Morgunblaðið - 29.11.1991, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1991
Islensk fyndni
ÚT ER komin hjá Erni og Ör-
lygi hf. bókin Ný _ alísiensk
fyndni sem Magnús Oskarsson
borgarlögmaður safnaði og
setti saman.
Fyrir nokkrum árum kom út
bókjn Alíslensk fyndni eftir Magn-
ús Óskarsson og í kynningu útgef-
anda segir m.a.: „Nú hefur borgar-
lögmaður brugðið aftur á leik og
sett saman nýja bók, ekki síðri en
þá fyrri. í þessa bók hefur hann
UPPÞVOTTAVEL
(SLIM UNE)
Model 7800
7 manna matarstell, 3 þvotta-
kerfi. Hæð 85 cm - breidd 45
cm - dýpt 60 cm.
Verð kr. 56.772.- stgr.
LAUGAVEGI 174
S. 695500/695550
•Hotp0^
ÞVOTTAVEL
Model 9525— 4.1 kg.
Vinduhraðar, 500 og 800 snún-
ingarámlnútu 20 þvottakerfi.
Tromla úr ryðfrlu stáli. Hæð
85 cm - brejdd 59,5 cm - dýpt
56,3 cm.
Verft kr. 55.196.- stgr.
HEKLA
LAUGAVEGI 174
S. 695500/695550
valið hátt á annað hundrað nýjar
úrklippur, sem birtast í sinni upp-
runalegu mynd og eru þær helm-
ingur bókarinnar. í hinum helm-
ingnum eru eins og í fyrri bókinni
margvísleg gamanmál, limrur,
brot úr útvarpsfréttum og gaman-
sögur, sem höfundur hefur ein-
stakt lag á að segja þannig að
fyndni þeirra njóti sín. Sá maður
er dauður sem ekki hlær við lestur
þessarar bókar. Örn og Örlygur
gefa bókina út.”
Uppákoma í mið-
bænum um helgina
NOKKRIR einstaklingar, félög, fyrirtæki og stofnanir ætla sameigin-
lega að vekja athygli á ýmsum þáttum í sögu Grófarinnar og nágrenni
í miðbæ Reykjavíkur, á morgun, laugardaginn 30. nóvember. Þá verð-
ur einnig rifjuð upp þróun samgangna og samgöngutækja í miðbænum.
Dagskráin hefst kl. 10.30 með því Arnarhól.
Magnús Óskarsson
að gengið verður frá Arnarhóli niður
að Læk, Tryggvagötu og Hafnar-
stræti í Grófina að Bryggjuhúsinu.
Þaðan verður farið á Grófarbiyggju
og um borð í farþegaskipið Ames.
Einnig verða gömul siglingatæki
skoðað í Hafnarhúsportinu og fleira.
Þátttakendur geta valið um að fara
í siglingu eða ganga til baka upp á
Anna Júlíana Sveinsdóttir á
ljóðatónleikum í Gerðubergi
LJOÐATONLEIKAR vetrarins í
Gerðubergi hefjast nú fjórða
árið í röð. Vegna góðrar aðsókn-
ar á ljóðatónleikana á liðnum
árum eru nú í fyrsta skipti skipti
tvennir tónleikar hverju sinni, á
laugardögum klukkan fimm, og
svo eins og venjan er, á mánu-
dagskvöldum klukkan hálfníu.
Mánudagstónleikarnir eru með
sínu hefðbundna sniði, en á laug-
ardagstónleikunum kynna flylj-
endur efni ljóðanna og segja frá
höfundum og tilurð verka.
Aðrir tónleikar vetrarins verða
nú um helgina, laugardaginn 30.
nóvember kl. 17.00 og mánudag-
inn 2. desember kl. 20.30, en þá
syngur Anna Júlíana Sveinsdóttir
mezzósópran við píanóundirleik
Jónasar Ingimundarsonar.
