Morgunblaðið - 29.11.1991, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1991
Minning:
Lárus G. Jónsson
skókaupmaður
Fæddur 28. apríl 1906
Dáinn 28. nóvember 1991
Tengdafaðir minn, Lárus Guðjón
Jónsson, fyrrverandi skókaupmaður
í Skóverzlun Lárusar G. Lúðvígs-
sonar, er nú horfinn í hóp feðra
sinna sem hann unni svo mjög.
Lárus er kominn af stórri fjöl-
skyldu skósmiða og skókaupmanna
í Reykjavík. Hann fæddist í húsinu
Bergstaðastræti 34 en ólst lengst
af upp í Þingholtsstræti 11 og var
næstelsta barn Jóns Lárussonar
skósmíðameistara og Magdalenu
Margrétar Gunnlaugsdóttur. Afi
Lárusar var Lárus G. Lúðvígsson
skósmíðameistari og skókaupmað-
ur, sonur Lúðvigs steinsmiðs sonar
Alexíusar Árnasonar pólitís sem var
fyrsti íslenzki lögregluþjónninn.
Lárus G. Lúðvígsson og kona hans,
Málmfríður Jónsdóttir, voru bæði
Reykvíkingar aftur í ættir. Þau
eignuðust 9 börn sem komust á
legg og er af þeim komin stór ætt
sem setti mikinn svip á verzlun og
viðskipti í Reykjavík, sérstaklega á
fyrri helmingi þessarar aldar.
Lárus G. Lúðvígsson opnaði sam-
nefnda skóverzlun sína og skó-
smíðaverkstæði árið 1877 í húsun-
um Ingólfsstræti 3 og 5. Þessi skó-
verzlun var fyrsta sérverzlun með
íkó á Islandi og að margra áliti
stærsta og vegiegasta skóverzlun á
Norðurlöndum eftir að synir hans
reistu henni stórhýsið Bankastræti
5 árið 1929. Þeir sem hafa náð
fimmtugsaldri muna þá verzlun
vel, veglegan inngang og glæsileg-
an verzlunarsal sem var tvískiptur,
til vinstri var herradeild og til hægri
dömudeild og voru sérstakir af-
greiðslumenn í hvorri deild. í miðri
verzluninni, gegnt inngangi, var
breiður stigi sem lá upp á skrifstof-
ur og vörugeymslur. Þegar skó-
verzlunin var lögð niður árið 1963,
86 árum frá stófnun, var húsið seit
Verzlunarbankanum og má vel sjá
enn í núverandi Island^banka
hversu vel var það að öllu búið.
Sem unglingur var Lárus mörg
sumur í sveit hjá föðurbróður sín-
um, Lúther bónda á Ingunnarstöð-
um í Brynjudal í Kjós. Þar kynntist
Lárus almennum landbúnaðarstörf-
um, lærði umgengni við land og
skepnur og varð dýravinur. Þann
lærdóm færði hann sér í nyt síðar
og meðal annars sem hestamaður
því hann átti gæðing góðan, Rauð,
sem hann syrgði lengi eftir að hann
var felldur. Til minningar um þenn-
an vin sinn geymdi Lárus alla tíð
einn hóf.
Með skóla hóf Lárus störf sem
sendisveinn í skóverzlun fjölskyld-
unnar. Að lokinni hefðbundinni
skólagöngu var Lárus, þá enn und-
ir tvítugu, sendur af föður sínum
og bræðrum hans sem þá ráku skó-
verzlunina til verzlunarnáms til
London í því skyni að koma síðan
til starfa í fjölskyldufyrirtækinu.
Vafalaust hafa þeir bræður sem
voru fyrirhyggjumenn ætlað honum
að geta tekið við verzlunarrekstrin-
um síðar. Átti Lárus fyrst og fremst
að læra ensku og skrift verzlunar-
bréfa sem hann og gerði enda sáust
þess merki í starfi hans síðar að
undirstaðan var góð á því sviði.
Eftir heimkomuna hóf hann starf í
skóverzluninni, fyrstu árin við af-
greiðslu í dömudeild. Liprari af-
greiðslumaður að sögn þeirra sem
reyndu fannst ekki í Reykjavík í
þá daga. Verður tæpast annað sagt
en jafnræði hafi verið með dömu-
deild og herradeild því Ingólfur
Isólfsson afgreiddi þá í herradeild.
