Morgunblaðið - 19.11.1991, Blaðsíða 29
Verkfall í mjólk-
ursamlagi:
Næffar birgð-
ir af mjólk
í stærstu
verslununum
NÆGAR birgðir af mjólk og
mjólkurvörum voru til í stærstu
verslununum á Akureyri, Hag-
kaup og Hrísalundi, rétt fyrir
lokun í gærdag og var álitið að
þær myndu duga í dag, þriðju-
dag, þannig að ekki kemur til
skorts á þessum vörum í verslun-
um vegna verkfalls iðnverka-
fólks í mjólkursamlagi KEA.
Þriggja daga verkfalli lýkur á
morgun, miðvikudag.
í Hagkaup fengust þær upplýs-
ingar að næg mjólk væri til, en
tvær sendingar komu í verslunina
á laugardag. Lítið var eftir af ijóma
í versluninni í gær og taldi starfs-
maður að hann myndi klárast áður
en ný sending kæmi eftir verkfall.
Hann sagði að nokkuð hefði borið
á því að fólk keypti meiri mjólk en
vanalega á föstudag, en á laugar-
dag var salan svipuð og vanalega.
Umsjónarmaður mjólkurkælis í
Hrísalundi sagði að þar væru til
nægar birgðir af öllum mjólkurvör-
um og benti allt til að svo yrði þar
til nýjar birgðir bærust á miðviku-
dag. Hann sagði að salan hefði
verið dálítið meiri en vanalega, bor-
ið hefði á því að fólk verslaði aðeins
meira en það er vant og ætti það
sérstaklega við um mjólkina. Engin
hætta ætti þó að vera á mjólkur-
skorti, nægar birgðir væru til í
versluninni.
< ,
Verkfall í mjólkursamlögum:
Vonum að ekki komi
til þess að hella
þurfi niður mjólk
- segir Oddur Gunnarsson bóndi á
Dagverðareyri í Glæsibæjarhreppi
„VIÐ bændur erum þolcndur í þessu verkfalli, það bitnar fyrst á
okkur, en þó getum við ekkert gert þar sem við sitjum hvorugum
megin borðsins í þessari deilu,” sagði Oddur Gunnarsson bóndi á
Dagverðareyri í Glæsibæjarhreppi. Iðnverkafólk í mjólkursamlögum
KEA á Akureyri og KÞ á Húsavík var í verkfalli 1 gær og verður
einnig í dag, þriðjudag til að leggja áherslu á kröfur sinar um að
£á metið starfsnám semþaö hefur sótt. Vinnuinálasamband samvinnu-
félaganna telur ekki forsendur til hækkunar launa iðnverkafólks í
injólkursamlögum, nema þá að til komi einhvers konar hagræðing
í mjólkurbúunum á móti.
Oddur Gunnarsson sagði að
ekki hlytust af verkfallinu nú veru-
Sáttafundur í mjólkursam-
lagsdeilunni á morgun
SÁTTASEMJARI hefur boðað fund í deilu iðnverkafólks í mjólk-
ursamlögum KEA á Akureyri og KÞ á Húsavík á morgun, miðviku-
dag, kl. 10 í Alþýðuhúsinu á Akureyri. Verkfall stendur nú yfir
í þessum samlögum, þ.e. í gær og í dag og einnig var iðnverkafólk
í verkfalli síðastliðinn föstudag.
Engin árangur varð á sáttafundi deiluaðilar eru ekki sérlega bjartsýn-
sem boðað var til í Reykjavík á ir og segja stöðuna erfiða.
fímmtudagskvöld í síðustu viku og Iðnverkafólk heldur fast við kröfu
Malarasamstæða inn-
lyksa vegna krapaflóðs
Krapi í Fnjóská varð til þess að áin stíflað-
ist og flæddi um Laufáseyrar með þeim
afleiðingum að malarasamstæða í eigu
Vegagerðarinnar sem staðsett var í nám-
unda við Laufási varð fyrir nokkru tjóni.
