Morgunblaðið - 21.12.1991, Qupperneq 70
70
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991
HVfllR HNAKKAPÚÐAR
- HIKIÐ ÚRVAL
Borgartúni 26,
sími (91) 622262
Verð sleiRS kr. 2.61fi,-
kasta til að siökkva ó
Veri aöeins kr. 1.631,-
Selt I Jólaskeilunni,
Faxafeni
XJöfóar til
Jd fólks í öllum
starfsgreinum!
GuðrúnM. Þorbergs-
dóttír - Kveðjuorð
Fædd 5. maí 1961
Dáin 10. desember 1991
Fyrstu minningar mínar af Guð-
rúnu eru bundnar við að koma í
heimsókn til hennar til Reykjavík-
ur, þegar við bjuggum úti á landi.
Þá mín ég þar sem ég stóð og starði
lotningarfull, hrifin, og svona hálf-
partinn öfundsjúk á litla yngismær,
eldrauðhærða, í fallegum pífukjól.
Hún var að fara í dans. Seinna
meir kom ég oftar inn á þetta heim-
ili eftir að ég fluttist suður. Þetta
heimili á Hverfisgötu 54, þar sem
Regnboginn er nú, var hin mesta
Paradís fyrir börn. Þar var allt til
sem barnshugurinn gimtist. En
þarna buggu afi minn, Þorbergur,
seinni kona hans, Kristín og bömin
þeirra fimm; Ásmundur, Kristinn,
Einar, Stefán og svo eina stúlkan
og yngsta barnið, Guðrún Margrét.
Fleiri bjuggu þarna líka t.d. einn
af eldri bræðmnum; Bragi, sem afi
hafði átt með fyrri konu sinni. Eins
og áður var sagt var þetta ævintýr-
aheimur fyrir krakka. Sumir komu
þarna inn og þótti nóg um að sjá
dót og drasl alls staðar að þeirra
mati en þama voru ævintýrasýning-
ar. Langur gangur var þarna þar
sem tjöld voru fyrir herbergjunum
í stað dyra. Stórkostlegt var að
fara þarna í feluleiki og halda leik-
sýningar bak við tjöldin. Þetta fékk
ég alltaf að upplifa með Guðrúnu
og stundum bræðrum hennar.
Guðrún var einu ári yngri en ég.
Hún virkaði þó oftast eldri en ég.
Persónuleiki hennar var mjög sterk-
ur, sterkur vilji og einurð, ásamt
léttri gamansemi einkenndu hana.
Hún hafði þann frábæra hæfileika
að geta töfrað og heillað allt um-
hverfið upp úr skónum. Þetta þótt
mér undraverður eiginleiki. Guðrún
var skapmikil og hafði oft sitt fram.
Þó hafði hún oft ljúfa og skemmti-
lega framkomu. Hún var virkilega
kraftmikil og ekki fyrir að láta deig-
an síga. Við áttum saman ævintýra-
legar stundir upp í sumarbústað
Fæddur 8. desember 1942
Dáinn 16. desember 1991
Þegar andlát ber að með jafn
skyndilegum hætti og hér varð,
verður mönnum oft orða vant. En
við viljum, með þessum línum,
minnast vinar okkar og samstarfs-
manns til margra ára, Þorsteins
Hermannssonar frá Kambhóli.
Þorsteinn var fæddur 8. desem-
ber 1942 og var því aðeins 49 ára
er hann lést.
Kynni okkar af Þorsteini voru
löng, vegna samstarfs hjá Norður-
verki hf. og Vör hf. Hann var ráð-
inn vinnuvélastjóri hjá Norðurverki
árið 1967 og vann hjá fyrirtækinu
allt þar til það var selt til Reykjavík-
ur 1988, síðustu árin sem verk-
stjóri verkamanna og vinnuvéla-
stjóra. Frá 1988 gegndi hann sömu
störfum hjá Vör.
Ástæður þess að Þorsteinn varð
verkstjóri á sínum tíma voru meðal
annars þeir eiginleikar hans, að
kunna að umgangast samstarfs-
menn sína á þann hátt sem ekki
sem er átthyrndur í laginu (Hexag-
on). Þar grilluðum við pylsur yfir
arineldinum, borðuðum rækjusalat
og salat með majónesi, eplum og
rúsínum á kexi. Fórum í bátsferðir;
gönguferðir og fleira. Eru það
ógleymanlegar minningar. Eitt
sumarið þegar við Guðrún höfum
verið ca. 10-11 ára og Stebbi bróð-
ir hennar svolítið eldri reyndum við
að beijast við að búa til kvikmynd.
Stebbi var kvikmyndatökumaður-
inn. Eftirminnilegt er atriði þegar
Guðrún renndi sér niður lítinn foss
þegar hún var að elta bófann. Því
miður tókst þessi kvikmynd ekki
eins og skyldi en minningarnar iifa
eftir sem áður.
