Morgunblaðið - 13.12.1990, Side 49

Morgunblaðið - 13.12.1990, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1990 49 Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar: 45% neikvæðir gagnvart stefnu stjórnvalda í landbúnaðarmálum 65% eru andvígir innflutningi á sambærilegum búvörum og framleiddar eru hér á landi SAMKVÆMT niðurstöðum þjóðmálakönnunar Félagsvísindastofn- unar eru um 45% íslendinga neikvæð gagnvart stefnu sljómvalda í landbúnaðarmálum, en 23% eru jákvæð gagnvart stefnu sljórn- valda og 33% eru hlutlaus eða óviss í afstöðu sinni. Um 64% þjóðar- innar eru andvíg innflutningi á sambærilegum búvörum og fram- leiddar eru hér á landi, um 31% eru því fylgjandi og um 5% em hlutlaus eða óviss. Þá telja um 47% að umræða um íslenskan land- búnað sé ósanngjörn, en um 26% telja hana vera sanngjarna. Könnun Félagsvísindastofnunar var unnin fyrir markaðsnefnd landbúnaðarins, og að sögn Níelsar Arna Lund, formanns markaðs- nefndarinnar, verða niðurstöðurnar meðal annars notaðar sem gagnagrunnur til að byggja störf nefndarinnar á, og sem vísbend- ing um það hvar bæta þurfi ímynd íslensks landbúnaðar. Markmið könnunarinnar yar að afla upplýsinga um viðhorf íslend- inga til íslensks landbúnaðar og ýmissa mála sem honum tengjast. Fólk var meðal annars spurt um afstöðu til landbúnaðarstefnu hins opinbera, innflutnings á ýmsum landbúnaðarvörum, og hollustu og gæðaeftirlit með landbúnaðarvör- um. Þá var spurt um ýmis um- hverfismál sem að landbúnaði snúa, og um afstöðu fólks til ýmissa fyrirtækja og stofnana. Einnig var spurt um afstöðu til mismunandi búgreina, niður- greiðslna og útflutningsbóta. Varðandi þá spurningu hvort fólk sé jákvætt eða neikvætt gagn- vart stefnu stjómvalda í landbún- aðarmálum kemur fram að þeir sem hafa verið aldir upp í dreif- býli eða hafa verið í sveit eru já- kvæðari en þeir sem ekki hafa þessi tengsl við dreifbýlið. Ef litið er á afstöðu fólks eftir því hvaða stjómmálaflokk það styður kemur í ljós að 47,7% þeirra sem styðja Framsóknarflokkinn eru jákvæðir gagnvart stefnu hins opinbera, 36% þeirra sem styðja Alþýðu- bandalagið, 19,6% stuðnings- manna Alþýðuflokksins og 14,7% þeirra sem styðja Sjálfstæðisflokk- inn. Þeir svarenda í könnuninni, sem lýsa sig andvíga innflutningi á búvörum, voru spurðir hvort það myndi breyta afstöðu þeirra ef ljóst væri að innfluttar landbúnað- arvömr væru ódýrari en innflutt- ar. Þegar svörin við þessari spurn- ingu hafa verið lögð við svörin úr upphaflegu spumingunni fer hlut- fall þeirra sem em fylgjandi inn- flutningi í 40% og hlutfall andv- ígra niður í 54%. Þeir sem eru fylgjandi innflutningi samkvæmt upphaflegu spurningunni vom spurðír að því hvort það myndi breyta afstöðu þeirra ef ljóst væri að innflutningur búvara hefði í för með sér byggðaröskun og veraleg- an samdrátt í íslenskum landbún- aði. Við það breytist afstaða fólks töluvert, og fer hlutfall þeirra sem lýst höfðu sig fylgjandi innflutn- ingi úr 31% í 16%, og hlutfali þeirra sem era andvígir fer úr 64% í um 77%. Nokkuð sláandi munur reyndist vera á afstöðu fólks til innfiutnings á búvörum eftir því hvaða stjórnmálaflokk það styður. Um 43% Sjálfstæðismanna og 42% Alþýðuflokksmanna eru fylgjandi innflutningi, en einungis um 4% þeirra sem styðja Framsóknar- flokkinn. Tæplega 74% svarenda telja hollustu íslenskra landbúnaðar- vara vera meiri en erlendra land- búnaðarvara, og um 25% telja hana svipaða. 