Morgunblaðið - 21.12.1991, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991
21
Það er ekki á hveijum degi sem fram koma áður óbirt ljóð eftir
látin stórskáld, enda þykir það tíðindum sæta. Nú gefúr Vaka-
Helgafell út nýtt og aukið ljóðasafn Steins Steinarr þar sem
meðal annars eru birt þijátíu ljóð sem ekki hafa áður verið
prentuð í bókum skáldsins.
Allar ljóðabækur Steins í einni bók, - og að auki óvæntur
glaðningur fyrir ljóðaunnendur. - Frábær jólagjöf!
AÐUR OBIkT
LJOÐ STEIS
íí:
usmm
mm
Ég vaknaði loksins
og áin hélt áfram að renna,
frá austri til vesturs,
að fjarlægum óþekktum ósi.
um,
Eitt andartak leið
og ég sá að á sefgrænum bakka
stóð sál mín nakin
í dagsins lóðrétta ljósi.
Svo gekk ég af stað,
ég hélt áfram með ánni,
frá austri til vesturs,
að fjarlægum óþekktum ósi
Eitt frumbirtu Ijóðanna l nyju
Ljóðasafni Steins Steinarr.
GULLFALLEGAR GJAFABÆKUR
Á 10 ára afmæli bókaforlagsins Vöku-Helgafells hefjum við
útgáfú á flokki glæstra gjafabóka á ótrúlega góðu verði.
Hér býðst lifandi og skemmtilegt efni tengt íslenskri
þjóðmenningu: Bókin Ur sagnabrunni, með þjóðsögum og
ævintýrum sagnaþularins Ásdísar Ólafsdóttur. Efdr henni
sendu Reykvíkingar mann og hest um síðustu aldamót svo að
hún gæti sagt þeim sögur.
Hin bókin sem markar upphaf þessa nýja gjafabókaflokks er
I skugga lárviðar með snilldarþýðingum Helga Hálfdanar-
sonar á 2000 ára ljóðum Hórasar, höfuðskálds Rómveija.
Gjafabækur í hæsta gæðaflokki á aðeins 1860 krónur.
VAKA-HEIGAFELL
Síðumúla 6 • Sími 688 300
HVÍTA HÚSID / SÍA