Nokkrum árum seinna urðu at-
burðir sem tengdu okkur saman.
Pabbi minn (hálfbróðir Guðrúnar)
lést snögglega þegar ég var 14
ára. Var það mikið og þungt áfall.
Ári síðar þegar Guðrún var 14 ára
lést pabbi hennar (afí minn).
Skömmu síðar kom Guðrún til mín
með þá uppástungu um að ég myndi
flytja til hennar á Bergstaðastræti
46 upp á ris, en móðir hennar bjó
á neðri hæðinni. Varð það úr þegar
ég var rétt orðin 17 og Guðrún 16
að við bjuggum saman á Bergstaða-
strætinu. Við höfðum ætlað að
mála og gera allt mögulegt saman
í Bergstaðastrætinu sem þó varð
ekki af. Þegar þangað kom, kom í
ljós að hugir okkar hneigðust í ólík-
ar áttir. Eg var með allan hugann
við skólann og fyrsta kærastann
en með honum var ég öllum stund-
um. Guðrún var líka í skóla en átti
marga vini og líf hennar snérist að
mestu um þá og dansinn. Þó ekki
værum við mikið saman á þessu
tímabili, þá á ég margar og góðar
minningar á þessum stað og kynnt-
ist að sjálfsögðu Guðrúnu og Krist-
ínu móður hennar vel. Og reyndar
minni föðurfjölskyldu. Eftir á er ég
mjög þakklát fyrir þetta tímabil sem
var u.þ.b. tvö ár. Einn daginn kynnti
Guðrán mig fyrir þreklegum, ung-
um, rauðhærðum manni, Páli. Kom
er öllum eiginlegur — hann var
fyrst og fremst vinur og samstarfs-
maður, frekar en verkstjóri í þeirri
merkingu sem margir leggja í orðið
og einnig reynsla hans af margvís-
legum framkvæmdum er hann vann
við sém vinnuvélastjóri.
Áður en Þorsteinn hóf störf hjá
Norðurverki hafði hann unnið ýmis
störf tengd landbúnaði og sjávarút-
vegi.
Skólaganga Þorsteins innan hins
almenna menntakerfis var ekki löng
— og engan bar hann titilinn — en
þekking hans og reynsla úr skóla
lífsins var svo yfírgripsmikil að þau
voru ófá skiptin sem verkfræðingar
og aðrir, sem unnu að verktaka-
störfum, leituðu fanga í reynslu-
sjóði Þorsteins þegar góðra ráða
var þörf. Hann var víðlesinn og vel
heima á flestum sviðum. Hafði
ákveðnar skoðanir á mönnum og
málefnum og yndi af að taka þátt
í umræðum um hvaðeina sem bar
á góma.
Mest alla ævi var Þorsteinn
heilsuhraustur, eða kvartaði að
í ljós síðar að þar hafði Guðrán
valið góðan mann. Ætíð síðan hefur
Páll verið umtalaður af öllum í fjöl-
skyldunni sem léttur í lund, einstak-
lega umhyggjusamur, hlýr og nat-
inn maður.
Ekki gerði maður sér grein fyrir
á þessum árum sameiginlegt hlut-
verk þeirra er fram liðu stundir.
Ekkert var eins fjarlægt á þessum
tíma en að þessi kraftmikla stúlka
sem virtist óstöðvandi í atorku ætti
eftir að þurfa að berjast við ban-
vænan sjúkdóm. Stúlka sem hvorki
reykti né drakk og lifði heilbrigðu
lífi og hafði óþrjótandi orku og
dansaði alltaf af lífí og sál. Leiðir
okkar skildu um mörg ár. Mín beið
búseta úti á landsbyggðinni og einn-
ig erlendis. En Guðrán var heima
í Reykjavík, vann hjá Orkustofnun
og ejgnaðist tvö böm, Sigurð Óskar
og Ástu Kristínu sem er 4 ára og
líkist móður sinni. Ekki kann ég
að rekja sjúkdómssögu Guðránar
eða sögu hennar síðustu árin. Hins
vegar vissi ég að veikindi hennar
byrjuðu fyrir u.þ.b. 3-4 árum. Ég
hef bara hitt hana þrisvar á þessum
síðustu árum. Áttum við þá tvisvar
langar umræður saman. Eftirminni-
legt var síðara skiptið þegar Guðrún
sagði mér nákvæmlega frá því þeg-
ar hún hafði legið dauðvona og tek-
minnsta kosti ekki við samstarfs-
menn sína og fáir voru þeir dagar
er hann lét sig vanta í vinnu.
Þó Þorsteinn kvartaði ekki við
samferðamenn sína má vel vera að
hann hafi síðustu misseri kennt
þess sjúkdóms er dró hann svö
skyndilega til dauða.
