Morgunblaðið - 30.01.1991, Page 29

Morgunblaðið - 30.01.1991, Page 29
MORGU^RLAÐJÐ MtÐVIKUDAGUR 80. JANÚAK 1991 29 Auð jörð í Hlíðarfjalli „VIÐ SITJUM bara hérna og göpum út um gluggann á suð- vestan rokið,“ sagði ívar Sig- mundsson forstöðumaður Skíðastaða, en í Hlíðarfjalli er svo til auð jörð og hefur einung- is verið hægt að renna sér þar á skíðum í einn. dag í janúar- mánuði. ívar sagði að menn væru enn ekki farnir að örvænta, ekki hefði verið opnað fyrr en 28. janúar í fyrra en samt hefði vertíðin verið ■ ótrúlega góð. „En ef ekki fer að snjóa verulega á næstu tveimur vikum þá er ég hræddur um að við verðum að tekjum af sölu árs- korta, sem verið hefur umtals- verður tekjustofn hér. Okkar aðal- tekjur koma hins vegar inn á hálf- um mánuði í kringum páskana, þannig að enn er ekki úti öll von,“ sagði Ivar. Mjög góð aðsókn var í ijallið þann eina dag sem opið hefur verið í janúar, en þá komu um eitt þúsund manns á skíði. ívar sagði að það væri betri aðsókn en' menn hefðu átt von á og því greinilegt að áhuginn væri mikill. Félagsmálaráðherra: U mdæmisskrifstof- ur í hvert kjördæmi JÓHANNA Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hefur lagt til að um- dæmisskrifstofur frá* Húsnæðisstofnun ríkisins verði settar upp í hveiju kjördæmi landsins, þannig að þjónustan verði færð nær fólk- inu. Félagsmálaráðherra sagði á fundi á Akureyri í fyrrakvöld að frumvarp þess efnis væri tilbúið, en hún réði ekki ferðinni ein í þess- um efnum. Jóhanna sagði að ef af stofnun umdæmisskrifstofanna yrði myndi starfsfólki Húsnæðisstofnunar í Reykjavík fækka. Hún sagði að skrifstofunum væri ætlað veigamik- ið hlutverk, m.a. væri gert ráð fyrir að sveitarfélög í kjördæminu beindu þangað umsóknum sínum varðandi byggingu kaupleigu- og félagslegra íbúða. Þar yrði einnig á reiðum hönd- um öll þjónusta sem stofnunin veitir sem og upplýsingar. Fjármagni yrði úthlutað frá skrif- stofunum fyrir hvert kjördæmi og þar með yrði horfið frá því að út- hluta fjármagninu frá einum stað út um landið. Verkalýðsfélög skora á bæjarstjórn: Hækkun á fasteignagjöld- um verði endurskoðuð Morgunblaðið/Rúnar Þór Skíðamenn á Akureyri bíða eflaust með eftirvæntingu eftir snjó- komu, en í Hlíðarfjalli er nánast auð jörð eins og sjá má á mynd- inni. FORMENN tíu verkalýðsfélaga á Akureyri hafa skorað á bæjar- stjórn Akureyrar að endurskoða ákvörðun sína um iiækkun á fast- eignagjöldum. Fyrri umræða um fjárhagsáætlun: Sameiginlegar tekjur bæjarsjóðs áætlaðar 1.387 milljónir króna Hagræðing og sparnaður í rekstri eykur möguleika til frekari framkvæmda, segir Halldór Jónsson bæjarstjóri „VIÐ VERÐUM að spyija okkur á hveijum tíma, hvar hægt sé að spara eða hagræða í rekstrinum, en ekki líta á það sem sjálfsagðan hlut að það sem einu sinni hafi verið sett inn í áætlun skuli framreikn- að á sérhveiju komandi ári. Það lætur nærri að heildarrekstrargjöld Akureyrarbæjar og stofnana hans séu liðlega tveir og hálfur milljarð- ur, en það þýðir í reynd að 1% sparnaður eða hagræðing í rekstri jafngildir tuttugu og fimm milljónum króna,“ sagði Halldór Jónsson bæjarstjóri við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar og stofnana hans á fundi bæjarstjórnar í gær. Hann kvaðst með ofan- greindum orðum ekki vera að deila á núverandi ástand, aðeins vera að minna á að alltaf má gera betur og við rekstur stórra fyrirtækja mældist árangurinn fljótt í stórum tölum. Tekjur bæjarsjóðs af útsvörum og staðgreiðslu eru áætlaðar 773 millj- ónir króna, sem er 8,8% hækkun frá fyrra ári. Aðstöðugjöld eru áætluð 250 milljónir og hækka um 12%. Skattar af fasteignum, fráveitugjöld og tekjur af fasteignum eru áætlað- ar 347,7 milljónir króna og hækka um 12,8% á