Morgunblaðið - 29.11.1991, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1991
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1991
37
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 110 kr. eintakið.
Hvað hefur breytzt?
P) amstarfsnefnd atvinnurekenda
í sjávarútvegi lýsti því yfir í
íyrradag, að hún hefði fallið frá
stuðningi við samkomulagið um
evrópska efnahagssvæðið, þangað
til allar upplýsingar liggi fyrir í rit-
uðu máli um samkomulagið. For-
sendur fyrir þessari ákvörðun eru
. þær, skv. yfirlýsingu samstarfs-
nefndarinnar, að „nú hefur hins
vegar komið í ljós, að veigamiklar
upplýsingar í tengslum við sjávarút-
vegsmál, sem gefnar voru sem for-
sendur samkomulagsins eiga sér
ekki stoð í raunveruleikanum.”
Hér er átt við þá kröfu Evrópu-
bandalagsins að fá að veiða þann
afla, sem fiskiskipum frá banda-
lagsríkjunum er ætlaður í gagn-
kvæmum skiptum veiðiheimilda,
eingöngu sem karfa, þar sem því
sé ekki að treysta að langha'.i finn-
ist í veiðanlegu ástandi. Um þessa
afstöðu samstarfsnefndarinnar
sagði Magnús Gunnarsson, formað-
ur hennar í samtali við Morgunblað-
ið í gær: „Ég tel mig ekki vera með
upplýsingar í höndunum, sem ég
ber fullt traust til, um hvert er inni-
hald samningsins. Þess vegna tel
ég, að ekki sé um neitt annað að
gera fyrir sjávarútveginn en að fá
þetta í heild sinni og sjá hvað þeir
eru að semja um og meta síðan
afstöðuna út frá því.”
í samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Þorsteinn Pálsson, sjávarút-
vegsráðherra, að hann skildi þessa
afstöðu samstarfsnefndarinnar og
bætti við: „Ég tel útilokað annað
en menn taki tillit til þess.”
I minnisblaði sjávarútvegsráðu-
neytisins frá 22. október sl. sem
sjávarútvegsráðherra sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, að
hefði verið sent til hagsmunaaðila
sama kvöld og hann kom heim af
Lúxemborgarfundinum segir svo:
„Af hálfu Islands hefur verið lagt
til, að 70% af veiðiheimildum banda-
lagsríkjanna verði langhali en 30%
karfi. Éftir er að ganga endanlega
frá samningum að þessu leyti, en
bandalagið hefur látið í ljós ósk um,
að veiða einungis karfa. Þar sgm
vitneskja um útbreiðslu og afrakst-
ursgetu langhalastofnsins er af
skornum skammti er ljóst að auka
þarf rannsóknir verulega á þessu
sviði.”
Samkvæmt upplýsingum sjávar-
útvegsráðherra sjálfs hafði sam-
starfsnefnd atvinnurekenda í sjáv-
arútvegi þetta minnisblað undir
höndutn, þegar nefndin tók upphaf-
lega afstöðu til málsins. Þeim, sem
höfðu þetta minnisblað undir hönd-
um mátti vera ljóst, að niðurstaða
gat orðið á þann veg, að fallast
yrði á kröfu ÉB-ríkjanna að veiði-
heimildir þeirra yrðu einungis veitt-
ar fyrir karfa. Með hliðsjón af þessu
er illskiljanleg sú afstaða, sem sam-
starfsnefndin hefur nú tekið og til-
raunir hennar til þess að halda því
fram, að hún hafi ekki haft nægi-
lega traustar upplýsingar undir
höndum.
