Morgunblaðið - 21.12.1991, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21! DESEMBER .1991
17
Ég hygg, að mat á bókmennta-
legum verðleikum sé aðeins sann-
gjarnt um fyrsta hlutann. Um hina
þijá hluta bókarinnar verði að
hugsa örðu vísi. En hvernig fram-
lag hafa þessar ritgerðir venið til
að móta aldarfarið og orðræjðuna
þjóðlegu? Það er af ýmsu að 'taka
í því efni. Kannski er eitt stef, sem
sker sig úr og gengur gegn um
alla þessa bók. Það er andúðin á
kommúnismanum. Annað atriði,
sem skiptir einnig máli er efasemd-
ir og andúð Hilmars á órímuðum
ljóðum eða atómljóðum. Nú gengur
hann nokkuð hart fram í andúð
sinni á kommúnismanum og dreg-
ur hvergi af sér á stundum. Það
þarf í sjálfu sér engan að undra,
að málflutningur Hilmars hefur
farið fyrir brjóstið á mörgum
manninum.
En ég held, að svipað megi segja
. um kommúnismann og syndina:
það er sjálfsagt að hata kommúnis-
mann en elska kommúnistana rétt
eins og mönnum ber að hata synd-
ina en elska syndarann. Það hafa
að minnsta kosti orðið örlög okkar
sumra að leggja litla fæð á.komm-
únista, þótt við höfum ekki dregið
af okkur í andúðinni á kommún-
ismanum. Ég ætla ekki að lasta
það, að Hilmar gangi stundum
nokkuð fast fram í fordæmingu
sinni á kommúnistum og kommún-
isma. En það er eftirtektarvert,
að skoðanir hans í þessum efnum
hafa reynzt betur en sjónarmið
andstæðinga hans.
Það er hins vegar ástæða til að
gæta sín, þegar þjóðfélagið allt
nálgast að verða eitt samsæri. Það
er til dæmis eitthvað bogið við
málflutninginn, þegar svo er kom-
ið, að Jóhann Hjálmarsson er orð-
inn einn af höfuðpaurum rauðu
mafíunnar. Enda má skilja það á
Hilmari, að hann sjálfur sé í hópi
óháðra rithöfunda, sem þurfi að
slást við allt og alla, eftir að hægri
menn eru gengnir í bland við tröll-
in. Þá er það að vera á öndverðum
meiði við Hilmar orðið kommún-
ismi og orðið hefur alveg glatað
merkingu sinni. Þá eiga við orðin,
sem Hilmar hefur eftir Matthíasi
Johannessen á bls. 108: „Hann
(Hilmar) blandar saman veruleik
og draumi og hann lifír í draumn-
um sínum sem hann vildi að væri
veruleiki.“
Þessar ritgerðir bera þess merki
að vera samdar flestar í kalda
stríðinu. Þær draga nokkurn dám
af tíðarandanum. Framtíðin á síð-
an eftir að skera úr um, hvort þær
lifa eitthvað lengur.
; (Goethe).
Ýmsar róttækir núlistamenn eru
þó merkilegt sé orðnir eins konar
fortíðarfíklar, sem leita langt aftur
í forneskjuna eftir myndefni. Við
því er víst harla lítið að segja, því
að þeir hafa trúlega einkaleyfi á
í að vera nútímalegir, hvað sem
þeim dettur í hug og hvað sem
þeir nú taka sér fyrir hendur, en
það eru svo bara hinir sem eru
gamaldags.
Eitthvað er myndainnísetningin
hrá hjá Guðlaugi Bjarnasyni, en
ætli það sé ekki einungis úthugsað-
ur liður í framkvæmdinni?
Blysför frið-
arsamtaka
BLYSFÖR verður farið á vegum
Samstarfshóps friðarsamtaka nið-
ur Laugaveg klukkan 18 á Þor-
láksmessu. Göngunni lýkur í
Lækjargötu framan við Lælgar-
brekku.
Friðarganga sem þessi hefur verið
farin um árabil á Þorláksmessu.
Samstarfshópur friðarsamtaka sam-
anstendur af eftirtöldum: Friðarhópi
Fóstra, Friðarhópi listamanna, Frið-
arhreyfingu íslenzkra kvenna, Frið-
ar- og mannréttindahópi BSRB, Frið-
arömmum, Menningar- og friðar-
samtökum íslenzkra kvenna, Sam-
tökum herstöðvarandstæðinga, Sam-
tökum íslenzkra eðlisfræðinga gegn
kjarnorkuvá, Samtökum lækna gegn
kjarnorkuvá og Samtökum um kjarn-
orkuvopnalaust ísland.
REDSTONE
s j ónvarpsleikt æki
Nintendo samhæfí. Stýripinnar og tengingar við sjónvarp fylgja.Steríó útgangur. A/V útgangur.
Sýnishom úr leikjaskrá:
TURTliS II_____kr. 2.900 T0P6UN.......... kr. 2.900
SIMPS0NS...... kr. 2.900
ÁRMÚLA 11
^ 31-681500
SOCCER________kr. 1.950
Konami Olympics kr. 2.900
Vandabar bækur fyrir börn
mrnfM og unglinga ^
DAGBOK
Hvers vegna ég ?
eftir Kolbrúnu Aðalsteinsdóttur
Þetta er þriðja og lokabindið um hana Kötu.
Hún lilýtur mikinn frama í tískuheiminum og
hittir æskuástina, hann Nick. En veður eru
ekki lengi að skipast í lofti. Hér er rómantík
og ást, spenna og hraði í ríkum mæli eins og í
fyrri bókunum um Kötu. ^
Verðkr. 1.890.- ■BffiPftfflSíSSSS
Mjoni rauoreíur
Ævintýri refsins ráðsiijalla
Stephen Wylllc og Korky l’aul
Hjörtnr Pálsson jjtydfli
TJULLI á fullri ferð
Ný Tjúllabók eftir Inga Hans Jónsson
Haraldur Sigurðarsson myndskreytti
„Þeir Ingi Hans og Haraldur eiga hrós skilið fyrir
þessa skemmtilegu bók. Þeir hafa greinilega lagt
metnað sinn í að gera hana sem best úr gatði.
Vonandi halda þeir áfram að segja frá ævintýrum
Tjúlla." Eðvarð Ingólfsson M.b.I. 3. 12. 1991.
Verð kr. 1.190.-
Ævintýri Mjóna Rauðnefs
Verð kr. 950.-
ISvcn Nordqvist
Jólagestir hjá
Pétri a
Kötturinn sem tvndi ntalinu sínu
Verðkr.950.-
HARÐSPJALDABÆKUR
lOungirökuþórarog lOendurá ferðog flugi
Verð kr. 750.-
ossnejj
Jólagestir hjá Pétri
Verð kr. 950.-
'sawEmA itosn
ORN OG ORLYGUR
Síðumúli 11, 108 Reykjavík 684866
Suo C«»sln og Oavtd Smíih
MytHJá *Olr Mík* Gordo<\,
Hrói Höttur
Verð kr. 790.
Skrytnu og skemmtilegu bækurnar
Verðkr. 750.-
ílTmWÍ QTTil
IIM!