • Oryggismál: Þrjú frumvörp frá Salóme Þorkelsdóttur SALOME Þorkelsdóttir (S-Rn) mælti í gær í efri deild fyrir þrem frumvörpum sem snerta öryggi og heilbrigði landsins barna. Hún vill breyta umferðar- lögum, lögum um virðisauka- skatt, og hún vill stofna slysa- varnaráð. Umferðarlög „Á eftir 1. mgr. 72. gr laganna komi ný málsgrein er orðist svo: Barn, tólf ára eða yngra, sem hjól- ar eða er rétt á reiðhjóli, skal nota hlífðarhjálm. Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1991.“ Salóme þurfti ekki að hafa mörg orð um þessa tillögu, hún skýrði sig sjálf. Salóme sagði frumvarp um þetta efni áður hafa verið lagt fram en ekki náð fram að ganga. Salóme taldi að allir hlytu að vera sammála um mikilvægi þess að koma í veg fyrir höfuð- áverka á börnum. I könnun sem Hagvangur gerði voru 90% að- spurðra hlynntir lögleiðingu reið- hjólahjálma. Meðflutningsmenn með Salóme eru: Eiður Guðnason (A-Vl), Eyjólfur Konráð Jónsson (S-Rv), Danfríður Skarphéðinsdótt- ir (SK-Vl), Guðmundur Ágústsson (B-Rv), Guðrún J. Halldórsdóttir (SK-Rv), Halldór Blöndal (S-Ne), Karl Steinar Guðnason (A-Rn), Margrét Frímannsdóttir (Ab-Sl), Skúli Alexandersson (Ab-Vl) og Valgerður Sverrisdóttir (F-Ne). Málinu var vísað til allshetjar- nefndar. Virðisaukaskattur Salóme vill að sala á barnabílstól- um, bílpúðum sem festir eru með bílbeltum eða öðrum viðurkenndum öryggisbúnaði fyrir börn í bifreið- um, svo og sala ár öryggishjálmum fyrir reiðhjóla- eða vélhjólaakstur verði undanþegin virðisaukaskatti frá og með 1. júlí 1991. Salóme þurfti ekki heldur að hafa mörg orð um þessa tillögu en hún benti á að sannað væri að þessi öryggisbúnað- ur gæti orðið til að koma í veg fyr- ir alvarleg slys og vildi hún stuðla að því að lækka verð þessara hluta, því þeir kostuðu foreldra töluverðar fjárhæðir. Það kom fram í ræðu flutningsmanns að virðisaukaskatt- urinn af bílstólum næmi 24,5%, auk 5% jöfnunargjalds, samtals 30,7% Salóme þóttist vita að margir þing- menn væru tregir til að bæta við undaþágum undan virðisauka- skatti, en taldi að þær væru nú þegar orðnar nokkrar — og tekjutap ríkissjóðs myndi vinnast örugglega til baka í sparnaði á slysa- og sjúkrahússkostnaði. Guðrún J. Halldórsdóttir (SK- Rv) lýsti yfir stuðningi við frum- varp og rök Salóme, taldi þetta mál vera hið arðvænlegasta fyrir þjóð- ina. Þessu frumvarpi var vísað til fjár- hags- og viðskiptanefndar. Slysavarnaráð Salóme Þorkelsdóttir leggur til að stofnað verði sjö manna slysa- varnaráð sem heyri undir heilbrigð- isráðherra. Hlutverk ráðsins skal m.a. vera ríkisstjórn, ráðherra og slysavarnanefndum, héruðum o.fl. til ráðuneytis um allt er lýtur að slysavörnum. Gera tillögur til heil- brigðisyfirvalda um áhersluatriði í slysavörnum. Sjá um og stuðla að rannsóknum á orsökum og afleið- ingum slysa og fylgjast með nýj- ungum og reynslu annarra þjóða í slysavörnum. Samræma störf þeirra aðila sem vinna að slysavörn- um. Lagt er til að landlæknir skipi formann ráðsins en eftirtaldir til- nefna menn í ráðið: Læknadeild Háskóla íslands, dómsmálaráð- herra, Vinnueftirlit ríkisins, Slysa- varnafélag íslands, Samband íslenskra tryggingafélaga og Sam- band íslenskra sveitarfélaga. Flutningsmaður var formaður Bráðabirgðalögin rædd á kvöldfundi neðri deildar UMRÆÐUM um bráðabirgðalögin, kennd við BHMR, héldu áfram á kvöldfundi neðri deildar síðastliðinn þriðjudag. Umræðan var almenns eðlis; um bráðabirðalögin, stjórnskipunarlög og siðferði, efnahagsmál og árangur ríkisstjórnarinnar á því sviði. Umræður drógu nokkurn svip af því sem sagt hafði verið fyrr um daginn. Sjálfstæðismenn gagnrýndu enn sem fyrr málsmeðferð ríkis- stjórnarinnar sérstaklega forsætis- ráðherrans og fjármálaráðherrans. „Klámsýning á ís- ienska þingræðinu" Geir H. Haarde (S-Rv) sagði að þjóðarsáttin og kjarasamningar myndu renna út næsta haust og auðvitað yrðu gerðir nýir kjarasamn- ingar en stjórnskipun landsins muni standa um aldur og ævi