Morgunblaðið - 29.11.1991, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1991
Talsmenn samtaka útgerðar og fiskvinnslu;
hagfræðingur um þróun launabils 1980-90:
Brýnt að framkvæma
tillögnr sjávarútvegs-
ráðherrans sem fyrst
TALSMENN útgerðar og fiskvinnslu segja að tillögur Þorsteins Pálsson-
ar sjávarútvegsráðherra í ríkisstjórninni um aðgerðir til að styrkja
stöðu sjávarútvegsins gangi i rétta átt og njóti stuðnings samtaka í
greininni. Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva,
segir að fiskvinnslan styðji þessar tillögur og brýnt sé að þær komist
sem fyrst til framkvæmda. Sveinn Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur
LIU, segir að tillögurnar njóti mikils stuðnings útgerðarinnar og séu
í samræmi við þær óskir sem útgerðarmenn hafi sett fram.
„Við höfum lagt áherslu á leng-
ingu lána í Atvinnutryggingasjóði,
að felldar verði niður innborganir í
Verðjöfnunarsjóð. Það skiptir sjávar-
útveginn verulegu máli að eigi sér
stað bæði veruleg nafnvaxtalækkun
og raunvaxtalækkun innanlands,”
sagði Arnar.
Hann sagði að fiskvinnslumenn
styddu einnig lækkun aðstöðugjalda
og lækkun raforkukostnaðar. „Við
teljum þó að þrátt fyrir þessar að-
gerðir verði vinnslan áfram rekin
með tapi. Þær drægju hins vegar
verulega úr hallanum í dag,” sagði
hann.
Arnar sagði að heildarskuldir í
Sandgerði:
Vélarvana bát
rak að landi
VÉLARVANA báti, Nirði EA 208,
með tveimur mönnum á var bjarg-
að síðdegis í gær þegar hann rak
vélarvana í átt að landi við Stafn-
nes. Hólmsteinn GK kom bátnum
til hjálpar og kom taug á milli
þegar Njörður var kominn inn á
12-14 faðma dýpi.
sjávarútveginum næmu um 100
milljörðum. „Það má áætla að rúm-
lega þriðjungur þeirra eða 35 millj-
arðar séu skuldir innanlands. Það
hlutfall hækkar svo vegna vanskila-
skulda. Því gæti 1% raunvaxtalækk-
un þýtt um 350 milljónir kr. á ári,
sem skiptir að sjálfsögðu miklu
máli,” sagði Arnar.
Sveinn Hjörtur sagði að sér litist
vel á ráðstafanir sjávarútvegsráð-
herra. „Raunvextir eru alltof háir.
Þeir hafa hækkað á sama tíma og
ríkt hefur samdráttur hjá fyrirtækj-
um og lánsfjáreftirspurn hefur
minnkað.- Vaxtastigið innanlands
skiptir mjög miklú máli fyrir afkomú
greinarinnar eins og aðrir kostnað-
arliðir í þjóðfélaginu.
Svðírin sagði mikilvægt að iækka
raforkuverð til sjávarútvegsfyrir-
tækja og að áðstoðugjald hefði rúm-
lega tvöfaldast á útgerðarfyrirtækin
að undanförnu.
„Við verðum strax að aðlaga efna-
hagslífið í Iandinu að erfiðum að-
stæðum. Það liggur á að þessar ráð-
stafanir verði framkvæmdar. Öll bið-
staða er hættuleg,” sagði Sveinn
Hjörtur.
Gylfi Arnbjörnsson
Spurst fyrir
um stál-
bræðsluna
ÞROTABÚ íslenska stálfélagsins
hefur fengið fyrirspurnir frá er-
lendum aðilum um kaup á stál-
bræðslunni í Hafnarfirði, sem
þrotabúið auglýsti til sölu í fag-
tímaritinu Metal Bulletin sem
dreift er um allan heim sl. mánu-
dag. Önnur auglýsing birtist í
gær, að sögn Helga Jóhannesson-
ar bústjóra.
Helgi kvaðst ekki geta upplýst
hvaða aðilar það væru sem hefðu
sýnt kaupum á stálbræðslunni
áhuga, þetta væru mjög óformlegar
fyrirspurnir og beðið hefði verið um
frekari gögn í málinu. Ein fyrirspurn
barst í gær, en einnig hefði verið
hringt í stóra aðila í málmiðnaði
erlendis og þeim kynnt fyrirtækið.
Þar á meðal væru aðilar sem ís-
lenska stálfélagið hefði verið í við-
skiptum við áður.
Helgi sagði að unnið væri þessa
dagana að gerð yfirgripsmikillar
skýrslu með lýsingu á fyrirtækinu
sem lysthafendur fá senda. Lokið
verður við skýrsluna á næstu dögum.
Hann sagði að ekkert ákveðið verð
væri sett á verksmiðjuna, það væri
samningsatriði sem væri háð sam-
þykki veðhafa. Hann vonaðist til
þess að kaupendur fengjust að stál-
bræðslunni fyrir næstu áramót.