Snemma á þessu ári komu í ljós
alvarleg veikindi hjá honum og
gekkst Þorsteinn undir aðgerð á sl.
sumri. Ekki er ólíklegt að rannsókn-
ir, aðgerðir, sjúkrahúsvist og endur-
hæfíng hafi reynt á bolrif Þor-
ist að sigra dauðann í það skiptið.
Samgladdist ég henni þá innilega.
Hún sagði mér þá líka að hún hefði
af mörgum verið kölluð „krafta-
verkið“ þegar þetta gerðist og hún
reis upp á ný til þess að starfa í
þágu lífsins. Eftir að Guðrún náði
sér á strik aftur tókst henni t.d.
að verða Islandsmeistari í dansi,
ári síðar. Þótti henni sjálfri það
ótrúlegur árangur eftir það sem á
undan hafði gengið.
Guðrún heimsótti aðra krabba- v
meinssjúklinga eftir að hún náði sér
sjálfri á strik til að þeir fengju
tækifæri til þess að tala við mann-
eskju sem einnig hafði barist við
krabbamein og hefði meiri mögu-
leika að skilja þá en þeir sem ekki
höfðu gengið í gegnum þessa lífs-
reynslu. Efast ég ekki um að þar
hafi Guðrún unnið göfugt starf að
reyna að hjálpa þeim sem áttu um
sárt að binda.
Þegar maður horfir yfír þau 30
ár sem Guðrán lifði hér á jörðinni
þá finnst mér hún skilja margt eft-
ir sig. Lífíð þrátt fyrir allt ekki til-
gangslaust. Lífsþróttur og þýður
hlátur hennar lifa stöðugt í minn-
ingu okkar sem eftir eru. Líf Guð-
ránar skilaði henni ekki því sem
margir sækjast eftir, ríkidæmi,
frægð eða völdum. Hins vegar er
ég viss um að æðri tilgangur með
lífí hennar hefur verið mikill. Sú
lífsreynsla sem hún og Páll gengu
í gegnum sameiginlega, þar sem
þau horfðust í augu við dauðann,
hefur vafalaust verið ógnvekjandi
og nóg til að bijóta flestar mann-
eskjur niður. Eftir því sem ég fæ
best séð var það ekki raunin. Hjá
Guðrúnu og Palla sigraði kærleikur-
inn ótt.ann og þeirra sterka og sam-
eiginlega trá á líf eftir dauðann.
Fyrir mig sem aðstandanda hefur
verið stórkostlegt að sjá að í stað
þess að Palli standi eftir sem niður-
brotinn maður þá stendur nú eftir
andlega sterkur og þroskaður mað-
ur. Guðrún og Palli hafa verið það
sterk í baráttu sinni að ég upplifi
að við sem höfum á einhvem hátt
kynnst því eigum að reyna að end-
urvarpa þeim ljóma, þeim Ijóma þar
sem kærleikurinn og trúin sigra
óttann.
Melkorka E. Freysteinsdóttir
(Kolla)
steins, enda óvanur slíku og viljinn
til að stunda störf sín alltaf í fyrir-
rámi.
Einn er sá þáttur í fari Þorsteins
sem ekki var veigaminnstur í verk-
stjórastarfinu. Það var framkoma
við unglinga. Þolinmæði hans við
þá sem voru að stíga fyrstu skref
sín á vinnumarkaðnum var mikil
og oft miklu meiri en við hinir feng-
um skilið.
Ekki er vafamál að fjölmargt
ungt fólk minnist Þorsteins með
sérstökum hlýhug vegna samstarfs
við hann fyrstu sumur eða ár þess
á vinnustað, þó það hafi e.t.v. ekki
alltaf kunnað að meta leiðbeining-
arnar þegar þær voru gefnar.
Við undirritaðir munum sakna
samvistanna við Þorstein og ávallt
minnast hans með. hlýhug og virð-
ingu. Við þökkum fyrir vináttuna
og samstarfíð, sem aldrei bar
skugga á þessi ár.
Þorsteinn var ókvæntur og barn-
laus og átti mestan hluta ævinnar
heimili á Kambhóli í Arnarnes-
hreppi. Hann verður jarðsunginn í
dag frá Möðruvallakirkju í Hörg-
árdal.
Við sendum systkinum og öðrum
ættingjum Þorsteins innilegar sam-
úðarkveðjur.
Franz Árnason,
Hallgrímur Skaptason,
Páll Sigurjónsson.
Minning:
Þorsteinn Hermanns-
sonfrá Kambhóli
SIEMENS
Litlu raftœkin frá
gleðja augað!
SIEMENS
Kafflvélar, hrœrlvélar, brauðrlstar, vöfflujárn,
strokjárn, handþeytarar, eggjaseyöar,
hraðsuðukönnur, áleggshnífar, veggklukkur,
vekjaraklukkur, djúpstelklngarpottar o.m.fl.