Morgunblaðið - 13.12.1990, Qupperneq 48
MÓRGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DEs’eMBER 19ð0
Dalvík:
Áhugi á að
ráða sjúkra-
þjálfara
Dalvík.
Mikill áhugi er á því á Dalvík
að ráðinn verði sjúkraþjálfari
við Heilsugæslustöðina. Fjöl-
mennur fundur var haldinn um
þessi mál á Dalvík þar sem flutt
voru erindi um sjúkraþjálfun
og gildi hennar í almennri
heilsuvernd og uppbyggingu
líkama eftir slys eða annað
heilsutjón.
Til fundarins var boðað af stjórn
Heilsugæslustöðvarinnar og
áhugafólks um sjúkraþjálfun.
Hingað til hafa Dalvíkingar þurft
að sækja sjúkraþjálfun til Akur-
eyrar og telja læknar ekki full not
af þjálfuninni þegar fólk þarf að
aka svo langt í misjöfnu færi í
svartasta skammdeginu, en þá er
oftast mest þörfin á sjúkraþjálfun.
Á fundinum greindi Guðmundur
Jónsson sjúkraþjálfari frá hver
væru helstu viðfangsefni sjúkra-
þjálfara í starfi og hvað til þyrfti
af búnaði til að sjúkraþjálfari
gæti hafið störf. Pétur Pétursson
heilsugæslulæknir á Akureyri
greindi frá reynslu sinni af starfi
sjúkraliða í læknishéraði af svip-
aðri stærð og Dalvík. Pétur var
starfandi heilsugæslulæknir á Bol-
ungarvík og barðist fyrir því þar
að fá sjúkraliða ráðinn. Tókst það
í samvinnu við atvinnurekendur
og skólayfirvöld. Fram kom í máli
Péturs að honum fannst alvarlegt
hversu lítið menn nenntu að hreyfa
sig og notuðu bílinn eins og yfír-
hafnir. í litlum þorpum gætu menn
alveg notað hjól eða gengið í vinn-
una. Þannig fengju þeir nokkra
hreyfíngu sem efldi og styrkti líka-
mann.
Gerður var góður rómur að
máli Guðmundar og Péturs og
allnokkrar umræður urðu að þeim
loknum. Á fundinn mættu heilsu-
gæslulæknar á Dalvík og Ólafs-
firði og kom fram í máli þeirra
að þeir eru mjög áhugasamir um
þetta mál. Þegar hafa íbúar þess-
ara byggðarlaga sýnt þessu máli
mikinn áhuga með gjöfum til
tækjakaupa fyrir sjúkraþjálfun.
Talið er að þessi tvö heilsugæslu-
svæði beri 3 sjúkraþjálfara, en
íbúar þeirra eru 3.600. Bæjaryfir-
völd á Dalvík hafa lýst vilja sínum
til að vinna þessu máli framgang
og kom fram mikill vilji fundar-
manna til að styðja það mál.
Fréttaritari
Gullfallegar
Íólagjafir
j/acnlÍrujL
enrabudin
Hafnarstræti 92
Sími 96-26708
Háskólanum
færð gjöf
Herra Gísli Sigurbjörnsspn,
Rannsóknarstofnuninni Neðra-Ási,
Hveragerði, sendi nýlega Háskólan-
um á Akureyri peningagjöf að upp-
hæð 250 þúsund krónur með þeim
fyrirmælum að sú upphæð skyldi
renna í Starfssjóð háskólans. I
fréttatilkynningu frá Haraldi
Bessasyni rektor Háskólans á Akur-
eyri er þessi höfðinglega gjöf þökk-
uð.
Tveir Mývetn-
ingar áttu
merkisafmæli
Björk, Mývatnssveit.
NYLEGA áttu tveir mývetnskir
bændur merkisafmæli.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Á FLJUGANDIFERÐ
Verð á jólasteikinni lægst í Hagkaup:
Daglegar verðlækkanir
vegna verðkönnunarmnar
Keppinautar Hagkaups segja vörur
þar seldar undir heildsöluverði
VERÐ á jólasteikunum er að jafnaði lægst í Hagkaup, af þeim
verslunum sem könnun Neytendafélags Akureyrar og nágrennis
náði til, en félagið gerði nýlega verðkönnun á ýmsum gerðum,
svína-, Iamba-, nauta- og fuglakjöts sem gjarnan eru á jólaborði
landsmanna. Kannað var verð 25 vörutegunda í 6 verslunum á
Akureyri.
Hagkaup bauð lægsta verð á
11 vörutegundum af 25, en í
tveimur tilfellum var um að ræða
sama verð í verslunum, óhamflett-
ar tjúpur kostuðu 488 krónur í
þremur verslunum og einnig var
verð á aligæs hið sama, 1269 krón-
ur.
Hjá B. Jensen, þar sem um er
að ræða kjötvinnslu, var verðið
lægst á 9 vörutegundum. Mat-
vörumarkaðurinn var með lægsta
verð á tveimur vörutegundum og
einnig voru tvær vörutegundir,
aligæsin og ijúpan, á sama verði
þar og í Hagkaup. Hrísalundur var
með lægst verð'í einu tilviki og í
öðru var um að ræða sama verð
og í fleiri verslunum. Plúsmarkað-
urinn bauð lægsta verð á einni
vörutegund, og í tveimur tilvikum
var um að ræða sama verð og í
öðrum verslunum. í KEA Nettó
var ekki um að ræða lægsta verð
í neinu tilviki.
