Morgunblaðið - 21.12.1991, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991
Sameining spítala:
Stjórn Borg--
arspítala
bíður átekta
Á FUNDI sem haldinn var í
stjórn Borgarspítala í gærdag
var farið yfir stöðu mála og
skýrsla heilbrigðisráðherra um
sameiningu Borgarspítala og
Landakots kynnt. Jóhannes M.
Gunnarsson, yfirlæknir spítai-
ans, sagði eftir fundinn að þeir
myndu bíða átekta í sameining-
armálum og fyigjast með fram-
vindu þeirra hjá Landakoti. Eng-
ar ákvarðanir eða yfirlýsingar
voru gerðar á fundinum.
„Við sjáum ekki ástæðu til að
rasa um ráð fram í þessu máli og
viljum sjá hvernig mál þróast hjá
Landakoti," sagði Jóhannes. „Ann-
ars var aðaimál fundarins að kynna
stjóm spítalans skýrslu heilbrigðis-
ráðherra en stjórnin sér ekki
ástæðu til að gera athugasemdir
við nein atriði í henni.“
Skýrsla sú sem Jóhannes vitnar
til var unnin af nefnd undir for-
sæti Páls Sigurðssonar fyrir heil-
brigðisráðherra um sameiningu
Borgarspítalans og Landakots og
útdráttur úr henni hefur birst í
fjölmiðlum. Jóhannes sagði að
stjóm spítalans hefði hins vegar
ekki gefist tækifæri til að fjalla um
skýrslu þessa fyrr en nú.
Castro kom um borð í Gaiu og sagði af sér sjóferðasögu
Fidel Castro, forseti Kúbu, kom til að taka á móti víkingaskipinu Gaiu
þegar það kom til Kúbu á dögunum og við það tækifæri var myndin
að ofan tekin. Castro er fimmti frá hægri en honum á hægri hönd eru
íslendingarnir í leiðangrinum, Gunnar M. Eggertsson og Ríkharður
Pétursson. Castro á vinstri hönd er svo Ragnar Thorseth, leiðangurs-
stjóri. Gaia er nú í höfn í Kingston á Jamaíka en fer þaðan á annan
dag jóla áleiðis til Costa Rica, þangað sem komið verður á þrettándanum.
í næsta áfanga liggur leið skipsins til Rio de Janero. í skeyti sem
Morgunblaðinu hefur borist frá Ríkharði og Gunnari segir að við kom-
una til Havana hafi floti hraðbáta tekið á móti leiðangrinum og á hafnar-
bakkanum hafí Castro verið fremstur í flokki þúsunda manna sem fagn-
að hafi sæförunum. Hann hafí stigið um borð og heilsað upp á mann-
skapinn en síðan hafí tekið við 2 klukkustunda dagskrá með skemmtiat-
riðum og ræðuhöldum undir blaktandi íslenskum og norskum fánum.
„Stórkostlegar móttökur og aðbúnaður allur eins og best verður á kos-
ið,“ segir í skeytinu. Castro hafi sýnt skipinu mikinn áhuga og meðal
annars mætt í boð sem sænska sendiráðið hélt leiðangrinum, en mörg
ár eru liðin síðan hann þekktist slíkt boð síðast. Við það tækifæri hafi
hann leikið á als oddi, og sagt sjóferðasögu af sjálfum sér, frá siglingu
sinni milli Mexíkó og Kúbu fyrir byltinguna. Dagana á Kúbu var skipið
opið almenningi og var stanslaus straumur gesta allan tímann. Banda-
ríski rithöfundurinn Kurt Vonnegut gat ekki slegist í för með skipinu
eins og staðið hafði til en í hans stað fór kúbanski rithöfundurinn Ant-
onio með til Jamaíka.
Sjómenn mótmæla samkomulagi um afsláttinn:
Skálafell og Bláfjöll:
Mjög lítið
vantar á að
lyftur opni
MJÖG lítið vantar nú á að hægt
verði að opna skíðalyftur í
Skálafelli og Bláfjöllum.
Mælt er með að skíðafólk fylg-
ist vel með um helgina því ef snjó-
ar dálítið í fjöll og veður verður
gott eru horfur á því að hægt
verði að opna einhverjar lyftur.
Símanúmeri símsvara skíða-
svæðanna hefur verið breytt úr
80111 í 801111, þ.e. tölunni 1
verið bætt við gamla númerið.
Hörð mótmæli víða um land
Minni skerðing en lagt var upp með, segir Guðmundur Hallvarðsson
nAntrnmfTifmTiT • f _ »•* ■ i i n n ■ «■ ■ k n/n ■ » . . . .
FORYSTUMENN sjómanna víða um land hafa mótmælt harðlega
því samkomulagi sem náðst hefur á Alþingi um sjómannaafslátt-
inn. Hólmgeir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjómannasambands ís-
lands, segir að forystumenn sjómanna víða um land hafi haft sam-
band við skrifstofu sambandsins til að lýsa yfir óánægju sinni
með samkomulagið og að hljóðið í þeim hafi verið svona upp og
ofan. Boðaður hefur verið fundur í framkvæmdasljórn Sjómanna-
sambandsins í dag til að ræða þetta mál.
Vélstjórafélag íslands boðaði til
almenns félagsfundar um málið í
gærdag og þar var samþykkt sam-
hljóða ályktun þar sem framkomn-
um hugmyndum ríkisstjómarinnar
um sjómannaafsláttinn er mót-
mælt harðlega. í ályktun þessari
segir m.a.: „Verði hugmyndirnar
að veruleika er verið að skerða
sjómannaafsláttinn um a.m.k.