37% fólks telur að gæðaeftirlit með íslenskum land- búnaðarafurðum sé ekki nægilega öflugt, en um 63% telja það hins vegar vera nægilega öflugt. Nokk- ur munur er á þessu eftir aldri fólks, og þannig telja 77% þeirra sem yngri era frekar að gæðaeftir- litið sé nægilegt en 51% þeirra sem eldri era. Um 47% svarenda eru hlynntir því að verð innlendra landbúnaðar- afurða sé greitt niður af hinu opin- bera, en 43% eru því andvígir. Spurt var að því hvort fólk teldi niðurgreiðslurnar vera'fyrir neyt- endur, bændur eða fyrir báða þessa aðila, og sögðust 62% sva- renda telja þær vera fyrir báða þessa aðila, 22% fyrir bændur og 11% fyrir neytendur, en um 5% nefndu einhveija aðra aðila. Svarendur voru spurðir hvort þeir væru jákvæðir eða neikvæðir gagnvart nokkrum fyrirtækjum eða stofnunum sem tengjast land- búnaði. Flestir, eða 70%, eru já- kvæðir gagnvart mjólkurbúunum, en fæstir virðast vera jákvæðir gagnvart SÍS og Áburðarverk- smiðjunni, eða á bilinu 31-34%. Á sama hátt var spurt um afstöðu fólks til búgreinanna, og reyndist hún almennt vera mjög jákvæð. Þar sker loðdýraræktin sig þó nokkuð úr, en einungis 24% sva- renda segjast vera jákvæðir gágn- vart þeirri búgrein, en sama hlut- fall fyrir flestar hinna búgreinanna er á bilinu 80 til 96%. í ljós kom að 60% fólks á aldrin- um 18-75 ára telur að hægt sé að flytja út íslenskt lambakjöt þannig að það sé þjóðhagslega hagkvæmt. 76% þeirra sem era á aldrinum 18-24 ára telja þetta vera mögulegt, en einungis 43% þeirra sem era á aldrinum 60-75 ára. Einungis 10% fólks era hlynnt því að útflutningsbætur séu greiddar með því lambakjöti sem flutt er út. í könnuninni var spurt að því hvort ísland væri aðili að Evrópu-' bandalaginu, EFTA og GATT, hinu almenna samkomulagi um tolla og viðskipti. Um 21% fólks svöraðu játandi þegar það var spurt hvort ísland væri aðili að Evrópubandalaginu, 10% voru óvissir og 69% svöruðu því neit- andi. Nokkur munur er á þessu eftir stéttum, og þannig er um 27% verkafólks á því að ísland sé aðili að EB, en 7% sérfræðinga og at- vinnurekenda. Einungis 6% stuðn- ingsmanna Alþýðubandalagsins segja að ísland sé aðili að EB, en 33% stuðningsmanna Alþýðu- flokksins heldur að svo sé. Hlutfal- lið fyrir stuðningsmenn Sjálfstæð- isflokks, Framsóknarflokks og Kvennalista er um 18%. Um 65% aðspurðra segja að ísland sé aðili að EFTA, um 24% segja svo ekki vera og 11% segjast ekki vita það. Þá segja um 45% að ísland sé aðiii að GATT, 19% segja að ís- land sé ekki aðili að því og um 37% segjast ekki vita hvort svo er. Þjóðmálakönnun Félagsvísinda- stofnunar var gerð dagana 2. til 8. nóvember síðastliðinn, og var leitað til 1500 manns á aldrinum 18-75 ára af landinu öllu. Alls fengust svör frá 1078 manns af þeim 1500 sem komu í úrtakið, sem var slembiúrtak úr þjóðskrá, og er það 71,9% svarhlutfall. Þeg- ar frá upphaflegu úrtaki hafa ver- ið dregnir þeir sem nýlega eru látnir, veikir, erlendir ríkisborgar- ar og fólk sem dvelur erlendis er nettósvöranin 75,1%. KLASSIK Erum nýbúin að taka inn stóra sendingu. Nú sem fýrr bjóða verslanir okkar í Kringlunni og á Laugavegi 96 (Hljóðfærahús Reykjavíkur) upp á landsins besta úrval af klassískri tónlist. PLACIDO DOMINGO — BE MY LOVE Þessi glænýja hljómplata með einum mesta söngvara samtímans er einstaklega í'alleg. Hér syngur Domingo m.a. lögin „Be my love", „Lové Story", „O Sole Mio", „Somewhere over the Rainbow", „Mamma", ' „Lavie en rose”, „Spanish eyes" o.fl., o. fl. MUNIÐ POSTKRÖFUSIMANN 91 -680 685 CbASSlC: jíal’ERiENCt! II CARRERAS, DOMINGO, PAVAROTTI - IN CONCERT Hljóðritun frá þcssumógleymanlegu tónleikum þremenninganna hinn 7. júlí í sumar. Þetta er gripttr sent tónlistarunncndur verða að eiga í safninu. LUCIANO PAVAROTTI - THE ESSENTIAL PAVAROTTI l>að er óþarfi að kynna Pavarotti fyrir Islendingum. Leyíðu þér að njóta þess besta. CLASSIC EXPERIENCEII Þúsundir Islendinga þekkja Classic Experience I sem kom út fyrir nokkrum árum. Númer II er ekki síðri. th* rsatnlial PÁVAROTTI A Milectioii ofhisftrcatcst rccordinjjs >*i*A*t Nts-sún dorrnii. 'O k«>lc mkií, Vokrc tmd Ccrt»o LEONARD BERNSTEIN - ODE AN DIE EREIHEIT BERI.INEU PHILHARMONIKER, HERBERT VON KARAJAN - ALBINONI; ADAGIO, I’ACHEI.BEL; GANON o.fi. NIGEL KENNEDV -VIVALDI, THE FOUR SEASONS S • K • I • F • A • N KRINGLUNNI, S: 600930 ■ LAUGAVEGI 96, S. 600934

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.