Sú afstaða sjávarútve^s|-^h|jra,
að þessi málsmeðferð samstarfs-
nefndarinnar sé skiljanleg og taka
verði tillit til skoðana hennar i
málinu er líka"illskiljanleg. Ráðherr-
ann er annar tveggja ráðherra, sem
gengu frá hinu endanlega samkom-
ulagi. Honum var fullljóst hvað um
var að ræða. Hann sendi upplýs-
ingarnar sjálfur til hagsmunaaðila
í sjávarútvegi. Hvaða forsendur eru
það, sem hafa brugðizt, sem sam-
starfsnefndin byggði upphaflega
afstöðu sína á? Hvaða upplýsingar
eru það, sem sjávarútvegsráðherra
gaf samstarfsnefndinni, sem nú er
ekki hægt að treysta?
Fólkið í landinu getur auðvitað
spurt, hvers vegna stjómvöld hafí
ekki skýrt rækilega frá þessum fyr-
irvara á opinberum vettvangi, þótt
taka beri fram, að t.d. Morgunblað-
ið skýrði frá þessu hinn 22. október
sl. Á móti kemur hitt, að bæði utan-
ríkismálanefnd og hagsmunasam-
tökum í sjávarútvegi var skýrt
rækilega frá málinu, þannig að
hvorugur þessara aðila getur borið
það fyrir sig, að honum hafi ekki
verið um það kunnugt.
Kjarni málsins er auðvitað sá,
að jafnvel þótt um sé að ræða 3.000
tonn af karfa en ekki eitthvað
minna af karfa, en langhala þess í
stað, er um slíkt smáræði að ræða
í gagnkvæmum veiðiheimildum, að
það eru engin efnisleg rök til þess
að standa gegn samningum af þess-
um sökum. Ef menn vilja semja á
annað borð breytir þetta engu, þótt
einhveijum kunni að vera sárara
um 2.000 tonn af karfa en hinn
umtalaða langhala. En það eru eng-
in efnisleg rök til þess hjá sam-
starfsnefnd atvinnurekenda í sjáv-
arútvegi að breyta afstöðu sinni af
þessu tilefni.
Jafnvel þótt samstarfsnefndin
haldi fast við þá skoðun, sem nú
hefur komið fram er það rangt hjá
sjávarútvegsráðherra að taka beri
tillit til þess. Það er ekki aðalatriði
málsins hvað atvinnurekendur í
sjávarútvegi segja. Kjarni málsins
er sá, hver þjóðarhagur er í þessum
efnum. Morgunblaðið hefur jafnan *
tekið skýrt fram, að blaðið teldi
ekki koma til greina að semja um
veiðiheimildir EB-ríkjanna í ís-
lenzkri fiskveiðilögsögu. Hér er hins
vegar um gagnkvæmar veiðiheim-
ildir að ræða og þær svo smávægi-
legar, að þær eru í sjálfu sér ekki
forsenda til að ganga frá samningn-
um.
Yfirlýsing samstarfsnefndar at-
vinnurekenda í sjávarútvegi er
frumhlaup. Að baki henni hljóta að
liggja einhveijar allt aðrar ástæður
en efnislegar. Ríkisstjórnin hlýtur
að halda sínu striki og sjávarútvegs-
ráðherra hlýtur að taka fullan þátt
í að leiða til endanlegrar niðurstöðu
þá samninga, sem hann tók fullan
þátt í og ber alla ábyrgð á ásamt
öðrum ráðherrum og hafði allar
upplýsingar í höndum um þann fyr-
irvara, sem gerður var, þegar hann
tók þátt í þeim málalokum.
fiítiiuiiiimmiímiiiiimi
I JOLAÖSI
30 stæði
v/Tryggvagötu
350 stæði á
Bakkastæði
60 stæði v/gamla útvarpshúsið
opin á laugardögum
100stæði
v/bensínstöð OLÍS
Lóð Eimskips
VESTURGATA
Kolaport, 90 stæði
(lokað laugardaga)
Vesturgata 7,
100 stæði
tOH'
tryggvagata
HAFNARSTR.
§ AUSTURSTRÆTI
05
3
KIRKJUSTR:
60 stæði á |7«
Alþingisstæði ul
S 5 VONARSTR.
S
HVERFISGATA
_ LAUGAVEGUR
IZfe “
o
o.