10-11,5%, ekki bara til þeirra sem
hafa sjómennsku að hlutastarfi
heldur einnig til hinna sem hafa
hana að aðalstarfi ...“
Helgi Laxdal, formaður Vél-
stjórafélagsins, segir að þeim þyki
sem fulltrúar þeirra á Alþingi hafi
brugðist í þessu máli og komið
aftan að sjómönnum með því sam-
komulagi sem gert var. „Hvað
aðgerðir gegn þessu varðar má
nefna að kjarasamningar okkar
eru nú lausir og það er Ijóst að
við munum reyna að sækja þessa
kjaraskerðingu í komandi samn-
ingum," segir Helgi. „En með að-
gerðir eins og siglingar í land eða
annað í þeim dúr verður beðið þar
til eftir hátíðirnar."
Elías Björnsson, formaður Sjó-
mannafélagsins Jötuns í Vest-
mannaeyjum, segir að menn þar
muni ekki taka fyrirhugaðri skerð-
ingu á sjómannaafslætti þegjandi.
„Okkur finnst þetta samkomulag
vera nokkuð snúið dæmi en það
verður aldrei samþykkt að okkar
menn taki á sig skerðingu sökum
SVEITARFÉLÖG sem ekki hafa reiknað með áformuðum sparnað-
arráðstöfunum ríkisins við ákvörðun um hlutfall útsvara geta ekki
að óbreyttu hækkað útsvar þó lagðar verði á þau auknar byrðar en
verða að skera niður annars staðar eða taka lán, að sögn Snorra Ól-
sen, deildarstjóra í fjármálaráðuneytinu. Samkvæmt lögum um tekju-
stofna sveitarfélaga eiga sveitarsljórnir að tilkynna útsvör til fjármála-
ráðuneytisins eigi síðar en 15. desember en ekki hefur verið amast
við því að tilkynningar berist seinna.
Snorri var spurður að því hvort útsvars gætu hækkað útsvarshlut-
þau sveitarfélög sem ekki hefðu fallið sagði hann að það væri ekki
reiknað með fyrirhuguðum áformum hægt að óbreyttu. Aftur á móti benti
ríkisins um spamað við útreikning hann á að hægt væri að hækka út-
þess að fólk hefur verið skráð á
skipsrúm en ekki unnið þar,“ seg-
ir Elías.
Aðspurður um hvort Eyjasjó-
menn hyggðust grípa til aðgerða
svarar Elías að samningar séu
lausir og verkfallsheimild fyrir
hendi.
Guðmundur Hallvarðsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokks og for-
maður Sjómannafélags Reykjavík-
ur, segir það eðlilegt að sjómenn
bregðist við hvers konar kjara-
skerðingu. „Tillaga fjármálaráð-
herra sem haft hefði í för með sér
skerðingu á sjómannaafslætti um
rúmar 500 milljónir var óraunhæf-
Ég og Guðjón A. Kristjánsson
höfum staðið hér í viðræðum við
fjármálaráðherra og auðvitað er
því ekki að neita að við vildum
ná þessu fram með öðrum hætti
en endanlega varð úr. Það er hins
vegar okkar mat að þegar upp var
staðið hafi skerðingin orðið all-
verulega minni heldur en fjármála-
ráðuneytið lagði upp með,“ sagði
Guðmundur.
Sveitarstjórnir geta ekki
hækkað útsvör að óbreyttu
Tilkynningn um útsvar ber að skila í síðasta lagi 15. desember
svar við álagningu 1993 eða taka
sérstaklega á málinu með því að
afturkalla auglýsingar sem búið
væri að birta og setja inn í lög eða
reglugerðir frá félagsmálaráðuneyt-
inu að frestur yrði lengdur og sveit-
arstjórnum gefinn einhver tími til
að endurskoða útsvarið. Snorri sagði
að það væri þó erfiðleikum bundið
því hlutfall útsvars þyrfti að vera
komið á hreint þegar greidd væru
fyrirframlaun um áramót.
Mjólkurfræðingar
boða aftur verkfall
Mjólkurfræðingafélag íslands hefur boðað tímabundið verkfall frá
og með miðnætti föstudaginn 27. desember til miðnættis 2. jan-
úar, en upp úr viðræðum aðila slitnaði á fundi í fyrrinótt hjá ríkis-
sáttasemjara. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins miðaði í
samkomulagsátt á fundinum en ennþá eru atriði sem staúda í
vegi fyrir samkomulagi.
laga um sjö daga fyrirvara á boð-
un verkfalls ekki verið fullnægt.
Mjólkurfræðingar tóku þann kost
að láta ekki reyna á málið fyrir
Félagsdómi heldur boða verkfall á
nýjan leik.
Lára Júlíusdóttir, framkvæmda-
stjóri ASÍ, sagðist telja að nóg
væri að tilkynning um verkfall
bærist aðilum á venjulegum skrif-
stofutíma. Verkfallsboðendur
þyrftu að sjá til þess að boðun
bærist á réttan stað, en þyrftu
ekki að tryggja að hún bærist til
vitundar viðkomandi, þó ríkar
kröfur yrði að gera til þeirra sem
boðuðu verkfall. Hún ráðlegði að
ef menn boðuðu verkfall með sím-
bréfí óskuðu þeir eftir staðfestingu
á að það hefði borist.
Mjólkurfræðingar höfðu boðað
verkfall frá 26. desember og til-
kynnt um það með símbréfí til
ríkissáttasemjara, sem barst þang-
að eftir klukkan 16 þegar skrif-
stofan hafði lokað. Vinnuveitendur
telja að til þess að verkfall sé lög-
lega boðað þurfi aðilar málsins að
hafa vitneskju um að það hafi
verið boðað og því hafi skilyrði
H Si li H lít Jt i A. A O. A JL It $
Lesbók fylgir ekki Morgun-
blaðinu í dag. Jólalesbókin hef-
ur verið borin út til kaupenda
|
i