Morgunblaðið - 29.11.1991, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1991
65
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
B91282KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
JOLA-BASAR
W
í Veltubæ, Skipholti 33,
ó morgun, 30. nóvember, kl. 14.00.
Urval jólamuna,
kökur og happdrætti.
KVENFÉLAG FRÍKIRKJUNNAR í Rvík.
A
HMC
Glæsilegt kápuúrval
v/Laugalæk, sími 33755
HUCKE^
<§t>GRUPPE
Þessir hringdu . .
Gleraugu í óskilum
Gleraugu urðu eftir í Kaup-
þingi í kringum 8. nóv. Um er
að ræða hálf fjarsýnisgleraugu
í gylltri umgjörð og þau eru í
svörtu hulstri. Eigandi getur vitj-
að gleraugnanna í Kaupþingi eða
hringt í síma 689080.
Svartur skinnhanski
Svartur hægri handar skinn-
hanski fannst í Barmahlíð fyrir
nokkrum vikum. Eigandi hringi
í síma 21710 eða komi í Barma-
hlíð 46 (Sigríður).
Strætisvagnafargjöld
Kona hringdi og sagðist alltaf
fara með strætó og það væri
daglegur viðburður að börn og
unglingar biðji um peninga fyrir
fargjöldum. Hún sagði að það
ætti sér jafnvel stað þegar þau
væru að koma að heiman frá
sér. Hún sagði að ekki væri nema
von að það væri tap á rekstrinum
þegar svo mikill fjöldi reyndi að
koma sér undan því að borga
fargjöld.
Lýsing við Bókhlöðuna
íbúi á Birkimel sagði að eitt
árið hefðu skrautljós verið sett
upp í kringum Bókhlöðuna og
þau hefðu puntað mikið upp á
umhverfið. Undanfarin ár hefðu
þessi ljós svo ekki verið látin
loga og vildi þessi íbúi koma með
þá fyrirspurn hvort ekki væri
hægt að kveikja á ljósunum á
nýjan leik, að minnsta kosti núna
í svartasta skammdeginu.
Trúmál þurfa vettvang
Séra Jón Habets hringdi og
vildi koma með athugasemd til
trúmanns sem skrifaði í Velvak-
anda á sunnudag og bað um að
trúarskrif yrðu birt annars stað-
ar en í Velvakanda. Hann sagði
að trúmálin væru stór hluti
mannlífsins og því væri ekkert
undarlegt þótt ákveðnar síður í
stóru dagblaði væru helgaðar
þeim sem vildu skrifa um trú-
mál. Einhvern vettvang yrðu trú-
málin að hafa og sagði hann að
erlendis væri það alsiða hjá stór-
um dagblöðum að helga trúmál-
um ákveðið pláss.
Huffy-fjallahjól
Hvítt Huffy-fjallahjól tapaðist
við Þverholt í Mosfhllsbæ sunnu-
dagskvöldið 24. nóv. Þeir sem
vita hvar hjólið er vinsamlega
hafi samband í .sípia 666(549.
BARNA- OG ÖRORKUBÆTUR
iþ
Heimilistæki hf
SÆTÚNI8 SÍMI691S 15 ■ KRINGLUNN! SÍMI69 15 20
'ÍSOMKÍKgUfK
Hægt er að ná greiðsluhalla rík-
issjóðs niður um marga milljarða
með því að afnema barnabætur
að hluta og endurskoða allar ör-
orkubætur. Ef til dæmis bama-
bætur væru lagðar niður að hluta,
þannig að einungis væru greiddar
út slíkar bætur til þeirra sem
væru með stórar fjölskyldur og
tekjur í lægri kantinum. Fráleitt
er að borga barnabætur og bama-
aukabætur til þeirra sem hafa
góðar tekjur. Einnig ætti einungis
að borga örorkubætur til líkam-
lega fatlaðra og andlega, alls ekki
til þeirra þúsunda sem fá vottorð
hjá lækni um bak- eða bijóstveiki
og fá bætur upp á 40-60.000 krón-
ur á mánuði, sem mjög margir
nota til drykkju. Alltof margir.
Endurskoða á allar slíkar bætur
og ekki á að láta lækni einan ráða
um slíkar bætur enda oft hálft í
hvoru kúgaður af styrkþegum á
einn eða annan hátt. Betra væri
ef kunnugir væra líka látnir meta
hvort ástæða væri til að þetta fólk
fengi bætur, þannig að réttlætinu
verði fullnægt.
Ég skora á hinn ötula heilbrigð-
ismálaráðherra að athuga þessi
mál. Ætla mætti ef af slíkum
sparnaði yrði þá væri hægt að
borga öllu hæiri bætur til þeirra
sem virkilega þurfa á þeim að
halda, á ég þá við lamaða, fatl-
aða, blinda og aðra sem eru and-
lega fatlaðir.
Með vinsamlegri virðingu.
„Eldri borgari”