Morgunblaðið - 04.06.1991, Page 4
£
MORGUNBLAÐH). ÞRIÐJöDA<5UE 4. 3ÚNÍ 19914
Víðtækar rannsóknir á físk-
stofnunum hefjist uni áramót
Heildarendurskoðun fiskveiðistefnunnar hefjist í þessum mánuði
ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráðherra ætlar að beita sér
fyrir því að víðtækar rannsóknir hefjist um næstu áramót á fisk-
stofnunum i hafinu umhverfis ísland. Þetta kom fram í ræðu sem
ráðherrann flutti á sjómannadaginn. Verkefnið mun standa yfir
út árið 1995 og er áætlaður kostnaður hátt í 300 milljónir kr., þar
af 60 milljónir á fyrsta ári. Ráðherrann hyggst leita eftir sam-
starfi við sjávarútveginn um fjármögnun áætlunarinnar. Stefnt
var að því að vinna við endurskoðun fiskveiðistefnunnar byrjaði
nú i júnímánuði.
því við sjávarútveginn. Það er eðli-
legt að hann fái aðild að einhvers
konar ráðgjafanefnd um fram-
kvæmd verksins og fulltníar at-
vinnugreinarinnar geti þannig
fylgst með. Þannig geti skapast
sterkari tengsl milli atvinnugreinar-
innar og þeirra sem að rannsóknun-
um vinna,“ sagði Þorsteinn.
Þorsteinn sagði í samtali við
Morgunblaðið að mikil nauðsyn
væri á því að hefja svokallaðar fjöl-
stofnarannsóknir, þ.e.a.s. rann-
sóknir á heildartengslum einstakra
stofna í lífríki sjávarins. „Ég tel að
þetta sé mikilvæg forsenda fyrir
skynsamlegum ákvörðunum um
nýtingu auðlindarinnar og fyrir þá
sök verði ekki komist hjá því að
VEÐUR
fara í þetta verkefni. Ég lagði það
til í þessari ræðu að sjávarútvegur-
inn myndi kosta þetta verkefni en
það hafa engar viðræður farið fram
ennþá. Ég varpaði þessari hugmynd
fram í ræðunni. Ég hef í hyggju
að kynna þetta verkefni frekar og
leita eftir samstarfi við kostun á
því. Ég tel að það sé mjög eðlilegt
við þessar aðstæður að leita eftir
Hann kvaðst stefna að því að
vinna við heildarendurskoðun fisk-
veiðistefnunnar hæfist í þessum
mánuði. Samkvæmt núgildandi lög-
um ætti að gera mat á öllum kost-
um sem væru fyrir hendi og því
lagaboði yrði framfylgt. „Ég er
þeirrar skoðunar að allar ákvarðan-
ir um nýtingu auðlindarinnar þurfí
að byggjast á sem mestri þekkingu
og þessi þekkingaröflun er óhjá-
kvæmileg. Áætlunin hlýtur að vera
þáttur í nýjum verkefnum og mati
á fískveiðistjómun og nýtingu auð-
lindarinnar," sagði Þorsteinn.
Hann sagði að hér væri um við-
bótarverkefni að ræða og það yrði
varla unnið án þess að kalla til
fieiri en unnið hafa að rannsóknar-
verkefnum fram til þessa. Hafrann-
sóknarstofnun hefði gert ítarlega
skýrslu um áætlunina og kostnað
við hana. Þar kæmi fram að heildar-
kostnaður yrði um 300 milljónir
kr., þar af 60 milljónir kr. fyrsta
árið.
Reykur í Sæfaxa
Vostmannaeyjum.
SLÖKKVILIÐ Vestmannaeyja
var í gærmorgun kallað að Sæ-
faxa VE sem lá við bryggju en
mikinn reyk lagði frá bátnum.
VEÐURHORFUR I DAG, 4. JUNl
YFIRLIT: Fyrir vestan og norðvestan land er 1.032 mb haeð, en
lægðasvæði yfir Skandinavíu og annað langt suðvestur í hafi.
SPÁ: Hæg breytileg eða norðaustan átt. Víðast léttskýjað, en held-
ur vaxandi líkur á síðdegisskúrum sunnanlands. Fremur svalt norð-
anlands, einkum við sjóinn en allt að 16 stiga hiti suövestantil.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Hæg breytileg eða
norðaustan átt. Skýjað og smáskúrir eða él við norðausturströnd-
ina en annars víða léttskýjað. Svalt áfram um norðanvert landið
en 10-16 stiga hiti að deginum syðra.
Svarsimi Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600.
TAKN'.
