Morgunblaðið - 29.11.1991, Blaðsíða 68
VÁTRYGGING
SEM BRÚflR
BILIB
SJOVA
ÍALMENNAR
PfoirgiistilMii&fö
MORGUNBLADW. AÐALSTRÆTI 6. 101 REYKJAVÍK
SÍMl 691100, FAX 691181, PÓSTUÓLF 1555 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1991
VERÐ I LAUSASÖLU 110 KR.
Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra:
EB fái fullan karfakvóta
í það minnsta til eins árs
Attum að kaupa samningsniðurstöðuna í annað sinn, segir Þorsteinn Pálsson
Islenskir aðal-
verktakar:
25 manns sagt
upp á Kefla-
vikurílugvelli
25 MANNS verður sagt upp störf-
um hjá íslenskum aðalverktökum
á Keflavíkurvelli um næstu mán-
aðamót. Flestir eru vinnuvéla-
stjórar og málmiðnaðarmenn.
Uppsagnartími er frá tveimur til
sex mánaða. 13 matreiðslu- og
framreiðslumönnum hjá Varnar-
liðinu, var sagt upp sl. þriðjudag.
Af þeim sem Islenskir aðalverk-
takar munu segja upp um mánaða-
mótin eru 17 félagar í Verkalýðs-
og sjómannafélagi Keflavíkur og sjö
í Iðnsveinafélagi Suðurnesja. Um er
að ræða 24 karla og eina konu.
Halldór Pálsson, formaður Iðnsveina-
félagsins, vildi ekki tjá sig um málið
fyrr en þær hafa verið ræddar á
fundi í félaginu á mánudag.
Sem skýringar á uppsögnunum
benda aðalverktakar á að undanfarin
ár hafi stórverkefni komið nánast
hvert á eftir öðru og því hafi tekist
að halda úti vinnu sumar sem vetur.
Þessum verkefnum sé nú lokið eða
að ljúka og það kalli á uppsagnir.
Bindindisdagur
fj ölskyldunnar:
Lögreglan
man ekki
rólegri dag
LÖGREGLAN í Reykjavík
man vart til þess að jafnfá
útköll vegna ölvunar hafi bor-
ist á cinutn degi og á
Bindindisdegi fjölskyldunnar
í fyrradag. Enginn ökumaður
var kærður vegna gruns um
ölvun við akstur, en að jafnaði
eru þeir 1-3 hvern virkan dag.
Einn maður gisti fanga-
geymslur vegna ölvunar en
þar eru að jafnaði um 10
manns á virkum degi vegna
ölvunarástands.
„Okkar vegna mættu allir
dagar vera bindindisdagar fjöl-
skyldunnar,” sagði Ómar Smári
Ármannsson aðstoðaryfirlög-
regluþjónn. Lögregla hafði af-
skipti af 7 manns vegna ölvunar
en á annasömum degi er algengt
að einn lögreglubíll sinni jafn-
mörgum ölvunarútköllum á 8
klukkustunda langri vakt.
Vextir á almennum sparisjóðsbók-
um og einkareikningum lækka úr
3,5% í 3% og á kjörbókum úr 7-9%
í 6,5-8,5% eftir því hve innistæða er
óhreyfð lengi á bókinni. Forvextir
viðskiptavíxla lækka úr 19,75% í
19%, á yfirdráttarheimildum úr
20,75% í 20% og vextir á innlendum
afurðalánum lækka úr 18,5% í
JÓN Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra segir að líklegast
sé að áður en samningurinn um
evrópskt efnahagssvæði verður
undirritaður muni íslendingar
gera tvíhliða samning við Evr-
ópubandalagið um skipti á veiði-
17,75%.
„Vextirnir eru á niðurleið. Svig-
rúmið til að lækka frekar innláns-
vexti er orðið mjög lítið ef nokkuð.
Þar af leiðandi þýða frekari vaxta-
lækkanir lækkun á vaxtamun. Við
sjáum ekki annað en að aðalforsenda
frekari nafnvaxtalækkana sé lækkun
raunvaxta og þar hlýtur ríkið að
heimildum, sem feli í sér að EB
fái á fyrsta ári samningsins að
veiða 3.000 tonn af karfa á Is-
landsmiðum, eins og bandalagið
hefur krafizt. í samningnum
verði svo endurskoðunarákvæði
um að sýni rannsóknir að lang-
þurfa að ganga á undan," sagði
Brynjólfur Helgason í samtali við
Morgunblaðið.
