Morgunblaðið - 04.06.1991, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 04.06.1991, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJURDAGUR 4. JÚNÍ 1991 Minning‘: Sigurgeir Sigurðs- sonf Akureyri Fæddur 10. október 1908 Dáinn 26. maí 1991 Það er undarlegt hve dauðinn kemur sífellt á óvart. Samt er hann óaðskiljanlegur hluti lífsins, það eina sem fyrirfram er vitað að muni bera að höndum okkar. En lífið kemur líka á óvart. Gamall maður kveður lífið, tekinn að þreyt- ast á langri ævi og í sömu and- ránni fæðist lítill drengur. Agnar- smár langafastrákur sem flýtti för sinni í heiminn. Dálítill sólargeisli þann dapurlega dag. Þannig end- urnýjast lífið og hratt flýgur stund. Því er mikilvægt að gæta að veg- ferð sinni og samskiptum við sam- ferðafólkið. Og það var einmitt það sem öðru fremur éinkenndi tengda- föður minn. Framkoma hans var róleg og yfii-veguð og hann var orðvar. Leiðir okkar lágu saman fyrir tuttugu og þremur árum. Hann var þá um sextugt en ég inn- an við tvítugt og á biðilsbuxum eftir yngstu dótturinni. Við urðum fljótt vinir og sú vinátta dýpkaði og styrktist eftir því sem árin liðu. Sigurgeir Sigurðsson fæddist á Öngulstöðum í Eyjafirði 10. október 1908. Hann var elsta barn hjónanna Emilíu Baldvinsdóttur og Sigurðar Sigurgeirssonar, bónda og smiðs. Systkini hans voru fjögur, Anna, fædd 1909, býr á Akureyri, Snorri, fæddur 1914, býr í Eyjafirði, Ragn- ar, fæddur 1916, býr á Akureyri og Baldur, sem er látinn. Hann var fæddur 1919 og bjó í Eyjafirði. Sigurgeir var enn á barnsaldri þegar foreldrar hans keyptu hálfa jörðina Syðri-Hól í Eyjafirði og þar ólust systkinin upp. Efni voru ekki mikil. Jörðin gaf ekki færi á stórbú- skap og öðruvísi var umhorfs á þessum slóðum en nú er. Stórþýfi var á túnum og úthagar kostarýrir. Sigurður faðir Sigurgeirs hafði lært smíðar og hafði viðurværi að nokkru leyti af iðn sinni. Hann byggði fjölda húsa í Eyjafirði og var því oft langdvölum að heiman. Þá kom það í hlut barnanna að sinna um búsmalann ásamt móður sinni. Sigurgeir gekk að sveitastörfunum og tók að nokkru leyti ábyrgð á búinu ásamt Önnu systur sinni þar til bræður þeirra höfðu vaxið úr grasi. Meðfram bústörfum vann hann við vegagerð í Vaðlaheiði, þar sem notast var við hestvagna til efnisflutninga og um skeið var hann við mjólkurflutninga og ók þá opn- um pallbíl. Menntunarkostir voru fáir á þessum árum. Til viðbótar venjulegu skólanámi þess tíma fór Sigurgeir einn vetur í Héraðsskól- ann að Laugum í Reykjadal og ökupróf tók hann 1931 og lagði þannig grunninn að ævistarfinu. Um miðjan fjórða áratuginn fluttist Sigurgeir til Akureyrar og þar átti hann heima alla tíð síðan. Þar starfaði hann við leigubílaakst- ur í fimmtíu og þijú ár, fyrst á Bifreiðastöð Akureyrar hjá Kristj- áni Kristjánssyni en fljótlega eftir að Bifreiðastöð Oddeyrar, BSO, var stofnuð hóf hann rekstur eigin bif- reiðar. Lengi var hann forystumað- ur bifreiðastjóranna og í tólf ár var hann framkvæmdastjóri Bifreiða- stöðvar Oddeyrar. Þótti hann lipur í því starfi og farsæll. Bílar voru ekki almenningseign um miðja öld- ina. Leigubílar voru teknir í lang- ferðir og túrarnir gátu staðið dög- um saman. Þetta var krefjandi starf og vinnudagurinn oft langur. Tóm- stundir voru því fáar framan af. En Sigurgeir hafði gaman af lax- veiðum og spilaði brids á veturna með vinnufélögum. Árum saman söng hann líka með karlakórnum Geysi. Tengdamóður minni, Margréti Tryggvadóttur, kynntist Sigurgeir árið 1939. Þau giftu sig 1941 og settu saman heimili á Brekkugötu 23 á Akureyri. Tíu árum síðar fluttu þau í Austurbyggð 8 og þar var heimili þeirra fram á síðustu ár. Þau eignuðust þijár dætur; Önnu Maríu, sem fædd er 1942 og er gift Svavari B. Magnússyni, Katr- ínu, sem fædd er 1944 og er gift Sigurgeir Magnússyni, og Margr- éti, sem fædd er 1951 og er gift Sigurði Björnssyni. Þau Margrét og Sigurgeir ólu einnig upp bróðurson Margrétar, Tryggva Karlesson, sem fæddur er 1949 en hann er giftur Bergþóru Bergkvistsdóttur. Allar búa dæturnar á Ólafsfirði en Tryggvi á Fáskrúðsfirði. Allan bú- skap þeirra Margrétar og Sigur- geirs átti frænka Margrétar heimili með þeim. Hún hét Margrét Ant- onsdóttir og er nýlátin í hárri elli. Á heimili tengdaforeldra minna var umhyggjan í fyrirrúmi. Þau Margrét og Sigurgeir voru sam- Btómastifr niðjinm Suðuilandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öll kvöld tíl ki. 22,- einnig um helgar. Skreytingar vlð öll tllefni. Gjafavörur. ** Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og vai legsteina. ©jö H ■ KS.HELGASONHF IISTEINSMIÐJA ■■ SKEMMUVEGI48. SIMI76677 A 51 hent, dæturnar voru þeim afar kærar og fóstursonurinn ekki síður. Okkur tengdabörnunum tóku þau opnum örmum og öll áttum við okkar annað heimili í Aústurbyggð- inni. Barnabörnin komu eitt af öðru og þau eignuðust öruggt athvarf hjá afa og ömmu. Fordæmi þeirra kenndi þeim heiðarleika og þau munu lengi búa að þeirri hlýju sem afi og amma sýndu þeim. Missir okkar allra er mikill. Mest_ hefur þó tengdamóðir mín misst. í hálfa öld gengu þau saman gegnum lífið, Margrét og Sigurgeir, svo nákomin hvort öðru. Nú er hann farinn í ferðina löngu. Megi Guð geyma hann í eilífðinni og gefa Margréti styrk. Sigurður Björnsson 20% afsláttur af öllum sumarleikföngum. Mikið úrval af tómstundavörum, viðlegubúnaði, módelum og öllum tegundum leikfanga. Berið saman verð. TOmSTlinDflHUSID HF Laugavegi 164, sími 21901
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.