Morgunblaðið - 04.06.1991, Blaðsíða 39
MOKGUNBLAÐIÐ ÞBIÐJUÐAGUR 4. JUNI-1991
89
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Siglt um Eyjafjörð
Sjómannadagurinn var að venju haldinn hátíðlegur
í Hrísey, en íbúarnir hefja daginn á því að fara í
siglingu út frá eyjunni og um fjörðinn. Bátar af
öllum stærðum og gerðum tóku þátt í siglingunni
og mannskapurinn skipaði sér niður á þá. Sjómanna-
messa var í Hríseyjarkirkju, þar sem sóknarprestur-
inn, sr. Hulda Hrönn Helgadóttir, predikaði, en
Guðmundur Kristjánsson skipstjóri á Súlnafelli tal-
aði fyrir hönd sjómanna. Dagskránni var fram hald-
ið við sundlaugina, þar sem keppt var í björgunar-
og stakkasundi og farið í koddaslag. Kaffiveitingar
voru í kaffistofu Fiskvinnslustöðvarinnar og um
kvöldið var dansað. Björn Bjömsson sjómaður og
eiginkona hans, Guðrún Baldvinsdóttir, voru heiðr-
uð, en þau sjást á minni myndinni ásamt sóknar-
presti og skipstjóra Súlnafells.
Sláttur hafinn í Eyjafirði:
Útlit fyrir að einhverjar
spildur verði þríslegnar
Teknir með tölu-
vert magn fíkniefna
TVEIR ungir menn voru handteknir aðfaranótt sunnudags vegna
gruns um aðild að fíkniefnamáli. Annar reyndist með töluvert magn
amfetamíns á sér og var vel birgur af fé, þannig að lögreglu grunaði
að mennirnir væru í söluferð.
Mennirnir voru téknir upp úr mið-
nætti aðfaranótt sunnudags, þeir
voru þá á ferð um bæinn á bíl ásamt
fleira fólki. Reyndist. annar þeirra
vera með fíkniefni, amfetamín, á sér
og voru piltarnir því færðir í fanga-
geymslu. í fórum þeirra fundust um
10 grömm af amfetamíni og eitt-
hvert magn af hassi, sem annar pilt-
anna viðurkenndi að eiga.
Eigandi fíkniefnanna var vel birg-
ur af lausafé, var með nokkra tugi
þúsunda á sér, þannig að grunsemd-
ir vöknuðu að hann hefði gagngert
komið norður í land til að selja fíkni-
efni, en um aðkomumann var að
ræða.
Mönnunum hefur verið sleppt, en
rannsókn málsins er ekki að fullu
lokið.
Háskólinn á Akureyri:
Um 80 nýjar umsóknir
HÁSKÓLANUM á Akureyri bárust tæplega 80 umsóknir nýnema fyrir
næsta skólaár, en frestur til að sækja um skólavist rann út á laugar-
dag, 1. júní.
Ólafur Búi Gunnlaugsson skrif-
stofustjóri Háskólans á Akureyri
sagði að vafalaust myndi tala skráðra
nýnema við skólann hækka eitthvað,
það væri reynsla síðustu ára.
Flestir sóttu um nám í rekstrar-
deild, eða um 40 manns, þar af eru
um 10 sem sækja um viðbótarnám
til BS-prófs á gæðastjórnunarbraut.
Um 20 nemar sóttu um nám í hjúkr-
unarfræði og um 10 sóttu um nám
við sjávarútvegsdeild.
Ólafur Búi sagði ekki að fullu ljóst
hversu margir yrðu við nám í skólan-
um næsta vetur, en þeir yrðu líklega
á bilinu 150 til 170.
Slippstöðin:
Þrír hafa sýnt ný-
smíðaskipinu áhuga
EKKERT formlegt tilboð barst í nýsmíðaskip Slippstöðvarinnar,
B-70, sem auglýst var fyrir nokkru, en frestur til að skila inn tilboð-
um rann út um mánaðamótin.
Sigurður G. Ringsted forstjóri
Slippstöðvarinnar sagði að nokkrir
aðilar hefðu spurst fyrir og þrír
aðilar sýnt skipinu áhuga. „Skipið
hefur leynt og ljóst verið á söluskrá
í langan tíma, bæði hér innanlands
og einnig utan,“ sagði Sigurður.
