Morgunblaðið - 17.05.1991, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 17.05.1991, Qupperneq 50
50 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 1991 PRESSAN GRODINN AF GRIIND HEFUR HLADID UPP 600 MILLJÚNA EIGNAVELDI % i i <3? Mál stúlknanna í Tyrklandi „ELSKU MAMMA MÍN, HVENÆR ÆTLARÐU AÐ NA í OKKUR?" Mjólkursamsalan 750 MILLJÓNA AUKASKATTUR Á MJÓLK RANN í BYGGINGU STÓRHÝSISINS Fullt blað af slúðri KNATTSPYRNA Frá undirritun samningsins: Eggert Magnússon, formaður KSÍ og Einar S. Einarsson, forstjóri VISA, undirrituðu samstarfssamninginn. H vatt til prúð- mannlegs leiks KNATTSPYRNUSAMBAND ís- lands mun standa fyrir sér- stöku landsátaki í sumar þar sem knattspyrnumenn og íþróttafólk almennt er hvatt til að sýna prúðmannlega fram- komu og drengilegan leik, und- ir kjörorðinu: FAIR PLAY. Höf- um rétt við. VISA ísland mun styrkja þetta átak með veglegu fjárframlagi og undirrituðu þeir Einar S. Einarsson forstjóri VISA og Eggert Magnússon formaður KSÍ samstarfssamn- ing um framkvæmd þess 15. maí sl. Hér er um að ræða hluta alþjóð- legs átaks innan íþróttahreyf- ingarinnar til að draga úr grófum leik, en ruddamennska á leikvelli hefur vaxið mikið á síðari árum. Sam- hliða þessu hefur ofbeldi í þjóðfélag- inu vaxið tii muna, eins og mörg nýleg dæmi sína. Að sögn Stefáns Konráðssonar, framkvæmdastjóra KSÍ, er markmiðið með þessu átaki að fá fram jákvæða viðhorfs- og hug- arfarsbreytingu hjá knattspyrnufólki og öðru íþróttafólki og hvetja það til umhugsunar og til að bæta ráð sitt í þessu efni. Þessi samningur brýtur visst blað í sögu íþróttahreyfingarinnar. Flestir þeir samningar sem gerðir hafa verið við fyrirtæki, hafa verið nýttir til reksturs og mótahalds. Sá styrkur sem VISA ísland leggur fram til þessa átaks mun verða varið til að standa straum að kostnaði við kynn- ingu, gerð auglýsinga og áróðursefn- is, sem vænst er að skili góðum ár- angri í betri framkomu á leikvelli og gagnkvæmri virðingu milli mótheija. Stefán Konráðsson segir það ætlun KSI að halda á lofti sem víðtækustum áróðri varðandi þetta átak og koma boðum til skila á áhrifaríkan hátt. Hannað hefur verið veggspjald sem dreift verður til allra knattspyrnufé- laga á landinu svo og í íþróttamann- virki. Merki átaksins er hannað af Sameinuðu auglýsingastofunni, en auglýsingastofan styrkir átakið og KSI veglega. Á næstu dögum verður sérstakt dreifírit þar sem átakið verð- ur kynnt, sent til forráðamanna í félögum víðsvegar um land. í gangi verður keppni milli liða í Samskipadeildinni svo og í öðrum flokkum karla og kvenna. í hveijum mánuði í sumar verða veittar viður- kenningar í samráði við fjölmiðla þeim leikmönnum, liðum og þjálfur- um, sem bera af hvað prúðmennsku áhrærir og fyrir háttvísa framkomu. í lok keppnistímabilsins í haust verða svo veitt verðlaun til leikmanns, liða og þjálfara ársins sem skarað hafa fram úr fyrir góða framkomu. SUND Amþóro settuhe L1 olstebro, sundfélag Amþórs l~l Ragnarssonar í Danmörku, setti um helgina nýtt heimsmet í 24 tíma sundi í 25 metra laug. Alls tóku 40 sundmenn þátt og var Amþór einn þeirra. Holstbro synti 164,900 km og bætti eldra metið, sem sundfélagið Kastmp átti samkvæmt Heimsmeta- bók Guinnees og var 161,950 km. Arnþór sagði að þetta hafi verið g félagar imsmet! mjög erfitt og að sundfólkið hefði ekki sofið neitt í sólarhring. Sundfólk- inu var skipt í tvö 20 manna lið sem skiptust á að synda. „Sumir fengu krampa strax á fyrstu klukkutímun- um, en allir voru staðránir að hnekkja heimsmetinu og það tókst. Við vomm svo þreytt í lokin að við gerðum okkur ekki grein fyrir hver niðurstaðan var,“ sagði Arnþór. KORFUKNATTLEIKUR / NBA Detrovt með pálm ann í höndunum DETROIT er með pálmann í höndunum eftir sigur á Boston, 116:111,í úrslitakeppni vestur- deildar í Boston og hefur nú þrjá vinninga gegn tveimur og á heimaleik á föstudag. Leikurinn var sveiflukenndur. Detroit byijaði betur og eftir þriðja leikhluta hafði liðið náð 18 stiga forskoti. En í fjórða leikhluta ■PH fór gamla kempan Frá Lariy Bird í gang Gunnari hjá Boston, sem náði Valgeirssyni að jafna 100:100 iBandaríkjunum þegaJr g mín-tur voru til léiksloka. Það var síðan Bill Laimbeer sem gerði út um leik- inn fyrir Detroit og gerði fjórar körfur á síðustu mínútunum og tryggi sigurinn, 116:111. Isiah Thomas lék lítið með Detro- it vegna meiðsla sem hafa hijáð hann að undanfömu og virtist það ekki koma að sök. Joe Dumars var stigahæstur í liði Detroit með 32 stig. Reggie Lewis var stigahæstur í liði Boston með 30 stig. Larry Bird kom næstur með 16 stig, flest þeirra í 4. leikhluta. Robert Parish, Boston, meiddist um miðjan fyrri hálfleik. Portland og LA. Lakers leika fyrsta leik sinn úrslitum í austur- deild á laugardag. Ef Detroit vinnur Boston á föstudag leikur liðið við Chicago sunnudag í úrslitum vest- urdeildar. ioe Dumars var stigahæstur í liði Detroit með 32 stig. Markmiðið að vekja athygli á íþróttaiðkun kvenna KVENNAHLAUPIÐ verður í Garðabæ 22. júní.í lok hverrar viku fram að hlaupinu munu birtast greinar á íþróttasíðu Morgunblaðsins, þar sem fjallað verður um hlaupið og bent á leiðir varðandi undir- búning væntaniegra þátttak- enda. Fyrsta greinin fer hér á eftir. 22. júní nk. verður kvennahlaupið haldið ; Garðabæ. Á Íþróttahátíð ÍSÍ 1990 var hlaupið haldið í_ fyrsta skipti. Á þriðja þús- und konur voru þátttakendur en hiaupið var á 6 stöðum á landinu. Undirtekt- ir voru góðar og er því farið af stað öðm sinni og eru 6 vikur til stefnu. Vegalengdin verður 2 og 5 km en leiðin er öll innan Garðabæjar. Hlaupið hefst og endar við Flataskóla. Markmiðið er að fá sem flestar konur til að taka þátt í hollri hreyfingu og sýna samstöðu í íþróttaviðburði sem vekur athygli á íþróttaiðkun kvenna. Engin tímataka er í þessu hlaupi og allar fá viður- kenningu að hlaupi loknu. Ganga-skokk-hlaup Ekki er úr vegi að byija strax að æfa sig. Þátttakendur geta valið um hvernig þeir fara hveija vegalengd. Þær sem eru óvanar að hreyfa sig ættu að byija á því að fá sér gönguferð í næsta umhverfi. Ef gengið er meðfram ökuleiðum er hugsanlegt að mæla vegalengdina fyrst á km. mæli bílsins. Finna sér síðan þægilegan klæðnað og heppileg- an skófatnað. Það er aldrei of oft brýnt fyrir fólki að fara var- lega af stað. Sérstaklega ef ein- hver meiðsli eða veikindi eru í líkamsbyggingu og hamlar við- komandi á einhveiju sviði. Konur eru miklar félagsverur svo það er ekki ósennilegt að það falli þeim betur að æfa sig í félags- skap. Sjaldan þarf að leita hans langt, dætur, mæður, ömmur og vinkonur gætu mælt sér mót og gengið t.d. hálfan til einn km til að byija með og þær sem rö- skari eru gætu farið 2 km strax, KVENNAHLAUP GARÐABÆR 1991 þaulvanar jafnvel 5 km. Mæður þurfa ekki að láta kerrur eða bamavagna aftra sér. Áherslur í göngu Ganga má á mismunandi vegu. Með því að spyrna vel frá með tábergsvöðvum og rétta í mjaðm- arlið er hægt að komast betur áfram. Skrefin þurfa að vera miðlungsstór. Til þess að flytjast betur fram í hveiju skrefi er gott að sveifla örmunum vel og fá hreyfingu í axlarliði. Þannig er hægt að ganga sér til hita. Smátt og smátt er hægt að auka gönguhraðann til þess að fá auk- ið álag á hjarta og lungu. Gott er að draga djúpt andann, rétta úr baki og bera höfuðið hátt. Þa má stansa öðru hvoru og virða fyrir sér umhverfið ef þreytu verður vart. Mikilvægt er að velja sér aðferð sem fellur vel að líkamsástandi, hver og einn verð- ur að hlusta á aðvaranir eigin líkama. í næstu pistlum verður reynt að leiðbeina hvernig undirbúningi mætti haga stig af stigi. í Garðabæ ér ætlunin að hittast við íþróttamiðstöðina Ásgarð alla laugardaga kl. 11.00 fram að hlaupi og fara þær vegalengdir, sem mældar hafa verið undir, handleiðslu leiðbeinenda. Allar konur eru velkomnar. Mætum allar í kvennahlaup, göngu og skokk. Lovísa Einarsdóttir íþróttakennari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.