Morgunblaðið - 21.12.1991, Blaðsíða 87
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991
87
KNATTSPYRNA
Happel
landsliðs-
þjálfari
Austurríkis
Ernst Happel, hinn gamal-
kunni knattspyrnuþjálfari,
var í gær ráðinn jandsliðsþjálf-
ari Austurríkis og skrifaði hann
undir tveggja ára samning.
Happel, sem er 65 ára, mun
stjórna liði Austurríkismanna í
heimsmeistarakeppninni.
Happel er einn litríkasti þjálf-
ari heims, hefur þjálfað
Swarowski Týról undanfarin ár.
Aður var hann þjálfari hjá Ham-
burger SV, Standard Liege,
Feyenoord og FC Briigge. Þá
þjálfari hann landslið Hollands,
sem fékk silfurverðlaun í HM í
Argentínu 1978.
Íp/émR
FOLK
■ MICHAEL Jordan var út-
nefndur íþróttamaður ársins hjá
bandaríska íþróttablaðinu Sports
Illustrated. Jordan var maðurinn á
bak við fyrsta meist-
Frá Gunnari aratitil Chicago
Valgeirssym í Bulls á síðasta
Bandaríkjunum keppnistímabili, var
stigahæstur í deild-
inni fimmta árið í röð, valinn besti
leikmaður deildarinnar og einnig sá
besti í úrslitakeppninni.
■ CHICAGO hefur unnið 17 af
síðustu 19 leikjum sínum í NBA-
deildinni í körfuknattleik. Liðið er
með lang besta vinningshlutfallið.
■ BILL Cartwright, miðherji
Chicago, er meiddur og hefur ekki
leikið upp á síðastið, en það virðist
ekki há liðinu neitt.
I LARRY Bird meiddist á ný á
dögunum, bakmeiðslin tóku sig upp
og hann var ekki með gegn New
York Knicks um helgina. Og New
York vann 11:101, þetta var fyrsti
sigur liðsins á Boston í 11 leikjum.
Annars er það af Bird að segja að
hann var skorinn upp vegna bak-
meiðslanna í sumar, og hefur leikið
mjög vel í vetur.
H LA Lakers er með besta árang-
urinn í vesturdeild NBA. Hefur sigr-
að í 16 leikjum en tapað 7. Mike
Dunleavy þjálfara er fyrst og
fremst þakkaður árangurinn, en
þetta er annað árið hans með liðið.
Hann þykir hafa unnið frábært af-
rek, að halda liðinu svo góðu eftir
að „Magic" Johnson hætti að leika.
B LAKERS hefur boðið Sherman
Douglas samning. Hann var á
mála hjá Miami, en hefur neitað
að spila með liðinu í vetur. Samn-
mgur hans var laus og leikmaðurinn
vildi ekki endurnýja hann.
B DOUGLAS er bakvörður og
ætlað að taka stöðu „Magic“ Jo-
hnsons. Lakers hefur boðið honum
17 milljónir dollara fyrir_ 7 ára
samning — tæpan milljarð ÍSK. Ef
Miami jafnar ekki boðið telst boð
Lakers bindandi og leikmaðurinn
fer þangað.
■ VINNIE Johnson, sem leikið
hefur með Detroit, „Örbylgjuofn-
inn“ svokallaði, er farinn til San
Antonio Spurs. Gerði tveggja ára
samning og er byijaður að spila
með nýja liðinu. Samningur hans
var laus og Detroit vildi ekki end-
urnýja hann.
■ RICKY Pierce hjá New York
Knicks hafði skorað úr 71 víta-
skoti í röð, en mistókst í því 72. í
Boston á föstudagskvöldið. Metið á
Calvin Murphy, sem lék m.a. með
Houston á sínum tíma. Hann skor-
aði úr 75 vítum í röð á sínum tíma.
HANDKNATTLEIKUR
IÞROTTIR FATLAÐRA
Bergsveinn Bergsveinsson,
landsliðsmarkvörður úr FH.
HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR SAMTALS
Leikir U i T Mörk U ) T Mörk Mörk Stig
FH 13 5 1 0 167:125 5 1 1 195:168 362:293 22
VÍKINGUR 12 5 1 0 153:134 5 0 1 161:137 314:271 21
FRAM 13 3 1 2 131:142 3 2 2 172:169 303:311 15
SELFOSS 11 3 1 1 139:125 3 0 3 161:149 300:274 13
STJARNAN 13 5 1 2 204:179 1 0 4 121:125 325:304 13
l'BV 12 3 1 2 163:159 2 1 3 153:144 316:303 12
KA 12 5 0 2 178:165 0 2 3 110:121 288:286 12
HAUKAR 13 3 2 2 179:175 1 1 4 128:146 307:321 11
VALUR 10 2 O 2 97:102 1 4 1 155:145 252:247 10
HK 13 2 1 3 139:139 1 1 5 161:178 300:317 8
GRÓTTA 13 2 2 3 142:163 0 1 5 122:160 264:323 7
UBK 13 0 2 4 119:152 1 0 6 121:169 240:321 4
Guðmundur
skorar mest
Bergsveinn ver flest skotin
GUÐMUNDUR Albertsson,
sem skoraði 15 mörk íleik
gegn HK á dögunum, er orðinn
markahæsti leikmaður 1. deild-
arkeppninnar. Guðmundur hef-
ur alls skorað 92 mörk og þar
af 51 úr vítaköstum. Aðeins
einn annar leikmaður hefur
skorað 15 mörk í leik - Víking-
urinn Alexander T rúfan í leik
gegn Eyjamönnum.
Hans Guðmundsson úr FH kem-
ur næstur á blaði yfir marka-
hæstu leikmenn, með 88 mörk og
síðan koma Tékkarnir Michael Ton-
ar hjá HK, með 82 mörk og Petr
Baumruk, Haukum, með 79 mörk.
Þrír Selfyssingar eru ofarlea á
blaði - landsleiðsmennirnir Sigurð-
ur Sveinsson, Einar G. Sigurðsson
og Gústaf Bjarnason. Sigurður hef-
ur skorað 73 mörk, Einar G. 68 og
Gústaf 66. Framararnir ungu Karl
Karlsson og Gunnar Andrésson eru
einnig í hópi efstu manna. Karl
hefur skorað 73 mörk og Gunnar
71 mark.
Guðmundur Albertsson er kominn
hæstu menn.
efstur á blað á listanum yfir marka-
faémR
FOLK
■ EYJÓLFUR Sverrisson fær
Ekkert varð af leik Þórs og Hauka
í Japisdeildinni * í gærkvöldi.
Haukar mættu of seint, dómararnir
Hflautuðu leikinn á og
Reynir af kl. 21.15 (átti að
Eiríksson byija kl. 20.30) og
skrifar Þór vann 2:0. Haukar
fráAkureyrí komu með áætlunar-
flugi frá Keflavík en hálftíma seinkun
varð á fluginu og komu fyrstu menn
í hús kl. rúmlega níu.
Ólafur Rafnsson, þjálfari Hauka,
saggði að Haukar hefðu beðið Þór um
frestun á leiknum til kl. níu, sem Þórs-
arar samþykktu, en ekki var haft sam-
band við KKÍ. Þórsarar neituðu síðan
að bíða lengur en til kl. 21.15. Ólafur
sagði að þetta væri ódrengilegt af
Þórsurum, Haukar hefðu ekkert getað
gert við þessu og myndu kæra.
Við óskabrunninn á Reykjavíkurflugvelli. Frá vinstri: Páll Guðmundsson,
formaður Lionsklúbbsins Týs; Stefán Valur Pálsson, formaður fjáröflunarnefnd-
ar klúbbsins; Anna K. Vilhjálmsdóttir, fræðslu- og útbreiðslufulltrúi íþróttasam-
bands fatlaðra og Ólafur Jensson, formaður.
KARFA_____
Þór vann
Hauka 2:0!
góða dóma hjá Daum, þjálfara
Stuttgart, þegar hann ræddi um
lið sitt í blaðaviðtali. „Ef allir leik-
HHH menn legðu sig eins
Frá vel fram í leikjum
JóniHalldórí og Eyjólfur, þyrfti
ég ekki stöðugt »0 ~
vera að ýta við
þeim,“ sagði Daum.
■ STUTTGART hefur nú auga-
stað á tékkneska landsliðsmannin-
um Hapal, sem er talinn einn bestu
sóknarleikmaður Evrópu.
■ ANDREAS Brehme hjá Inter
Mílanó, segir að hann ætli sér að
koma aftur til Þýskalands eftir
þetta keppnistímabil og ganga aftur
til liðs við Bayern Miinchen.
M REINARD Stumpf hjá Kais-
erslautern er hættur að leika
knattspyrnu að læknisráði. Hann
fékk slæmt höfuðhögg á dögunum.
