Morgunblaðið - 21.12.1991, Qupperneq 83
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991
83
SAMBÍ
I ■■ I ■ ■ I ■ lULMJXI
Sjá auglýsingar frá
Sambíóunum á næstu
opnu fyrir framan
BÍÓHÖLLIN - BÍÓBORGIN - SAGA-BÍÓ
Furðulegt fjölskyldulíf
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Addamsfjölskyldan („The
Addamsfamily“). Sýnd í
Háskólabíói. Leikstjóri:
Barry Sonnenfeld. Hand-
rit: Caroline Thompson
og Larry Wilson. Aðal-
hlutverk: Anjelica Hus-
ton, Raul Julia, Christop-
her Lloyd. Orion. 1991.
Nyjasta jólamyndin í
kvikmyndahúsum Reykja-
víkur í ár er gaman-
hryllingsmyndin Addams-
fjölskyldan en hún var
frumsýnd í Bandaríkjunum
í þessum mánuði og hefur
halað inn ógi’ynni af doll-
urum vestra. Þar þekkja
menn líka vel sjónvarps-
þættina frá 1964, sem
myndin er gerð eftir, og
skopteikningarnar eftir
Charles Addams í „The New
Yorker“, en hann var höf-
undur Addamsfjölskyldunn-
ar.
Hún er því ekki alókunn
fólki vestra eins og hún er
hér heima þar sem fáir ef
nokkrir þekkja þessa kynd-
ugu fjölskyldu. Það er alveg
þess virði að kynnast henni.
Addamsarnir, hjónin Anj-
elica Huston og Raul Julia
Raul Julia og Anjelica Huston í Addamsfjölskyldunni.
með tvö börn sín, gera út á
svartan húmor eins og hanh
verður svartastur og þau
búa í samræmi við það. Ollu
þvi sem okkur þykir kært
og gott þykir þeim fásinna
ein. „Ertu ekki óhamingju-
söm?“ spyr Julia konuna
sína. „Jú, frábærlega,“
svarar hún alsæl. Börnin
eru sífellt að koma sér í
hræðileg vandræði. Leik-
föngin eru pyntingartól af
ýmsum stærðum og gerð-
um, janfnvel heill raf-
magnsstóll. Þjónn þeirra er
eins og Frankenstein sjálf-
ur, þau geyma fullkomna
norn í kjallaranum og gælu-
Fleiri prakkarastrik
Kvikmyndir
Amaldur Indriðason
Prakkarinn 2 („Problem
Child 2“). Sýnd í Laugarás-
bíói. Leiksljóri: Brian Le-
vant. Aðalhlutverk: John
Ritter, Michael Oliver,
Jack Warden, Amy
Yasbeck. Bandaríkin.
1991.
Prakkarinn í samnefndri
gamanmynd Laugarásbíós
er lítill rauðhærður og frekn-
óttur óþekktarangi sem vílar
ekki fyrir sér að fremja
skelfilegustu hrekki á þeim
sem hann hefur vanþóknun
á. Hans siðblinda hugarfar
skapaði vinsældir sem rétt-
lættu framhaldsmynd.
Prakkarinn 2 er nákvæmlega
eins og fyrirrennarinn,
ómerkileg í alla staði.
Ekki er nóg með að sami
brandarinn sé endurtekinn
aftur og aftur (hversu oft er
hægt að hlægja að sömu
prakkarastrikunum?), heldur
er hann á einkar lágu plani
í þetta sinn. Miðpunkturinn
er óhemjulangur og ósmekk-
legur ælubrandari í tívolíi þar
sem bunurnar ganga upp úr
fólki í að manni finnst nokkr-
ar mínútur.
En manni leiðast ekki ein-
göngu < prakkarastrik
stráksa, sem kannski yngstu
krökkunum þykja smellin,
sagan er svo væmin í þokka-
bót að það er með ólíkindum.
Sjónvarpsleikarinn John
Ritter, sem alltaf virðist í
vandræðum með sjálfan sig,
fer með aðalhlutverkið, leik-
ur fósturföður litla skrímslis-
ins. Hann flytur í nýtt hverfi
og millakerling fær augastað
á honum og vill giftast hon-
um — guð má vita af hveiju
— en stráksi vill hann giftist
hjúkrunarkonunni í skólan-
um sínum, indælli í alla staði.