Efnisskráin er íjölbreytt. Anna
Júlíana syngur ljóðasöngva eftir
Georg Enescu, eitt besta og ástsæl-
asta tónskáld Rúmena; Frederic
Chopin, sem kunnari er fyrir píanó-
verk sín, en samdi engu að síður
ágæta söngva við pólsk ljóð;
Vögguvísu og Máninn líður eftir
Jón Leifs og loks ljóðasöngva eftir
llflj
iLADA UMB0ÐIÐ
VETRARSK0ÐUN
1. Athuga ástand ökutækis.
2. Athuga olíu á vél, stýrisvél og vökva á rafgeymi,
kælikerfi, rúðusprautum, bremsum og kúplingu.
3. Mæla frostlög og bæta á efþarf.
4. Mæla rafgeymi og hleðslu og hreinsa
geymasambönd.
5. Hreinsa síurí bensíndælu og blöndungi.
6. Athuga og skipta um, efþarf, þétti, platínur,
kveikjuhamar, kveikjulok, kertaþræði,
kerti, loftsíu og viftureim.
7. Athuga ventlalokspakkningu.
8. Strekkja tímakeðju og tímareim efþarf.
9. Stilla kveikju og blöndung.
10. Athuga sviss, startara, mæla, kveikjana,
þurrkur og miðstöð.
11. Athuga öll Ijós.
12. Stilla Ijós.
13. Athuga hurðir og smyrja læsingar.
14. Stilla kúplingu og herða á handbremsu.
15. Stiila slag í stýrisgangi og hjólalegu efþarf.
16. Hemlaprófa.
Varahlutir sem notaðir eru við almenna vetrarskoðun eru
seldir með 10% afslætti.
Verð á vetrarskoðun
Lada Samara 8.183 kr.
Aðrir Lada bílar 9.443 kr.
ofangreint verd miðast við vetrarskoðun án elniskostnaðar.
Einnig tökum við Lada bíla í reglulegar 10.000 km. skoðanir
BIFREIÐAfí & LANDBUNAÐARVELAR HF.
Suðurlandsbraut 14108 Reykjavík Símar 6812 00 & 312 36
Beinn sími á verkstæði 3 97 60
-----------------------—---------------
Gústav Mahler, þar á meðal Erinn-
erung og Frúhlingsmorgen.
Anna Júlíana Sveinsdóttir lauk
einsöngvara- og söngkennaraprófi
frá tónlistaháskólum í Þýskalandi
og var ráðin við Ríkisóperuna í
Aachen að námi loknu. Hún hefur
haldið fjölda ljóðatónleiká hérlend-
is og sungið á tónlistarhátíðum í
Kaupmannahöfn og Bergen, og
haldið ljóðatónleika í Þýskalandi.
Hún er vel þekkt fyrir túlkun sína
á ýmsum óperuhlutverkum hér á
landi. Anna Júlíana kennir nú söng
við Tónlistarskóla Kópavogs og
sögu óperu- og ljóðasöngsbók-
mennta við Tónlistarskólann í
Reykjavík og í Nýja tónlistarskó-
lanum.
Sala áskriftakorta á ljóðatón-
leikana stendur nú yfir í Gerðu-
bergi.
(Fréttatilkynning)
Því næst verður farið í siglingu
út fyrir Engey og á leiðinni verða
gerðar nokkrar mælingar á ástandi
sjávar. Brottför verður frá Grófar-
bryggju. Einnig er áætluð ökuferð í
hundrað ára gamalli hestakerru um
miðbæinn og verður farið frá Steind-
órsplaninu og verður sú ferð endur-
tekin kl. 14..
Leiknir verða gamlir slagarar fyr-
ir framan Bryggjuhúsið kl. 15.30 og
kl. 16 verður settur af stað klukku-
sláttur jólbjöllunnar á homi Aðal-
strætis og Vesturgötu.
Á sunnudag verður íslenski fáninn
dreginn að húni fyrir framan verslun-
ina Geysi kl. 10.45. Að því loknu
gefst tækifæri á að fara með rútu
austur á Kambabrún og ganga þaðan
gömlu þjóðleiðina yfír Hellisheiði að
Kolviðarhóli. Komið verður aftur í
bæinn um kl. 17.