Þeir sem það muna gleyma ekki
þeim undraverða hraða og lipurð
þegar þeir félagar smeygðu skóm
á fætur og bundu reimar. Þegar
kaup höfðu verið gerð hurfu skór
aftur í kassa og seglgarni kross-
bundið um hraðar en auga á festi.
Eftir nokkurra ára starf í af-
greiðslu fluttist Lárus á skrifstof-
una og tók síðan smám saman við
rekstri fyrirtækisins fyrst með föð-
urbræðrum sínum og loks einn.
Reksturinn var mjög umfangsmikill
þá og fólst í innflutningi, heildsölu
til annarra skókaupmanna og í
smásölu í þeirra eigin verzlun. Eft-
ir að smásöluverzlunin var lögð nið-
ur árið 1963 hélt Lárus enn skóum-
bnðum og stundaði skóinnflutning
í nokkur ár.
Tengdamóður mína, Önnu Krist-
ínu Sveinbjörnsdóttur frá ísafirði,
hitti Lárus þegar hún afgreiddi í
Laugavegsapóteki. Það mál eins og
önnur sótti Lárus af kappi og dugn-
aði og giftu þau sig í Reykjavík 26.
maí 1928. Settu þau fyrst saman
bú í Þingholtsstræti 11 sem þá var
enn í eigu fjölskyldunnar og næsta
hús við Ingólfsstræti 12, sem Jón
Lárusson hafði þá nýlega byggt.
Samgangur hélst því mikill áfram
milli ungu hjónanna og foreldra
Lárusar. Börn Lárusar og Önnu
urðu þijú, Hrefna, fædd 1929, gift
Ragnari Kvaran og eru þau búsett
í Lúxemborg, Anna Margrét, fædd
1934, gift Jónasi Hallgrímssyni og
búsett í Garðabæ, og Jón, fæddur
1942, kvæntur Sigríði Guðjónsdótt-
ur og einnig búsett í Garðabæ.
Barnabörn önnu og Lárusar eru 7
og barnabarnabörn 12.
Lárus gerðist ungur skáti og ólst
því upp við útivist, gönguferðir og
fjallaferðir. Þangað sótti hann öðru
fremur hið mikla líkamsþrek sitt
og frelsisást og jafnframt þekkingu
á landi sínu og náttúru sem entist
honum svo lengi. Árum saman ferð-
aðist Lárus með vini sínum, Guð-
mundi Jónassyni, um hálendi ís-
lands, fjöll og jökla. Um fertugt hóf
Lárus að stunda skíðaferðir og áttu
þær sem íþrótt hug hans allan
lengst af síðan. Hann var einn af
þeim fyrstu sem leitaði út fyrir land-
steinana til síðaiðkana, fyrst til
Noregs fyrir um 30 árum og þá sem
farastjóri með keppnisliði en síðan
til Austurríkis og síðustu skíðaferð
sína þangað fór hann 76 ára gam-
all. Ferðir Lárusar í Kerlingaijöll á
sumrin voru frægar því ekkert lét
hann aftra för sinni og lagði til
dæmis ótrauður í hina frægu Sandá
á lítilli fólksbifreið af Cortina-gerð.
Annars voru bifreiðar ekki að skapi
hans og þrátt fyrir góð efni keypti
hann þær ekki ótilneyddur því þær
höfðu af honum hreyfingu og frelsi
og náið samband við náttúru og
umhverfi sem honum var svo dýr-
mætt. Síðustu skíðaferð sína í Blá-
fjöll fór Lárus með okkur 79 ára
gamall og hélt hann þar sínum ör-
ugga svigstíl til síðustu beygju sem
við getum vottað.
Áhugi Lárusar á tónlist var mik-
ill. í foreldrahúsum lærði hann á
píanó. Síðar á æfinni keypti hann
sér sjálfur píanó og hóf nám og
æfingar sem skiluðu furðugóðum
árangri. Hann var góður söngmað-
ur og einn af stofnendum karlakórs-
ins Merkúrs, kórs verzlunarmanna
í Reykjavík.
