Morgunblaðið - 29.11.1991, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1991
67
KORFUKNATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ
Mikill
fögnuður
SKALLAGRÍMUR vann lið
Grindvíkinga 84:82 eftir mjög
jafnan leik og æsispennandi
lokamínutur í íþróttahúsinu í
Borgarnesi í gærkvöldi.
Það voru geysileg vonbrigði að
tapa þessum leik. Lið Skalla-
gríms lék mjög vel og hafði góðan
stuðning áhorfenda
TheodórKr. en v'ð klikkuðum í
Þórðarson vörninni. Við verð-
skrifar um bara að taka
okkur á,” sagði Guð-
mundur Bragason fyrirliði UMFG
eftir leikinn.
Leikur liðana var mjög jafn og
skemmtilegur. Skallagrímur var þó
oftar yfír í fyrri hálfleik en munur-
inn var aldrei mikill. Grindvíkingar
komust svo yfir fyrir hlé.
í seinni hálfleik komst Skalla-
grímur aftur yfir á fjórðu mínútu
og síðan var jafnt á flestum tölum
þar til undir lok leiksins. Er ein
mínúta var eftir var staðan 80:82
fyrir Grindvíkinga. Þá var brotið á
Maxím og hann fékk tvö vítaskot,
skoraði úr þeim báðum og jafnaði
þar með leikinn 82:82. Skallagrímur
náði síðan boltanum og Þórður
Helgason gerði sigurkörfuna á
lokasekúndu leiksins og leiknum
lauk 84:82 fyrir Skallagrím.
„Þetta var langbesti leikur okk-
ar,” sagði Birgir Mikaelsson þjálf-
ari og leikmaður Skallagríms eftir
leikinn. „Þetta var mjög jafn leikur
og við spiluðum vel. Það gat allt
gerst en við unnum og eigum eftir
að gera það aftur.” Bestu leikmenn
Skallagríms voru Maxim, Birgir og
Elvar, einnig var Þórður Helgason
áberandi góður. Bestir hjá Grind-
víkingum voru Guðmundur Braga-
son og Dan Krebbs.
ÚRSLIT
KR-ÍBK 74:83
íþróttahúsið á Seltjarnarnesi, íslandsmótið
í körfuknattleik, Japisdeildin, fimmtudaginn
28. nóvember 1991.
Gangur leiksins: 2:0, 12:4, 22:16, 27:18,
28:29, 82:29, 32:39, 34:42, 41:44, 47:48,
55:54, 61:61, 68:68, 71:70, 71:79, 73:79,
73:83.
Stig KR: Guðni Guðnason 27, Hermann
Hauksson 16, Óskar Kristjánsson 15, Axel
Nikulásson 6, Ólafur Gottskálksson 5, Páll
Kolbeinsson 4, Lárus Ámason 1.
Stig ÍBK: Jonathan Bow 29, Sigurður Ingi-
mundarson 13, Kristinn Friðriksson 12,
Nökkvi M. Jónsson 10, Hjörtur Harðarson
9, Jón Kr. Gíslason 6, Albert Óskarsson 2,
Albert Óskarsson 2.
Áhorfendur: 490.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Kristján
Möller. Þeir komust vel frá erfiðu verkefni.
Haukar-UMFN 80:100
íþróttahúsið við Strandgötu, íslandsmótið í
körfuknattleik, Japisdeildin, fimmtudaginn
28. nóvember 1991.
Gangur leiksins: 0:2, 3:2, 9:10, 13:21,
20:21, 32:32, 41:49, 43:51, 51:59, 60:73,
66:82, 77:94, 80:100.
Stig llauka: ívar Ásgrímsson 19, John
Rhodes 18, Jón Örn Guðmundsson 16, Jón
Arnar Ingvarsson 11, Henning Henningsson
10, Tryggvi Jónsson 6.
Stig UMFN: Rondey Robinson 26, Isak
Tómasson 22, Jóhannes Kristbjörnsson 16,
Teigur Örlygsson 16, Kristinn Einarsson
13, Ástþór Ingason 5, Agnar Ólsen 2.
Áhorfendur: 192.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Jón Otti
Ólafsson og dæmdu þokkalega en hafa sem
betur fer báðir dæmt betur.
Skallagr. - UMFG 84:82
íþróttahúsið í Borgarnesi, íslandsmótið í
körfuknattleik, Japisdeildin, 28. nóvember.
Gangur lciksins: 1:0, 1:2, 3:2, 5:5, 7:7,
13:7, 17:13, 21;21, 38:38, 43:45, 53:53,
64:72, 72,74, 77:78, 78:80, 82:82, 84:82.
Stig Skallagríms: Maxím Kropatsjev 22,
Birgir Mikaelsson 20, Elvar Þórólfsson 20,
Þórður Helgason 10, Hafsteinn Þórisson
4, Guðmundur Guðmundsson 4, Þórður
Jónsson 2, Jón Bender 2.