„Við bíðum bara eftir að hláni eða komi
vor,” sagði Sigurður Oddsson umdæmis-
tæknifræðingur Vegagerðar ríkisins á Akur-
eyri. Tækin voru notuð í haust í malamámu
sem þama er og sagði Sigurður að ætlunin
hefði alla tíð verið að vinna í henni þar til
vetur gengi í garð og síðan átti að geyma
tækin á þessum stað fram til vors. „Þessi
krapastífla kom reyndar nokkuð óvænt, yfír-
leitt gerist þetta eftir áramótin. Ef til þess
kemur að áin hækki sig um 60 sentímetra
á öllu þessu svæði, þá er margt í meiri
hættu en okkar tæki, en ætli rafstöðvarbíll-
inn sé ekki í einna mestu hættunni, sagði
Sigurður.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
sína um að fá starfsnám metið til
launa, en þar er um að ræða rúmr
lega 3.000 króna greiðslu á mánuði
til handa þeim er sótt hafa slík nám-
skeið. Vinnumálasambandið telur
ekki forsendur til launahækkunar í
mjólkursamlögum og bendir á kröfur
sem gerðar eru til hagræðingar í
búunum til að lækka kostnað, sem
á að skila sér til neytenda.
Vinnumálasambandið ítrekaði í
skeyti til verkalýðsfélaganna á föstu-
dagskvöld þá skoðun sína að uin
ólöglegt verkfall væri að ræða, en
Hjörtur Eiríksson framkvæmdastjóri
sagði í gær að engar aðgerðir væru
fyrirhugaðar af hálfu sambandsins
fyrst um sinn. „Við ákváðum að láta
þessa liggja kyrrt nú, en munum
eflaust ræða þessi mál betur á fund-
inum á morgun,” sagði Hjörtur.
leg vandræði, en kæmi til ótíma-
bundins verkfalls sem boðað hefur
verið eftir 25. nóvember eða frá
og með mánudegi í næstu viku
gæti verulega farið að syrta í ál-.,
inn.
Mjólk var sótt að Dagverðareyri
á laugardag, en þar er rými til að
geyma mjólk í fjóra daga eða fram
á miðvikudag. Kælirinn tekur
2.400 lítra, en á bænum er magn-
ið um 600 lítrar á dag. „Það verð-
ur allt orðið fullt hér á miðviku-
dag, en þá koma þeir líka og sækja
mjólkina þannig að það hljótast
ekki vandræði vegna þessa verk-
falls. Það gæti hins vegar orðið
verra ef ekki semst og til ótíma-
bundna verkfallsins kemur, þá eig-
um við ekki önnur ráð en að hella
mjólkinni niður,” sagði Oddur, en
hann sagði langt um liðið síðan
bændur hafi orðið að grípa til þess
ráðs vegna verkfalls, eða 16-17 ár.
„Við gætum orðið fyrir verulegu
tjóni ef til þess kemur að hella
þurfí niður mjólk, ég reikna með
að öll vinnulaun bóndans í einn
mánuð hverfí ef hella þarf niður
mjólk i vikutíma. Þannig að bænd-
ur vonast auðvitað til að deiluaðil-
ar nái saman áður en til slíks þurfi
að koma,” sagði Oddur.
Þörf á nýjum strætisvagni
BRÝN ÞQRF er á að kaupa nýjan strætisvagn fyrir Strætisvagna
Akureyrar og hefur tillaga þar um verið lögð fyrir bæjarráð. Stræt-
isvagnar Akureyrar eiga nú fjóra vagna sem allir eru í notkun hluta
úr degi og því enginn til vara ef eitthvað kemur upp á.
Stefán Baldursson forstöðumað-
ur Stætisvagna Akureyrar sagði að
á síðustu mánuðum hefði fólk notað
vagnana í auknum mæli. Engar
strætisvagnaferðir eru í Giljahverfi
og sagði Stefán að engin tök væru
á að sinna því hverfi með þeim
vagnakosti sem fyrirtækið hefði til
umráða. Þá þyrfti einnig að bæta
þjónustu við Norður-Brekku auk
fleiri staða.