og á henni hafi menn ekki leyfi til að traðka. Hann sagði að ef ríkisstjórnin hefði rofið þing til að setja ný bráðabirgða- lög um sama efni hefði það ekki veríð neitt annað en þingræðislegt klám. Geir sagði að bráðabirgðalögin væru ekki spurning um efnahagsmál heldur fremur spurning um stjórn- skipan landsins. Ráðherrar hefðu leikið sér að stjórnarfarsreglum og grafið undan þeim og það væri um- hugsunarefni fyrir Olaf Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, próffess- or í stjórnmálafræði, að taka þátt í þeím leik. . Geir ságði -að framkóma rikis- stjótnarítmar staðfesti nú að'setfúng bráðáþfrgðalagæ værj úrelt.;' Hánn sagðí að’þirigrpteúaldfð væri, á hendi eibs' mánns, forsætisráðherra, þar sem ékki virðist iiggja fyrir'neittr samkomulag formanna stjórnar- flokkanna um að því verði ekki beitt nema með samkomulagi. ■ „Bráðbirgðaiagavaldið er úrelt fyrirbæri og á engan rétt á sér eins og samgöngum og ijarskiptum er nú háttað. Þingrofsvaldið er í meira lagi vafasamt eins og til stóð að beita því hér fyrir viku. Manni hefur skilist í þeirri umræðu að hæstvirtur forsætisráðherra þessarar n'kis- stjórnar fari einn með þingrofsvaldið og það hafi ekki verið gerður samn- ingur með formönnum stjórnmála- flokkanna um að eigi verði gripið til þingrofs nema allir séu því samþykk- ir eins og þó hefur verið venja í mörgum undanförnum ríkisstjórn- um,“ sagði Geir H. Haarde. Hann beindi þeirri spurningu til forsætisráðherra hvað hann hygðist gera ef dómar sem BHMR hafa höfð- að gegn ríkisstjórninni falla henni í óhag. Hvort ríkisstjórnin hygðist þá segja af sér eða ijúfa þing og setja ný bráðabirgðalög eftir að þingi hef- ur verið slitið og breyta forsendum þess dóms sem þar kann að verða kveðinn upp. Geir kvaðst virða þá afstöðu Hjör- leifs Guttormssonar að koma í veg fyrir klámsýningu þá, sem ríkis- stjórnin ætlaði að efna tii á.íslenska þingræðinu, með því að greiða bráða- birgðalögunum atkvæði. Ólafur G. Einarsson ‘(S-Rn) ítrekaði að þjóðarsáttin og bráða- birgðalögin væru tvö óskyld mál. Sjálfstæðismenn hefðu með sam- þykkt þingflokksins verið að iýsa andúð sinni á bráðabirgðalögunum og öilum aðdraganda þeirra. Hann sagði að stjórnarliðar hefðu ljáð máls á því við: sjálfstæðismenn að ríkisHtjórnin hætti við áform um ■ Rkattaiiækkanir gegn því að sjáif- stæðisnjéún _ stæðu ekki gegn af- ' greiðslu bráðabirgðaláganna. Sagði Olafur.áó. ekki yrði á þann hátt versl- uð ineð^almenn manm'éttindi og lýð- ræði. Oiafúr sagði að Sjálfstæðis- fiokkurinn hefði haldið því fram að virða beri samninga, reglur þingræð- is og lýðræðis og þrígreiningu valds- ins en ríkisstjórnin hafi gengið gegn þessu öilu. Með áformum um skatta- hækkanir hefði ríkisstjórnin sjálf ætlað að svíkja þjóðarsáttina. Ólafur sagði að forsætisráðherra hefðUýst því yfir að ekki hefði verið ætlunin að setja bráðabirgðalögin að nýju óbreytt og beindi síðan þeirri spurningu til fjármálaráðherra og utanríkisráðherra hvað þeir hefðu haft í hyggju þegar þeir lýstu þeirri skoðun sinni að ijúfa bæri þing þeg- ar í stað og setja bráðabirgðalögin aftur í samband. „Alit þetta ber vott um þá spillingu sem hefur verið ráð- andi hjá þessari ríkisstjórn frá fyrstu tíð. Spilling í öliu sjóðasukkinu, sem fór af stað um leið og ríkisstjórnin var mynduð, spilling í áfengiskaup- um, spilling í hinu ferðahvetjandi kerfí eins og forsætisráðherra orðaði það og spilling í umgengni ríkis- stjórnarinnar við þingræðið, lýðræðið og dómstólana í landinu. Þessa óheillaþróun þarf að stöðva en það verður ekki gert meðan þessi ríkis- stjórn er við völd í landinu," sagði Ólafur. Hann sagði að það yrði viðfangs- efni næstu ríkisstjórnar að reisa við þann trúnað sem verður að ríkja milli ríkisstjórnar og þeganna, en það yrði ekki létt verk ef einhver núver- andi stjórnarflokka yrði í næstu ríkis- stjórn. Þorsteini Páisyni (S-Sl) þótti að forsætisráðherranum kæmu váboðar og hættumerki stórum á óvart