■X
s
§
§
05
Bergstaðir,
50 stæði
■ u s: 5 5:
V) —4 1
'R
e GRETTISGATA
2%,, NJÁLSGATA
%
Tjörnin
Laugardagana í desember fyrir jól verður
ókeypis í stöðumæla, bílastæði og bíla-
stæðishús á vegum Reykjavíkurborgar
Ókeypis í bílastæði fyrir jól
BORGARRÁÐ hefur samþykkt tillögu umferðardeildar að skipulagi jó-
laumferðar í borginni í desembermánuði. Er gert ráð fyrir takmarkaðri
umferð um Laugaveg og Austurstræti auk þess sem ókeypis verður í
bílastæði á vegum borgarinnar laugardagana fyrir jól.
Erum ósátt við
uppsagnirnar
- segir formaður starfs-
mannafélags íslandsbanka
„FÆKKUN á stöðugildum þannig
að ekki sé endurráðið í störf sem
losna, er sú stefna sem boðað hefur
verið að fylgja eigi í bankanum ef
til skipulagsbreytinga þurfi að
koma. Þeirri stefnu hefðum við vilj-
að sjá að fylgt yrði áfram. Við erum
hins vegar ósátt við að til uppsagna
þurfi að koma,” sagði Guðrún Val-
geirsdóttir, formaður starfsmanna-
félags íslandsbanka í samtali við
Morgunblaðið. Fyrirhugað er að
starfsmönnum bankans fækki um
80 fram til ársloka 1992, þar af
verður 10 sagt upp störfum.
Guðrún sagði að starfsmannafélag
íslandsbanka og Samband íslenskra
bankamanna, hefðu undanfarið reynt
að spyrna fótum við fregnum um að
til uppsagna þyrfti að koma vegna
skipulagsbreytinga í stoðdeildunum.
„Það var okkar mat að unnt væri að
ná fram fyrirhugaðri fækkun starfs-
manna á nokkrum tíma án þess að
til uppsagna þyrfti að koma og við
lögðum áherslu á að leitað yrði ann-
arra lausna en uppsagna, t.d. að bjóða
starfsmönnum störf í útibúum bank-
ans og að starfsmönnum sem nálguð-
ust eftirlaunaaldur yrði gefinn kostur
á að hætta fyrir tímann án þess að
eftirlaunaréttur þeirra skertist. Að
nokkru leyti hefur verið komið til
móts við okkur en samt sem áður er
búið að boða að tíu manna hópur fái
uppsagnarbréf,” sagði Guðrún.
„Þar að auki lögðum við áherslu á
að ef til uppsagna þyrfti að koma
yrði farið eftir starfsaldri og metið
að fólk sem unnið hefur lengi í bank-
anum og er jafnvel komið yfir miðjan
aldur á mjög erfitt með að fá vinnu
í dag. Bankastjórnin hefur hins vegar
ekki í hyggju að fara eingöngu eftir
starfsaldri við ákvarðanir um hveijum
verði sagt upp,” sagði Guðrún.
Lagt er til, að lögreglan takmarki
umferð inn á Laugaveg og Austur-
stræti á tímabilinu 14. til 24. desemb-
er, ef þörf krefur. Má einkum gera
ráð fyrir tímabundinni lokun gatnanna
þann 14. og 21. desember sem eru
laugardagar og á Þorláksmessu.
Undanþágu njóta strætisvagnar og
leigubílar, sem erindi eiga að húsum
við Laugaveg og Austurstræti. Enn
fremur bílar merktir fötluðum. Eru
ökumenn hvattir til að aka ekki þess-
ar götur að ástæðulausu.
Laugardaga í desember fyrir jól
verður ókeypis í stöðumæla, bílastæði
og bílastæðahús á vegum Reykjavík-
urborgar, að undanskildu Kolaporti,
sem er lokað á laugardögum. Er at-
hygli vakin á að laugardagana í des-
ember verða 60 bílastæði til ráðstöf-
unar við Skúlagötu 4, gamla útvarps-
húsið og ennfremur að ókeypis er í
stöðumæla eftir kl. 16 virka daga.
