Morgunblaðið - 21.12.1991, Blaðsíða 74
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991
? 74
+
Ástkær faðir minn,
KARL ÞÓRÐARSOIM,
andaðist í Vífilsstaðaspítala þriðjudaginn 17. desember.
Hafdis Karlsdóttir.
ERLINGUR G. TULINIUS
læknir,
andaðist 19. desember 1991.
Útförin fer fram 27. desember 1991.
Fyrir hönd ættingja,
Hrafn Tulinius.
+
Elskulegur eiginmaður minn,
KRISTJÁN BJARNI SVEINSSON,
Kópavogsbraut 1A,
er látinn.
Hildur Hjörleifs-
dóttir — Kveðjuorð
Fædd 10. mars 1972
Dáin 26. nóvember 1991
Mig langar til að skrifa fáein orð
um eina af mínum æskuvinkonum.
Það kom á mig eins og reiðarslag,
þegar mér barst sú tilkynning, að
hún Hildur væri dáin. Hún hafði
skyndilega, án nokkurrar viðvör-
unar, verið tekin frá bæði vinum
og vandamönnum. Af einhverri
dulinni ástæðu er hlutverki Hildar
á meðal okkar lokið, af hveiju vitum
við ekki. Ég vona þó að þessi hæfi-
leikaríka unga stúlka fái að takast
á við enn mikilvægara hlutverk
annars staðar.
Leiðir okkar Hildar lágu mjög
þétt saman í tvö ár. Við kynntumst
í Landakotsskóla og urðum mjög
nánar vinkonur fram yfir 12 ára
bekkinn, en á þessum tíma urðum
við heimagangar hvor hjá annarri.
Á þessari kveðjustund rifjast upp
fyrir mér margar ánægjulegar
minningar af Ásvallagötunni, sem
þá var heimili Hildar.
Hildur bjó alla tíð yfir einhveiju
leyndardómsfullu. Hugarheimur
hennar stóð ekki öllum opinn. Hún
var oft dul en hreinskiptin og skoð-
unum sínum kom hún umbúðalaust
á framfæri hveijar svo sem þær
voru. Við deildum ýmsum skoðun-
um og vorum ekki alltaf sammála.
Það var sama hversu mjög við
reyndum að sannfæra hvor aðra,
stundum gekk hvorki né rak. Við
vorum báðar þijóskar og vildum að
sjálfsögðu hvorug gefa eftir.
Hildur átti auðvelt með að
stjórna. Hún var röggsöm og vildi
vera í forystu. Það kom sér oft vel
að hafa einhvem í hópnum til að
Inga Þórunn Jónsdóttir.
+
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞORSTEINN KRISTJÁNSSON,
Laugarnesvegi 42,
lést í Borgarspítalanum 19. desember.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför eiginmanns
míns, föður, tengdaföður og afa,
GUÐNA Þ. GUÐMUNDSSONAR.
Sérstakar þakkir til Ólafs Gunnlaugs-
sonar læknis og starfsfólks á deild 2-A
Landakotsspítala og heimahjúkrunar.
Guð gefi ykkur öllum gleðilega jólahátíð.
Guðrún Áslaug Edvardsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Elskuleg móðir okkar,
ANNA JÓNASDÓTTIR
frá Álfsnesi,
Hörðalandi 4,
lést í Borgarspítalanum að kvöldi 19. desember.
Fyrir hönd aðstandenda,
Anna Þorláksdóttir,
Sigriður Þorláksdóttir,
Guðmunda Þorláksdóttir,
Jóna Þorláksdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
útför systur okkar,
. ARN BJARGAR TÓMASDÓTTUR KJARAN.
Sérstakar þakkir til starfsfólks sjúkradeildar Hrafnistu, Hafnar-
firði, fyrir góða umönnun.
Auðbjörg Tómasdóttir,
Bjarndís Tómasdóttir.
+
SIGURÐUR E. SIGURÐSSON,
New York,
andaðist 13. desember síðastliðinn.
Útförin hefur farið fram.
Fyrir hönd systkina,
Bergsveinn Sigurðsson.
+
Þökkum auðsýnda samúð vegna fráfalls
KETILS ÞÓRISSONAR,
Baldursheimi.
Sérstakar þakkir færum við karlakórnum Hreimi og stjórnendum
hans fyrir frábæra aðstoð.