milli ára. Framlag úr Jöfnunarsjóði er áætlað 8,3 milljónir króna og ýmsar tekjur eru áætlaðar 8 milljónir, en þar er stærsti hlutinn arður frá Landsvirkjun. Sameigin- legar tekjur bæjarsjóðs eru þannig áætlaðar einn milljarður og 387 milljónir króna, sem er 10,5% hækk- un frá áætlun fyrra árs. Hvað vat'ðar rekstrargjöld er stærstum hluta varið til félagsmála, en framlag Akureyrarbæjar til þess málaflokks er áætlað rúmar 219 milljó.nir króna, sem er nokkur lækk- un frá fyrra ári þegar 236,4 milljón- uni var varið til félagsmála. Skýring á lægra framlagi iiggur m.a. í því að fé er ekki áætlað til Sjúkrasam- lags Akureyrar, vegna breytinga á fyrirkomulagi um fjármögnun fé- lagslegra íbúða og í áætlun þessa árs er ekki gert ráð fyrir framlagi til Félagsstofnunar stúdenta. í máli Halldórs kom fram að þrátt fyrir lækkað framlag hafi þjónusta og starfsemi verið aukin og bætt, m.a. verið tekin í notkun ný dagvist og .sambýiL ferirjiJdraðav............... Framlag til íþrótta- og æskulýðsmála hækkað Heildarrekstrargjöld vegna heil- brigðismála eru 8,5 milljónir, en rekstrartekjúr 5 milljónir. Hvað fræðslumálin varðar er rekstrar- kostnaður áætlaður 210,3 milljónir og tekjur 13,8 milijónir, þannig að framlag bæjarins er 196,5 milljónir króna, sem er 19,6% hækkun á milli ára. Munar þar mestu um að áætlað er að véija 24 milljónum króna til viðhalds grunnskóla. Framlag til menningarmála er áætlað 61,9 millj- ónir króna, en þar má nefna að fram- lag bæjarins til Leikfélags Akur- eyrar á árinu verður 18 milljónir króna. Mikil hækkun er á framlagi bæj- arins til íþrótta- og æskulýðsmála, eða 67,8% á milli ára, en áætlað er að veija tæpum 89 milljónum til þessa málaflokks. Á þessu ári er áætlað framlag til KA vegna bygg- ingar íþróttahúss, en heildarkostn- aður vegna byggingarinnar er um 146 milljónir og er hlutur bæjarins 109 milljónir króna, sem greiðist á 5 árum. Þá eru í gildi rammasamn- ingar við íþróttafélagið Þór, Skauta- félagið og Golfklúbb Akureyrar um framkvæmdir á þeirra svæðum. Til umhverfismála verður varið um 82 milljónum Til eldvarna- og öryggismála verður varið 20,5 milljónum króna og vegna hreinlætismála 60,8 millj- ónum. Sá liður hækkar einungis um 5,9% á milli ára og er megin skýring- in þar á að gert er ráð fyrir mun lægri kosfnaði vegna snjómoksturs en í fyrra. Kostnaður Akureyrarbæj- ar af skipulags- og byggingaeftirliti er áætlaður 48,6 milljónir. Framlag bæjarins vegna gatna holræsa og umferðarmála er áætlaður 69,2 milljónir króna, en hvað umhverfis- mál varðar er áætlað að veija 81,8 milljónum króna. Þar er gert ráð fyrir 27 milljónum vegna unglinga- vinnu. Áætlað er að veija 19 milljónum króna til atvinnumála á árinu, en undir þann lið falla atvinnumála- nefnd og Framkvæmdasjóður. Þá var tekinn upp nýr liður, afskrifaðar og tapaðar kröfur, en áætlaðar eru 10 milljónir undir þann lið fjárhagsá- ætlunarinnar. Einnig er gert. ráð fyrir 32,2 milljónum króna til ýmissa mála, en sérstakur liður þar undir er áætlaður til tölvu- og hugbúnað- arkaupa fyrir bæinn upp á 8 milljón- ir króna. Gert er ráð fyrir 11,8 millj- óna framlagi vegna fasteigna, sem er nokkru lægra en var á síðasta ári, en nú er áætlað að veija 2 millj- ónum til kaupa á erfðafestulöndum í stað 6 í fyrra. Rekstrarkostnaður véla og tækja á árinu er áætlaður 90 milljónir króna, en tekjur 105 milljónir, þann- ig að Vélasjóði er ætlað að skila 15 milljóna króna hagnaði. Rekstrar- kostnaður Strætisvagna Akureyrar er áætlaður 35,5 milljónir, en rekstr- artekjur 20,1 milljón, þannig að framlag bæjarins verður 15,4 millj- ónir króna. Gert er ráð fyrir að fjármagns- gjöld verði 166,5 milljónir króna á árinu, en það er 38,2% hækkun frá