Morgunblaðið - 29.11.1991, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1991
Basar Kven-
félags Frí-
kirkjunnar
Á MORGUN, laugardaginn 30.
nóvember, heldur Kvenfélag Frí-
kirkjusafnaðarins í Reykjavík ár-
legan jólabasar sinn í Veltubæ við
Skipholt. Þar verður til sölu margt
góðra muna, enda hafa félagskon-
ur unnið skipulega að gerð jóla-
varnings frá þvl í haust.
Kvenfélagið er elsta starfandi
kirkjukvenfélag landsins og hefur frá
stofnun unnið kirkju sinni og safnað-
arstarfi af fullri orku. Hæst í starfi
félagsins nú ber umhyggju fyrir safn-
aðarheimilinu, sem er í smíðum á
Laufásvegi 13 og komið er á lokastig.
Basarinn hefst kl. 14.00. Allir eru
velkomnir.
Fríkirkjan í Reykjavík.
Birgir Svan Símonarson, Olga
Guðrún Árnadóttir og Árni
Árnáson eru meðal þeirra sem
lesa úr verkum sínum.
■ HÁRGREIÐSLUMEISTARA-
FÉLAG íslands er 60 ára í dag.
Af því tilefni verður haldin hátíðar-
sýning í Islensku óperunni á
morgun, laugardag, kl. 15-17. Saga
hárgreiðsluiðnarinnar hér á landi
verður rakin frá upphafi. Sýnd verð-
ur hártíska áranna 1931-1991, m.a
brúðargreiðslur og kjólar frá 1930
■ UPPLESTUR verður í Nor-
ræna húsinu laugardaginn 30. nóv-
ember nk. kl. 15.00. Höfundar lesa
úr nýtútkomnum bókum fyrir börn
og unglinga. Dagskráin verður tví-
skipt; kl. 15.00 verður lesið fyrir
börn en kl. 16.00 hefst lestur úr
unglingabókum. Kl. 15.00 les Guð-
rún Árnadóttir úr nýútkominni
bók sinni, Ævintýri á jóianótt.
Árni Árnason les bókina Því eru
hér svo margir kettir? Auk þess
les Árni úr nýútkomnum þýðingum
sínum á bókum Roalds Dahls, sög-
unum Refurinn frábæri og Grút-
ur og Gribba. Birgir Svan Símon-
arson les úr bók sinni Ævintýri
pennans. Kl. 16.00 les Ólafur
Haukur Símonarson úr bók sinni
Meiri gauragangur. Kristín Óm-
arsdóttir les úr bók sinni Einu
sinni sögur. Olga Guðrún Árna-
dóttir les úr _ smásögunni Lára
klára elskar Ivar. Birgir Svan
Símonarson les frumort Ljóð
handa ósýnilegu fólki. Aðgangur
er ókeypis.
til dagsins í dag. Oll vinna er unnin
af félögum í Hárgreiðslumeistara-
félagi Islands. Tónlistarumsjón
hefur Björk Guðmundsdóttir, sýn-
ingarstjóri er Helena Jónsdóttir,
Kristín Kristjánsdóttir sér um
búninga og Stefánsblóm um
blómaskreytingar.
Lionsfélagar pakka jólapappírnum.
Hafnarfjörður:
Arleg j ólapappírs-
sala um helgina
LIONSKLÚBBUR Hafnarfjarðar
verður með sína árlegu jólapapp-
'írssölu um helgina, þ.e. 30. nóv.
og 1. des. Allur ágóði rennur
óskiptur til líknarmála í Hafnar-
firði, að sögn Baldvins E. Alberts-
sonar, kynningarfulltrúa klúbbs-
ins. Þess má geta að Lionsklúbbur
Hafnarfjarðar er 35 ára á þessu
ári. Hann var stofnaður 14. apríl
1956.
Lionsklúbbur Hafnarfjarðar hefur
látið til sín tala í líknarmálum í bæn-
um, enda er það aðalmarkmið hans.
Klúbburinn hefur m.a. styrkt heimili
fyrir þroskahefta, sem er í Norður-
bænum, einnig sambýlið að Kletta-
hrauni 17. Þá hefur hann gefið bún-
að til St. Jósefsspítala og Hrafnistu,
D.A.S. að ógleymdum stuðningi við
kisudeildina á dagheimilinu Víðivöll-
um.
Baldvin sagði í samtali við Morg-
unblaðið að líknarstarf klúbbsins
væri í raun stuðningur allra bæj-
arbúa, allt þetta starf byggðist á
framlögum þeirra. „Þeir hafa tekið
okkur mjög vel öll þessi ár og við
vonumst til að svo geti orðið áfram,”
sagði Baldvin.
(Fréttatilkynning)
■ HÖRP UÚTGÁFAN hefur
sent frá sér nýja bók Banaráð
eftir Duncan Kyle. Á bókarkápu
segir m.a.: „Lögfræðingi í Perth,
Ástralíu berst í hendur erfðaskrá.
Ung stúlka í London varð sam-
kvæmt henni erfingi að búgarði
mjög afskekkt í auðnum Ástralíu.
Við fyrstu athugun virtist ekki eft-
ir miklu að sækjast á þessum
hrjóstruga og niðurnídda stað. Lög-
fræðingum og hinum unga skjól-
stæðingi hans voru brugguð bana-
ráð. Þeim var hótað limlestingum
og lífláti ef þau reyndu að nálgast
búgarðinn.” Banaráð er 207 bls.
Hersteinn Pálsson íslenskaði,
Krislján Jóhannsson gerði kápu-
teikningu. Prentun og bókband er
unnið í Prentsmiðjunni Odda hf.
Áskriftarsiminn er 83033
Matargerð
er list og undirstaðan
er úrvals hráefni
mis
SMJÚRLiKISGERÐ