Er vakin athygli á bílastæðahúsum
fyrir almenning í miðborginni við
Vesturgötu 7 en þar eru 100 stæði
og er ekið að húsinu um Mjóstræti.
Við Bergstaði, við Bergstaðastræti
sunnan Skólavörðustígs en þar eru
50 stæði og í Kolaportinu, sem ekið
er inn í frá Kalkofnsvegi en þar eru
90 stæði.
Þá eru 350 langtímastæði á Bakka-
stæði við Faxagarð, sem ekið er inn
á frá Kalkofnsvegi og við Alþingishús-
ið eru 60 stæði og er ekið inn á þau
frá Tjarnargötu. Milli Sæbrautar og
Skúlagötu vestan bensínstöðvar Olís
eru 100 bílastæði og við Ingólfsgarð,
eru um 40 stæði. Þá eru bílastæði á
lóð Eimskipafélags íslands milli
Vatnsstígs og Frakkastígs, ekið inn
frá Vatnsstíg. Einnig eru 30 stæði á
lóðinni Tryggvagata 13 en þar var
áður bílastæði fyrir Akraborgina.
Starfsmenn fyrirtækja í miðbænum
eru hvattir til að leggja bílum sínum
fjær en venjulega fram að jólum. Jafn-
framt er fólk eindregið hvatt til að
nota strætisvagna.
H. Benediktsson hf.
80ára
í DAG eru 80 ár liðin frá stofn-
un H. Benediktssonar hf. Hinn
29. nóvember árið 1911 var
gefið út verzlunarleyfi til handa
Hallgi’ími Benediktssyni, sem
þá var 26 ára að aldri. Fyrir-
tækið, sem hann stofnaði þann
dag hefur verið starfrækt síðan,
lengst af sem umsvifamikið inn-
flutningsfyrirtæki en hin síðari
ár jafnframt sem eignarhalds-
félag.
Hallgríniur Benediktsson var
kvæntur Áslaugu Zoéga. Hann
stjórnaði fyrirtæki sínu til dauða-
dags hinn 26. febrúar 1954. Þá
tóku synir þeirra hjóna, Björn
Hallgrímsson og Geir Hallgríms-
son, við daglegri stjórn þess, auk
þess sem dóttir þeirra, Ingileif
Bryndís, tók sæti í stjórn fyrirtæk-
isins. Nokkrum árum síðar sneri
Geir Hallgrímsson sér að stjórn-
málurn og varð borgarstjóri í
Reykjavík árið 1959. Hefur Björn
Hallgrímsson annast daglegan
rekstur fyrirtækisins síðan. í
stjórn H. Benediktssonar hf. eiga
nú sæti: Björn Hallgrímsson,
stjórnarformaður, Ingileif Bryndís
Hallgrímsdóttir og Finnur Geirs-
son. í varastjórn eru: Kristinn
Björnsson, Áslaug Geirsdóttir og
Páll Gunnarsson.
Stofnandi H. Benediktssonar
hf., Hallgrímur Benediktsson, var
Hallgrímur Benediktsson
kunnur íþróttamaður. Hann vann
hina frægu konungsglíinu á Þing-
völlum árið 1907 og vann til verð-
launa fyrir glímu á Olympíuleikum
í Stokkhólmi árið 1912. Auk þess
að reka innflutningsverzlun á veg-
um H. Benediktssonar hf. var
hann einn af stofnendum Ræsis
hf. og aðaleigandi Nóa-Siríusar.
Ræsir hf. annast nú innflutning
og sölu á Mercedes Benz og Mazda
Björn Hallgrímsson
bifreiðum og Nói-Siríus er stærsta
sælgætisverksmiðja landsins.
