Morgunblaðið - 03.04.1991, Page 41
, MORGUNBLAÐIÐ .MIBVIKUDiAGUR /3. APRLL ,1091
o41
Fiskverðsdeilan í Eyjafirði:
Viljum hvorki né getum
sprengt efnahagskerfið
- segir Gunnar Ragnars framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Akureyringa
STJÓRN Útgerðarfélags Akureyringa hefur falið framkvæmdastjór-
um þess að auglýsa þær stöður sem lausar eru á ísfisktogurum fé-
lagsins, en sem kunnugt er sögðu sjómenn upp störfum fyrir nokkru
og tóku uppsagnir gildi í síðustu viku. Félagið er tilbúið að greiða
sjómönnum 41% heimalöndunarálag líkt og um samdist við sjómenn
á Húsvík á laugardag, en lengra telur stjórnin sig ekki geta geng-
ið. Krafa sjómanna snúist um 80-90% heimalöndunarálag.
Gunnar Ragnars framkvæmda-
stjóri Útgerðarfélags Akureyringa
sagði á blaðamannafundi á mánu-
dag að á undanförnum misserum
hefði mikils og vaxandi misræmis
gætt í fiskverði, sem m.a. hefði
komið fram í því að hluti heildaraf-
lans hefur verið seldur á mörkuðum
ýmist utanlands eða innan. Auk
þess sem fiskkaup- og seljendur
hafi gert með sér samninga um
fast fiskverð, sem taki mið af verði
sem myndast hafi á fiskmörkuðum.
Gunnar sagði að á síðasta ári
hefði um 24% af heiidarbolfiskafla
landsins verið seldur á mörkuðum,
13% erlendis og 11% innanlands.
Áf þorskaflanum hefði 19% verið
verið seld á mörkuðum, 10% erlend-
is og 9% innanlands. Alkunna væri
að sérstök stofnun, Aflamiðlun,
stjórnaði útflutningi á ferskum físki
og væri það yfirlýst stefna hennar
að takmarka framboðið svo há-
marksverð fengist fyrir hvert kíló.
Þá væri einnig ljóst að vegna hins
takmarkaða framboðs á innlendu
mörkuðunum héldist verðið þar
mjög hátt. „Viðmiðun við þetta
verð er því óraunhæf með öllu, en
eftir stendur að það skapar þá
miklu óánægju sem lengi hefur
verið hjá þeim sjómönnum sem
landa að mestu aflanum til eigin
fiskvinnslustöðva,“ sagði Gunnar
og benti á að Útgerðarfélag Akur-
eyringa hf. hefði reynt að koma tii
móts við sjómenn með svokölluðu
heimalöndunarálagi sem á að jafna
að nokkru þetta misvægi.
Fiskvinnslan þolir ekki að
greiða markaðsverð sem
myndast hefur vegna
takmarkaðs framboðs
„Það er hins vegar ljóst að mál
þessi snúast um grundvallaratriði,
en þá á ég við það hvernig íslend-
ingar ætla að skipa málum í sínum
sjávarútvegi allt frá veiðum og
vinnslu til hinnar ýmsu markaðs-
starfsemi sem hefur verið rekin.“
Gunnar sagði fiskvinnsluna ekki
þoia að greiða þau markaðsverð
sem myndast hafa vegna takmark-
aðs framboðs og því myndi smám
saman glatast það starf sem byggt
hefði verið upp á síðustu áratugum
að því er varðar sókn á erlenda
markaði fyrir frystar sjávarafurðir.
Ef selja ætti allan físk á físk-
mörkuðum væri einboðið að verð
myndi lækka og spurning hvort
sjómenn allir stæðu í sömu sporum
og þorri þeirra gerir nú og allt það
fólk sem bygg-ði afkomu sína á sjáv-
arútvegi sæti eftir með skarðan
hlut frá borði. Hallaði þá enn á
landsbyggðina, sem vart mætti við
meiru. Annar kostur væri að selja
allan físk á mörkuðum óheft, ýmist
erlendis eða innanlands, en það
myndi á sama hátt leiða til verð-
lækkunar, til hagsbóta fyrir er-
lenda fískkaupendur og fiskverk-
endur og auka allan kostnað við
meðferð og meðhöndlun aflans inn-
anlands. „Máiið snýst ekki um físk-
veiðistefnu eða fiskvinnslustefnu,
heldur um heildstæða sjávarút-
vegsstefnu þar sem tekjuskiptingin
er þess eðlis að allir þeir sem hlut
eiga að máli hafi þar réttláta hlut-
deild,“ sagði Gunnar.
Farið fram á 82,7% heima-
löndunarálag á 2 kg þorsk
Gunnar sagði ÚA hafa reynt að
halda því rekstrarfyrirkomulagi
sem gefið hefði góða raun, þ.e.
