Morgunblaðið - 21.12.1991, Side 13

Morgunblaðið - 21.12.1991, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991 13 ISVIPTIVINDUM Æviminningar Sigurðar Hdgasonar eftir STEINAR J. LÚÐVÍKSSON. Sigurður Helgason hóf afskipti af flugmálum á íslandi þegar hann kom inn í stjóm Loftleiða á frægum byltingarfundi árið 1953. 1 tæp fjörutíu ár eða fram til aðalfundar Flugleiða 1991 var Sigurður í fylkingarbrjósti. Hann var um árabil forstjóri Loftleiða í Bandaríkjunum en eftir sameiningu Loftleiða og Flugfélags íslands 1973 varð hann einn þriggja forstjóra félagsins. Hann var forstjóri og síðar stjórnarformaður Flugleiða um árabil. Þar blésu oft kaldir vindar um Sigurð Helgason enda var hann þekktur fyrir að taka ákvarðanir og standa eða falla með þeim. í SÖNGVARANS JÓREYK Æviminningar Sigurðar Olafssonar eftir RAGNHEIÐIDAVÍÐSDÓTTUR. f bókinni segir Sigurður frá litríku lífshlaupi sínu. Hann var mjög fjölhæfur söngvari og á 50 ára söngferli sínum söng hann f kórum, við jarðarfarir, með danshljómsveitum og í óperum, auk þess sem hann söng inn á margar hljómplötur sem njóta enn gífurlegra vinsælda. En Sigurður var ekki síður kunnur sem hestamaður þar sem skeiðið var sérgrein hans. í bókinni endur- speglast geislandi lífsgleði og þróttur Sigurðar sem áður kom fram á skeiðvöllunum og í söng hans. „HEITIRÐU OMAR ?!!" Minningabók eftir ÓMAR RAGNARSSON fréttamann. í bókinni rekur Ómar endurminningar sínar frá bemskuárunum. Hann bregður upp ógleymanlegri mynd af Reykjavík eftirstríðsáranna og af lífsbaráttu alþýðufólks á þeim árum. Hann segir frá prakkarastrikum í sveitinni og kristilega þenkjandi ungum mönnum í Kaldárseli. Hann segir frá fyrstu ástinni í lífi sínu sem kviknaði við harmrænar kringumstæður. Einlægni og frásagnargleði einkenna þessa bók ÓMARS RAGNARSSONAR, rétt eins og persónuna sjálfa. STAÐIÐISTRÖNGU Æviminningar Erlendar Einarssonar eftir KJARTAN STEFÁNSSON. Erlendur Einarsson var um langt árabil forstjóri Sambands íslenskra samvinnufélaga. Undir hans stjóm reis veldi samvinnu- hreyfingarinnar á íslandi hæst og hún varð stórveldi í íslensku samfélagi. Flest var þar slétt og fellt á yfirborði'nu en eins og oft gerist í miklum atvinnurekstri og umsvifum kraumaði undir niðri. Og nokkmm sinnum sauð reyndar upp úr. Erlendur fjallar um afskipti sín af málum samvinnuhreyfingarinnar sem hófust þegar hann var innanbúðarmaður í Kaupfélaginu í Vík í Mýrdal. Hann rekur feril sinn hjá Sambandinu og fyrirtækjum þess og segir frá átökum sem urðu við lok starfsferils hans þar. FLÓTTAMAÐURINN Ein kunnasta saga bandaríska spennusagna- höfundarins STEPHEN KING í íslenskri þýðingu Karls Birgissonar. Sagan gerist í stórborg í Bandaríkjunum í náinni framtíð. Kerfið hefur sigrað einstaklinginn og í gegnum fjölmiðla og þó einkum sjónvarpið er auðvelt að æsa lýðinn til óhæfuverka. Aðalsöguhetja bókarinnar, Ben Richards, er sendur nauðugur til leiks þar sem lífið sjálft er að veði. STEPHEN KING bregst aldeilis ekki Qölmörgum aðdáendum sínum með þessari óvenjulegu sögu. ÍTÆTLUM Danska stúlkan SYNN0VE S0E sló rækilega í gegn með þessari bók sem nefnist FARS á frummálinu. Bókin hefur orðið metsölubók á hinum Norðurlöndunum og kemur nú út í íslenskri þýðingu Steinars J. Lúðvíkssonar. SYNN0VE S0E leynir því ekki að í bókinni er hún að lýsa sinni eigin æsku og hvernig hún varð hálfgerð leikbrúða karlinannanna í.lífi hennar. Sagan er óvenjulega trúverðug og nær að snerta strengi í brjóstum lesendanna. Þess vegna hafa lesendumir í senn verið hrifnir og hneykslaðir. DAUÐADÚKKAN RUTH RENDELLer löngu heimsfræg fyrir spennusögur sínar en gerðar hafa verið kvikmyndir eftir mörgum þeirra og þær m.a. sýndar í sjónvarpinu á íslandi. í skáldsögunni DAUÐADÚKKAN grípur aðalsöguhetjan, Peter Yearman, til örþrifaráðs þegar hann álítur að hann verði alltaf lágvaxnari en aðrir menn. Hann hrindir af stað ógnvekjandi atburðarás sem erfitt reynist að stöðva. Afleiðingamar bitna ekki eingöngu á honum sjálfum. Jómna Leósdóttir þýddi bókina. BARNA OG UNGLINGABÆKUR EGILLOG GARPUR Bamabók eftir RAGNHEIÐIDAVÍÐSDÓTTUR. Þetta er saga um sex ára strák, sem heitir Egill. Hann er að bytja í skóla og búinn að læra umferðarreglumar. Egill fær kettling í afmælisgjöf en kisi er ekki eins vel að sér í umferðarreglunum og eigandinn og lendir í slysi. Þetta er lærdómsrík saga um hættur umferðarinnar. Umferðarráð mælir með bókinni og segir hana sameina vel skemmtun og fróðleik. Teikningamar í _ 1 VT íbókinni em eftirungan myndlistarmann, M f\.\ 9\ BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA I Ármúli 18-108 Reykjavík - Sími: 812300 STEFAN KJARTANSSON. MITTERÞITT Unglingasaga eftir ÞORGRÍM ÞRÁINSSON. Þetta er þriðja unglingabók Þorgríms en báðar fyrri bækur hans fengu mjög góðar móttökur. Ekki einungis að þær yrðu metsölubækur heldur hlaut bókin, sem út kom í fyrra, TÁR, BROS OG TAKKASKÓR, verðlaun sem besta íslenska unglingabókin 1990. MITT ER ÞITT er sjálfstætt framhald fyrri bókanna. Þetta er saga um dugmikla stráka og stelpur sem grípa til sinna ráða þegar einn úr hópnum er sakaður um þjófnað og auðvitað kemur knattspyman einnig við sögu því það er keppikefli strákanna að komast í drengjalandsliðið. vjs ' unova uan

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.