Morgunblaðið - 29.11.1991, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1991
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. april) »■*
Þú verður fyrir vonbrigðum
með ákveðið mál í vinnunni í
dag, en spjarar þig þeim mun
betur á öðrum vettvangi. Helg-
aðu kvöldið fjölskyldu og heim-
ili.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ein af hugmyndum þínum fell-
ur ekki í frjóa jörð í dag, en
ef til vill barstu hana upp á
röngum stað. Snúðu þér til ein-
hvers í þínu nánasta umhverfi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú kemur miklu í verk í vinn-
unni í dag, en ættir ekki að
skipta þér af fjármálum ann-
arra núna. Þú gerðir rétt í að
biðja ekki um lán í kvöld.
Krabbi
(21. júní - 22. júií)
Frístundaiðja þín er í brenni-
punkti hjá þér í dag. Kannski
finnst þér liggja i loftinu að
einhver nákominn þér sé ekk-
ert allt of hrifinn af henni. Þér
hættir til of mikiilar viðkvæmni
í kvöld.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert óupplagður í vinnunni í
dag. Kannski væri heppilegra
fyrir þig að vinna heima. Forð-
astu að deila við einhvern úr
fjölskyldunni.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) &£
Kuldaleg framkoma einhvers
kemur þér úr jafnvægi og þú
færð spumingum þínum ekki
svarað. Þér kemur annars
ágæta vel saman við aðra sem
þú umgengst.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Fjölskylduvandamál veldur því
að þú átt erfitt með að einbeita
þér í dag, en þú færð samt
komið heilmiklu í verk áður en
dagurinn er allur. Þú gerir
hagkvæm innkaup.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú veltir ákveðnu vandamáli
lengi fyrir þér í dag og lcysir
það síðan með kröftugu átaki.
Ýtarleg leit færir þér svarið
sem þig vantaði.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) m
Þér geta orðið á alvarleg mis-
tök í viðskiptum ef þú gætir
ekki vel að þér núna, og á því
er einmitt hætta. Hugsaðu já-
kvætt í dag.
Steingeit
' (22. des. - 19. janúar)
Þú hugsar of mikið um eigin
persónu í dag. Nákomnum ætt-
ingja finnst þú tilfinningalaus.
Taktu þátt í hópstarfi, en
gleymdu samt ekki fjöiskyld-
unni.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Það sækir á þig þunglyndi í
dag, en þú ert ákaflega lifandi
í vinnunni. Hugsaðu ekki of
mikið um það sem liðið er.
Lifðu heldur í núinu.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) '£*■
Þér finnst vinur þinn hafa svik-
ið þig í dag, en það lifnar yfir
þér með kvöldinu. Það er mikil-
vægt fyrir þig að hafa sterka
sannfæringu núna.
Stjörnuspána á að lesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast- ekki á traustum grunni
vísindalegra staóreyndu.
DYRAGLENS
GRETTIR
TOMMI OG JENNI
#owí
crasn/
0ANC-
x 9omfS
O UCH!
LJOSKA
j iwiyA’-va —i
SMAFOLK
'M C0NFU5EP ÁBOUT
S0METWIN6...
PID C0LUMBU5 PI5CO\/ER
AMERICAIN 24-16-32.
OR I5TWATMV L0CKER
CDM RIMATIOKJ ~>
Ég er rugluö í dálitlu.
Uppgötvaði Kólumbus Ameríku
24-16-32, eða er þetta lánsnúmerið
mitt?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
„Af hverju gerið þið okkur
þetta alltaf!” Bolo Ostrowsky,
hinn umdeildi fyrirliði Pólverja
í Yokohama, lamdi síðasta spil-
inu í borðið, skvetti vatni úr
sótavatnsflösku í klút og laugaði
sveitt andlitið.
Austur gefur; NS á hættu. Norður ♦ Á982 VG42 ♦ G854 + G4
Vestur Austur
♦ D76 ...... + 10543
VD10865 V973
♦ 107 ♦ D962
+ K75 + 108 Suður + KG VÁK ♦ ÁK3 ♦ ÁD9632
Tilefni upphlaups Ostrowskys
var í þetta sinn spilamennska
Þorláks Jónssonar í 6 gröndum.
Þetta var í „Top 16” boðsmótinu
á Italíu um síðustu helgi, þar
sem Þorlákur og Guðmundur
Páll Arnarson, spiluðu sem full-
trúar íslands og höfnuðu í 8.
sæti með rúma meðalskor.
Frakkamir Chemla og Sussel
unnu mótið, en þegar hér var
komið sögu voru Ostrowsky og
félagi hans Przybora í toppbar-
áttunni:
Vestur Norður Austur Suður
Ostr. Guðm. Przybora Þorl.
— — Pass 2 lauf
Pass 2 tíglar Pass 3 grönd
Pass 4 grönd Pass 6 lauf
Pass Pass Pass
Utspilið var hjarta. Þorlákur
átti slaginn á ás, tók laufás og
spilaði laufi á gosa, sem hélt.
Tíguil heima á ás og meira lauf.
Ostrowsky skilaði hjarta, og nú
tók Þorlákur tígulkóng og frí-
slagina á lauf. Vestur varð að
halda í hjartadrottningu, en
austur í hæsta tígul, svo hvorug-
ur gat valdað spaðann. Þorlákur
fékk því 12. slaginn á spaðaníu.
Tvöföld kastþröng.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlegu móti í Bad Bart-
feld í Tékkóslóvakíu í haust kom
þessi staða upp í viðureign stór-
meistarans Gipslis (2.475), Lett-
landi, og tékkneska alþjóðameist-
arans Dobrovolskys (2.395), sem
hafði svart og átti leik.
i
HA 1 B B
wP öl r ■*l°|
29. — Rd3! (Svartur nær vinn-
ingsstöðu með þessari innrás, því
30. Dxg5? gengur auðvitað ekki-
vegna 30. — Rf2 mát) 30. Da7 —
Dd2, 31. Bxd3 - Hh6! (Drottn-
ingarfóm er aftur á dagskrá,
svartur hótar 32. — Dxh2+!)
32. g4 - Bxg4, 33. Hg2 - Bxf3,
34. Bfl - Df4 (Hótar máti á h2,
hvíta liðið er ieppað og bundið í
bak og fyrir.)
35. Dgl - Bxe4, 36. Be2 -
Hg6, 37. Bfl - Dd2, 38. b4 -
Dxa2 og nú loksins hafi hvítur
fengið nóg af þessari ójöfnu bar-
áttu. Þetta var eina tapskák Gipsl-
is á mótinu, en hann er reyndar
frægur jafntefliskóngur. Erfitt er
að leggja hann að velli, en hann
skýtur heldur ekki mörgum skelk
í bringu. Á IBM-mótinu í Amst-
erdam 1976 gerði hann jafntefli
í öllum skákum sínum, 15 að tölu!