Stig UMFG: Guðmundur Bragason 35, Dan
Krebbs 25, Rúnar Árnason 7, Pálmar Sig-
urðsson 5, Marel Guðlaugsson 5, Bergur
Hinriksson 3, Hjálmar Hallgrímsson 2.
Dómarar: Leifur Garðarsson og Árni Freyr
Sigurlaugsson. Þeir höfðu góð tök á leiknum
en leyfðu of mikla hörku á köflum.
Áhorfendur: 26^ pg voru mjþg yel mcð á
nótunum — héldú upþi góðn stémrhingú.
„Hæstánægður”
Jón Kr. Gíslason, þjálfari og leikmaður ÍBK, hefur nú stýrt liði sínu til átta sigra
í jafn mörgum leikjum það sem af er íslandsmótinu, og lið hans er það eina
taplausa í deildinni. „Þetta var mikil barátta. KR-ingar eru með sterkt varnarlið og
við hittum mjög illa framan af. Þá eru menn hjá þeim meiddir og þeir voru án
Bandaríkjamannsins, en við unnum leikinn og það er það sem skiptir máli,” sagði
Jón við Morgunblaðið eftir leikinn í gærkvöldi. „Þeir leika hraðan sóknarleik en
náðu líka að róa sóknarleik okkai- niður. En við héldum þeim í 74 stigum og það
er mjög gott. Og nú er staðan hjá okkur átta - núll [átta leikir og ekkert tap]! Ég
er hæstánægður með þetta,” sagði Jón Kr.
Morgunblaðið/Júlíus
Tveir bestu bakverðir landsins mættust í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesinu I gærkvöldi. Páll Kolbeinsson er hér með
knöttinn en Jón Kr. Gíslason sækir að honum — og hann og lærisveinar hans höfðu betur í áttunda deildarleik sínum í röð
í vetur. Hafa unnið alla leiki sína.
Átta sigrar í röð
KEFLVÍKIIMGAR unnu áttunda
leikinn í röð á ísiandsmótinu í
körfuknattleik, Japís-deildinni,
í gærkvöldi er þeir sóttu KR-
inga heim á Seitjarnarnesið.
Úrslitin urðu 83:74 ífjörugum
leik, þar sem bæði lið sýndu
góð tilþrif, ekki síst í vörn.
Hraðinn var mikill, stundum um
of og mistökin voru mörg í
sóknaraðgerðum beggja.
Heimamenn byrjuðu reyndar
mun betur, voru ákveðnari
og samstilltari en lítið gekk upp hjá
Keflvíkingum.
Skapti Hittni var í lágmarki
Hallgrímsson á þeim bænum, oft
skrífar vildi knötturinn ekki
einu sinni ofan í
körfuna úr auðveldustu færum. KR
náði fljótlega góðri forystu en eftir
þá undarlegu ákvörðun KR-inga að
skipta úr maður á mann-vörn yfir
í svæðisvörn þegar langt var liðið
á fyrri hálfleik fengu keflvísku
skytturnar betri tíma til að athafna
sig, gerðu fjórar 3ja stiga körfur á
skömmum tíma og ÍBK var skyndi-
lega komið yfir. Þar með var tónn-
inn gefinn, Suðurnesjadrengirnir,
sem einmitt eru þekktir fyrir góða
hittni af löngu færi, voru komnir í
stuð. Þrjár 3ja stiga körfur til við-
bótar fylgdu í kjölfarið fyrir hlé,
og þeir höfðu átta stiga forskot í
hléi.
Seinni hálfleikurinn var jafn og
spennandi, liðin skiptust á að hafa
forystu lengst af en slæm mistök
KR-inga í sókninni síðustu mínút-
urnar gerðu sigurvonir þeirra að
engu. Keflvíkingar héldu ró sinni,
léku af öryggi og tryggðu sér nokk-
uð öruggan sigur. Þess verður þó
að geta að Páll Kolbeinsson lék
ekkert með síðasta hluta leiksins
vegna meiðsla og Axel gekk ekki
heill til skógar.
Leikurinn var fjörugur, en bæði
lið geta leikið betur. Varnimar voru
sterkasti hluti þeirra nú. Laglegar
sóknaraðgerðir sáust þó, en mistök-
in voru einnig mörg. Jonathan Bow
var bestur Keflvíkinga — lék sér-
lega vel gegn gömlu félögum sínum,
bæði í sókn og vörn. Jón Kr. lék
vel að vanda en skoraði lítið. Þá
gerði Kristinn Friðriksson fjórar 3ja
stiga körfur á mikilvægum augna-
blikum, en aðrir léku undir getu.
Hjá KR var Guðni Guðnason mjög
góður; stóð sig vel í vörn og skor-
aði mest — lék í heildina vel í sókn
þó svo honum hafi verið mislagðar
hendur í sókn á köflum. Hermann
Hauksson lék einnig vel, Óskar
Kristjánsson gerði laglega hluti og
Páll var góður meðan hans naut við.
fpRömR
FOLK
■ STURLA Örlygsson fylgdist
með leik Hauka og UMFN í gær.