fyrra ári. Fjármunatekjur eru aætl- aðar 50,7 milljónir. Til eignabreyt- inga er áætlað að verja 'samtals 240,4 milljónum króna, e_n við fyrri umræðu íjárhagsáætlunar var ekki gerð tillaga um skiptingu á einstök verk. 227 milljónir greiddar i vexti af lánum Hitaveitunnar Við umræðuna í gær var einnig tekin fyrir fjárhagsáætlun veitu- stofnana, og kom fram í máli bæjar- stjóra að tekjur Rafveitu Akureyrar eru áætlaðar 424,2 milljónir króna, en útgjöld eru áætluð um 370,5 milljónir, þannig að 52,8 milljónir færast á eignabreytingar. Hvað Hitaveitu Akureyrar varðar er gert ráð fyrir að rekstrartekjur verði 428 milljónir króna, en rekstrarkostnað- ur 94 milljónir, þannig að rekstraraf- gangur fyrir afskriftir, fjármagns- kostnað og eignabreytingar verður um 334 milljónir. Áætlað er að veija 35 milljónum í stofnkostnað og 227 milljónum til að greiða vexti af lán- um veitunnar. Til afborgana á lánum verður varið 42 milljónum, sem er á bilinu 1-2% af heildarskuldum vei- tunnar. í máli Halldórs kom fram að langan tíma tæki að greiða niður skuldir Hitaveitunnar ef ekki verður mögulegt að setja meira fé í afborg- anir á hveiju ári en nú er. Gert er ráð fyrir að rekstraraf- gangur Vatnsveitu Akureyrar verði 62,8 milljónir króna, en áætlað er að vetja tæplega 43 milljónum til byggingaframkýæmda á Rangár- völlum vegna sameiningar á starf- semi Vatns- og Hitaveitu. Tekjur Akureyrarhafnar á árinu eru áætlaðar 65,8 milljónir króna, en kostnaður er áætlaður tæpar 40 milljónir króna. Gert er ráð fyrir 18 milljóna króna ríkisframkgi. Til framkvæmda við höfnina eru áætl- aðar 35,8 milljónir króna. „Það er ljóst að rekstur Akur- eyrarbæjar og stofnana hans er umfangsmikill og því brýnt að leita ætíð bestu leiða við ákvörðun og ráðstöfun á þeirn fjármunum sem fáanlegir eru á hverjum tíma. Verk- efnin eru mörg, en hagræðing og sparnaður í rekstri eykur möguleika okkar til frekari framkvæmda,“ sagði Halldór. í )ok ræðu.sinnar. Áskorunin var afhent Sigríði Stefánsdóttur forseta bæjarstjórnar Akureyrar í upghafi fundar bæjar- stjórnar í gær. í áskoruninni segir, að ár sé nú liðið frá því kjarasamn- ingar voru gerðir, en með þeim hafi tekist að koma í veg fyrir stór- fellt atvinnuleysi, kaupmáttarhrap stöðvað og verðbólgu hafí verið komið í svipað horf og nágranna- þjóðirnar búa við. „Markmiðin hafa að mestu náðstf vegna víðtækrar samstöðu launa- fólks, atvinnurekenda og opinberra aðila. Áframhaldið ræðst af því hvort sú samstaða helst. Það eru launamönnum á Akureyri mikil vonbrigði að Akureyrarbær skuli hafa ákveðið að hækka fasteigna- gjöld langt umfram þær viðmiðanir sem kjarasamningar byggjast á,“ segir í áskoruninni. Mývatnssveit: Sést í græn- an lit í túnum Björk, Mývatnssveit. MYVETNINGAR héldu þorrablót í Skjólbrekku síðastliðið laugar- dagskvöld. Að venju var það Kvenfélag Mývatnssveitar sem hafði veg og vanda af þessu blóti. Skemmtiatriði voru flest hei- maunnin, grín og gaman. I blíðviðrinu að undanförnu hefur allan snjó og klaka tekið upp af vegum hér um slóðir og í jörð við vatnið og jafnvel farinn að sjást grænn litur á túnum. Nýlega fundust tvö lömb austur á Mývatnsfjöllum, þau voru héðan úr sveitinni og litu vel út og virðast' ekki hafa liðið skort í vetur. Kristján Sorg og sorg- arviðbrögð: Fyrirlestur um hina hljóðu sorg SONJA Sveinsdóttir lijúkrunar- fræðingur heldur fyrirlestur £ fundi samtaka um sorg og sorgar- viðbrögð sem haldinn verður ann- að kvöld. Fyrirlestur Sonju fjallar um hina hljóðu sorg sem tengist fósturláti. Hann verður haldinn í Safnaðar- heimili Akureyrarkirkju og hefst kl. 20.30 á fimmtudagskvöld. Allir . eru yelkQrpnir á fundinn, , V

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.