Svavar Orn Höskulds-
son — Minning
Fæddur 3. febrúar 1938
Dáinn 8. nóvember 1991
Á fögrum síðsumardegi árið
1937 kom móðurbróðir minn Hös-
kuldur Hallsson frá Gríshóli í Helg-
afellssveit heim til foreldra minna
að kveðja því hann var á förum um
haustið til Danmerkur til frekara
náms í mjólkurfræðum, en í þeirri
grein hafði hann aflað sér þekking-
ar. Þó ég væri ekki nema á fímmta
árinu man ég þann atburð vel. Við
bræður fylgdum honum áleiðis í átt
að Gríshóli, en þar bjuggu foreldrar
hans. Mér fannst frændi minn glæs-
ilegur ungur máður, glaður og geð-
þekkur. Þetta er sú mynd sem
geymist í huga mínum. Hann átti
því miður ekki afturkvæmt til ís-
lands því hann lést af veikindurn í
ársbyijun 1941 aðeins þrítugur að
aldri. Skömmu eftir að hann hvarf
til náms eða 3. febrúar 1938 fædd-
ist honum sonur, sem hann átti
með Bryndísi Helgadóttur frá Akur-
eyri. Það er Svavar Örn Höskulds-
son, sem hér er minnst, en hann
lést 8. nóvember sl. langt um aldur
fram eftir langvarandi veikindi.
Þegar Svavar var þriggja ára tók
Jófríður föðursystir hans hann í
fóstur og dvaldi hann mikið hjá afa
sínum og ömmu á Gríshóli allt til
' 7 ára aldurs eða þar til fóstra hans
og frænka stofnaði til hjúskapar
með Dagbjarti Gíslasyni múrara-
meistara. Eftir það var hann í góðu
fóstri hjá þeim uppvaxtarárin ásamt
sveitadvöl á sumrin á góðum heimil-
um.
Svavar naut í æsku sérstakrar
umhyggju frænku sinnar qg fóstra
á notalegu heimili þeirra hjóna á
Hjallavegi 15. Sá sem þetta ritar
þekkti þar vel til enda oft heima-
gangur þar í suðurferðum. Hös-
kuldur faðir Svavars mun hafa ósk-
að þess áður, en hann fór utan til
náms, að systir hans sæi um að
fóstra barnið, sem í vændum var
ef svo bæri undir. Við það stóð hún
og var hann henni alltaf kær.
Svavar valdi sér að lífsstarfi
múraraiðn og nam hana hjá Ólafi
Pálssyni múrarameistara. Þá iðn
stundaði hann af kappi og var um
tíma umsvifamikill verktaki í bygg-
ingariðnaðinum í Reykjavík. Dugn-
aður hans og kapp var mikið. Því
kynntist ég þegar hann ásamt
tveimur góðum félögum sínum kom
vestut í Stykkishólm til múrverks
þegar við fjölskyldan vorum að
byggja okkur íbúðarhús. Þeirra
verk voru ósvikin. Ánægjulegt var
að hafa þá á heimilinu meðan á
þessu stóð, en þeir þurftu að koma
nokkrar ferðir áður en verklok urðu.
Því miður entist Svavari ekki
heilsa. Hann veiktist illa í kjölfar
hjartaáfalls 8. nóvember 1983 þá
45 ára gamall og var raunar krafta-
verk að hann skyldi hafa sigur í
þeirri raun, en mátti þó búa við
mikla vanheilsu það sem eftir var.
Hann fékk hægt andlát á heimili
sínu 8. nóvember, sama mánaðar-
dag og hann veiktist fyrir 8 árum.
Tilviljanir eru oft óráðnar gátur.
Svavar kvæntist Kristrúnu Ásu
Kristjánsdóttur 21. júlí 1959. Þau
eignuðust tvo syni Guðmund Rún-
ar, múrarameistara og Svavar Örn
nema í rakaraiðn.
Svavar og Kristrún Ása slitu
samvistir fyrir nokkrum árum. Fyr-
ir hjónaband átti Svavar son, Hös-
kuld bifreiðastjóra í Mosfellsbæ
með Ólöfu Ástu Kristjánsdóttur.
Það er erfítt að þurfa að sætta sig
við þegar, fólk missir heilsuna á
besta aldri og fær ekki notið þess,
sem lífið bíður upp á. Fyrir atorku-
manninn Svavar var þetta erfítt^
en þrátt fyrir það var hann hýr og
glaður í sinni og bjartsýnn. Hann
hefur nú fengið þá hvíld, sem allra
bíður. Ég minnist hans, sem góðs
frænda og vinar. hann var frænd- •
rækinn og mannblendinn. Ég votta
sonum hans, barnabörnum og öðr- ,
um ástvinum innilega samúð. ^
Blessuð sé minning hans.
Leifur Kr. Jóhaunesson.