Að fáu er hlægjandi í
myndinni, ef nokkru. Verið
er að tutla restinni af hug-
myndinni á filmu og kastað
mjög til þess höndunum.
Stærsta prakkarastrikið er
myndin sjálf.
ISLENSKA OPERAN sími 11475
'TöfrafCautan
IWMMMI
cftir W.A. Mozart
Örfáar sýningar eftir.
Sýning föstudaginn 27. des. kl. 20.00, uppselt.
Ósóttar pantanir verða seldar í dag.
Sýn. sunnudaginn 29. desember kl. 20.00.
Sýn. föstudaginn 3. janúar kl. 20.00.
Ósóttar pnntanir cru scldar tvcimur dögum fyrir sýningardag.
Töfrandi jólagjöf: Gjafakort í Óperuna!
Miðasalan opin frá kl. 15.00-19.00 daglega og
til kl. 20.00 á sýningardögum. Sími I 1475, | |
dýrið er afskorin hönd sem
þeytist um alla ganga, teflir
skák og klórar húsbónda
sínum í hausnum.
Þegar við komum til sögu
syrgir Addamsfjölskyldan
föðurbróðirinn Fester en
glæpahyski sem girnist íjár-
sjóð Addamsanna sér að
einn af þeim er nauðalíkur
honum og dulbýr hann sem
Fester (Christopher Lloyd)
og sendir „heim“ við mikinn
fögnuð fjölskyldunnar.
Hann á að komast að því
hvar fjársjóðurinn er
geymdur en leiðin þangað
reynist honum ekki auðveld.
Myndin er að sönnu
frumleg um margt og eink-
ar vel gerð að öllu því sem
snýr að kvikmyndatöku,
leikmyndum og búningum
að ekki sé talað um leikinn,
sem er mjög góður. Tækni-
brellurnar eru líka fyrsta
flokks. Það er ekki nóg með
að húmorinn sé kolsvartur
heldur er svart yfirgnæf-
andi litur myndarinnar og
hæfir efninu vel. Drauga-
legt húsið er illa lýst og
drungalegt, klæðnaðurinn
er allur svartur og persón-
.urnar dökkar yfirlitum.
Huston er eins og sambland
af norn og söngkonunni
Cher, svartklædd frá hvirfli
til ilja en náhvít í framan
með eldrauðar varir og afar
kynþokkafull. Lloyd er með
bitastæðasta hlutverkið
sem Fester og gerir því sér-
lega góð skil með hausinn
að eilífu grafinn oní munk-
akufli og með skoplegan
undrunarsvip yfir öllu því
sem fram fer í húsinu. Julia
er sprækur og hressilegur
skylmingakappi í líkingu vi
Eroll Flynn og börnin tvö
falla fullkomlega í hlutverk
sín.
Húmorinn svarti hentar á
okkar tímum og myndin er
kærkomin tilbreyting frá
væmnum fjölskyldulýsing-
um bandarískra bíomynda.
En á endanum reynist hand-
ritið rýrt, söguþráðurinn
varla upp á marga físka og
brandararnir, sem allir snú-
ast um þá grunnhugmynd
að það sé skemmtilegast að
vera vondur, missa aðdrátt-
araflið þegar líða fer á
myndina og þeir verða allir
tilbrigði við sama stef í leik-
stjórn Barry Sonnenfelds.
Á marga þeirra vantar
lokahnykkinn alveg eins og
það vantar lokahnykkinn
hér til að gera ágæta mynd
frábæra.
J5b
1
Rómeó og Júli'a
eftir William Shakespeare .
Frumsýning 2. jóladag kl. 20,
uppselt,
2. sýn. fös. 27. des. kl. 20,
3. sýn. lau. 28. des. kl. 20,
4. sýn. sun. 29. des. kl. 20,
5. sýn. lau. 4. jan. kl. 20,
6. sýn. sun. 5. jan. kl. 20,
7. sýn fim. 9. jan. kl. 20.
H
mijties
er &
a
eftir Paul Osborn
Fös. 3. jan. kl. 20. Fim. 16. jan. kl. 20.
