Morgunblaðið - 21.12.1991, Síða 60
60
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991
<
CQ
k>
6»
Rafkaup
ÁRMÚLA 24 • S: 681518
>xv
<t)
:<y
^vORÆrr/ hás*-0
*?■
Síðasti söludagur
í Jóla-Happói
a
-A/,.
a*l
Milljónir dregnar út
þriðjud. 24. des. (Aðfangadag).
Vinningar birtir
á annan jóladag,
26. desember.
SPENNANW!
- ef þú átt miða!
EES o g full-
veldi Islands
eftir Aðalstein
Sigurðsson
í Tímanum 1. nóvember sl. gefur
Þröstur Ólafsson í skyn að við, sem
erum á moti EES-samningnum,
séum að heyja heilagt stríð að
ástæðulaussu, og jafnframt skorti
okkur rök til stuðnings við málstað
okkar. Ég verð að viðurkenna það,
að margt í þessum samningi get
ég ekki dæmt um, þó sumt sé aug-
ljóst, eins og ég kem að síðar, enn
eru þær upplýsingar, sem almenn-
ingi eru aðgengilegar um hann,
mjög af skornum skammti. Hefi ég
þó eytt heilu kvöldi í það, að hlusta
á Jón Baldvin Hannibalsson skýra
samninginn. í stað þess að ræða
kost og löst á honum hélt Jón um
hann lofræðu eins og hann væri að
draga upp glansmynd fyrir okkur
áheyrendur. Þar kom næstum ekk-
ert neikvætt fram.
Það þarf enginn að segja mér,
að jafn greindur maður og Jón
Baldvin sjái ekkert neikvætt við svo
viðamikinn samning. Það er hins
vegar fráleitt, að hann ferðist um
landið á kostnað okkar skattborgar-
anna og reki áróður fyrir honum,
í stað þess að fræða okkur um hann
eins og hann lætur í veðri vaka að
hann sé að gera.
Það er að sjálfsögðu margt bæði
jákvætt og neikvætt við þennan
SKRIFSTOFUSTÓLLINN
VINNUR MEÐ ÞÉR
HUSGOGN
SKÚLAGATA 61 • REYKJAVÍK
SÍMI 612987 ■ FAX 612981
samning, og skora ég því á Jón
Baldvin, sem auðvitað gjörþekkir
þetta mál, að skýra það fyrir al-
menningi frá báðum hliðum.
Því hefir verið haldið fram, að
EES-samningurinn sé aðeins venju-
legur viðskiptasamningur og geti
því ekki skert fullveldi íslands á
nokkurn hátt. Ég hef hins vegar
aldrei heyrt um það áður, að þurft
hafi að gangast undir viðamikla
lagabálka viðsemjandans til þess
að auðið sé að gera slíka samn-
inga, en þetta gildir þó um EES-
samninginn. Þarna er heldur ekki
um neinn smávægis lagabálk að
ræða, heldur er hann margfalt viða-
meiri en öll íslensku lögin, og verð-
ur því vafalaust að fella. niður eða
breyta ýmsu í okkar eigin lögum
til þess að forðast ósamræmi. Er
þetta ekki skerðing á ákvörðarrétti
okkar?
í fyrmefndri grein Þrastar Ólafs-
sonar heldur hann því fram, eins
og fleiri stuðningsmenn títt nefnds
samnings, að þarna geti ekki orðið
um fullveldisafsal að ræða þar sem
EES-lögin taki ekki gildi nema Al-
þingi samþykki þau. Satt er það,
að samþykki Alþingis þarf til að
koma, en Islendingar hafa fyrr gert
samninga, sem engum dylst, að
fólu í sér fullveldisafsal, eins og við
Noregs konung 1262 og hinn svo-
kallaða Kópavogssamning.
Þó margir mætir menn séu á
Alþingi þá treysti ég þeim ekki svo
vel, að meirihlutinn geti ekki orðið
„svo skelfilega áttavilltuer í tíman-
um“ (eins og Þröstur Ólafsson
kemst að orði um okkur) að hann
samþykki fullveldissafsal að ein-
hveiju leyti. Mér skilst líka, að ann-
aðhvort þurfi að samþykkja allan
pakkann bæði lög og samning, eða
hafna honum. Þar er hætt við að
margs megum við gjalda, ef sam-
þykkt verður.