Ný stjórn Slippstöðvarinnar var
kjörin á aðalfundi fyrir skömmu og
sagði Sigurður að hún myndi innan
skamms hitta nýja ráðherra að
máli þar sem ræða ætti um hið
óselda skip og kvaðst hann vonast
til að mál færu að skýrast. Nýr
stjórnarformaður Slippstöðvarinnar
er Hólmsteinn Hólmsteinsson.
SLÁTTUR hófst í Eyjafirði síðasta
föstudagskvöld, 31. maí, en það
er nánast einsdæmi að sláttur hefj-
ist svo snemma. Verði sprettutíð
góð í sumar er ekki loku fyrir það
skotið að einhverjar spildur verði
þríslegnar, þannig að heybirgðir
gætu orðið með mesta móti í
haust.
Ólafur Vagnsson ráðunautur hjá
Búnaðarsambandi Eyjafjarðar sagði
að á sumum túnum væri grasið orð-
ið þokkalegt og bjóst hann við að í
þessari viku myndu margir bændur
hefla slátt, einkum á svæðinu framan
Akureyrar. En á föstudagskvöld
hófst sláttur á tveimur bæjum í Eyja-
fjarðarsveit, á Krónustöðum og
Hrafnagili.
„Það er nánast einsdæmi að
sláttur hefjist svona snemma. Ég
hef verið að spyrja eldri bændur
og þeir segjast fyrst muna eftir
að sláttur hæfist um 5. til 6. júní.
Almennt á ég von á að sláttur
hefjist í þessari og næstu viku,
þetta er mikill annatími hjá bænd-
um, þeir hafa vart lokið nauðsynle-
gustu vorverkum er slátturinn
hefst,“ sagði Ólafur.
Hann sagði að langvíðast í hérað-
inu væru til nægjar fyrningar og því
væri um að gera fyrir bændur að slá
snemma, á meðan grasið er orkurík-
ast, það væri nánst ígildi kjarnfóðurs
nú þegar það er ekki fullsprottið.
Yrði sprettutíð góð í sumar væri út-
lit fyrir að einhveijar spildur yrðu
þríslegnar, það tæki grasið um mán-
aðartíma að spretta nægilega fyrir
næsta slátt. „Ef sumarið verður gott
verða eflaust feikilegar heybirgðir til
í héraðinu í haust,“ sagði Ólafur.
----------------
Kvennakór
með tónleika
KVENNAKÓRINN Lissy heldur
tónleika í Akureyrarkirkju í
kvöld kl. 20.30.
Á efnisskrá eru m.a. lög eftir
Pál ísólfsson, Jón Hlöðver Askels-
son, Þorkel Sigurbjörnsson, Pergol-
esi og Fauré. Einnig íslensk ein-
söngslög og orgelverk.
Einsöngvarar eru Hildur
Ti-yggvadóttir og Margrét Bóas-
dóttir og er hún jafnframt stjórn-
andi kórsins. Orgelleikari er Björn
Steinar Sólbergsson.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Kveðjukoss Ernu
Deildarstjóraskipti urðu hjá Ríkisútvarpinu á_ Akureyri á föstudag, Erna
Indriðadóttir sem verið hefur deildarstjóri Útvarps Norðurlands lét af
störfum eftir fimm ára veru í stól deildarstjóra og við tók Bjarni Sig-
tryggsson. Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri, Elva Björk Gunnarsdótt-
ir framkvæmdastjóri, Kári Jónasson fréttastjóri og Maigrét Oddsdóttir
deildarstjóri Rásar 1 auk fulltrúa frá svæðisútvarpinu á Isafirði og Egils-
stöðum komu til Akureyrar við þetta tækifæri og voru Ernu þökkuð
mikil og góð störf í þágu útvarpsins í hófi sem haldið var af þessu tilefni
og Bjarni jafnframt boðinn velkominn til starfa. Á myndinni smellir Erna
kossi á kinn Bjarna.
Sælgætisframleiðendur
og bakarar athugið
Óskum eftir að kaupa nú þegar
súkkulaðihúðunarvél án kælis.
Upplýsingar gefur Sigurður Arnórs-
son, sími 96-22800.
Linda hf.,
Akureyri.
Breytt
símanúmer
Tekið hefur verið í notkun
nytt símanúmer á afgreiðslu
hlaðsins áAkureyri
11600
fRiii’ijjrmMíiíiiiíi
Hafnarstræti 85, Akureyri.