Lau. 11. jan. kl. 20. Sun. 19. jan. kl. 20.
Fös. 10. jan. kl. 20.
Mið. 15. jan. kl. 20.
LITLA SVIÐIÐ:
eftir David Henry Hwang
Lau. 18. jan. kl. 20.
JEIENA
eftir Ljudmilu Razumovskaju
Fim. 2. jan. kl. 20.30, uppselt.
Fös. 3. jan. kl. 20.30, uppselt.
Mið. 8. jan. kl. 20.30.
Fös. 10. jan. kl. 20.30.
Lau. II. jan. kl. 20.30.
Mið. 15. jan. kl. 20.30.
Fim. 16. jan. kl. 20.30,
50. sýning.
Lau. 18. jan. kl. 20.30.
Sun. 19. jan. kl. 20.30.
BUKOLLA
barnalcikrit cftir Svein Einarsson.
Sýn. lau. 28. des. kl. 14.
Sun. 29. des. kl. 14.
Sun. 5. jan. kl. 14.
Lau. 11. jan. kl. 14.
Sun. 12. jan. kl. 14
Síöustu sýningar.
Gjafakortþjóðleikhússins - ódýr ogfalleg gjöf
Miöasalan cr opin frá kl. 13-18 alla daga nema mánudaga og
fram aö sýningu sýningardagana. Auk þess er tekið við pöntun-
um i síma frá kl. 10 alla virka daga.
Creiöslukortaþjónusta - Græna línan 996160.
Leikhúskjallarinn er opinn öll föstudags- og laugardagskvöld.
FRUMSÝNINGARGESl'IR: Sérstakur fjórréttaöur hátíðar-
matseðill 2. jóladag. Borðapantanir í miðasölu.
Lcikhúskjallarinn.
ATH. SYNINGAR HEFJAST KL. 16.30 A ÞORLAKSMESSU
Ómótstæðileg teiknimynd með íslensku tali, full af
spennu, alúð og skemmtilegheitum. Óliver og Ólafía
eru munaðarlaus vegna þess að Hroði, fuglinn ógur-
legi, át foreldra þeirra. Þau ákveða að reyna að safna
liði í skóginum til að lumbra á Hroða.
ATH. ISLENSK TALSETNIIMG
Leikst)óri: Þórhallur Sigurðsson. Aðalhlutverk: Bessi
Bjarnason, Ragnheiður Steindórsdóttir, Sigurður Sig-
urjónson, Laddi, Örn Árnason o.fl.
Sýnd kl. 3, 5 og 7. Miðaverð kr. 500.
0 CARMELA Sýnd kl. 9 og 11. - ★★★ ri.K. dv.
HOMO FABER Sýnd kl. 7,9 og 11.
FRUMSÝNIR JÓLAMYNDINA
BIUJNO
KIRBY
isTLIa'
CKYöTAL
FUGLASTRÍÐIÐ í LUMBRUSKÓGI
ASTRIKUROG
BARDAGINN MIKLI
' W\'
' A l
JW-
Sýnd kl. 3.
Miðaverð kr. 300
★ ★ ★ I.Ö.V. DV.
Sýnd kl. 5, 7, 9og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
LUKKULÁKI
Sýnd kl. 3.
Miðaverð kr. 300.
FELIX
Sýnd kl. 3.
Miðaverð kr. 300.
DAN’IFL
STEKN
Aldeilis frábær gamanmynd í hæsta gæðaflokki, sem
fær þig til að engjast um öll gólf. Þegar við segjum
grín, þá mcinum við gríííín.
Billy Crystal og félagar komu öllum á óvart í Banda-
ríkjunum í sumar og fékk myndin gríðarlega aðsókn;
hvorki meira né minna en 7.800.000.000 kr. komu í
kassann.
Komdu þér í jólaskapið með því að sjá þessa mynd.
★ ★ ★ A.I. MBL.
Aðalhlutverk: Billy Crystal, Daniel Stern,
Bruno Kirby, Helen Slater, Jack Palange.
Sýnd kl. 4.30,6.45,9 og 11.15.
UNGIR HARÐJAXLAR