Aðspurður sagði hann að þrátt
fyrir mjög litla hækkun lánskjaravísi-
tölu síðustu þijá mánuði eða 1,6%
miðað við heilt ár þá yrði þegar svona
langt væri liðið á árið að skoða jafn-
vægið á milli verðtryggðra og óverð-
tryggðra kjara á árinu í heild. Jafn-
vægið væri að nálgast, en spurning
væri með framhaldið. „Við höfum
tekið þetta skref fyrir skref og vext-
irnir hafa verið á dagskrá á hveijum
bankaráðsfundi. Það er ekki búið að
taka ákvarðanir um frekari lækkanir
en það er búið að skoða málin, þó
ekki sé búið að ganga frá neinu frek-
ar,” sagði Brynjólfur.
hali finnist hér við land í veiðan-
legu magni muni hann koma í
stað hluta af karfakvótanum.
Jón Baldvin skýrði frá þessu á
blaðamannafundi í gær. Þar las
hann einnig upp úr útskrift af
hljóðupptökum af fundi hans og
Þorsteins Pálssonar sjávarútvegs-
ráðherra með utanríkismálanefnd
Alþingis eftir að þeir komu heim
af fundinum í Lúxemborg, þar sem
samkomulagið um evrópskt efna-
hagssvæði náðist. Jón Baldvin
sagði þetta gert í því skyni að
hrekja ásakanir um að kröfum EB
hefði verið haldið leyndum.
Magnús Gunnarsson formaður
Samstarfsnefndar atvinnurekenda
í sjávarútvegi segir að Jón Baldvin
hafi talið þeim trú um að EB myndi
ekki fá fullan karfakvóta. Hann
hafi jafnframt heimildir fyrir því
að utanríkisráðherra hafi vitað að
langhalakvótinn myndi aldrei fást
í gegn, en kosið að þegja yfir því
þar til nú. Um orð Jóns Baldvins
um væntanlegan tvíhliða samning
segir Magnús: „Þetta er bara bull
og kjaftæði og einn andskotans
tilbúningurinn hjá honum í viðbót.”
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra segir að líklega hafi hann
tekið enn raunsærri afstöðu en Jón
Baldvin, að EB myndi gera kröfu
um fullan karfakvóta. „En ég gerði
mér ekki grein fyrir að okkur yrði
stillt upp við vegg; að við yrðum
að gefa þetta að fullu eftir og EB
að fá allar sínar kröfur fram ef
við ættum að eiga kost á aðalsamn-
ingnum,” sagði Þorsteinn í samtali
við Morgunblaðið.
Hann sagði að skömmu eftir
Lúxemborgarfundinn hefði EB
krafizt þess að samningsniðurstöð-
unni yrði breytt, meðal annars
þannig að settar yrðu hömlur á
stjórn íslendinga á fiskútflutningi,
þannig að við yrðum að leggja nið-
ur Aflamiðlun og kvótaálag. Þor-
steinn sagði að slíkt hefði verið
frágangssök fyrir íslendinga, en
Hannes Hafstein aðalsamninga-
maður hefði talið sig geta fengið
EB til að falla frá þessu með því
að gefa bandalaginu karfakvótann
eftir. „Við áttum að kaupa samn-
ingsniðurstöðuna í annað sinn,”
sagði Þorsteinn. Hann sagðist ekki
búast við öðru en að EB fengi sinn
karfakvóta, enda væri utanríkis-
ráðherra búinn að gefa það út
hver niðurstaðan yrði, og þá væri
samningsstaðan ekki sterk. Menn
yrðu að vega og meta meiri
hagsmuni og minni, og vissulega
væri sjálfur EES-samningurinn
miklu stærra hagsmunamál en
2.000 tonn af karfa.
Sjá einnig viðtöl á miðopnu.
Landsbankínn lækkar
vextina um 0,5-0,75%
LANDSBANKI íslands lækkar nafnvexti á óverðtryggðum innlánum
um 0,50% um þessi mánaðamót og nafnvexti óverðtryggðra útlána
um 0,50-0,75%. Forvextir víxla verða eftir lækkun 17% og almennra
skuldabréfa í B-flokki 18% eða einu og hálfu prósentustigi hærri
en þeir eru í Búnaðarbanka Islands og einu prósentustigi hærri en
þeir eru í sparisjóðunum. Brynjólfur Helgason, aðstoðarbankastjóri
Landsbankans, segir að helsta forsendan fyrir frekari vaxtalækkun-
Kum sé að lækkun verði á raunvöxtum og um það sé eðlilegt að stjórn-
völd hafi forgöngu.