Morgunblaðið - 21.12.1991, Blaðsíða 66
66
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991
Friðarganga 23. des.
VÖNDUÐJÓLAGJÖF
Vinsœlu frotteslopparnir komnir aftur á
einstöku verði kr.6.900,-
Einnig satínnáttkjólar og sloppar,
náttföt og náttserkir.
Gjafakortin okkar eru góö,
hentug og vinsœl gjöf
Sendum í póstkröfu.
5% staðgreiðsluafsláttur.
'ém
tískuverslun, Kringlunni, sími 33300.
Samstarfshópur friðarsam-
taka hefur óskað eftir birtingu á
eftirfarandi ávarpi:
Margar eru dásemdirnar, en eng-
in manninum meiri. Þegar sjóinn
skefur í æðandi sunnanroki og fjall-
háar öldur hrynja á bæði borð, læt-
ur hann gamminn geisa.
Hvorki svifléttir fuglar himins
né nokkur skepna á láði eða legi
fær umflúið tálsnörur hins hug-
vitssama manns. Brattgengir hirtir
og óargadýr lúta vélbrögðum hans.
Hinn faxprúða fák og villinaut, sem
reikaði fijálst um fjöliin, hreppir
hann undir okið.
Mál og flughraða hugans hefur
hann tamið sér. Borgir hefur hann
reist og skipað þar öllu að réttum
lögum. Honum hefur ekki orðið
skotaskuld úr að skapa sér skjól
fyrir nístandi skeytum hretviðr-
anna. Hann hefur jafnvel hugsað
upp ráð til að reisa rönd við háska-
legum sjúkdómum. Hann á ráð
undir rifi hveiju og aldrei brestur
hann hugvitið. Dauðinn einn hefur
ekki enn lotið valdi hans.
I þessum óði gríska leikskáldsins
Sófóklesar er maðurinn lofaður fyr-
ir dug og snilld. Þessi orð voru
hugsuð fyrir meira en tvö þúsund
árum og allar framfarimar í heimin-
um sýna að þau eru sönn. Maðurinn
hefur aukist af visku og dáð, kom-
ist til tunglsins og kannað iður haf-
djúpanna. Heilsufar manna og
menntun hefur tekið stórstígum
framförum og forðabúrin eru að
springa undan matarbirgðum.
En skuggahliðarnar eru líka
margar því afrakstri mannlegra
vitsmuna og getu er sárlega mis-
skipt. Milljónir manna eiga í dag-
legu stríði við hungurvofuna, eru
þjakaðir af margs konar sjúkdóm-
um og fáfræði stendur mörgum
fyrir þroska. Herir eru efldir og
hinir færustu vísindamenn vinna
dag með nótt að því að finna upp
afkastameiri drápsvélar. Og stríð
eru háð á nánast öllum stigum.
Fréttir berast af þjóðemisátökum,
þar sem hnúum og hnefum er beitt,
flokkar skæruliða beijast með
frumstæðum vopnum gegn her-
sveitum einræðisherra víða um
heim, og í vetur sem leið urðum
við vitni að því að voldugustu her-
veldi heims beittu hátæknivopnum
sínum af mikilli kunnáttu suður í
írak.
Fyrr á öldum var mannfall í bar-
dögum yfirleitt talið í hundruðum
eða þúsundum þegar mest var en
nú á dögum þykir ekki tiltökumál
þótt 100.000 manns falli í orrustum.
Eru þá ótaldir þeir óbreyttu borgar-
ar sem líða skort og neyð af völdum
hernaðar. Það er skelfilegt tilhugs-
unar að maðurinn skuli nota
hyggjuvit sitt og verklagni á þennan
hátt. Margoft hefur verið bent á
að fyrir aðeins brot af því sem var-
ið er til vopnaframleiðslu sé hægt
að brauðfæða öll þau börn sem ár-
lega verða hungurmorða.
Þótt víða séu róstur um þessar
mundir eru framtíðarhorfurnar í
sjálfu sér ekki slæmar. í Austur-
Evrópu eru þjóðir að vinna sér sjálf-
stæði og hljóta allir frelsiselskandi
menn að fagna því. Þó verður vitan-
lega að gæta þess að þeim sé ekk-
ert gert til miska sem í minnihluta
eru í hinum nýju sjálfstæðu ríkjum.
Það hlýtur að vera eðlilegast skipu-
lagið að sérhver þjóð, sem hefur
sérstakt tungumál, menning og
sögu, fái að ráða sínum málum sjálf
og þurfi ekki að líða erlendan her
í landi sínu eða búa við yfirdrottnun
annarra. En sagan hefur sýnt að
þjóðernisdeilur verða síst leystar
með vopnavaldi.
Sófókles endaði óð sinn á þessum
varnaðarorðum:
„Vit mannsins og hugkvæmni
eru meiri en svo, að unnt sé að
gera sér í hugarlund. En samt get-
ur brugðið til beggja vona, hvort
það leiðir hann til góðs eða ills.