Jafnframt rekstri H. Benedikts-
sonar hf. og dótturfyrirtækja,
gerðist llallgrímur Benediktsson
aðili að öðrum fyrirtækjum, Ár-
vakri hf. útgáfufyrirtæki Morgun-
blaðsins, Sjóvátryggingafélagi ís-
lands, Shell, sem síðar varð Skelj-
ungur hf., og Eimskipafélagi ís-
lands. Hallgrímur Benediktsson
var formaður stjórnar Árvakurs
hf. í nokkur ár.
Að Hallgrími Benediktssyni
látnum tóku börn hans við umsjón
á rekstri þeirra fyrirtækja, sem •
hann hafði sett á stofn, þau Ingi-
leif Bryndís Hallgrímsdóttir, Björn
Hallgrímsson og Geir Hallgríms-
son. Geir létzt sem kunnugt er á
árinu 1990. Síðustu árin hafa
nokkur barnabarna Hallgríms
komið til starfa í þágu fyrirtækj-
anna.
Finnur Geirsson er nú forstjóri
Nóa-Siríusar hf., og Hallgrímur
Gunnarsson er forstjóri Ræsis hf.
H. Benediktsson hf. hefur með
höndum innflutning á byggingar-
vörum og matvælum. Fyrir nokkr-
um árum var vörudreifing H.
Benediktssonar hf. og Nóa-Siríus-
ar sameinuð og sér síðarnefnda
fyrirtækið um hana. Jafnframt
hafa verkefni H. Benediktssonar
hf. sem eignarhaldsfélags vaxið
jafnt og þétt.
í tilefni 80 ára afmælis H. Bene-
diktssonar hf. sagði Björn Hall-
grímsson, stjórnarformaður fyrir-
tækisins m.a. í samtali við
Morgunblaðið í gær: „Það hefur
verið gæfa okkar fyrirtækis frá
upphafi, að til þess hafa ráðizt
góðir og hæfír starfsmenn og gott
samstarf og vinátta verið á meðal
þeirra.”
Jón Baldvin Hannibalsson á blaðamannafundi:
Rangt að leynt hafi verið
kröfum um karfakvóta
Ráðherra las upp úr útskrift af hljóðupptökum af fundi
utanríkismálanefndar, máli sínu til stuðnings
JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra segir að ásakanir,
þess efnis að upplýsingum um kröfur Evrópubandalagsins um að
fá hreinan 3.000 tonna karfakvóta hér við land hafi verið leynt,
séu úr lausu lofti gripnar. Ráðherra skýrði frá því á blaðamanna-
fundi í gær að strax við heimkomu hans og Þorsteins Pálssonar
sjávarútvegsráðherra frá samningafundunum um Evrópska efna-
hagssvæðið í Lúxemborg, hefði utanríkismálanefnd Alþingis og
hagsmunaaðilum í sjávarútvegi verið skýrt frá þessum kröfum
EB. Þær hafi því ekki átt að koma neinum á óvart.
Jón Baldvin sagði á blaðamanna-
fundinum að þeim fullyrðingum
hefði verið slegið fram að utanríkis-
málanefnd og hagsmunaaðilum í
sjávarútvegi hefðu verið gefnar
rangar upplýsingar um stöðu máls-
ins. „Menn hafa sagt að ég hafi
haldið því fram að tvíhliða samning-
urinn væri í höfn. Það er rangt,”
sagði ráðherrann.
Hann sagði að á fundi utanríkis-
málanefndar í gærmorgun hefði
þetta verið leiðrétt: „Til eru hljóð-
upptökur af því, sem sagt er á fund-
um utanríkismálanefndar, þótt
fundargerðirnar sjálfar séu mjög
knappar. Það var staðfest með út-
skrifuðum texta starfsmanns
nefndarinnar,” sagði Jón Baldvin
og las upp úr útskriftinni: „Utanrík-
isráðherra varaði við því að Evrópu-
bandalagið myndi áreiðanlega
reyna að beita okkur þrýstingi til
þess að fá breytt hlutföllum inn-
byrðis að því er varðar langhala
og karfa.” Jón Baldvin sagði að
sjávarútvegsráðherra hefði einnig
tekið þetta skýrt fram. „Hann
rannsóknir á langhalanum, þannig
að ugglaust á eftir að semja um
þetta hlutfall. Eins og fram kom
hjá utanríkisráðherra mun EB að
öllum líkindum óska eftir því að
þetta yrði að uppistöðu hreinn
karfi.” Þetta er sagt á utanríkis-
málanefndarfundi þegar málið er
kynnt,” sagði Jón Baldvin. „Og síð-
an segir sjávarútvegsráðherra: „En
það á eftir í þessum tvíhliða samn-
ingi að ræða útfærslu á þessum
allt að 3.000 tonnum af karfa.””