Þröstur Ólafsson telur dómstól
EB-EFTA eðlilegan. Fyrir því má
færa rök, en hætt er við að hann
verði vilhallur EB, sem skipar meiri-
hluta hans. Hvað verður svo þegar
EFTA-ríkjum fækkar en fjölgar í
EB að sama skapi? Hver verða þá
hlutföllin í dóminum?
Ég er sammála Þresti þegar hann
segir: „Auðvitað má velta vöngum
yfir því hvernig áhrifa þessa samn-
ings kemur til með að gæta meðal
þjóðarinnar. Það má hugleiða áhrif
hans á fasteignamarkaðinn, á vinn-
umarkaðinn, á fjármagnsmark-
aðinn og á hag neytenda. Það er
nauðsynlegt og gagnlegt og væri
einnar messu virði.“ En hvers vegna
eyða forsvarsmenn samningsins
ekki einni „messu“ eða jafnvel fleir-
um á þessa málaflokka? Er það
e.t.v. óhagstætt málflutningi
þeirra?
Aðalsteinn Sigurðsson
„Það tók forsvarsmenn
okkar margar aldir að
endurheimta sjálfstæð-
ið, og við megum ekki
glata því aftur fyrir
vafasama hagsmuni.“
Þröstur telur umræðu um full-
veldisafsal óþarfa og skaðlega. Er
maðurinn hræddur um að hún
skemmi málstað forsvarsmanna
samningsins? Ég tel þá umrseðu
nauðsynlega, enda er um fjöregg
þjóðarinnar að ræða þar sem full-
veldið er.
Það tók forsvarsmenn okkar
margar aldir að endurheimta sjálf-
stæðið, og við megum ekki glata
því aftur fyrir vafasama hagsmuni.
I þessu sambandi vil ég vitna í
kvæði, sem dr. Jón Þorkelsson orti
þegar íslenskir stjórnmálamenn
deildu innbyrðis um samninga við
Dani 1907. Þar segir meðal annars:
„Þeir, sem tólf hundruð og sextíu
og tvö sóru eið fyrir tæling og
ásælnis-vél, þeir, sem kúgaðir voru
í Kópavog undir kvalningar, meið-
ing og hel, hafa afsökun þá, hvern-
ig á þá var sótt með erlendu harð-
ræði og prett, — en hvað sýknar
oss nú, ef vér sækjum það fast að
semja af oss fornan rétt?“
Við getum verið þakklát þeim,
er á þessum tíma og öðrum vörðu
rétt okkar eftir megni, og við meg-
um ekki standa okkur verr nú.
Höfundur er fiskifræðingur og
ellilífeyrisþegi.
STJÓRN Félags eldri borgara í
Reykjavík hefur ent frá sér eft-
irfarandi ályktun:
„Stóm Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni, skorar á
borgarstjórn að halda áfram
greiðslum á hlutdeild ellilífeyris-
þega í kostnaði við sjúkraþjálfun
meðan ekki hefur verið frá því
gengið að Tryggingastofnun ríkis-
ins taki þessar greiðslur að sér“.
W fí ^
-rTFiPrHR
'JeHH.11 g ðS. gg sn g nss m
ÍU1t: ir n u ■ g-g—n.h a h d h Jl1
Æviskrár MA-stúdenta
IV. bindi er komið út
Bókin er 512 bls. meö 508 myndum og nær yfir árin 1964-1968.
Áskrifendur í Reykjavík og nágrenni geta vitjaö bókarinnar hjá forlaginu
að Engjateigi 9 (Verkfræðingahúsið). Einnig má hringja í síma 6861 50
og verður bókin þá send heim. Öðrum verður send bókin í póstkröfu.
Æviskrár MA-stúdenta, II. og III. bindi. ■
Örfá eintök eru enn óseld af II. og III. bindi, og geta nýir áskrifendur
tryggt sér eintak meðan upplag endist.
Frekari upplýsingar í síma 6861 50.