Heiðskirt
Lettskyiað
Hálfskýjað
Skyjað
Alskyjað
Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—[- Skafrenningur
Þrumuveður
Truflanir á símasam-
bandi næstu nætur
TRUFLANIR verða vegna viðgerða næstu nætur hjá þeim símnotend-
um sem tengjast miðbæjarstöð í Reykjavík og útstöðvum hennar og
hafa simanúmer sem byija á 1, 2, eða 6. Búist er við að símar þess-
ara notenda verði óvirkir tví- eða þrívegis á tímabiíinu frá miðnætti
og fram undir hálf þijú og þá í nokkrar mínútur í senn. I gær var
talið að truflananna yrði fyrst vart nú í nótt sem leið. Alls tengjast
um 9.000 notendur þeiin stöðvum, sem hér um ræðir, þar á meðal
lögregla og slökkvilið.
Að sögn Ragnars Benediktssonar,
deildarstjóra hjá fjarskiptadeild
Pósts og síma, verða truflanimar
þegar skipt verður um vinnsluforrit
í stafrænu sfmstöðinni í miðbænum.
Hann segir að þama sé um umfangs-
miklar breytingar að ræða og ekki
sé hætt á að gera þær allar í senn.
Þær séu gerðar í þeim tilgangi að
koma í veg fyrir að bilanir, sem orð-
ið hefur vart í stöðinni, endurtaki sig.
Ragnar segir, að truflanimar lýsi
sér þannig, að númerin verði sam-
bandslaus í nokkrar mínútur í senn,
þannig að hvorki verði hægt að
hringja úr þeim né í þau. Hins vegar
haldist samband á þeim símtölum,
sem séu hafin áður.
Vegna tmflananna hefur Lögregl-
an í Reykjavík gert grein fyrir því,
að svari neyðarnúmerið 11166 ekki
á umræddu tímabili skuli fólk
hringja í númerið 671166 og
Slökkviliðið bendir á símann 27287,
svari ekki neyðarsíminn 11100.
Morgunblaðið/Jón Stefánsson
Sofnaði á þakinu
en vaknaði í steininum
Ungur maður klifraði upp á þak Bankastrætis 10 á sunnudagsmorg-
uninn og lagðist þar til svefns. Lögreglumenn veittu honum athygli
á sjöunda tímanum og þar sem líkur voru taldar á að hann félli niður
af þakinu, 8 metra, ef hann bylti sér, var fenginn kranabíll frá
slökkviliðinu til að færa manninn til jarðar. Manninum var komið
fyrir í sjúkrakörfu, hann ólaður við hana og látinn síga til jarðar.
Þrátt fyrir þessar aðfarir mmskaði maðurinn ekki fyrr en eftir nokkra
dvöl í fangageymslum lögreglunnar enda er hann talinn hafa verið
allölvaður. A myndinni sést hvar slökkviliðsmaður færir manninn á
sjúkrabömmar.
Hreinn Loftsson.
Hreinn Lofts-
son aðstoðar-
maður Davíðs
HREINN Loftsson héraðsdóms-
lögmaður hefur verið ráðinn að-
stoðarmaður Davíðs Oddssonar
forsætisráðherra og hefur hann
störf sem slíkur í dag.
Hreinn er 35 ára gamall. Að loknu
lögfræðiprófí fór Hreinn til fram-
haldsnáms í Englandi, þar sem hann
nam réttarheimspeki og stjómskip-
unarrétt. Hann var aðstoðarmaður
Matthíasar Á. Mathiesen í við-
skipta-, utanríkis- og loks sam-
gönguráðherratíð hans.
Hreinn sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að hann myndi nú
taka sér frí frá lögfræðistörfum.
Hann er einn af eigendum lögfræði-
stofunnar Lögmanna Höfðabakka.
Hreinn er giftur Ingibjörgu Kjart-
ansdóttur. Eiga þau tvö börn.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra:
Ekki var eldur í bátnum en olía
sem slettist á pústgreinina orsakaði
reykinn. Skemmdir á bátnum em
ekki fullkannaðar en talið er að þær
séu ekki alvarlegar. Sæfaxi hélt til
veiða á ný í gærkvöldi.
Grímur
vn VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hlt! veður Akureyri 8 léttskýjað Reykjavík 12 léttskýjað
Bergen 12 úrkomaígr.
Helsinki 11 skúr
Kaupmannahöfn 14 alskýjað
Narssarssuaq 16 skýjað
Nuuk 6 háHskýjað
Ósló 13 skurás.klst
Stokkhólmur 12 skýjað
Þórshöfn 5 skúrás.ldst.
Algarve 22 þokumóða
Amsterdam 9 rigning
Barcelona 20 mistur
Berlín 19 léttskýjað
Chicago 18 þokumóða
Feneyjar 23 þokumóða
Frankfurt 16 skúrás. klst.
Glasgow 10 úrkoma i grennd.
Hamborg 12 rigningás. klst.
London 12 skýjað
Los Angeles 13 léttskýjað
Luxemborg 11 skúrás.klst.
Madnd 25 iéttskýjað
Maiaga 22 léttskýjað
Mallorca 21 skýjað
Montreal 17 léttskýjað
NewYork 22 heiðskírt
Ortando vantar
París 13 skýjað
Madeira 19 skýjað
Róm 20 skýjað
Vin 21 skúr
Washington 23 þokumóða
Winnipeg 17 skýjað