Jón Baldvin sagði að það væri
Ijóst að fullyrðingar ýmissa þing-
manna, til dæmis Hjörleifs Gutt-
ormssonar, Ólafs Ragnars Gríms-
sonar og Steingríms Hermannsson-
ar, um að málið hefði verið kynnt
á annan veg, væru rangar.
Jón Baldvin vitnaði einnig í minn-
isblað Þorsteins Pálssonar sjávarút-
vegsráðherra frá 22. október. Utan-
ríkisráðherra sagði að fyrir utan-
dagskrárumræðurnar um EES á
Alþingi í fyrradag hefði Þorsteinn
sagt sér að hann hefði dreift
minnisblaðinu til hagsmunaaðila í
hálfu íslands hefúr verið lagt til
að 70% af veiðiheimildum band-
alagsríkjanna verði langhali en 30%
karfi. Eftir er að ganga endanlega
frá samningum að þessu leyti, en
bandalagið hefur látið í ljós ósk um
að veiða einungis karfa.” Jón Bald-
vin sagðist ekki geta skýrt hvernig
hagsmunaaðilar í sjávarútvegi, haf-
andi þetta skriflegt í höndunum frá
sjávarútvegsráðherra, gætu látið
eins og þeir hefðu ekkert heyrt um
málið. Hann sagðist þó ekki vilja
ýkja afstöðu Samstarfsnefndnar
atvinnurekenda í sjávarútvegi, þar
sem þeir gerðu það að skilyrði við
stuðning sinn við EES-samninginn
að fyrir lægju skriflegir textar.
Jón Baldvin sagði að hugmyndir
að tilboði íslendinga um að EB
veiddi hér Ianghala, þrátt fyrir að
ekkert lægi fyrir um hvort sú fisk-
tegund væri veiðanleg hér við land,
væru komnar frá utanríkisráðherra
Frakka, sem kom í heimsókn hing-
að til lands. Þegar sjávarútvegs-
deild EB hefði farið ofan í þær
hugmyndir, hefði hins vegar komið
í ljós að íslendingar gætu ekki
fært sönnur á að langhalinn væri
veiðanlegur, og þá hefði samnings-
staða sín heldur farið að versna.
Utanríkisráðherra sagði jafn-
framt að það hefði allan tímann,
sem EÉS-sámningaviðræðurnar
stóðu, verið ljóst að lausn á heildar-
samningnum væri háð því að lausn
fyndist í tvíhliða samningum við
og skipti á veiðiheimildum. „Sá
árangur, sem náðist að því er varð-
ar markaðsaðgang og að bijóta á
bak aftur kröfur EB bæði um fjár-
festingarheimildir og veiðiheimildir,
byggði á þeirri forsendu að tvíhliða
samningar yrðu gerðir. Enginn
sagði á þeim tíma að tvíhliða samn-
ingur lægi fyrir,” sagði Jón Baldvin.
Hann sagði að ljúka yrði tvíhliða
samningi um skipti á veiðiheimild-
um, ætti að vera hægt að undirrita
EES-samninginn, og hann væri
þess fýsandi að það yrði gert sem
fyrst. Jón Baldvin sagði að Hannes
Hafstein, aðalsamningamaður ís-
lands, hefði fengið það skriflega
staðfest að t.d. tollfrelsi á saltsíld-
arflökum og önnur atriði í sjávarút-
vegshluta samningsins stæðu
óbreytt.
