Morgunblaðið - 21.12.1991, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991
65
SPÁDÓMARNIR
RÆTAST
eftir Guðmund Örn
Ragnarsson
ísafold hefur gefið út bókina
Spádómarnir rætast eftir Gunn-
ar Þorsteinsson.
Eins og nafn bókarinnar gefur
til kynna þá fjallar hún um spá-
dóma sem rætast. Hér er átt við
spádóma Heilagrar ritningar. Efn-
inu er kornið til skila á skýran,
einfaldan, hátt, sem allir geta skil-
ið, enda þótt um sé að ræða úr-
lausnir á mjög flóknum þrautum.
Höfundinum tekst að byggja upp
spennandi söguþráð, sem knýr le-
sandann til að halda áfram allt til
enda, en þar hittir hann fyrir nýtt
upphaf.
I fyrstu köflum bókarinnar
skoðar Gunnar pólitísk og efna-
hagsleg málefni, sem efst eru á
baugi í heiminum í dag. Hann
gerir úttekt á Evrópubandalaginu,
nýrri heimsskipan í kjölfar falls
kommúnismans, þýðingu olíunnar
fyrir hagkerfí Vesturlanda, gyð-
ingum sem þjóð og Ísraelsríki.
Allt í ljósi spádóma Biblíunnar.
Síðan varpar hann fram áleitnum
spurningum um hinstu rök tilver-
unnar (í bókstaflegri merkingu)
og gefur í skyn að svörin finnist
í næstu köflum á eftir. Þar lítur
hann á ýimsa spádómstexta ritn-
ingarinnar og þeytist þá með le-
sandann fram og aftur, frá nútíð
til fortíðar og frá fortíð til framtíð-
ar.
Gunnar kemst að þeirri öruggu
niðurstöðu, að endurkoma Jesús
Krists, með mætti og mikilli dýrð,
Gunnar Þorsteinsson
sé á næsta leiti. Undanfari komu
hans verði þrengingatími á jörð-
inni í þijú og hálft ár, þar sem
Antí-Kristur fari með öll völd í
heiminum. En hver sá sem lifir
sigrandi lífi í trú á Jesú þarf ekk-
ert að óttast. Það er fagnaðarer-
indið, gleðitíðindin. Jesús hvetur
okkur til að vaka, vera viðbúin og
spá í tákn tímanna. „Þegar þér
sjáið allt þetta, skuluð þér vita að
hann (mannsonurinn) er í nánd,
fyrir dyrum.“ (Matt. 24:33). Gunn-
ar Þorsteinsson sér allt þetta og
á sér ekki heitari ósk en þá að
allir menn sjái allt þetta með hon-
um og frelsist.
Höfundur er prestur.
Allt þetta...
tt
SfíNMfíRCO
- skíði
- skíðaskór
mm - skíðaáburður
SW1NS
ALLSPORT
5ER4C
- skíðagleraugu
- púðapeysur og -b
- skíðagallar
- rúllukragabolir
húfur
- skíðaf atnaður
Dreifing: ALSPORT
HE^LDVERSLUN
SIMI: 68 80 75
FAX: 67 81 28
KRINGLU
BORGARKRINGLUNNI
SIMI: 67 99 55