Stálbræðslan var auglýst til sölu
í Morgunblaðinu í gær. Þar segir
meðal annars að málmtætari sem
íslenska stálfélagið keypti á kaup-
leigu af sænsku fjármögnunarfyrir-
tæki gæti fylgt með ef um semst
við hlutaðeigandi fyrirtæki.
Svava á leið til Puerto Rico
Svava Haraldsdóttir, fegurðardrottning íslands 1991, er nú stödd í
London en þaðan heldur hún innan skamms til Puerto Rico til að taka
þátt í keppninni Ungfrú heimur. Meðfylgjandi mynd var tekin af Svövu
við komuna til Heathrow-flugvallar á miðvikudaginn.
Launabílið jókst mest á meðal
skrifstofu- og afgreiðslufólks i
Tekjumunur milli stétta hélst óbreyttur
Njörður er 17 tonna bátur sem
rær frá Sandgerði. Að sögn hafnar-
varðar í Sandgerði var talið líklegt
að bilun í gír hefði valdið því að
báturinn missti afl.
Slysavarnarfélaginu barst til-
kynning um vanda Njarðar klukkan
12.43 og auk þess sem strax var
kallað til nærstaddra báta var áhöfn
þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-SIF,
í viðbragðsstöðu á Reykjavíkurflug-
velli. Þar sem Hólmsteinn KE, sem
er 43 tonna bátur, var hins vegar
skammt undan og kom taug á milli,
þótti ekki nauðsynlegt að þyrlan
færi á loft.
Bátarnir komu til hafnar í Sand-
gerði um klukkan 14.50.
„Mér fínnst vinnubrögðin á Al-
þingi vera allt önnur og lakari en í
borgarstjórn. í borgarstjórn fer fram
miklu málefnalegri og vandaðri um-
ræða en á Alþingi. Á Alþingi er
mikið um alls konar uppákomur,
með hálfgerðum gagnfræðaskóla-
brag, þar sem nokkrir fyrrverandi
ráðherrar eru afskaplega sérstakir
í sínum málatilbúnaði, að ekki sé
meira sagt,” sagði forsætisráðherra.
Davíð kvað það hafa komið sér á
óvart hversu ómálefnalegir þing-
menn gætu verið í málflutningi sín-
um. „Það er eins og ákveðnir þing-
menn haldi að þinghaldið eigi að
ganga út á það að vera með einhver
sniðugheit frá degi til dags og reyna
að vinna einhveijar keilur í einhveij-
um uppákomum,” sagði Davíð.
Forsætisráðherra nefndi sérstak-
lega utandagskrárumræður á þingi
LAUNABIL milli starfsfólks í
skrifstofu- og afgreiðslustörfum
jókst stöðugt á árunum 1980-
1987 en hefur að nokkru leyti
gengið til baka á síðustu árum.
og þingskapaumræður, sem væru
ekkert um þingsköp, og væru því
algjör misnotkun á því hugtaki.
„Maður ber nú ekki mikla virðingu
fyrir þessum vinnubrögðum og sum-
ir þingmenn hafa vakið sérstaka
athygli mína.
Eg er til dæmis alveg undrandi á
formanni Alþýðubandalagsins sem
mér finnst vera afskaplega ómál-
efnalegur og sérstakur í vinnubrögð-
um. Ég tel jafnvel að framkoma eins
og hans hefði þótt hallærisleg meðal
skólafélaga, þegar á menntaskóla-
stiginu. En reyndir þingmenn segja
mér að þetta séu svona fráhvarfsein-
kenni fyrrverandi ráðherra sem þeir
eigi erfitt með að leyna, en slíkt lag-
ist þegar frá líður,” sagði Davíð.
- Nú vekur það auðvitað athygli
þegar forsætisráðherra gefur vinnu-
staðnum Alþingi þessa einkunn.
Engin breyting hefur þó orðið á
Iaunamun á milli starfsstétta
innan ASI á þessum tima og lau-
namunur á milli kynjanna hefur
ekki breyst. Aukinn mismunur á
Ertu þeirrar skoðunar að breyta
beri starfsháttum þingsins og regl-
um þar að lútandi verulega?
„Nei, ég held að starfsreglumar
séu ágætar, ef farið er eftir þeim.
En þingmenn sem koma hver á fæt-
ur öðrum og tala um þingsköp, sem
eru fundarsköpin, og nota það til
persónulegra árása á ráðherra og
fleiri, eru bara að misnota reglur.
Endalausar kröfur um utandag-
skrárumræður um nánast ekki neitt
eru líka dæmi þess að menn taka
hvorki sjálfa sig né þingið alvarlega.
Ég hef því orðið mjög hissa á um-
ræðunum,” sagði Davíð.