útgerð skipa sem lönduðu hráefni
til vinnslu í eigin vinnslustöð og
það síðan flutt út á trausta mark-
aði. Félagið hefði komið á móts við
fiskverðsmisvægið með því að taka
upp heimalöndunarálag til jöfnun-
ar. Sjómenn hafi ekki sætt sig við
þau kjör og sendu í febrúar tillögu
um að heimalöndunarálag á þorsk
sem var 30% hækkaði í 48% og
álag á aðrar fisktegundir hækkaði
um 48-70%. í framhaldi af þessari
tillögu bárust félaginu uppsagnir
frá flestum skipveijum hinna fimm
ísfisktogara ÚA og tóku þær fyrstu
gildi 26. mars síðastliðinn.
Þann dag barst forráðamönnum
ÚA tilboð frá sjómönnum og var
þá farið fram á 93,7% heimal-
öndunarálag á 2 kg þorsk. Tilboðið
var síðan lækkað næsta dag og var
heimalöndunarálagið þá komið nið-
ur í 82,7%. Tillögur sjómanna um
hækkun á fískverði voru í sumum
tilfellum hærri en það sem greitt
er á mörkuðum, að sögn Gunnars.
Sjómenn á ísfísktogurum ÚA
fengu greitt 40% heimalöndunará-
lag frá 1. mars síðastliðnum, en
það liafði þá verið hækkað úr 30%.
Gunnar sagði það verð fyllilega
standast samanburð við aðra aðila
sem ástæða þætti til að bera sig
saman við og gerði það að verkum
að tekjur sjómanna hjá ÚA væru
fyrir ofan meðaltal sjómanna í
landinu. Hann sagði að í saman-
burði nokkurra frystihúsa um land
allt hefði komið í ijós að það verð
sem félagið gi-eiddi fyrir kílóið af
þorski væri síst lakara en það sem
aðrir greiddu og nokkru hærra en
meðatai þessara frystihúsa. í öðr-
um tilfellum greiddi ÚA meðaltals-
verð og það verð sem greitt væri
fyrir t.d. ufsa væri lægra hjá ÚA
en meðaltalsverðið.
Útgerðarfélag Akureyringa hef-
ur varpað fram þeirri hugmynd að
markaðstengja verð 12% af aflan-
um, en greiða fast verð fyrir ýmsar
físktegundir. Tekið yrði meðalverð
þriggja markaða við Faxaflóa í viku
hverri. Hugmyndin var sett fram
með sérstöku tilliti til þess að ein-
mitt þessir markaðir hefðu skapað
hina miklu óánægju á meðai sjó-
manna. Þessar hugmyndir fengu
ekki hljómgrunn að sögn Gunnars.
Útgerðarfélag Akureyringa er
tilbúið að greiða 41% heimalöndun-
arálag líkt og samið var um á
Húsavík á laugardag og að það
gildi frá síðustu áramótum. Þá
verði nefnd frá félaginu og sjó-
mönnum falið að afla upplýsinga
um þróun fiskverðs í landinu og
að þar komi skýrt fram hvar ÚA
standi í þeim samanburði. Lengra
teldi stjórn félagsins sig ekki geta
gengið. „Málið snýst um það hvort
félagið geti sprengt upp allt efna-
hagskerfíð með tilheyrandi nýrri
verðbólgu, vaxtasprengingu og
öðru sem því myndi fylgja. Svarið
við því er einfaldlega nei. Útgerðar-
féiag Akureyringa hvorki vill né
getur staðið að slíku,“ sagði Gunn-
Kjaranefnd sjómanna á ísfisktogurum ÚA:
Rúmlega 40% hærra
verð greitt á Vestfjörðum
Stuðningsyfirlýsingar berast frá áhöfnum 36 togara
SJÓMENN á ísfisktogurum Útgerðarfélags Akureyringa, sem sagt
hafa upp störfum, ítrekuðu í gær tilmæli sín um að menn gengju
ekki í störf þeirra. Um tíu sjómenn vantar til að manna Harðbak
EA 303 svo hann geti haldið á veiðar og voru lausar stöður auglýst-
ar í gær.
Konráð Alfreðsson formaður
Sjómannafélags Eyjafjarðar sagði
að mikil samstaða ríkti á meðal
sjómanna og þeir myndu ekki gefa
eftir. Sjómönnum í félaginu bárust
í gærmorgun skeyti annars vegar
frá sjómönnum á frystitogurum
Útgerðarfélags Akureyringa, Slétt-
bak EA-304 og Sólbak EA-307,
þar sem þeir lýsa yfir stuðningi við
áhafnir ísfisktogaranna í baráttu
fyrir eðlilegu fiskverði og hins veg-
ar frá áhöfnum 34 skipa sem senda
félögum sínum á Norður- og Aust-
urlandi baráttu- ogstuðningskveðj-
ur. Jafnframt skora þessar áhafnir
á útgerðir og fiskkaupendur að
sýna sanngirni og hækka skipta-
verð og fiskverð til sjómanna til
jöfnunar á við það sem almennt
gildi á fískmörkuðum suðvestan-
lands og til jafns við það verð sem
þegar hefur verið samið um milli
margra fiskseljenda og fiskkaup-
enda.
