Morgunblaðið - 21.12.1991, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991
41
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 1992
Tekjur Hitaveitu Reykjavík-
ur áætlaðar 2.853 milljónir
Tillögnr liggja fyrir að stefnumótun veitunnar
TEKJUR Hitaveitu Reykjavíkur
eru áætlaðar 2.853 mÚlj. króna
á árinu 1992, og er þá gert ráð
fyrir rúmlega 6% aukningu á
vatnssölu milli ára. I fjárhags-
áætlun borgarinnar er gert ráð
fyrir 6,7% hækkun á meðalverði
milli ára. Rekstrargjöld eru
. áætluð 2.949 millj. króna og til
framkvæmda er áætlað að verja
746 mil^. króna. I ræðu Markús-
ar Arnar Antonssonar borgar-
sljóra, kom fram að, tillögur að
stefnumótun veitunnar um
næstu framtíð liggi fyrir og að
von er á skýrslu borgarendur-
skoðunar um úttekt á fjárhag
og sljórnsýslu Hitaveitunnar.
Rekstrargjöld Hitaveitu Reykja-
víkur eru áætluð 2.949 millj. og til
framkvæmda er áætlað að veija
„Þríbur-
amir“ fá
21,8 millj.
FJÁRHAGSÁÆTLUN Reykja-
víkurborgar gerir ráð fyrir að
veitt verði 21,8 milljón króna til
fjarfestinga hjá þríburunum svo-
kölluðu á næsta ári, Malbikunar-
stöðvarinnar, Grjótnámsins og
Pípugerðarinnar, en það eru
fyrirtæki í eigu borgarinnar.
Sagði borgarstjóri, að rekstur
fyrirtækjanna hefði verið mun
umsvifameiri en fjárhagsáætlun
síðasta árs gerði ráð fyrir og jafn-
framt að afkoma þeirra allra sé
mjög góð. Framleiddar voru fleiri
gerðir af malbiki en áður auk þess
sem verð á innfluttu asfalti hafi
verið hagstætt vegna lækkunar á
olíuverði. Framleiðsla Pípugerðar-
innar var meiri en fjárhagsáætlun
gerði ráð fyrir, og rekstur hennar
hefur snúist til betri vegar, miðað
við undanfarin ár. í fjárhagsáætlun
fyrirtækjanna fyrir næsta ár er
gert ráð fyrir samdrætti bæði í
framleiðslu og sölu.
í FJÁRHAGSÁÆTLUN Reykja-
víkurborgar er ekki gert ráð
fyrir hækkun á gjaldskrá til
tekjuaukningar fyrir Rafmagn-
sveitu Reykjavíkur á næsta ári
og er þá miðað við að hcildsölu-
verð Landsvirkjunar verði
Selur borgin
Borgina?
VIÐ fyrri umræðu um fjárhagsá-
ætlun Reykjavíkurborgar, varp-
aði Markús Órn Antonsson borg-
arstjóri, fram þeirri hugmynd
að bjóða hæstbjóðanda Hótel
Borg til kaups.
Borgarstjóri sagði, að í fjárlaga-
frumvarpinu væri gert ráð fyrir 20
milljónum króna til undirbúnings-
hönnunar, ef ákveðið yrði að kanna
til þrautar möguleika á stækkun
og endurbótum á Hótel Borg. „Hins
vegar er erfítt að veijast þeirri
hugsun í þessu árferði, að réttast
væri að leggja þau áform á hilluna
og bjóða hótelið frekar eins og það
er nú hæstbjóðanda til kaups,“
sagði Markús Örn.
samtals 746 millj. Á árinu verður
unnið við síðari lotu annars áfanga
Nesjavallavirkjunar og eru 53 millj.
áætlað til þess auk 6 millj. til undir-
búningsathugana vegna raforku-
framleiðslu. Frumáætlun verður
endurskoðuð og er áætlaður kostn-
aður 16 millj.
Til lagningar Suðuræðar verður
varið 410 millj. og í Reykjavík er
áætlað að veija 193 miilj. til dreifi-
lagna í nýjum hverfum í Grafar-
vogi en gert er ráð fyrir tengingu
500 nýrra húsa á árinu. 23 millj.
verður varið til dælustöðvar fyrir
Borgarholtshverfi auk þess sem
gert er ráð fyrir 40 millj. í bygg-
ingu ofan á miðhús Hitaveitunnar
við Grensásveg 1 og 5 millj. til
undirbúnings að birgðasvæði við
Réttarháls. Þá verður unnið að við-
gerðum á eldar kerfi og viðhaldi
ásamt endurnýjun á stjórnkerfi
dælustöðva að hluta fyrir 62 millj.
Til endurbóta á stjórnkerfi Nesja-
vallavirkjunar eru áætlaðar 24.4.
millj. Hreinsanir og endurbætt ryð-
vöm geyma á Öskjuhlíð og Grafar-
holti ásamt endurnýjun götuæða í
eldri hverfum munu kosta 153
millj. og viðhald dælustöðva 27
millj.
Borgarstjóri vék síðan að þeirri
umræðu, sem átt hefur sér stað
um innra skipulag Hitaveitunnar
og þær tvær meginframkvæmdir
sem unnið hefur verið að síðastlið-
in fjögur ár, það er Nesjavallaveita
og bygging Perlunnar á Öskjuhlíð,
sem fóru verulega fram úr áætlun.
Sagði hann að Rekstrarstofan hf.
hafi verið fengin til að gera úttekt
FJÁRHAGSÁÆTLUN ReyKja-
víkurborgar gerir ráð fyrir 9%
samdrætti í almennum vöru-
flutningum vegna aflasamdrátt-
ar og minni'umsvifa í þjóðfélag-
óbreytt. Samkvæmt frumvarp-
inu eru rekstrartekjur áætlaðar
3.155.5 milljónir króna og
rekstrargjöld 3.053.6 milljónir
króna.
í ræðu borgarstjóra við fyrri
umræðu um fjárahgsáætlun borg-
arinnar kom fram að, gert væri ráð .
fyrir innbyrðis breytingu á taxta í
gjaldskrá Rafmagnsveitunnar.
Breytingin hafi í för með sér lækk-
un á orkuverði til langflestra not-.
enda, heimila, meðalstórra fyrir-
tækja og minni fyrirtækja um allt
að 2.6%. Til notenda á afltaxta
hækkar orkuverð um 3 til 5%.
Kostnaður við framkvæmdir í
veitukerfi er áætlaður 389.4 millj.
og til annarra fjárfestinga 26.7
millj. Á næsta ári verða hafnar
framkvæmdir við nýja aðveitustöð
við Elliðaár, sem ráðgert er að ljúka
árið 1993. Auk þess sem hún leys-
ir af hólmi núverandi Aðveitustöð
5 er gert ráð fyrir að útivirki við
Elliðaár, svo og Varastöð Lands-
virkjunar verði fjarlægð. Að frum-
kvæði Rafmagnsveitunnar var
áhersla lögð á að hraða skipulagi
Elliðaárdalsins og gert er ráð fyrir,
að því verki ljúki fyrri hluta næsta
árs.
á skipulagi veitunnar og að grein-
argerð lægi fyrir, ásamt tillögu að
stefnumótun um næstu framtíð,
sem lögð hefur verið fyrir stjórn
veitustofnana til umræðu. Þá væri
von á skýrslu borgarendurskoðunar
um úttekt á fjárhag og stjórnsýslu
Hitaveitunnar.
„Það er miður, ef í ljós kemur,
að þekking og reynsla hafi ekki
byggst upp svo fullnægjandi geti
talist hjá veitunni sjálfri, vegna
takmarkaðs fjölda tæknimanna,
bæði að því er varðar framkvæmd-
VIÐ fyrri umræðu um fjárhagsá-
ætlun Reykjavíkurborgar kom
fram að fyrir borgarráði lægi
tillaga um breytingar á gjald-
skrá í stöðumæla. Felur hún í
sér hækkun á gjaldi í stöðumæla
í miðborginni auk þess sem gert
er ráð fyrir að gjaldtökusvæðið
verði stækkað um leið og nýir
mælar verða teknir í notkun.
Sagði borgarstjóri, að einnig
væri lagt til að hækka gjald vegna
stöðubrota. Þá hafa komið fram
tillögur um bætta þjónustu, meðal
annars með lækkun mánaðargjalda
á þeim stöðum sem nýting bíla-
stæða er lægst, á Bakkastæði og
í Kolaporti. Einnig er tillaga um
að gefa út sérstök stöðukort til
íbúa í tilteknum hverfum, þar sem
erfítt er um bílastæði.
inu á næsta ári. Spáð er óbreytt-
um olíuinnflutningi en miðað við
15% minni afla vegna minnkandi
kvóta, fjölgunar fiskmarkaða og
aukinnar samkeppni um afla.
Borgarstjóri sagði, að reiknað
væri með 5% hækkun á gjaldskrá
1. janúar og að rekstrartekjur væru
áætlaðar 625.2 millj., sem-er um
1,8% hækkun frá áætlaðri útkomu
ársins 1991. Rekstrargjöld eru
áætluð 402.2 millj., sem er 5,1%
hækkun milli ára.
Til framkvæmda er áætlað að
veija 241.1 millj. þar af 95 millj.
til framkvæmda í Sundahöfn.
Stærsta verkefnið er endurnýjun
Miðbakka og er áætlað að veija til
þess 126 millj. Þar er um að ræða
fyrsta hluta samvinnuverkefnis
Reykjavíkurhafnar og borgarsjóðs,
sem felur í sér að flytja legu Mið-
bakkans utar í höfnina og skapa
þannig rými fyrir Geirsgötu.
VIÐRÆÐUR standa yfir milli
borgaryfirvalda og eigenda
byggingarréttar við Aðalstræti
9, um að borgarsjóður kaupi
tólf íbúðir, sem þar er fyrirhug-
að að byggja.
Þetta kom fram í ræðu Markús-
ar Arnar Antonssonar borgar-
stjóra, við fyrri umræðu um fjár-
hagsáætlun borgarinnar.
Byggingarnefnd hefur samþykkt
heimild til að hækka húsið um
atækni og ekki síður umsjón með
stærri verkefnum," sagði Markús
Örn. „Þá verður að telja rétt, að
séð verði um að fjölga í tækniliði
fyrirtækisins, þannig að veitan geti
framvegis búið að góðri þekkingu
og frumkvæði við undirbúning og
umsjón verka, þó svo að haldið
verði áfram viðskiptum við ráðgjaf-
ar- og verkfræðistofur, eftir því
sem hagkvæmt getur talist, og
framkvæmdaverk að sjálfsögðu
boðin út sem fyrr, ásamt því að
leita útboða rekstur- -og viðhalds-
verkefna í frekari mæli en nú er.“
Áætlaðar tekjur bílastæðasjóðs
miðast við óbreytta gjaldskrá en
miðað við fyrirhugaðar fram-
kvæmdir á vegum hans, byggingu
bílastæðahússins við Hverfisgötu,
némur ijárvöntun sjóðsins rúmlega
60 milljónum króna vegna fram-
kvæmda á árinu, þrátt fyrir 242
millj. lán á næsta ári. „Með þessu
áframhaldi verða skuldir sjóðsins
nálægt 500 milljónum króna í árs-
lok 1992,“ sagði borgarstjóri.
341 millj. í
í rekstur SVR
í FJÁRHAGSÁÆTLUN Reykja-
víkurborgar, er gert ráð fyrir
341.3 miiy. króna framlagi úr
borgarsjóði til reksturs Strætis-
vagna Reykjavíkur. Að sögn
Markúsar Arnar Antonssonar
borgarstjóra, er gert ráð fyrir
óbreyttum fargjöldum á árinu
1992, að svo stöddu en miðað er
við að þau standi undir 55% af
rekstri að frádregnum vöxtum
og afskriftum. Gert er ráð fyrir
að fimm nýir vagnar verði af-
hentir á árinu og er kaupverð
þeirra áætlað 65.5 millj.
í ræðu borgarstjóra kom fram,
að á árinu 1991 hafi hlutfall far-
gjalda í rekstrinum, verið 54% en
mestan hluta ársins var það lægra.
Gert er ráð fyrir rúmum 341 millj.
í rekstur og er það 13 millj. króna
hækkun frá framlagi til fyrirtækis-
ins á þessu ári. Reikna má með
að við síðari umræðu komi fram
tillaga um 7 millj. króna framlag
til lokafrágangs á 1. hæð skipti-
stöðvarinnar í Mjódd, sem SVR
hyggst leigja út.
Borgarstjóri sagði, að fárþegar
með vögnunum miðað við greidd
fargjöld hefðu verið 6,9 millj. árið
1991 og að þeim hefði fækkað um
400 þús. miðað við árið á undan.
Farþegar sem nota skiptimiða eru
áætlaðir um 2.4 millj. þannig að
heildarfjöldi verður um 9,3 millj. á
árinu.
þijár hæðir og sagði borgarstjóri,
að þar sem um viðkvæman stað
í hjarta borgarinnar væri að ræða
hafi verið rætt um að borgarsjóð-
ur kaupi tólf af nítján íbúðum í
húsinu. Áætlaður kostnaður er
um 100 milljónir króna og eru
áætlaðar 80 milljónir króna til
kaupanna á þessu ári. Gert er ráð
fyrir að í árslok hafi borgarsjóður
selt aftur einhveijar af þeim íbúð-
um, sem keyptar verða.
Raforka lækkar að
raungildi um 2,2%
Reiknað með 9% sam-
drætti í vöriiflutiiingTim
Miðbakki víkur fyrir Geirsgötu
Tillaga um hækkun í
stöðumæla í miðbænum
Borgin kaupi tólf
íbúðir í Aðalstræti 9
Frá afhendingu biskupskápunn-
ar. Frá vinstri: Ebba Sigurðar-
dóttir, _ Sigrún Jónsdóttir og
herra Olafur Skúlason biskup.^
A
Biskup Is-
lands fær
nýja emb-
ættiskápu
BISKUPI íslands, herra Ólafi
Skúlasyni, var á miðvikudag færð
ný embættiskápa ásamt stólu, sem
gerðar eru af listakonunni Sig-
rúnu Jónsdóttur. Þetta er fyrsta
biskupakápan á seinni öldum, sem
unnin er af íslendingi, segir í frétt,
sem blaðinu hefur borizt.
Ennfremur segir í tilkynningunni:
„Á hettu kápunnar er tákn heilags
anda, dúfan, í gylltu leðri. Framan
á kápunni eru tólf reitir, sem tákna
postulana og samfélag heilagra, sem
og tákn auga Guðs sem yfir öllu
vakir í kærleika. Efnið er handofið
úr hvítu silki að mestu, ísaumað með
rauðum, bláum og gullnum þráðum
og skreytt með íslenskum steinum.
Ebba Sigurðardóttir biskupsfrú valdi
steinana, sem Gunnar Kristjánsson
steinslípari í Hafnarfirði gaf og eru
þeir upprunnir af Snæfellsnesi.
Kápuna hannaði og vann Sigrún
í þessu augnamiði og var hún á yfir-
litssýningu á verkum hennar í Safn-
aðarheimili Dómkirkjunnar á Kirkju-
listahátíð síðastliðið vor. Herra Ólaf-
ur Skúlason mun bera kápuna í
fyrsta sinn við jólaguðsþjónustu þá,
sem sjónvarpað verður á aðfanga-
dagskvöld."
----» ♦ ♦----
Landsbankinn
í jólaskapi
ÚTIBÚ Landsbanka íslands við
Laugaveg, Bankastræti og í Aust-
urstræti taka þátt í jólaundirbún-
ingnum með nýstárlegum hætti í
ár. I þessum útibúum verður efnt
til kynningar á reglubundnuin
sparnaði og annarri þjónustu sem
bankinn hefur upp á að bjóða frá
kl. 13 til 17 laugardaginn 21. des-
ember. Ekki verður þó um neina
almenna afgreiðslu að ræða, en
starfsfólk tekur samt á móti gest-
um og gangandi og svarar öllum
fyrirspurnum um einstök innláns-
form og þjónustu bankans og leið-
beinir fólki eftir föngum.
Frá þessu er skýrt í frétt frá
Landsbankanum. Þar segir að brydd-
að verði upp á ýmsu skemmtilegu
þann tíma, sem kynningarnar standa
yfir. Nú er „Ár söngsins" og mun
Landsbankakórinn heimsækja öll
fjögur útibúin og syngja jólalög.
Kórinn mun hefja söngferðina klukk-
an 14 í Austurbæjarútibúi, Lauga-
vegi 77, en röltir síðan niður Lauga-
veg, hefur viðkomu í Vegamótaútibúi
og Bankastrætisútibúi, og syngur
síðan í aðalbankanum um klukkan
15,30. Þá munu jólasveinar og aðrar
kynjaverur vera við útibúin. I tilefni
„Árs söngsins" mun sönghópur verða
á ferli í miðbænum og heiemsækja
aðalbankann og gleðja gesti bankans
með söng sínum. Boðið verður upp
á heitt súkkulaði og smákökur í öllum
útibúunum og komið verður upp
föndurhorni fyrir yngstu kynslóðina.