Morgunblaðið - 21.12.1991, Qupperneq 73
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991
73
ugglega til skila til vinkvenna okkar
erlendis. Að loknu námi eiginmann-
anna var þráðurinn tekinn upp að
nýju, og hefur haldist síðan. Það
er því stórt skarð hoggið í vinahóp-
inn okkar.
Fyrir utan saumaklúbbinn höfð-
um við Gullý mjög náið samband.
Og ég get einhvern veginn ekki
ímyndað mér lífið án hennar. Gullý
mín er ekki á sínum stað. Hún var
svo stór þáttur í daglega lífi mínu.
Við deildum saman gleði og sorg.
Og þar átti ég trausta vinkonu.
Vinkonu sem ávallt var tilbúin til
að hlusta á og tala við mig.
Gullý var tilfinningarík og hlý
persóna. Hún var ófeimin og fijáls
í viðmóti, og oft dáðist ég að hversu
ræðin hún var í fjöimenni og vel
inni í öllum málum. Hún kom alveg
sérlega vel fyrir sig orði og skrifaði
mjög skemmtilega. Það verður því
notalegt að geta flett upp í bréfun-
um frá henni sem hún sendi mér
frá Svíþjóð og geta yijað sér um
hjartaræturnar við að rifja upp
gamlar og góðar stundir sem við
Gullý áttum svo margar saman.
Nú þegar Gullý mín er horfin á
braut og ég fæ hennar ekki notið
lengur.
Eins og áður kom fram eignuð-
umst við Gullý báðar börn fyrir um
ári síðan. aldrei gleymi ég tilhlökk-
uninni hjá okkur báðum rétt fyrir
jólin í fyrra. Þá sátum við vinkon-
urnar allar saman og löguðum jóla-
konfekt og óðum styttist í hjá okk-
ur Gullý að litlu gullmolarnir okkar
litu dagsins ljós. Og ófáar voru sím-
hringingarnar á miili okkar, hvernig
líður þér, er ekkert að gerast? Við
biðum báðar í ofvæni. Ekki hafði
mig órað fyrir því þá að engin kon-
fektgerð yrði í ár, við ætluðum að
stefna að henni vikunni eftir af-
mæli litla Baldurs. En elsku Gullý
er ekki lengur á meðal vor.
Gullý átti yndislegan mann, ynd-
islegan vin okkar allra, og yndisleg
þrjú lítil börn. Hún og Teitur höfðu
komið sér upp fallegu húsi í Grafar-
voginum og björt framtíðin virtist
blasa við þeim. En svona er lífíð,
það er ekkert öruggt og sjálfgefíð.
Ég vona að Gullý minni líði vel
þar sem hún dvelur nú, eitthvað
æðra er henni ætlað, eitthvað æðra
sem ég fæ ekki skilið. Einhvern tím-
ann kemur að því að ég fæ að hitta
Gullý vinkonu mína aftur. Ég veit
að hún verður þar þegar kallið kem-
ur.
Við höfum nú misstj Gullý, en
minningin um góða vinkónu er mér
ljóslifandi og áþreifanleg, minning
sem aldrei verður frá mér tekin.
Ég vil þakka Guði fyrir þær ljúfu
stundir sem ég átti með henni og
bið hann að gæta hennar.
Elsku Teitur, Björn, Ásta og
Baldur, megi algóður Guð styrkja
ykkur í sorginni og áfram á lífsleið-
inni.
Sigga Bergmann
Það er verið að undirbúa hátíð-
ina. Matarboðin munu þjappa fjöl-
skyldum saman og jólakortin
styrkja vinatengslin. Þá kemur
fréttin og við erum minnt á smæð
okkar. Vinkona mín er dáin. Allt í
einu virðist allt svo tilgangslaust. I
myrkrinu er þó sólargeisli.Við eig-
um minninguna til að vera þakklát
fyrir.
Ég kynntist Gullý á Svíþjóðar-
árum okkar í Lundi þar sem við
vorum grannar. í útlöndum verður
mikill samgangur og góð samstaða
meðal íslendinga. Við Gullý bjugg-
um í sama hverfi og kynntumst
fljótt. Við urðum nánar vinkonur
ekki síst vegna þess að við eignuð-
umst hressa og pattaralega stráka
á sama tíma. Við þurftum því oft
hvor á annarri að halda til að bera
saman bækur okkar um uppeldi.
Þyrfti önnur að bregða sér frá þá
var barnapössun og bijótagjöf ekk-
ert vandamál. Við sinntum þessu
hvor fyrir aðra án vandkvæða enda
strákunum sama hvaðan gott kom
bara að þeir fengju sopann sinn.
Þegar ég lít yfír myndaalbúmið
má sjá myndir sem tala máli minn-
inganna. Grillveisla í hverfinu.
Gullý, Teitur og við hjónin að spila.
Við Gullý að krókna úr kulda við
að reyna að selja Svíunum íslensku
ullina á torginu á ísköldum laugar-
dagsmorgni.
Það var margt sem við tókum
okkur fyrir hendur og alltaf var
Gullý tilbúin að redda málunum
með bros á vör. Minnisstæðast er
þegar tengdaforeldrar mínir voru í
heimsókn og tengdamamma átti
afmæli. Ég var í skóla og gaf mér
ekki tíma til að halda henni veislu
þann daginn. Þetta barst til eyma
Gullýjar sem brá skjótt við og bauð
okkur öllum í dýrindis kvöldmat.
Eftir heimkomuna til íslands
fækkaði heimsóknunum en Gullý
leit til mín í vinnuna með reglulegu
millibili. Bara til að segja halló eða
þá rétta gleraugun. Síðast hittumst
við í afmælisveislu okkar hjónanna
í september og Gullý var jafn hress
og alltaf>
Örlögin hafa hagað því svo að
tvær ungar konur hafa horfið svip-
lega úr vinahópnum í Svíþjóð.
Heimsóknir Gullýjar verða ekki
fleiri og skammdegið verður enn
svartara. Við Hannes vottum Teiti,
bömunum, foreldrum og systkinum
innilegustu samúð.
Stella
ERFÐASKRÁIN
Verð kr. 1.580.-
KOLA PORTIÐ
M^RKa-ÐXtOfcf
OPIÐ: Laugardag frá kl. 10-16 og sunnudag frákl. 11-17.
o
°
Velkomin í verslunina Jötu, við Laugaveginn ofanverðan.
Hálft hundrað bílastæða norðan búðarinnar.
Það tilheyrir jólunum að fara í Jötuna.
Opið virka daga frá 9 - 22.00
Laugardaga frá 10-22.00
Sunnudaga frá 18-22.00
Sendum í póstkröfu.
l/erslunin
Hátúni 2 ® 25155