og hefði áhyggjur af — en minna bæri á úrræðum. Forsætisráðherrann hefði ekki annað svar um hvað við ætti að taka eftir að þjóðarsátt lyki í september, annað en hann vonaði að það yrði ekki ftjálshyggja. Þar væri ráðherrann að snúa útúr ábend- ingum um að miðstýrð launastefna væri erfið í- framkvæmd þegar tll lengdar léti, Vandámál söfnuðust-- fyrir við stíflurnar. Qg reynslan sýndi að oft væri árangurinn verri en sá vandi sem varna átti. Svo vírtist áð frjálsir Kjarasamningar væru fijáls- hyggja í huga forsætisráðherrans sem sæi ekki önnur úrræði gegn verðbólgu en ólög og svikna samn- inga. Löng saga Ráðherrar ríkisstjórnarinnar tóku á móti orrahríð sjálfstæðismanna og sendu nokkur skeyti til baka. T.a.m. vísaði Óiafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra því á bug að ekki hefði verið unnið að fullum heilindum að samningum og endurskoðun nefndar sem þáverandi heilbrigðis- ráðherra Ragnhildur Helgadóttir skipaði árið 1987 til að gera tillög- ur til varnar slysum. Salóme sagði að núverandi heilbrigðisráðherra Guðmundur Bjarnason hefði ákveð- ið að stofna slysavarnaráð en Salóme vildi að þetta yrði tryggi- lega í lög fest. Það kom fram í umræðum milli flutningsmanns og Jóhanns Ein- varðssonar (F-Rn) að nefndinnni auðnaðist ekki að ljúka sínu starfi fullkomlega og skila formlegu áliti og þess vegna væri ekki beðið eftir stjórnarfrumvarpi frá heilbrigðis- ráðuneyti en Salóme vildi að þetta „brennandi áhugamál“ yrði í lög fest. Þótt ráðherra ætlaði að stofna slíkt ráð, lægi ekkert fyrir um að tilvera þess yrði tryggð með lögum. Málinu var vísað til heilbrigðis- og trygginganefndar. kjaramála BHMR, en endurskoðun, starfsmat og samanburður hefði reynst mun erfiðari og tímfrekari en ætlað hefði verið. Fjármálaráðherra greindi einnig frá fundum og viðræð- um við aðildarfélög BHMR til að eyða tortryggni og fjandskap sem ætti sér lengri sögu en núverandi ríkisstjórn. Fjármálaráðherra sagðist sakna úrræða sjálfstæðismanna í þessum umræðum þeir töluðu um skatta- lækkanir en minna bæri á niður- skurðinum sem slíku fylgdi. Ráðher- ranum þótti lítið til um framgöngu forystumanna Sjálfstæðisflokksins varðandi bráðabirgðalögin, sagði t.d. að þetta frumhlaup, og frumraun borgastjórans í Reykjavík hefði leitt til þess að forystumenn í atvinnulíf- inu veltu því nú fyrir sér hvort hægt væri að treysta Sjálfstæðisflokknum til að taka við stjórnartaumum. Svo var að skilja að á ráðherra að taum- amir væru vel í hans höndum komn- ir, rakti hann jákvæðar umsagnir ýmissa aðila en ekki hvað síst taldi hann til tekna að „Markaðurinn hefði fellt sinn sanngimisdóm“ t.a.m. -rok- seldust spariskýrteini ríkissjóðs. Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra rakti í sinni ræðu flesta þætti málsins. Taldi rök og gagnrýni sjálfstæðismanna lítilvæg. Bráðabirgðalögin hefðu ekki brotið gegn stjómarskrá og brýna nauðsyn hefði borið til að setja lögin. Utanríkisráðherra vildi ekki þakka ríkistjórninni allan árangur í efna- hagsmálum sem þjóðarsáttin hefði gert mögulegan en hún hefði skapað þær forsendur sem gert hefðu hana mögulega. I máli ráðherra komu fram áhyggjur yfír aukningu pen- ingamagns í umferð og taldi hann Seðlabanka béra hér nokkra ábyrð. Friðrik Sophusson (S-Rv); reifaði máiið og máiflutning stjómarsinna'. T.a.m. sagði hann fjáfmálráðherra ékki leita eftir stefnu Sjálfstæðis- flokksins. þegar helst væri'þörf og gagn að; við gerð fjárlaganna. Stefán Vaigeirsson (SFJ-Ne) ítrekaði þau ummæli sín að kosning- ar um miðjan vetur hefðu verið ger- ræði og einnig tillitsleysi við lands- byggðina. Hann- sagði líka að þjóðar- sátt stæðist ekki nema tekið væri á ýmsu misrétti og óréttiæti t.a.m. í vaxtamálum. Hann taldi allt þetta mál vera til vitnis um það — sem hann hefði reyndar lengi grunað — ráðherrana skorti dómgreind. Umræðum um staðfestingu bráða- birðalaganna lauk kl. 00.36.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.