í greinargerð Vilhjálms Inga
Árnasonar formanns Neytendafé-
lags Akureyrar og nágrennis kem-
ur fram að mikil spenna hafi ríkt
hjá kaupmönnum við gerð könnun-
arinnar, verðið hafi lækkað dag
frá degi í samkeppni um hylli neyt-
enda, verðskráin frá því fyrir helgi
hafi orðið úrelt vegna sífelldra
undirboða og tilboðsverða. „Hag-
kaup hefur lækkað verð á sinni
kjötvöru umfram flesta aðra, vilja
keppinautarnir meina að einhveij-
ar tegundir hljóti að vera seldar
undir venjulegu heildsöluverði, t.d.
býður Hagkaup margar tegundir
á lægra verði en B. Jensen sem
er næstódýrastur, þó hann vinni
vöruna sjálfur og selji milliliða-
laust,“ segir Vilhjálmur Ingi í
greinargerð sinni með könnuninni,
en þar hvatti hann neytendur til
að gæta einnig að verði á öðrum
vörutegundum.
Ketill Þórisson í Baldursheimi
varð sjötugur 9. desember. Hann
hefur stundað þar búskap um langa
tíð. Foreldrar hans voru Þórir
Torfason og Þuríður Sigurðardóttir.
Á afmælisdaginn bauð Ketill íjölda
fólks heim til sín þar sem veitt var
af miklum myndarskap og áttu
menn ánægjulega stund á heimili
hans.
Jón Kristjánsson á Skútustöðum
varð 80 ára 10. desember. Foreldr-
ar hans voru Kristján Helgason og
Soffía Jónsdóttir. Jón hefur um
fjölda ára stundað búskap á Skútu-
stöðum með bræðrum sínum. í til-
efni þessara tímamóta bauð hann
fjölda Mývetninga og fleirum til
veglegs afmælisfagnaðar á heimili
Kristjáns Yngvasonar og Sigrúnar
Jóhannsdóttur. Þar þáðu viðstaddir
rausnarlegar veitingar, síðan var
ijöldasöngur fram á nótt við undir-
leik Arnar Friðrikssonar.
Mývetningar senda þessum heið-
ursmönnum bestu árnaðaróskir og
þakka þeim löng og ánægjuleg
kynni.
Kristján
500 með kvef og hálsbólgu
KVEF og hálsbólga hijáðu tæp-
lega 500 manns sem leituðu til
Heilsugæslustöðvarinnar á Ak-
ureyri í síðasta mánuði, að því
er fram kemur í skýrslu um
smitsjúkdóma fyrir nóvember-
mánuð.
Sex manns fengu matareitrun
af völdum baktería í síðasta mán-
uði, þá fengu 18 hlaupabólu, 26
streptókokka-hálsbólgu og 16
lungnabólgu. Flestir þjáðust af
kvefi, rétt um 500 manns og um
120 voru skráðir með magaveiki.
100 ára vígsluafmæli
Eyrarbakkakirkju
AÐ undanförnu hefur þess verið
minnst við guðsþjónustur í Eyr-
arbakkakirkju að eitthundrað ár
eru liðin síðan séra Hallgrímur
Sveinsson biskup vígði kirkjuna.
Það var 14. desember árið 1890
og af því tilefni verður haldin
samkoma í kirkjunni á föstudags-
kvöld 14. desember með fjöl-
breyttri dagskrá.
Samkoman hefst kl. 20.30 með
ávarpi kirkjumálaráðherra, Óla Þ.
Guðbjartssonar. Þá mun sr. Magnús
Guðjónsson biskupsritari flytja
þætti úr sögu kirkjunnar og Sólveig
Hjálmarsdóttir syngja einsöng við
undirleik Bjarna Jónatanssonar.
Kór Fjölbrautarskóla Suðurlands
syngur undir stjórn Jóns Inga Sig-
urmundssonar og kirkjukór Eyrar-
bakkakirkju mun syngja sálma, sem
sungnir voru við vígsluathöfnina
fyrir hundrað árum, undir stjórn
Rutar Magnúsdóttur sem einnig
leikur á orgel. Þá leikur Haukur
Guðlaugsson söngmálastjóri þjóð-
kirkjunnar á orgel og Bjarni Jónat-
ansson á píanó. Þeir Guðjón Magn-
ússon og Guðlaugur Hauksson leika
á fiðlur og Gísli Ferdinandsson á
flautu. Nemendur úr Tónskóla Ár-
nessýslu munu einnig leika á píanó
á samkomunni.
í tilkynningu sem Sóknarnefnd
Eyrarbakkakirkju hefur sent frá sér
vegna samkomunnar er þakkað fyr-
ir þá blessun er borist hefur frá
kirkjuhúsinu nú í eina öld og allir
velunnarar kirkjunnar boðnir vel-
komnir til þessarar samveru.
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
Eitthundrað ár eru nú liðin siðan séra Hallgrímur Sveinsson
biskup vígði Eyrarbakkakirkju.