Morgunblaðið - 19.11.1991, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 19.11.1991, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1991 5 Aðalfundur HÍK: , A Islenskukennarar hafi minni kennsluskyldu til að efla móðurmálið AÐALFUNDUR Hins ísl. kennarafélags, sem haldinn var fyrir helgina, samþykkti tillögu um móðurmálskennslu með 26 atkvæð- um gegn 24, þar sem segir m.a. að gefa eigi móðurmálskennurum sérstakt svigrúm með minni kennsluskyldu til þess að efla móður- málið í íslenskum skólum. Tillagan var svohljóðandi: „Gott vald á móðurmálinu er forsenda þess að nemendur nái árangri í öðrum námsgreinum. HÍK telur Erró: 800 áritanir frá morgni fram á kvöld ERRÓ áritaði 800 eintök af ævisögu sinni, Erró - Margfalt líf, síðastliðinn laugardag hjá Máli og menningu, að sögn Halldórs Guðmundssonar út- gáfustjóra. Sagði Halldór, að bókinni hefði verið vel tekið og að margar pant- anir um áritun hefðu borist utan af landi. Erró sat við frá kl 11:30 að morgni til kl. 20 að kvöldi með smá hléi og þrykkti litla grafíska mynd á titilblað bókanna og ritaði nafn sitt á 800 tölusett eintök ásamt höfundinum Aðalsteini Ing- ólfssyni listfræðingi. að öllum kennurum beri skylda til að leggja rækt við móðurmálið í kennslu sinni og leiðbeina nemend- um og hvetja þá til vandaðrar málnotkunar. Ennfremur telur HÍK að gefa eigi móðurmálskenn- urum sérstakt svigrúm með minni kennsluskyldu til þess að efla móðurmálið í íslenskum skólum.” Aðalfundur HÍK varar við því að tekið verði upp inntökupróf í Háskóla íslands og vill félagið leita eftir samvinnu við Háskólann með það m.a. að markmiði að styrkja stöðu stúdentsprófs. „HÍK mót- mælir harðlega geðþóttaákvörð- unum menntamálaráðherra um innra starf skóla s.s. að stöðva þróunarstarf í MH og lengingu kennaranáms í Kennaraháskóla íslands,” segir í ályktun fundarins. Beinir aðalfundurinn því einnig til alþingis að lögum um kjara- samninga opinberra starfsmanna verði breytt þannig að opinberir starfsmenn öðlist samnings- og verkfallsrétt sambærilegan við al- menn verkalýðsfélög, afnumið verði ákvæði um yfirvinnuskyldu og lögum um Lífeyrissjóð ríkis- starfsmanna verði breytt þannig að greitt verði í lífeyrissjóð af öll- um launum. Æ fleiri versl- anir opnar á sunnudögum FÆRST hefur í vöxt að verslanir á höfuðborgarsvæðinu séu opnar um helgar og fram eftir kvöldum virka daga. 'I Hagkaup í Skeif- unni var opið frá kl. 13 til 18 sl. sunnudag og er fyrirhugað að áframhald verði á því. I Mikla- garði við Miðvang í Hafnarfirði er nú opið virka daga frá kl. 9 til 22, á laugardögum frá kl. 10 til 22 og á sunnudögum frá kl. 11 til 22 en verslunin í Hafnar- firði svo og Miklagarðsverslan- irnar í Garðabæ og JL-húsinu hafa fram til þessa verið opnar til kl. 18 á sunnudögum. Að sögn Jóns Ásbergssonar, framkvæmdastjóra Hagkaups, var mjög mikið að gera í Hagkaup sl. sunnudag og er fyrirhugað að opið verði í Skeifunni í framtíðinni á sunnudögum. Jón sagði þennan lengda opnunartíma vera svar við breytingum sem hefðu átt sér stað á opnunartíma verslana á höfuð- borgarsvæðinu á undanförnum misserum. Hann sagði að ekki hefði verið tekin ákvörðun um opnunar- tíma fleiri Hagkaupsverslana þessa daga. Hilmar Kristinsson, verslunar- stjóri Miklagarðs í Garðabæ og Hafnarfirði, sagði í samtali við Morgunblaðið að hugmyndin um að lengja opnunartímann í Mikla- garðsversluninni í Hafnarfirði væri ekki ný en henni hefði verið hrint í framkvæmd þegar samkeppnin jókst fyrir skömmu með opnun svo- kallaðra 10-10 og 10-11 verslana. Hilmar sagði að verið væri að kanna hvort grundvöllur væri fyrir því að hafa fleiri verslanir Mikla- garðs opnar lengi alla daga vikunn- ar. FARKORT greidslukort með fríðindum VtSA FARKORT er greiðslukort sem gefið er út í samvinnu Félags íslenskra ferðaskrifstofa og VISA ÍSLAND. FARKORT er alþjóðlegt VISA-greiðslukort, og því gjaldgengt á yfir 8 milljón verslunar- og þjónustustöðum um allan heim. FARKORTI fylgja sömu réttindi og almennu VISA-korti en ýmis fríðindi því til viðbótar. Fullkomnar ferða/slysa-, sjúkra- og farangurstryggingar og helmings afsláttur af forfallatryggingargjaldi. Afsláttur á fjölmörgum skemmtistöðum, veitingahúsum, hótelum og bílaleigum innanlands. Afsláttur á skoðunarferðum erlendis. Sveigjanlegri greiðsluskilmálar hjá ferðaskrif stofum. Sérstakar „lukkuferðir“, þar sem hánd- höfum FARKORTS bjóðast 30 utanlandsferðir fyrir 30 krónur. Um þessar ferðir er dregið tvisvar á ári. 7-10% afsláttur af tilteknum ferðum til helstu sumarleyfisstaða Evrópu. Þessar ferðir eru auglýstar með góðum fyrirvara. Ódýrar öræfaferðir. O o o o Þetta er því engin spurning! Upplýsingar veita ferðaskrifstofur, barlkar og sparisjóðir um land allt. FARKORT EÐA EKKIFARKORT -það er engin spurning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.