Kjaranefnd sjómanna sat á fundi
í gær og tók m.a. dæmi um upp-
gjör frá einni veiðferð Harðbaks
frá því í febrúar síðastliðnum.
Verðmæti aflans var 7,9 milljónir
króna og skilaverð var 5,5 og út
úr því fengu sjómenn til skipta 1,7
milljónir króna. Hefði útgerðin
greitt fyrir aflann samkvæmt til-
lögu sjómanna sem lögð var fram
27. mars síðastliðinn hefðu fengist
10,8 milljónir króna miðað við
þennan sama túr. Skiptaverðið
hefði þá orðið 7,6 milljónir króna
og sjómenn þá fengið 2,4 milljónir
í sinn hlut samkvæmt útreikning-
um kjaranefndar.
Hefði þessum sama afla verið
landað í fískvinnslu á Vestfjörðum,
segja kjaranefndarmenn að 41,5%
hærra verði myndi fást fyrir hann
þar heldur en hjá ÚA og Útgerðar-
félagi Dalvíkinga.
Konráð Alfreðson sagði að tilboð
sjómanna sem lagt var fram fyrir
páska sé 55,69% hærra en verð-
lagsráðsverð og skilyrt 12% heima-
löndunarálag. Konráð sagði sjó-
menn einnig hafa lagt fram tilboð
um 50% heimalöndunarálag, en það
þýddi 15,38% hækkun frá því verði
sem gilti hjá ÚA í febrúar. Þá bauð
félagið einnig að nefnd sjómanna
og endurskoðenda myndi rannsaka
fiskverð um land alit.
„Eina svar útgerðar við öllum
þessum tilboðum er á sama veg,
að við séum að leggja fískvinnslu
á Akureyri í rúst og riðla peninga-
kerfi þjóðfélagsins þar með,“ sagði
Konráð.
Um hugmynd forráðamanna ÚA
um að tengja verð 12% aflans
markaðsverði, sagði Konráð að
menn hefðu reiknað út að það hefði
í för með sér lækkun á fiskverði
frá því sem greitt er nú og því
hefðu sjómenn ekki verið ginn-
keyptir fyrir þeirri hugmynd, en
samkvæmt henni átti að greiða
fast verð fyrir hinn hluta aflans.
Veiðiferð Harðbaks
EA 303 í febrúar sl.
er notuð sem víðmiðun
og tölurnar umreiknaðar
miðað við tilboð og kröfur
Aflaverðmæti
Skiptaverð
Til sjómanna
Reiknuð mánaðarlaun*
Fiskverð verðlagsráðs
+10% kassauppbót
+ 30% heimalöndunarálag.
7,9 millj.kr.
5,5 millj.kr.
1,7 millj.kr.
149 þús kr.
Tilboð ÚA nú.
Heimalöndunarálag er
41 % í stað 30% áður.
8,6 millj.kr.
6,0 míllj.kr.
1,8 millj.kr.
10,8 millj.kr.
7,6 millj.kr.
2,4 millj.kr.
159 þús.kr.
189 þús.kr.
r Reiknað er með tveimur veiðiferðum í mánuði, aflahlutur háseta á stórum togara (yfir 500 brt.)
sé 0,68% (miðað við 24 í áhöfn) og fastakaup á mánuði sé 42 þús.kr.
Vinnsla í frystihúsi ÚA
stöðvast á mánudag
ÞEIR tveir togarar Útgerðarfélags Akureyringa sem voru á sjó
yfir páskana eru komnir að landi, Hrímbakur kom í gær með
um 100 tonn og Kaldbakur var væntanlegur í nótt eða snemma
í morgun einnig með um 100 tonn. Ljóst er að vinnsla stöðvast
í frystihúsi ÚA í næstu viku.
Gunnar Lórenzson yfirverk-
stjóri í frystihúsi ÚA sagði að
þessi 200 tonn myndu verða unn-
in í þessari viku, en ef til vill
væri unnt að treina eitthvað fram
á mánudag. Aflinn yrði unninn í
dýrustu pakkningar, en í frysti-
húsinu vinna um 150 manns.
Gunnar sagði að í dag, miðviku-
dag, yrði tekin ákvörðun um hvað
gert yrði í stöðunni, en ekki var
búið að tilkynna starfsfólki um
vinnslustöðvun í gær.
I reglugerð um greiðslur vegna
fastráðins fiskvinnslufólks segir
að séu líkur á vinnslustöðvun
vegna fyrirsjáanlegs hráefnisleys-
is skuli fyrirtæki sem hyggist
njóta greiðslna tilkynna með
a.m.k. 5 sólarhringa fyrirvara um
fyrirhugaða vinnslustöðvun og til-
greina orsakir hennar til vinnum-
iðlunar. Fyrirtækið greiðir sjálft
fyrstu tvo daga vinnslustöðvunar-
innar, en fyrir hvern heilan dag
umfram tvo sem fyrirtækið heldur
fastráðnum starfsmönnum á laun-
askrá fær það greidda hámarks-
dagpeninga fyrir hvern starfs-
mann í fullu starfi.