Hann sagði að viðræður um tví-
hliða samninginn hefðu staðið í fjór-
ar vikur. „Ég myndi ekki reifa þetta
mál, varðandi karfa og langhala,
opinskátt, nema af því að ég veit
að það mál höfum við þæft til enda.
Ef við ætlum að ná þessum tvíhliða-
samningi — sem er forsenda EES-
samningsins — getum við ekki, á
árinu 1993, haldið langhalanum til
streitu, af því að til þess skortir
okkur rannsóknaniðurstöður,”
sagði Jón Baldvin. Hann sagði að
þetta myndi aðeins eiga við fyrsta
árið, sem tvíhliða samningurinn
gilti, árið 1993. Það ár fengi EB
hreinan karfakvóta. Væntanlega
yrðu í samningnum ákvæði um að
tækist íslendingum að sýna fram á
það með hafrannsóknum að lang-
hali væri hér til í veiðanlegu magni,
mætti breyta hlutföllunum milli
karfa og langhala.
Jón Baldvin sagði að vegna at-
hugasemda EB-dómstólsins um að
EES-samningurinn kynni að brjóta
í bága við Rómarsáttmálann myndi
undirskrift ráðherra undir samning-
inn frestast, sumir segðu fram í
febrúar. Af íslands hálfu væri
mikilvægast að ljúka frágangi á
texta sjávarútvegshluta samnings-
ins og tvíhliða samningsins um
skipti á veiðiheimildum sem fyrst.
Varasamt væri að draga það, þar
sem hagsmunaaðilar í afkimum EB
myndu ef til vill reyna að nýta tím-
ann til að hafa áhrif á niðurstöðuna.
Magnús Gunnarsson, formaður SAS:
Jón Baldvin vissi að lang-
hali yrði ekki samþykktur
Kaus að segja ekki frá því í kynningu á EES-samningnum
MAGNÚS Gunnarsson, formaður Samstarfsnefndar atvinnurekenda í
sjávarútvegi, segir að hagsmunaaðilar í sjávarútvegi telji Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra hafa fullvissað þá um að í tvíhliða samn-
ingi Islands og Evrópubandalagsins yrði ráð fyrir því gert að EB veiddi
2.000 tonn af karfaígildum í langhala og 1.000 tonn af karfa. Heimildir
um kröfur EB um fullan karfakvóta hafi ekki breytt þessari vissu þeirra.
Hann segist hafa áreiðanlegar heimildir fyrir þvi að á sama tíma hafi
Jón Baldvin vitað að langhalinn fengist ekki samþykktur, en kosið að
segja ekki frá því.
Magnús sagði í samtali við Morg-
unblaðið að hagsmunaaðilum í sjáv-
arútvegi hefði verið kynnt minnisblað
sjávarútvegsráðuneytisins, þar sem
fram kemur að EB geri kröfu um
3.000 tonna karfakvóta, og að tví-
hliða samningur sé ekki frágenginn.
„Þetta eru engar fréttir fyrir okkur.
Þetta kveikir engin rauð ljós hjá okk-
ur um að það sé ófrávíkjanleg krafa
bandalagsins að til þess að allt annað
standist fái þeir karfa í staðinn fyrir
langhala,” sagði Magnús. „Þetta seg-
ir okkur bara það, sem hefur verið
ljóst frá upphafi þessara viðræðna;
að þeir vilja helzt þorsk eða karfa og
hafa engan óskaplegan áhuga á að
veiða langhala. Hins vegar er í kynn-
ingu málsins talað mjög ákveðið að
í samningnum sé talað um 30% karfa
og 70% langhala. Menn geta farið í
gegnum viðtöl við Jón Baldvin, bæði
í sjónvarpi og útvarpi, þar sem hann
leggur alla áherzlu á þetta. Við tökum
þetta eins og það er sagt.”