■ STJÓRN Bayern Miinchen
ákvað í gær að Daninn Sören
Lerby yrði þjálfari liðsins út þettcT'
keppnistímabil. Um leið var tilkynnt
að Olaf Thon yrði ekki seldur til
Schalke.
M LERBY er nú í Mónakó, þar
sem hann verður með þijá leikmenn
í sérstökum æfingum um jólin. Það
eru þeir Aumann, markvörður,
Brian Lautrup og Grahammer,
sem hafa allir verið meiddir um
tíma.
■ GUDIO Buchwald, fyrirliði
Stuttgart, segir að Berti Vogts,
landsliðsþjálfari Þýskalands, sé
betri þjálfari en Franz Beckenbau-
er, fyrrum landsliðsþjálfari.
■ SÉRFRÆÐINGAR í Þýska-
landi segja að þýska landsliðið
undir stjórn Vogts, sé_ betra lið en
varð heimsmeistari á Italíu.
Um helgina
KEILA: Fjölmiðlamótið fer fram í
Keilusalnum í Öskjuhlíð í dag og morg-
un kl. 12. Laugardagsmót verður í
kvöld kl. 20.
KNATTSPYRNA / BÆKUR
Péle, Svarta perian
Bókaútgáfan Skjaldborg hf. hefur gefið út bókina Péle, Svarta perlan,
sem er endurútgáfa á bókinni um Péle, sem kom út á íslensku fyr-
ir rúmum áratug. Bætt hefur verið við kafla, sem greinir frá íslandsför
Péle s.l. sumar.
I fréttatilkynningu segir m.a. um bókina: „Þar segir þessi frægasti
knattspyrnumaður allra tíma frá glæsilegum ferli sínum. Péle kom til
Islands í ágúst 1991 og í tilefni af því hefur 32 blaðsíðum verið bætt
við bókina, þar sem fjallað er um íslandsför hans í máli og myndum."
Víðir Sigurðsson, íþróttafréttamaður skrifaði viðaukann, en Ásgeir Ing-
ólfsson þýddi bókina, sem er 280 blaðsíður og prentuð hjá Prentsmiðju
Árna Valdemarssonar hf.
Fatlaðir styrktir
Lionsklúbburinn Týr í Reykjavík
hefur látið gera svonefnda
óskabrunna og rennur allur ágóðinn
til styrktar íslenskum keppendum á
heimsleikum fatlaðra, sem verða í
kjölfar Ólympíuleikanna í Barcelona
í sumar. Hreyfihamlaðir keppa þá
í Barcelona en þroskaheftir í
Madríd. Óskabrunnarnir eru víða í
verslunum í Reykjavík, en þrír þeir
stærstu eru í afgreiðslu Flugleiða
á Reykjavíkurflugvelli, Miklagarði
og Kaupstað í Mjódd.
Bergsveinn hefur varið mest
Bergsveinn Bergsveinsson,
landsliðsmarkvörður úr FH, hefur
varið manna mest, eða alls 174/10
skot, en næstur á blaði kemur Sov-
étmaðurinn Alexander Revine hjá
Gróttu, sem hefur varið 168/5 skot.
Eyjamaðurinn Sigmar Þröstur
Óskarsson hefur varið 126/6 skot,
Bjarni Frostason, HK 120/9, Sig-
tryggur Albertsson, Fram 118/7
og Guðmundur Hrafnkelsson, FH
108/10.
Markahæstu menn
Guðmundur.Albertsson, Gróttu.......92/51
Hans Guðmundsson, FH...............88/29
Michael Tonar, HK..................82/17
Petr Baumruk, Haukum...............79/25
Karl Karlsson, Fram................73/ 5
Sigurður Sveinsson, Selfossi.......73/30
Gunnar Andrésson, Fram.............71/14
Halldórlngólfsson, Haukum..........71/19
Zoltan Belany, ÍBV.................71/26
Patrekur Jóhannesson, Stjömunni....69
Einar G. Sigurðsson, Selfossi......68/ 2
Magnús Sigurðsson, Stjömunni.......68/28
Birgir Sigurðsson, Vikingi.........67/17
Gústaf Bjarnason, Selfossi.........66/ 4
Valdimar Grímsson, Val.............66/11
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson, KA...66/26
Guðmundur Pálmason, UBK............65/18
Kristán Arason, FH.................65/11
Alfreð Gíslason, KA................62/ 8
Brynjar Harðarson, Val.............60/19
Gunnar Beintcinsson, FH............56
Bjarki Sigurðsson, Víkingi.........54
Stefán Kristjánsson, KA............54/ 3