Morgunblaðið - 21.12.1991, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991
Portúgalir taka við forsæti í EB:
Sérstakur leiðtogafundur
um Evrópska efnahagssvæðið
boðaður ef allt annað bregst
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
JOAO de Deus Rogado Salvador
Pinheiro, utanríkisráðherra
Portúgals, boðaði til blaða-
mannafundar í Brussel I fyrra-
dag í tilefni þess að Portúgalir
taka við forsæti í ráðherraráði
Evrópubandalagsins (EB) í
fyrsta skipti um næstu áramót.
Pinheiro sagði að Portúgalir
hygðust leggja áherslu á bætt
og aukin samskipti við ríkin á
suðurhveli jarðar auk þess að
ganga frá niðurstöðum Ma-
astricht-fundarins. Pinheiro
sagði aðspurður að á næstu
mánuðum yrði lögð áhersla á
að leysa þann hnút sem
samningaviðræðurnar um Evr-
ópska efnahagssvæðið (EES)
hefðu lent í, hann sagði að til
álita kæmi að boða til sérstakr-
ar ríkisstjórnarráðstefnu og
leiðtogafundar (EB) ef önnur
ráð dygðu ekki.
Það kemur í hlut Portúgala að
undirbúa tillögur um stækkun
bandalagsins fyrir Jeiðtogafund í
Lissabon í júní. Óhjákvæmilega
verður lögð mikil áhersla á að ljúka
undirbúningi fyrir innri markað
bandalagsins sem taka á gildi 1.
janúar 1993. Pinheiro sagði að
Portúgalir vildu standa sig vel í
forsetaembættinu, þeir myndu
leggja áherslu á að treysta þann
árangur sem náðst hefði innan
EB á undanförnum árum. Um
EES sagði Pinheiro að ef samning-
ERLENT
urinn ætti að taka gildi 1. janúar
1993 væri þýðingarlaust að heíja
að nýju umtalsverðar
samningaviðræður. Leggja yrði
áherslu á að finna lausn sem allir
gætu sætt sig við. Innan EB yrði
allt kapp lagt á að finna þess hátt-
ar lausn á næstu tveimur til þrem-
ur mánuðum. Ef tilraunir næstu
vikna yrðu árangurslausar væru
Portúgalir tilbúnir til að íhuga
sérstakan leiðtogafund EB um
málið.
Hannes Hafstein sendiherra átti
í gær óformlegar viðræður við
fulltrúa framkvæmdastjórnar EB
ásamt fulltrúum Finna í Brussel
en það kemur í hlut íslendinga að
leiða viðræðurnar fyrir hönd
EFTA á nýju ári. Eins og greint
var frá í Morgunblaðinu í gær
varð samkomulag um að hrófla
ekki við öðrum köflum samnings-
ins um EES en þeim sem fjalla
um sameiginlegan dómstól nema
brýna nauðsyn beri til.
Reuter
Jólamaturinn heillar
Stúlka í Prag handfjatlar vatnakarfa á meðan systir hennar virðir
fyrir sér stórt fiskkar. Vatnakarfi er helsti jólamatur Pragbúa og
er seldur í slíkum körum út um alla borgina fyrir hátíðina.
Aðstoðarmenn Shevardnadze um afnám sovéska utanríkisráðuneytisins:
„Tílskipun Borís Jeltsíns gæti
haft hörmulegar afleiðingar“
Gorbatsjov íhugar að helga sig hjálparstarfi
Moskvu. Reuter.
EDÚARD Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna áður en
Borís Jeltsín Rússlandsforseti gaf út tilskipun á fimmtudag um að
ráðuneyti hans skyldi lokað, kvaddi starfslið sitt í gær. Aðstoðar-
menn hans sögðu að tilskipun Jeltsíns kynni að hafa alvarlegar
afleiðingar. Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi skýrði frá því í gær
að hann kynni að verða oddviti alþjóðlegrar nefndar til aðstoðar
nauðstöddu fólki í sovétlýðveldunum fyrrverandi.
Aðstoðarmennimir sögðu að til-
skipun Jeltsíns kynni að leiða til
missættis milli leiðtoga Rússlands
og smærri lýðvelda samveldisins,
sem á að koma í stað Sovétríkj-
anna. „Afleiðingarnar gætu orðið
hörmulegar," sagði einn þeirra,
Sergej Tarasenko, og sakaði Rússa
um að hafa hrifsað til sín það besta
af eignum Sovétríkjanna án þess
að ráðfæra sig nokkuð við stjóm-
völd í hinum lýðveldun’um.
Rússneskir embættismenn búast
við að leiðtogar ellefu lýðvelda
undirriti í dag samning í Alma-Ata
um útvíkkun samveldisins, sem
Jeltsín og forsetar Ukraínu og
Hvíta-Rússlands komust að sam-
komulagi um í Mínsk 8. desember.
„Eftir Mínsk-samkomulagið varð
ljóst að tryggt yrði að tilskipun
Jeltsíns yrði komin til framkvæmda
fyrir fundinn í Alma-Ata svo leið-
togarnir stæðu frammi fyrir gerð-
um hlut,“ sagði Tarasenko.
Sovéska utanríkisráðuneytið
hafði þar til á fimmtudag séð um
15.000 pólitíska og efnahagslega
samninga sem Sovétríkin höfðu
gert við erlend ríki. Shevardnadze
hefur sagt að hann óttist að valda-
framsal til rússneska utanríkis-
ráðuneytisins kunni að leiða til
ringulreiðar í utanríkisviðskiptum
sovétlýðveldanna fynverandi.
Erlendir stjórnarerindrekar í
Moskvu sögðu hins vegar að erlend
ríki hefðu undanfarna mánuði sent
skeyti bæði til utanríkisráðuneytis
Sovétríkjanna og Rússlands og til-
skipun Jeltsíns myndi ekki skapa
neín sérstök vandamál.
Shevardnadze reyndi að gera lít-
ið úr tilskipun Jeltsíns í viðtali við
TASS-fréttastofuna sovésku og
kvaðst telja að rússnesk stjórnvöld
vissu hversu mikill „þjóðarauður“
fælist í sovéska utanríkisráðuneyt-
inu og myndu ráða marga af starfs-
mönnum þess. Einn af aðstoðar-
mönnum hans, Temuraz Ma-
maladze, sagði hins vegar að til-
skipun Jeltsíns væri „móðgun,
bæði við forseta Sovétríkjanna og
ráðherrann sjálfan.“
Fréttastofan Interfax skýrði frá
því í gær að Gorbatsjov hefði hringt
í Helmut Kohl, kanslara Þýska-
lands, og sagt að hann myndi að
öllum líkindum helga sig hjálpar-
starfi í framtíðinni. Þá hafði frétta-
stofan eftir bandarískum fjármála-
manni að Gorbatsjov kynni að
verða oddviti alþjóðlegrar nefndar
til aðstoðar nauðstöddum í Sovét-
ríkjunum fyrrverandi.
við Austurvöll, sími 24211.
Samtímis því að Gallerí Borg óskar viðskiptamönnum sínum og öðrum landsmönnum
árs og friðar, vill það benda á, að í dag, laugardag, verður opið til klukkan 21:00 og
á morgun milli klukkan 14:00 og 18:00.
Á Þorláksmessu verður opið til klukkan 23:00 og til hádegis á aðfangadag.
Eftir kl. 16:00 í dag og á Þorláksmessu verður veitt jólaglögg til viðskiptamanna og velunnara.