Bræður, mágkonur og fjölskyldur.
+ Útför + Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
HELGU HALLDÓRSDÓTTUR móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
frá Dagverðará, STEINUNNAR MAGNÚSDÓTTUR
sfðasttil heimilis í Hjallabrekku 33, frá Borgarnesi.
Kópavogi,
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 23. desember kl. 15.00. Kári Sólmundarson, Elín Sólmundardóttir, Þórdis Sólmundardóttir, Marius Arthúrsson, Sigurður Sólmundarson, Auður Guðbrandsdóttir,
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn. Magnús Sólmundarson, Karen I. Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiglnmaður minn, faðir og stjúpfaðir,
GLÚMUR BJÖRNSSON,
Hátúni 4,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni 27. desember kl 13.30.
Ingibjörg Sigurðardóttir,
Stefán Björnsson.
Sigri'ður Eggertsdóttir,
Vilborg Eggertsdóttir,
Margrét Eggertsdóttir,
Hildur Eggertsdóttir,
■ ngibjörg Eggertsdóttir,
Hulda Eggertsdóttir
og Hlöðvör Eggertsson.
+
Innilegustu þakkir færum við þeim, sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við frá-
fall og útför ástkærrar eiginkonu minnar
og móður okkar, •
SOFFÍU JÓNSDÓTTUR
frá Ásum í Húnavatnssýslu.
Friðþjófur Pétursson,
Sigurður Harðarson,
Gunnhildur Friðþjófsdóttir.
stýra leiknum. Hildur var alltaf að
fá góðar hugmyndir, já, ímyndunar-
aflið var fijótt og skemmtilegt. Mér
er t.d. minnisstætt að oft steyptum
við okkur á kaf ofan í kistu með
gömlum fötum og hárkollum, sem
var til heima hjá mér á Sólvallagöt-
unni. Síðan klæddumst við hinum
ýmsum gervum. Við áttum það til
að dubba okkur upp í háhælaða
skó, setja á okkur hárkollur og
fleira fínerí. Þannig trítluðum við
niður á Ásvallagötu, keyptum okkur
saltlakkrís í Brekku og hlógum að
augngotunum frá því fólki, sem
varð á vegi okkar. Það var hreint
ótrúlegt hvað Hildur gat fengið mig
til að gera. Hún var svo ófeimin
og laus við alla spéhræðslu.
Góðar stundir vara þó ekki að
eilífu. Vegir okkar lágu ekki saman
eftir að við fórum í gagnfræðaskóla
og svo menntaskóla. Hildur eignað-
ist- nýjar vinkonur og ég kynntist
öðrum. Við fjarlægðumst og ég
fékk því ekki tækifæri til þess að
kynnast henni sem ungri framsæk-
inni konu. Þegar ég horfi til baka
sé ég eftir því, hvernig vinskapur
okkar gjörsamlega fjaraði út, án
þess að hvorug okkar fengi rönd
við reist. Við gáfum því jafnvel
ekki nokkurn gaum. Þegar komið
er í sitt hvorn menntaskólann er
svo margt sem breytist. Á sama
tíma uppgötvast skyndilega svo
margt sem lífið hefur uppá að bjóða
og tíminn nánast flýgur hjá.
Mér fannst að nægur tími yrði
til að taka aftur upp kynni meðal
okkar hnátanna úr Landakotsskóla,
áður en reiðarslagið kom. Allt í einu
er tíminn fyrir endurfundina við
Hildi liðinn. Ég er viss um að við
gömlu vinkonurnar hefðum fengið
hláturskast við að riija upp minn-
ingarnar frá æskuslóðunum í gamla
vesturbænum og þeim uppátækjum
sem skreyttu æsku okkar með gleði
og ánægju.
Ég vil votta öllum aðstandendum
Hildar dýpstu samúð mína, einkum
móður hennar, bróður og ömmu.
Guð blessi minningu þessarar
greindu og hæfileikamiklu ungu
konu sem svo ung hvarf okkur sýn-
um.
Margrét Birna
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð
um hinn látna. Leyfilegt er að
birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt
skáld, og skal þá hðfundar get-
ið. Sama gildir ef sálmur er birt-
ur. Meginregla er sú, að minn-
ingargreinar birtist undir fullu
nafni höfundar.