Morgunblaðið - 19.11.1991, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NOVEMBER 1991
17
Sigrún Jóns-
dóttir - Minning
Fædd 17. júní 1907
Dáin 11. nóvember 1991
„Og hvað er að hætta að draga
andann annað en að frelsa hann frá
friðlausum öldum lífsins, svo að
hann geti risið upp í mætti sínum,
og ófjötraður leitað á fund guðs
síns?” (Úr Spámanninum eftir K.
Gibran.)
Okkur langar að minnast ömmu
okkar, Sigrúnar Jónasdóttur, með
nokkrum orðum en hún andaðist á
hjartadeild Borgarspítalans þann
11. þessa mánaðar eftir nokkra
sjúkdómslegu.
Amma var fædd í Beingarði í
Hegranesi en bjó lengst af á Siglu-
firði. Amma var mjög sjálfstæð og
ákveðin kona. Hún vann mikið alla
sína daga og var fyllilega karl-
mannsmaki I þeirri verkamanna-
vinnu sem hún vann.
Hingað til Reykjavíkur kom hún
árið 1964 og kom þá inn á heimili
okkar þar sem ætlunin var að hún
litil til með okkur tveimur elstu
systrunum í einhvetjar vikur. Það
teygðist þó úr þeim tíma og nutum
við þess að hafa ömmu á heimilinu
í tæp fimmtán ár. Þá flutti hún í
íbúð í næsta nágrenni við okkur
þannig að þau miklu og góðu tengsl
sem myndast höfðu milli okkar
systkinanna og ömmu héldust vel.
Áhugi á fræðslu og menntun var
henni í blóð borinn og var hún mik-
ill uppfræðari og uppalandi. Hún
fylgdist vel með nýjustu hugmynd-
um og var fróð um marga hluti,
ekki síst hvað varðaði vísindi og
fræði, svo og sögu og menningu
landsins. Hún kunni ógrynnin öll
af ljóðum og var óþreytandi að
miðla okkur fróðleik og kenna okk-
ur ljóð þegar við vorum yngri og
búum við að því alla tíð. Hún fylgd-
ist mjög grannt með skólagöngu
okkar og hafði mikla ánægju af að
ræða við okkur um viðfangsefni
okkar og hugðarefni.
Amma var alltaf opin fyrir nýjum
hugmyndum þó gömul og góð gildi
og dyggðir hafi alla tíð haldið sínu
hjá henni. Hún var framfarasinnuð
félagshyggjukona og afar fráhverf
því lífsgæðakapphlaupi og eftirsókn
eftir vindi sem er svo áberandi í
dag. Amma lagði alla tíð lítið upp
úr veraldlegum hégóma og óþarfa.
Andleg verðmæti voru henni hin
einu sönnu verðmæti og af þeim
átti hún meira en nóg.
Hún hugsaði ekki mikið um sjálfa
sig en þeim mun meira um aðra
og var óþreytandi að gefa af sjálfri
sér.
Við nutum þeirra forrréttinda að
eiga ömmu sem var alltaf til staðar
fyrir okkur og aðra. Það var alltaf
einhver heima til að tala við svo
ekki sé minnst á soðna brauðið og
flatkökurnar sem alltaf stóðu til
boða.
Það er dálítið undarlegt til þess
að hugsa að sá tími er liðinn að
hægt sé að koma við hjá ömmu.
Þessi fasti punktur í tilverunni er
horfinn, kletturinn í hafinu sokkinn,
hluti af okkar rótum visnaður. Eft-
ir stendur í hugum okkar þakklæti
fyrir að hafa notið hennar eins vel
og lengi og við þó gerðum.
Sigrún, Steinunn, Guðrún
og Valgeir.
20 tommu
fjölkerfa
litasjónvarp
á svarthvítu
verði
Heimilístækí hf
Tæknideild, Sætúni 8 SÍMI6915 00
' saMtÍKguiK,
OTRULEGT EN SATT
nóvember
\i\m\
iiiiiimi iiimu/ii /iimum i / itttiifl íi \ im itiiiimi»
\%K í /
4
<*&
«0
Í
t
4 ysoso
Kópal Tónn 4
Gcfur matta áfcrð.
Hcntar einkar vcl
þar scm minna
mæðir á, t.d. í
stofum, borðstof-
um, í svcfnhcrbcrgi
\\ og á Ioft.
Kópal Glitra 10
Hcfur örlítið meiri
gljáa cn KÓÞAL
TÓNN og þar af
lciðandi bctri
þvotthcldni. Hcntar
vcl þar scm mcira
mæðir á.
Kópal Birta 20
Gefur silkimatta
áfcrð. Hcntar vcl
þar scm mæðir
talsvcrt á vcggfleti,
t.d. á ganga, barna-
hcrbcrgi, eldhús, og
þar sem óskað cr
cftir góðum gljáa.
Kópal Flos 30
Hefur gljáa scm
kemur að góðum
notum á lcikhcr-
bcrgið, stigaganga,
barnahcrbcrgi,
baðhcrbcrgi, þvotta-
hús o.fl. Hentar
einnig á húsgögn.
Kópal Geisli 85
Gcfur mjög gljáandi
áfcrð og hcntar þar
scm krafist cr
mikillar þvottheldni
og stykleika, t.d. í
bílskúrinn, í
gcymsltma og í
iðnaðarhúsnæði.
Hcntar cinnig á
húsgögn.
Kópal innanhúss-
málning er með
fímm gljástig
KÓPAL ef samheiti á innan-
hússmálningu sem uppfyllir
kröfur um ómengandi máln-
ingarvöru til innanhússnota á
Norðurlöndum. KÓPAL
yfirmálning er vatnsþynnan-
leg, fæst með fimm gljástigum
og í staðallitum og nær ótelj-
andi sérlitum skv. KÓPAL
tónalitakortinu. KÓPAL
yfirmálning er auðveld í með-
förum, slitsterk og áferðar-
falleg og seld í öllum málning-
arverslunum landsins.
málning'f
- það segir sig sjdlft -
í 1 i
mmMtWH'inwn mw«/ m ni)//»/Vt»\vm\ \«iamf i;« i\\
\\\ /1*1 lí I !«/«/■!!■ III KU!I U*/.rSM/lll