-------» 4-4---------
■ KRISTÍN Geirsdóttir hefur
opnað sýningu í Bóksafni Kópa-
vogs. Kristín Geirsdóttir fæddist
1948 í Reykjavík. Hún stundaði
nám við Myndlista- og handíðaskóla
íslands 1985-1989 og brautskráðist
úr málaradeild. Einnig sótti hún
nokkur námskeið við Myndlistar-
skólann í Reykjavík. Kristín tók
þátt í samsýningu í Hafnarborg í
október 1990. Fyrstu einkasýning-
una hélt hún í Ásmundarsal í októ-
ber sl. Sýningin í Bókasafni Kópa-
vogs stendur til áramóta. Hún er
opin á sama tíma og Bókasafnið
mánudaga til fimmtudaga kl.
10-21, föstudaga kl. 10-19 og laug-
ardaga kl. 13-17. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
Einsöngur og
píanóleikur
________Tónlist____________
Jón Ásgeirsson
Yelda Kodalli og Murat Kodalli
héldu tónleika í íslensku óperunni
sl. miðvikudag. Á fyrri hluta tón-
leikanna lék Murat Kodalli g-moll
ballöðuna eftir Chopin, sónötu
eftir föður sinn, Nevit Kodalli,
þijú stykki og tvö sönglög eftir
sjálfan sig, sem Yelda Kodalli
söng. Murat Kodalli lék g-moll
ballöðuna eftir Chopin allt of
fijálslega í takt og þar sem á
reyndi í tækni og hraða, hafði
hann ekki fullt vald á þessu meist-
aralega píanóverki eftir Chopin.
Tónverk þeirra feðga, bæði sónat-
an og þrjú smálög, eru á köflum
erfið sem píanóverk en ekki
áhugaverð sem tónlist, því þar er
fátt að heyra, sem ekki var búið
að þrautvinna úr, um og eftir
1920 í Evrópu. Tvö sönglög við
kvæði eftir Abbas Savar, eru
ákaflega losaralegar tónsmíðar,
sem söngkonan átti og bágt með
að gera nokkuð úr.
Eftir hlé söng Yelda Kodalli
hveija stóraríuna eftir aðra, þar
voru verk eftir Verdi, Offenbach,
Mozart óg Delibes. Það fer ekki
á milli mála að Yelda Kodalli er
stórfengleg söngkona, með glæsi-
lega rödd, bæði hvað varðar
tónfegurð og hljómstyrk og ekki
síður tónsvið. Með tíð og tíma
ætti henni að vera fær leiðin „upp
á toppinn”. Það sem einkum vant-
ar á er túlkun og músíkölsk mót-
un, sem þó er aðeins spurning um
tíma, því á því sviði hefur hún
einnig mikla hæfileika.
Raddleikni hefur hún þegar
mikla, er naut sín í aríu Ólympíu
úr ævintýrum Hoffmans og
„Klukkuaríunni” eftir Delibes, þó
Yelda Kodalli
Murat Kodalli
allt hefði ekki verið snurðulaust.
í Traurigkeit úr Brottnáminu og
aríu úr II Re pastore, eftir Moz-
art, vantaði það músíkalska vald,
sem nauðsynlegt er til að gefa
slíkri tónlist líf og tilfinningu.
Sama má segja um Caro nome
eftir Verdi.
Rödd Yeldu Kodalli er glæsileg
en söngur hennar er enn of með-
vitaður og leikur henni ekki full-
komlega í munni. Þar til þarf
aðeins tíma og íhugun, hafna yfir
alla tæknisýningu, sem getur þó
verið skemmtileg áheyrnar, sé
hún gædd mannlegri hlýju. Ein
og sér stendur tæknin köld og
áhrifalítil, því söngur er annað og
meira en tækni. Með honum be-
rast skilaboð, er eiga sér svar í
tilfinningum þeim sem á hlýða.
Til þess að öðlast vald á listinni
að syngja, þarf að temja sér undir-
gefni við listina og í því lítillæti
hefur mörgum auðnast að snerta
fald listagyðjanna. Það er í raun
lokaprófraun Yeldu Kodalli og þá
mun „Töfraflautan” óma með full-
um hljómi.
Undirleikurinn hjá Murat Kod-
alli var nokkuð losaralegur. í einni
arípnni eftir Mozart lék Zbigniew
Dubik á fiðlu og gerði það mjög
vel.