Vegur þess manns er mikill, sem
virðir lög landsins og tignar guði
fóstuijarðarinnar. En hinn, sem
hrokafullur gengur veg syndarinn-
ar, hann slítur sig úr tengslum við
föðurlandið. Slíkan mann vildi ég
síst leiða að mínum arni eða bland^
geði við hann.“
Sorglegust dæmi um heimsku
mannsins og hroka sjáum við í hern-
arðarhyggjunni. Nú er svo komið
að annað risaveldið, Sovétríkin, er
að leysast upp í sjálfstæð ríki. Sú
þróun gerir marklausar allar þær
forsendur sem notaðar hafa verið
til að réttlæta kjarnorkuvígbúnað-
inn, sem hefur ógnað heiminum í
nær fimm áratugi. Almenningur um
allan heim krefst þess að kjarnorku-
vopn verði eyðilögð.
Nú eru að skapast skilyrði til að
leggja niður herstöðvar stórveld-
anna vítt og breitt um heiminn, þar
á meðal þær sem eru hér á ís-
landi, því þær eru ekkert annað en
minnismerki um gagnsleysi sitt.
Islendingar telja sig friðelskandi
þjóð og þeim ber að vinna að af-
vopnun eftir því sem þeim er unnt.
Ein mesta ógnunin við byggð á ís-
landi er ferðir kjarnorkukafbáta um
höfin umhverfis landið og í kom-
andi afvopnunarviðræðum megum
við ekki gleyma þeirri hættu. Með
baráttu gegn kjarnorkuvopnum á
norðurslóðum og stuðningi við al-
menna afvopnun geta íslendingar
lagt sinn skerf að mörkum fyrir
friðvænlegri heimi á næstu öld.
Þingeyri:
Safnað fyrir hjarta-
og lungnavél
Þingeyri.
í SUMAR átti sér stað mjög al-
varlegt umferðarslys í Dýrafirði.
Ung stúlka fékk áverki á bijóst-
hol og fjarlægja þurfti annað
lungað, en hitt var skaddað. Að
öllu öðru leyti var stúlkan alheil.
Tímabundin bólguviðbrögð í
skaddaða Iunganu virtust ætla
að binda endi á frekari baráttu,
en ákveðið var í skyndi að fá
lánaða hjarta- og lungnavél að
ffllleg, óvenjoleg
og ódyr jólogjöí
Ársmappa Pósts og síma með frímerkjum
ársins 1991 er falleg, ódýr
og óvenjuleg jólagjöf. Hún er vel til þess fallin
að vekja áhuga á frímerkjasöfnun
hjá ungu kynslóðinni.
Stingdu ársmöppunni í jólapakkann.
Hún kostar aðeins 1300 kr.
og fæst á póst- og símstöðvum um allt land.
utan og varð sú vél lykillinn að
því kraftaverki sem nú er orðið.
Gunnhildur Þorbjörg Sigþórs-
dóttir heitir stúlkan og er aðeins
16 ára. Nú er hún komin heim á
Þingeyri til að eiga þar jól með vin-
um og vandamönnum.
Vegna þessa hefur íþróttafélagið
Höfrungur á Þingeyri farið af stað
með söfnun meðal Vestfirðinga til
kaupa á hjarta- og lungnavél á
móti Landsambandi Hjartasjúkl-
inga, enda nýtist þessi vél einnig
fyrir allar hjartaaðgerðir. Með þess-
ari söfnun vilja Þingeyringar sýna
þakklætisvott og styðja gjörgæslu
Landspítalans. Fyrirtækjum og fé-
lögum á öllum Vestijörðum hefur
verið send beiðni um styrk.
Sigmundur F. Þórðarson formað-
ur Höfrungs segir söfnunina hafa
gengið hægt framan af. Hann seg-
ir þó eðlilega skýringu verða á því,
þar sem á ísafjarðarsvæðinu hafa
verið ýmsar safnanir, svo sem
vegna nýs sjúkrabíls þangað. Eftir
viðtal við Gunnhildi i útvarpinu 16.
desember tók söfnunin kipp og von-
ast menn til að takmarkinu verði
náð á næstunni og tækið verði af-
hent í byijun janúar. Sigmundur
vildi nota tækifærið og þakka öllum
þeim sem styrkt hafa þetta málefni.
Þeir sem vilja ljá þessari söfnun
liðsinni sitt geta lagt inn á tromp-
bók nr. 400712 í Sparisjóði Þing-
eyrahrepps.
- Gunnar Eiríkur.
PÓSTUR OG SIMI
Viö sptírum þér sporin
Pósthólf 8445, 128 Reykjavlk
X-Jöfóar til
JLXfólksí öllum
tarfsgreinum!
i
<
(
<
(