Hann sagðist vera búinn að skipta
yfir í Njarðvík og ætlaði sér að
leika með þeim í vetur. Gunnar
bróðir hans er einnig búinn að
skipta og munu þeir bræður örugg-
lega styrkja lið UMFN.
■ ÍVAR Webster er hættur að
leika með KR.
■ JOHN Baer var i leikbanni
gegn ÍBK í gærkvöldi — tók út
seinni leikinn eftir að hafa verið
dæmdur í tveggja leikja bann fyrir
skömmu.
■ VILLUNUM var ekki jafnt
skipt í leik Hauka og UMFN. í
fyrri hálfleik voru dæmdar 17 villur
á Hauka en aðeins 7 á UMFN.
Meira jafnræði var í síðari hálfleik.
9 viljur á Hauka og 8 á UMFN.
■ ÖNNUR 30 sekúndna klukkan
var biluð í Hafnarfirði og ve^
bnigðið á það ráð að hafa þá heilu
við ritaraborðið. Þetta kom ekki að
sök því leikurinn var hraður og því
hefði eins mátt slökkva á henni.
A-RIÐILL
Fj. leikja U J T Mörk Stig
UMFN 8 7 0 1 720: 618 14
KR 8 6 0 2 778: 683 12
UMFT 8 3 0 5 718: 746 6
SKALLAGR. 8 2 0 6 655: 762 4
SNÆFELL 8 2 0 6 621: 750 4
B-RIÐILL
Fj. leikja U J T Mörk Stig
ÍBK 8 8 0 0 816: 628 16
UMFG 8 5 0 3 689: 637 10
VALUR 8 3 0 5 728: 729 6
HAUKAR 8 3 0 5 716: 788 6
ÞÓR 8 1 0 7 638: 738 2
í kvöld
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Digranes UBK-Fram ....kl. 20.00
KA-húsið KA-HK ....kl. 20.30
Kaplakriki FH - Grótta.... ...,kl. 20.30
Selfoss Selfoss-ÍBV ....kl. 20.00
1. deild kvenna:
Kaplakriki FH-Valur ....kl. 18.50
Vestm. ÍBV - Stjaman.... ,...kl. 20.00
2. deild karla:
Varmá UMFA - Völsungur...kl. 20.00
BLAK
1. deild kvenna:
Neskaupst. Þróttur - Víkingur.kl. 20.00
1. deild karla:
Neskaupst. Þróttur - Skeiðam..kl. 21.15
Njarðvíkingar á góðri siglingu
Njarðvíkingum tókst að leggja
Hauka í Hafnarfiði í gær-
kvöldi, en í fyrra biðu þeir lægri
hlut í báðum leikjun-
um sem liðin léku
þar. í gærkvöldi
unnu þeir örugglega
100:80 og virðistlið-
ið á góðri siglingu.
Haukarnir þurfa ekki að örvænta
því nýi Bandaríkjamaðurinn í leiði
þeirra, John Rhodes, á eftir að að-
lagast liðinu og þá er ekki nokkur
vafi á að hann verður geysilega
sterkur. í gær var hann góður, tók
17 fráköst og var fljótur að koma
boltanum í leik eftir að hann hafði
hirt fráköst í vörninni, nokkuð sem
stórir menn gera of lítið af.
Njarðvíkingar náðu strax undir-
tökunum og þó svo munurinn væri
aldei mikill í fyrri hálfleik var takt-
urinn hjá þeim greinilega réttur.
Allt virtist svo miklu auðveldara
hjá þeim en hjá Haukunum. Vörn
Hauka var lengst af slök og gerði
það gæfumuninn í leiknum. Rhodes
var eini maðurinn sem lék vel í
vöminni.
Leikurinn var hraður og eins og
oft vill verða í slíkum leikjum var
mikið um mistök, en þess á milli
sáust góðir kaflar hjá báðum liðum.
Isak Tómasson var hreint frábær
hjá Njarðvíkingum í fyrri hálfleik.
Hann skoraði giimmt, barðist af
krafti í vörninni og gerði Haukun-
utn erfitt fyrir auk þess sem hann
„fiskaði” margar villur.
Hjá Haukum munaði miklu að
ungu leikmennirnir náðu sér ekki á
strik. ívar var heitur allan tímann
og Jón Örn átti góða kafla sem
voru þó allt of stuttir, enda fékk
hann fjórðu villuna um miðjan fyrri
hálfleik. Hjá Njarðvíkingum lék
Robinson mjög vel, tók 13 fráköst
og var stigahæstur með 26 stig.
Jóhannes náði sér vel á strik í síð-
ari hálfleik og Kristinn lék ágæt-
lega. Það fór óvenju lítið fyrir Teiti
en hann skoraði samt 16 stig.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar