Morgunblaðið - 21.12.1991, Blaðsíða 45
44
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991
Útgefandi
Framkvæmdastfóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Flaraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
Landakot og Borg-
arspítali
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar:
Ríkisstjórnin ótrúlega
g’lámskyggn á breiðu bökin
egar systumar á Landakoti
hættu rekstri Landakots-
spítala fyrir rúmum áratug var
ákveðið að reka spítalann áfram
sem sjálfseignarstofnun og með
sama rekstrarformi og þar hafði
tíðkazt. Sá grundvallarmunur er
á starfsháttum á Landakoti og
öðrum sjúkrahúsum í Reykjavík,
að læknir, sem leggur sjúkling inn
á Landakoti er ábyrgur fyrir hon-
um meðan hann dvelur á spítalan-
um. Helzta röksemdin fyrir því
að reka Landakotsspítala áfram
með óbreyttu rekstrarformi var
sú, að það væri heppilegt að geta
borið saman tvö ólík rekstrarform
á sjúkrahúsum. Jafnframt skap-
aðist ákveðin samkeppni á milli,
sem gæti almennt stuðlað að auk-
inni hagkvæmni í spítalarekstri.
Þegar á heildina er litið hefur
rekstur Landakotsspítala gengið
vel frá því að sjálfseignarstofnun-
in tók við spítalanum. Þó er ljóst,
að eitthvað fór úr böndum í
rekstri spítalans fyrir nokkrum
árum en síðustu misseri hefur
verið ráðin bót á því.
A undanförnum misserum hef-
ur mjög verið rætt um sameiningu
sjúkrahúsa í Reykjavík. Nánast
allir þeir ráðherrar, sem komið
hafa að þessum málum, sama í
hvaða flokki þeir hafa verið, hafa
verið sammála um að forsenda
fyrir spamaði í rekstri sjúkrahúsa
í Reykjavík væri sú, að reka tvo
hátæknispítala hér en ekki þijá.
í þessum umræðum hefur mest
verið fjallað um sameiningu Borg-
arspítala og Landakotsspítala.
Erlent ráðgjafarfyrirtæki, sem
starfaði fyrir ríkisspítala, var á
öðru máli. Niðurstaða þess var
sú, að reka ætti Landakot áfram
sem litla sjálfstæða einingu en
sameina Borgarspítala og
Landspítala. Röksemd hinna er-
lendu ráðgjafa var sú, að við
þyrftum ekki á tveimur hátækni-
spítölum að halda. Einn mundi
duga okkur en samkeppni á milli
tveggja slíkra sjúkrahúsa um
starfsmenn og tækjabúnað yrði
til þess að auka kostnað óhóflega
mikið.
Lítið hefur verið rætt um til-
lögu hinna erlendu ráðgjafa en
áherzla verið lögð á að ná sam-
komulagi um sameiningu Borgar-
spítala og Landakotsspítala. Aug-
ljóst er, að alvarlegur skoðana-
ágreiningur hefur verið um málið
meðal starfsmanna Landakots-
spítala. Úrslitum ræður hins veg-
ar nú, að samkvæmt því samkom-
ulagi, sem gert var við systurnar
á sínum tíma, er ekki hægt að
ganga til þessarar sameiningar
fyrr en að nokkrum árum liðnum,
nema með samþykki þeirra. Slíkt
samþykki liggur ekki fyrir og
þess vegna verður alla vega frest-
un á sameiningu.
Hér skal ekki lagður dómur á
það, hvort sameining þessara
tveggja spítala er skynsamlegur
kostur. Spyrja má, hvort áfram-
haldandi rekstur Landakotsspít-
ala gæti orðið upphaf að nýjum
þætti í heilbrigðisþjónustu okkar,
þar sem sjúklingar og aðstand-
endur þeirra ættu annan valkost
en nú er fyrir hendi í heilbrigðis-
kerfinu, m.ö.o., að sjúklingar eða
aðstandendur greiði fyrir þjón-
ustu á Landakoti. Fólk geti valið
um, hvort það vill kaupa slíka
þjónustu og fá hana hugsanlega
skjótar en ella eða fá þjónustuna
án endurgjalds á Landspítala eða
Borgarspítala.
Hitt er alveg ljóst, að á meðan
engin niðurstaða er fengin í sam-
einingarmálinu hlýtur ríkisvaldið
að tryggja viðunandi rekstur
Landakotsspítala. Sighvatur
Björgvinsson, heilbrigðisráð-
herra, hefur gert tillögu um skipt-
ingu fjárveitingar, sem felur í
sér, að starfsemi Landakotsspít-
ala verður lömuð. Vinnubrögð af
þessu tagi eru hvorki sæmandi
ríkisstjórn, heilbrigðisráðherra
eða fjárveitingavaldinu. Raunver-
ulegur sparnaður næst ekki í rík-
isrekstrinum með fljótfærnisleg-
um og vanhugsuðum ákvörð-
unum.
Þótt ríkisstjórnin hafi rekið sig
á óvænta hindrun í viðleitni til
að sameina tvo spítala getur hún
ekki látið standa sig að því að
kippa fótunum undan rekstri ann-
ars spítalans áður en málefnaleg
niðurstaða er fengin í málinu í
heild.
Arðgreiðsl-
ur hlutafé-
laga
Ríkisstjórnin hefur rökstutt til-
lögu um, að ekki skuli líta
á arðgreiðslur hlutafélaga, sem
kostnað þegar kemur að skatt-
lagningu með því, að þannig sé
þetta í öðrum löndum. Þetta er
rétt. Slík lagaákvæði eru eða hafa
verið í gildi, m.a. í Bandaríkjun-
um.
A síðasta áratug voru áhrifin
þau í Bandaríkjunum að fyrirtæki
tóku gífurlega fjármuni að láni
en sóttu starfsfé sitt síður á hluta-
bréfamarkaðinn. Niðurstaðan er
sú, að fjölmörg bandarísk fyrir-
tæki eru stórskuldug og háir það
rekstri þeirra mjög, m.a. í hinni
hörðu samkeppni við japönsk fyr-
irtæki.
Hér eru atvinnufyrirtæki alltof
skuldug en hafa séð nýja mögu-
leika á fjármögnun með útboði
hlutabréfa. Telur ríkisstjórn Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðuflokks, að
það sé atvinnulífinu til framdrátt-
ar að beina því í ríkara mæli en
orðið er inn á lánamarkaðinn?!
FULLTRÚARÁÐ Starfsmanna-
félags Reykjavíkurborgar lýsir
sig ósammála fjölmörgu í ný-
framkomnum tillögum ríkis-
stjórnarinnar í ríkisfjármálum. í
í bréfinu segir að Framkvæmda-
stjóm Verslunarráðs íslands vilji
enn vara við breytingum á tekju-
skatti fyrirtækja samkvæmt þeim
hugmyndum, sem nú séu til með-
ferðar á Alþingi. Það sé óþolandi
fyrir íslenskt viðskiptalíf að þurfa
sífellt að sæta handahófskenndum
breytingum á tekjuskattslögum og
vera sem pólitísk skiptimynt í sam-
skiptum stjórnmálamanna.
Jafnframt segir að íslenskt efna-
Breiðholti var slitið í gær, föstu-
daginn 20. desember kl.14 í
Fella- og Hólakirkju.
Á haustönn stunduðu tæplega
1500 nemendur nám í dagskólan-
um á sjö sviðum skólans: bóknáms-
sviði, féalgsgreinasviði, heilsu-
gælsusviði, listasviði, matvæla-
sviði, viðskiptasviði og tæknisviði
í dagskólanum og rúmlega 1000
nemendur stunduðu margvísleg
nám m.a. í réttindanám í kvöldskó-
lanum. 149 kennarar eru við skól-
ann.
Að þessu sinni útskrifast 72
stúdentar, 60 úr dagskóla og 12
úr kvöldskóla.
Hæstu einkunn hlaut Kristin
Hrönn Þorbjörnsdóttir af náttúru-
fræðibraut dagskólans. Verðlaun
Rotaryklúbbs Breiðholts hlaut Jó-
hann Gunnar Jóhannssön.
ályktun félagsins segir m.a. að
áform ríkisstjórnarinnar um
fjöldauppsagnir opinberra
starfsmanna séu ákaflega van-
hugsuð.
hagslíf sé nú á leið í dýpstu efna-
hagslægð sína frá stofnun lýðveld-
isins og að eina leiðin til að komast
út úr þessum erfiðleikum sé með
uppbyggingu íslensks atvinnulífs.
Slíkar breytingar á tekjuskatti fyrir-
tækja auki verulega erfiðleika at-
vinnulífsins, sérstaklega með því að
þrengja möguleika til öflunar nýs
eigin fjár með útgáfu hlutabréfa og
bæta því enn á samdráttinn í efna-
hagslífinu og auka atvinnuleysi.
Við athöfnina í gær var málverk
Sigurðar Sigurðarsonar af sr. Guð-
mundi Sveinssyni fyrsta skóla-
meistara skólans afhjúpað. Kór
skólans söng undir stjórn Ernu
í ályktun fulltrúaráðsins segir
einnig: „Félagsleg samhjálp er að
ýmsu leiti gloppóttari á íslandi en
í öðrum löndum, sem við berum
okkur gjarnan saman við og getur
fækkun opinberra starfsmanna hér
ekki leitt til neins annars en verri
velferðarþjónustu.
Ríkisstjórnin áformar að flytja
verkefni frá ríki til sveitarfélaga,
sem í þokkabót verða svipt tekjum.
í heild er fjárhagur sveitarfélag-
ahna með þeim hætti að hann leyf-
ir ekki viðbótarverkefni, nema því
aðeins að útsvar verði hækkað. Rík-
isstjórn, sem hefur það að markm-
iði að lækka skatata er ekki sæm-
andi að ástunda slíkan feluleik.“
Síðan segir, að stjórnin sé ótrú-
lega gláskyggn á breiðu bökin í
þjóðfélaginu, því að í tillögum ríkis-
stjórnarinnar sé tregðast við að
skattleggja fjármagnstekjur, hafn-
að sé að koma á fleiri en einu skatt-
þrepi og þvertekið sé fyrir að leggja
á hátekjuskatt. Á hinn bóginn sé
álögum hlaðið á aldraða, námsfólk,
bamafólk og sjúka og að fyrirsáan-
legt sé að lífskjör þessara hópa
muni stórversna fyrir vikið og að
ráðstafanimar séu ekki til þess
fallnar að greiða fyrir kjarasamn-
ingum.
Guðmundsdóttur. j Skólameistari
Fjölbrautskólans í Breiðholti er
Kristín Arnalds. Skólinn hóf göngu
sína 1975 og var fyrsti fjölbrauta-
skóli landsins.
Framkvæmdastjórn Verslunarráðsins:
Varað við breytingfum
á tekjuskatti fyrirtækja
FRAMKVÆMDASTJÓRN Verslunarráðs íslands afhenti s.l. fimmtu-
dag Friðrik Sophussyni, fjármálaráðherra, bréf vegna stjómarfrum-
varps til breytinga á tekju-og eignarskattslögum, sem nú er til
meðferðar á Álþingi. Skorað er á stjórnvöld að hætta við áformað-
ar breytingar á tekjuskatti fyrirtækja og gefa atvinnulífinu starfs-
frið.
Stúdentshúfurnar settar upp.
Morgunblaðið/Sverrir
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti:
72 stúdentar útskrifaðir í gær
FJÖLBRAUTASKÓLINN
Guðlaug Einarsdóttir(t.v.) eiginkona sr. Guðmundar Sveinssonar
fyrrverandi skólameistara afhjúpaði málverk af manni sínum. Með
henni á myndinni er Kristín Arnalds núverandi skólameistari.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991
45
Nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ við skólaslit.
Fjölbrautarskólinn í Garðabæ:
29 stúdentar brautskráðir
FJÖLBRAUTASKÓLINN í Garðabæ brautskráði í gær 29 stúd-
enta og 2 nemendur með lokapróf af eins til tveggja ára braut-
um. Athöfnin fór fram í skólanum og fluttu ávörp Þorsteinn
Þorsteinsson skólameistari, sem afhenti nemendum prófskír-
teini, Arai Emilsson, formaður skólanefndar og Ólafur E. Rún-
arsson nýstúdent.
I ávarpi skólameistara kom
fram að ýmsar nýjungar eru á
döfinni í skólastarfinu. Hann
nefndi m.a. sérstakan skólasamn-
ing sem gerður er í tilraunaskyni
fyrir þetta skólaár. Kennarar
vinna meira í skólanum en áður
og jafnframt er leitast við að
bæta kjör þeirra. Hann gat þess
einnig að hafinn væri undirbún-
ingur að því að byggja nýtt hús-
næði fyrir skóiann.
Bestum árangri nemenda náði
Anna Guðrún Hugadóttir á
félagsfræðibraut, með ágætisein-
kunn í 39 áföngum. Flestum
námseiningum náði Eðvarð Ing-
ólfsson á hagfræðibraut, 171 ein-
ingu, en lágmarksfjöldi eininga
til stúdentsprófs er 140.
Sakadómur Reykjavíkur:
Síbrotaxnaður sýknaður af
kröfu um sérstaka gæslu
SAKADÓMUR Reykjavíkur hefur með dómi fjölskipaðs sakadóms sýkn-
að Steingrím Njálsson, 49 ára gamlan mann, sem margsinnis hefur
verið dæmdur fyrir kynferðisafbrot gegn ungum drengjum, af þeirri
kröfu ákæruvaldsins að honum verði gert að sæta sérstökum öryggisráð-
stöfunum að lokinni afplánun refsingar með miði að því að stemma
stigu við frekari afbrotum mannsins og áfengissýki hans og að koma
fram lyfjameðferð í því 'skyni að vinna gegn kynferðislegummisþroska
hans. Krafa þessi var byggð á því að maðurinn teldist hættulegur vana-
afbrotamaður sem ekki hafi látið skipast við endurtekna refsidóma og
læknismeðferð en hann hefur frá 1963 verið sakfelldur fyrir ýmis kon-
ar kynferðisafbrot gegn 14 drengjum á aldrinum 7-15 ára.
Alls hefur maðurinn frá árinu 1963
hlotið 26 refsidóma fyrir kynferðisaf-
brot, þjófnaði, líkamsárásir, fjársvik,
skjalafals og ölvun og réttindaleysi
við akstur í samtals 11 ára og 3 'A
mánaða fangelsi. Auk þess hefur
hann hlotið 16 sektir fyrir brtot á
umferðar- og áfengislögum.
I tengslum við dóm vegna kynferð-
isafbrot var maðurinn þann 11. júní
1990 í sakadómi dæmdur til að sérs-
takrar öryggisgæslu að lokinni af-
plánun 18 mánaða refsingar í fang-
elsi. í Hæstarétti var þessi dómur
mildaður í 12 mánaða fangelsi og
kröfunni um sérstaka gæslu að lok-
inni afplánun var hafnað þar sem
ákæruvaldið þótti ekki hafa gert grein
fyrir því hvort gæslu af þessu tagi
yrði komið við annars staðar en í
fangelsi.
Manninum var svo veitt reynslu-
lausn á l'/z mánuð af eftirstöðvum
þessarar 12 manaða fangelsisvistar
en sú reynslulausn var afturkölluð
að fáum dögum liðnum þar sem mað-
urinn hafði ekki hlýtt skilmálum
hennar. í framhaldi af því var sérstök
ákæra gefin út af ríkissaksóknara,
þar sem krafa sú sem nú hefur verið
hafnað, var gerð. Henni var í fyrstu
vísað frá sakadómi en með dómi
Hæstaréttar var sakadómi gert að
taka málið til efnislegrar meðferðar.
í niðurstöðum dómsins segir meðal
annars að þrátt fyrir langan afrota-
feril mannsins telji dómurinn ekki
unnt að segja til um það með neinni
vissu hversu líklegt sé að hann muni
bijóta af sér í framtíðinni en frá því
hann losnaði úr fangelsi fyrir 10
mánuðum hefur hann svo vitað sé
einu sinni gerst brotlegur við umferð-
arlög. Við mat á því hversu líklegur
hann sé til afbrota sé ekki við annað
að styðjast en sakaferil mannsins og
læknisfræðileg gögn málsins þar sem
m.a. komi fram að afbrigðileg kyn-
hegðun sem maðurinn sé talinn hald-
inn eldist ekki af fólki þótt hún fari
minnkandi með aldrinum.
Dómurinn vísar til þess að Hæsti-
réttur hafi ekki talið unnt að dæma
manninn til gæslu af þessu tagi þar
sem ekki hafi verið sýnt fram á að
sú gæsla gæti farið fram annars stað-
ar en í fangelsi og segir að krafa
ákæruvaldsins í þessu máli sé í raun
framhald þess máls sem þar var fjall-
að um. Þá segir: „Ákæruvaldið hefur
í þessu máli fært fram gögn sem
dómurinn telur sýna að gæsla samk-
vælmt 66. og 67. gr. almennra
hegningarlaga sé ekki tiltæk annars
staðar en í fangelsi. Þótt dómurinn
telji það ekki í verkahring dómstóla
að kveða á um það, hvar menn, er
dæmdir hafa verið til gæslu sam-
kvæmt tilvitnuðum ákvæðum séu vi-
staðir, þykir hins vegar rétt vegna
samhengis þessa máls og þess hluta
málsins samkvæmt ákæru frá 2. apríl
1990, sem að framan greinir og í til-
efni af ofangreindum dómi Hæsta-
réttar og málavöxtum að öðru leyti,
að taka fram, að dómurinn telur, að
öryggisráðstafanir gagnvart ákærða
í því skyni er ákæruvaldið hefur kraf-
ist í máli þessu og lýst er í ákær-
unni, eigi ekki og geti ekki, eðli sínu
samkvæmt, farið fram í fangelsi. Með
vísan til framanritaðs telur dómurinn
ekki vera uppfyllt skilyrði til að dæma
ákærða til að sæta öryggisráðstöfun-
um samkvænit 66. og 67. grein al-
mennra hegningarlaga."
Því var maðurinn sýknaður af öll-
um kröfum ákæruvaldsins og greiðsla
alls sakarkostnaðar og 150 þúsund
króna málsvarnarlauna til Ragnars
Aðalsteinssonar hrl., felld á ríkissjóð.
Dóminn kváðu upp sakadómaramir
Arngrímur ísberg, dómsformaður,
Guðjón St. Marteinsson og Helgi I.
Jónsson.
-------»--♦<-------
Doktorspróf
í samanburð-
armálfræði
JÓN Axel Harðarson lauk í fe-
brúarmánuði síðastliðnum dokt-
orsprófi í indóevrópskri saman-
burðarmálfræði við háskólann í
Freiburg í Þýzkalandi.
Doktorsritgerð-
in fjallar um rótar-
aðrista, sem er sér-
stök formdeild
sagna, í indóevr-
ópska frummálinu
og afdrif þeirra í
indóírönsku og
grísku. Áður hafði
Jón Axel lokið
B.A.-prófí í latínu
og íslenzku við Háskóla Islands og
magisterprófi í samanburðarmál-
vísindum við Freiburgarháskóla.
Jón Axel starfar við/ háskólann í
Dr. Jón Axel
Hardarson.
Freiburg.
Foreldrar Jóns Axels eru Hörður
Jónsson og Edda Axelsdóttir.
Bók um Alþmgi hið
forna eftir Einar Pálsson
KOMIN er út ný bók eftir Einar
Pálsson, sem nefnist Alþingi hið
forna. Er þetta tíunda bókin sem
Einar Pálsson ritar um uppruna
íslenzkrar menningar.