- Hvað um þau átök sem átt hafa
sér stað á milli þín og Inga Björns
Albertssonar, þingmanns Sjálfstæð-
isflokksins? Var þetta ekki ágrein-
ingur sem hefði átt að fjalla um í
þingflokknum og mun þessi deila
ykkar hafa einhver eftirmál í för
með sér?
„Ingi Björn er bara einn af þeim
sem hefur misnotað þingsköp. I tví-
gang fór hann tvisvar upp undir
heitinu þingsköp og notaði tímann
svo til þess að ráðast persónulega á
mig, en hann átti að fjalla um fund-
milli hæstu og lægstu launa
félagsinanna innan ASÍ hefur
nær eingöngu átt sér stað innan
einstakra starfsstétta, einkum
meðal skrifstofu- og afgreiðslu-
fólks. Þá hefur launamunur á
milli kvenna í skrifstofu- og af-
arsköp Alþingis og meðferð þeirra.
Ég á ekki von á neinum sérstökum
eftirmála vegna þessa upphlaups
Inga Björns.
Að vísu hefur þingmaðurinn nú
þegar verið í allmörgum þingflokk-
um, eftir fjögur ár á þingi, þremur
ef mig misminnir ekki. Hann er
kannski ekki mikið fyrir það að
starfa í félagsskap,” sagði forsætis-
ráðherra.
- Áttu við það að Ingi Björn kunni
hugsanlega að hverfa úr þingflokki
Sj álfstæðisflokksins?
„Ég hef ekki hugmynd um það,
en ég kynni betur við það, að hann
eins og aðrir þingmenn flokksins
ræddi málin í þingflokknum, en
væri ekki að bera sín mál á torg.
Skaðinn var skeður þegar jafnstór
orð voru höfð uppi eins og hann
hafði haft, þar sem hann margtöngl-
aðist á því hvað þyrfti að gerast til
viðbótar þessu slysi, til þess að menn
áttuðu sig. Það er náttúrlega slík
melding, að það er með hreinum
ólíkindum,” sagði Davíð Oddsson
forsætisráðherra.
Sjá einnig þingsíðu bls. 38.
greiðslustörfum aukist heldur
meira en launamunur meðal
karla innan þessarar starfsstétt-
ar. Þetta kom fram í erindi Gylfa
Arnbjörnssonar hagfræðings
kjararannsóknarnefndar á
fræðslufundi VR á þriðjudag.
Gylfi sagði í samtali við Morgun-
blaðið að í úrtakskönnunum kjara-
rannsóknarnefndar hefði komið í
ljós að launahækkanir skrifstofu-
og afgreiðslufólks hefðu orðið tölu-
vert minni frá síðasta ári saman-
borið við hækkanir verkafólks og
iðnaðarmanna. Samanburður sýndi
að átt hefði sér stað svokallað nei-
kvætt launaskrið meðal skrifstofu-
og afgreiðslufólks, sérstaklega
meðal karla á skrifstofum. Sagði
Gylfi þetta einkum þýða að fólk
sem væri ráðið inn á skrifstofurnar
hæfi störf á lægra kaupi en þeir
sem láta af störfum. „Yfirborgunin
er að hluta til að ganga til baka.
Við höfum borið þetta undir starfs-
fólk og forystumenn verkalýðs-
félaga, sem kannast við þetta. Það
er aukin ásókn háskólamenntaðs
fólks í skrifstofustörf og viðskipta-
fræðingar sækja til dæmis í aukn-
um mæli í bókunar- og gjaldkera-
stöðurnar,” sagði hann.
Gylfi sagði að á vegum kjara-
rannsóknarnefndar hefði verið unn-
ið að sérstakri könnun á þróun
launamunar á milli stétta á síðasta
áratug. Komið hafi í Ijós að launa-
bilið innan ASÍ hafi aukist frá 1980
fram undir 1987 en síðan þá hafí
það heldur gengið til baka. „Mesta
stígandin er á þeim árum þegar
launin voru ekki verðtryggð á mikl-
um verðbólguárum. Þetta aukna
launabil innan ASÍ er þó ekki kom-
ið til vegna þess að ein stétt hafi
farið fram fyrir aðra stétt. Þessi
munur á launum er fyrst og fremst
t'l kominn vegna þess að launa-
dreifingin innan stéttanna hefur
aukist,” sagði Gylfi.
Davíð Oddsson forsætisráðherra:
Hef orðið fyrir miklum von-
brigðum með störf Alþingis
DAVÍÐ Oddsson segist hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með vinnu-
brögð Alþingis og það hvernig þingmenn í skjóli utandagsskrár
ræðna og umræðna um þingsköp komast upp með alls konar uppákom-
ur og persónulegar árásir á aðra þingmenn. Forsætisráðherra sagði
í samtali við Morgunblaðið í gær að Ingi Björn Albertsson væri bara
eitt dæmi um þingmann sem misnotaði sér þingsköp til persónulegra
árása.
I
*
i