Lárus var félagsvera að eðlisfari
og þann þátt ræktaði hann með sér
alla tíð. Hann var skáti eins og
áður er sagt og stundaði fimleika
og fleiri íþróttir með glímufélaginu
Ármanni. Árum saman var hann í
stjórn Skíðafélágs Reykjavíkur og
átti lengi sæti í skíðaráði. Hann var
félagi í Lionsklúbbi Reykjavíkur.
Takmarkalaus starfsorka, ósér-
hlífni og létt lund gaf samferða-
mönnum hans mikið.
Lárus var hagur maður. Lengi
voru til fallegar teikningar og
vatnslitamyndir eftir hann frá yngri
árum. Eftir litla tilsögn hóf hann
að skera í tré og við þá iðju undi
hann sér á síðkvöldum á fyrri bú-
skaparárum. Eftir að hann hætti
verzlunarrekstri tók hann upp þráð-
inn að nýju og nú prýða heimili
barna og barnabarna útskornar hill-
ur og kassar sem bera merki ör-
uggs handbragðs hans og smekk-
vísi.
Snemma árs 1944 festu Lárus
og Anna kaup á sumarbústað við
Álftavatn í Grímsnesi og varð hann
þeirra annað heimili á sumrin næstu
30 ár. Þar fékk vinnugleði og hag-
leikur Lárusar að njóta sín best.
Þegar fyrsta húsið tók að fúna hóf
Lárus nýbyggingu á staðnum. Fór
hann þá óvenjulegu og frumlegu
leið að byggja nýja húsið utan um
það gamla sem veitti skjól á meðan
á byggingu stóð. Síðan var gamla
húsið rifið og eftir stóð stórhýsi
samkvæmt mælikv.arða sumarbú-
staða enda var þetta fyrir setnihgu
allra reglugerða um húsastærðir
þar í sveit. Stærðin átti vel við því
þau hjón ætluðu að byggja svo stórt
að öll barnabörnin gætu gist og það
tókst. Sumarbústaðurinn Bláskógar
stendur enn og að mestu svipaður
Sparisjóðirnir, Perlan og Fróði hf. efna til
barnadaga í Perlunni.
Kynning á nýjum barnabókum:
- Mitt er þitt eftir Þorgrím Þráinsson.
- Egill og Garpur eftir Ragnheiði
Davíðsdóttur og Stefán Kjartansson.
-Heitirðu Ómar eftir Ómar Ragnarsson.
Piötukynning:
- Andartak, sólóplata Rafns Jónssonar.
Jólasveinar verða á staðnum. Öll böm fá
glaðning frá sparisjóðunum á laugardeginum,
Kveikt verður á jólatré og Lúðrasveit
Reykjavíkur og Barnakór Karsnesskóla leika
og syngja.
Fram koma:
- Hljómsveit Rafns Jónssonar ásamt
söngvurunum Helga Bjömssyni, Sævari
Sverrissyni og Daníel Agúst Haraldssyni.
- Bubbi Morthens ásamt hljómsveit.
- Hörður Torfason.
- Geiri Sæm.
- Eyjólfur Kristjánsson.
- Bjartmar Guðlaugsson.
- Ný dönsk.
- Galileo.
Forsala aðgöngumiða er í hljómplötuversl-
unum. Miðar seldir við innganginn.
18 ára aldurstakmark.
Sparisjóður Hafnarfjarðar Sparisjóður Kópavogs
Sparisjóður Reykjavfkur og nágrennis Sparisjóður vélstjóra
cí laugardagskvöld.
Tilefni tónleikanna er ótkoma nýrrar hljómplötu Rafns
Jónssonar, Andartak. Platan er gefin út til styrktar
Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra og rannsóknarsjóðs til
eflingar rannsókna á lömunarsjúkdómnum MND.
Liðveisla, námsmannaþjónusta sparisjóðanna, er
styrktaraðili Perlutóna.
Stöð 2 og Bylgjan verða með beina útsendingu.
Sparisjóðirnir bjóða félögum í Liðveislu
á tónleikana. Aðgöngumiðar liggja frammi
í sparisjóðunum og fást afhentir gegn
framvísun skírteinis.
1 1 SPARISJÓf JIHNIR 1
h—i mm