I kynningu útgefanda segir m.a.:
„I bók þessari er byggt á því sem
menn vissu áður; flest sem ritað hefur
verið um efnið er gaumgæft og haft
til hliðsjónar. Síðan er aukið við því
sem komið hefurj ljós við rannsóknir
undanfarinna áratuga. Eðli Alþingis
er athugað og leitað að uppruna þess
og fyrirmyndum. Efniviðurinn nær
þannig langt aftur fyrir íslandsbyggð.
Skýrð eru tengsl Alþingis við heims-
mynd miðalda, goðafræði, tónlist,
heimspeki, tímatal og tölvísi. Einkum
er gerð grein fyrir umgjörð Alþingis
hins forna; uppbyggingu þess og hvar
það stendur rótum í fornum fræðum.
Aftan við meginmál eru tólf skýringa-
myndir, tilvitnana- og nafnaskrá.
í hinni nýju bók er sett fram kenn-
ing um grundvöll hins forna íslenzka
goðaveldis. Mun það í fyrsta sinn, sem
sett er fram ákveðin og skýr niður-
staða um þau efni. Til skamms tíma
hafa menn haldið, að enga hliðstæðu
við Alþingi íslendinga væri að finna
á Vesturlöndum; niðurstaða þessa rits
Einar Pálsson
er gagnstæð; Alþingi hið forna
byggðist á merkustu hugmyndum og
vönduðustu stjórnskipan fomra sam-
félaga. Umgjörð hins íslenzka goða-
veldis var skipuleg og föst í sniðum
— og í beinu samræmi við mikilvæg-
ustu heimsmyndarfræði fornaldar."
Breytingar á endurgreiðslu námslána
(miðað er við meðaltekjur í starfsgrein)
Einstaklingur í leiguhúsnæði. Starf: Viðskiptafræðingur
200 þús. kr. Breytt kerfi* Arslán 432.000
f ' Tekiðlán 1.728.000
120 1 I Námstími 4 ár
80. 40 n \ Gildandi kerfi**
25 ára 30 35 40 45 50 55 60 65
Einstætt foreldri m. eitt barn. Starf: Framhaldssk.kennari
120 Árslán 648.000 Tekið lán 1.944.000 Námstími3ár
*Breytt kerfi skv. frumvarpi til laga um LÍN. Endurgreiðslur hefjast ári ettir námslok.
Vextir 3%. Tekjutenging: 4% fyrstu 5 áriin, 8% eftir það.
"Endurgreiðslur hefjast þremur árum eftir námslok. Vextir 0%. Tekjutenging 3,75%.
Frumvarp um Lánasjóð námsmanna:
Arlegar greiðslur tvöfaldast
ÁRLEGAR greiðslur viðskiptafræðings af námsláni sínu hækka
úr 90-100 þúsund á ári samkvæmt núgildandi kerfi í um 200 þús-
und ef frumvarp um Lánasjóð íslenskra námsmanna sem lagt hef-
ur verið fram á Alþingi nær fram að ganga. Greiðslur framhalds-
skólakennara tvöfaldast, hækka úr um 40 þúsund krónum í um
90-100 þúsund krónur á ári, eins og meðfylgjandi línurit bera með
sér. Þau eru endurbirt frá í gær vegna þess að kvarði yfir endur-
greiðslur var ekki réttur.
I framangreindum dæmum er
miðað við einstakling í leiguhús-
næði. Viðskiptafræðingurinn tekur
lán í fjögur ár, samtals 1.728.000
þúsund, en framhaldsskólakennar-
inn í 3 ár, samtals 1.296.000. Við-
skiptafræðingurinn greiðir lánið
upp á milli þrítugs og fertugs, en
framhaldsskólakennarinn er fram-
undir fimmtugt að greiða sitt lán.
Auk þess eru einnig línurit yfir
greiðslur einstæðra foreldra í
námi, einnig viðskiptafræðings og
framhaldsskólakennara.