Magnús sagði að hagsmunaaðilar
hefðu talið að samkomulagið byggðist
á fyrrgreindri skiptingu milli karfa
og langhala, að tollfrelsi á saltsíldarfl-
ökum væru á hreinu, svo og önnur
grundvallaratriði samkomulagsins.
„Við áttum svo von á að í tvíhliða
samningum milli Islands og EB fær-
um við að takast á um hluti eins og
livort eitt tonn af karfa væri sama
og eitt tonn af langhala, en ekki um
grundvallarhluti eins og það hvort
menn veiddu karfa eða langhala.”
— En er það grundvallaratriði? Er
það ekki smáatriði, þessi 2.000 tonn
af karfa?
„Það, sem menn eru fyrst og fremst
að gera athugasemdir við í þessu
sambandi, er að við teljum okkur
vera upplýsta um hvernig þetta er
frágengið. Síðan kemur i ljós að þetta
er ekki eins og okkur er sagt,” sagði
Magnús. „Við værum annars ekki
búnir að fara í íjölmiðla, við Kristján
Ragnarsson, þar sem við höfum lagt
upp úr því að þetta sé ein meginfor-
sendan fyrir því að við mælum með
samningnum, ef við héldum ekki að
þetta væri nokkurn veginn frágeng-
ið.”
— Þið byggið semsagt ykkar af-
stöðu á viðtöium við Jón Baldvin í
fjölmiðlum?
„Allur frágangur Jóns Baldvins og
allar umsagnir um þetta, sem ég held
að alþjóð sé kunnugt um, það er ná-
kvæmlega sami skilningur, sem við
leggjum í þetta. Það kemur þess
vegna flatt upp á okkur þegar við
erum kallaðir á fund með engum fyr-
irvara, þar sem á að tilkynna okkur
að það eigi að breyta öllu yfir í karfa.
Menn mega ekki gleyma því að for-
sendan fyrir því að menn samþykktu
yfirhöfuð í upphafi að farið vrði í
>. Jr>.
skiptingu á veiðiheimildum við EI
var sú að menn töldu að bróðurpartui
inn af þeim skiptum yrðu vannýtti
stofnar,” sagði Magnús.
„Mér er fullkunnugt um það, efti
áreiðanlegum heimildum, að Jói
Baidvin var fullkunnugt um það þeg
ar hann kom hérna heim, að han
myndi lenda í þeirri stöðu að men
myndu ekki samþykkja langhalani
Af hverju segir hann það ekki hrein
út við okkur, þegar hann kemur heim
Af hveiju segir hann það ekki hrein
út við þjóðina? Það er vegna þess a
hann ákveður að leggja þetta fyri
þjóðina á þann hátt, sem aðgengileg
ast og þægilegast er fyrir hann. Síðai
á að koma upp með þessi spil eig
og þau eru gerð núna og klína þessi
í gegn í einhveiju hasti. Þessi vinnu
brögð getum við ekki liðið,” sagð
Magnús.
Hann var spurður út í þau orð Jón:
Baldvins að EB myndi veiða hér karf;
fyrsta árið, en síðan yrði skiptinj
veiðiheimilda endurskoðuð í ljósi ha
frannsókna. „Þetta er hlægileg rök
semd. Þetta er einn málatiibúningur
inn í viðbót. Menn geta sagt sér þa.
sjálfir, að ef við göngumst inn á a
láta þá veiða 3.000 tonn af karfa
munu þeir ekki snúa til baka með þa.
og fara að veiða langhala. Það livarfl
ar ekki að mér. Það er bara verið ai
setja þetta svona upp til að mild;
þetta. Af hveiju setja menn það ekk
alveg eins þannig upp að þetta séi
900 tonn af karfa og 2.100 tonn ai
karfaígildum í langhala, og við höfun
svo það hlutverk á næsta ári að sann-
færa þá um að hægt sé að veiða lang-
liala?” sagði Magnús. „Þetta er bará
bull og kjaftæði og einn andskotans
tilbúningurinn hjá lionum í viðbót.”