Morgunblaðið - 22.04.1992, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1992
Borgarráð:
Malbik frá Esso í Frakk-
landi fyrir 55,8 milljónir
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
tillögu Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar um að taka
Ryk truflaði
reykskynjara
SIGDÍSI, einni af nýju Fokker
vélum Flugleiða, var snúið aftur
að flugstöðvarbyggingunni á
Reykjavíkurflugvelli í gær rétt
fyrir flugtak, þegar aðvörunar-
Ijós frá reykskynjara kviknaði um
borð í vélinni.
Að sögn Einars Sigurðssonar,
blaðafulltrúa Flugleiða, var ekki um
reyk að ræða heldur geti ryk úr
farangursgeymslu hafa orsakað
þessa aðvörun. „Þessi tæki í vélunum
eru afar næm, sem er betra heldur
en hitt,“ segir Einar.
55,8 milljóna króna tilboði Esso
í Frakklandi, umboðsaðili Ol-
íufélagið hf., í 8.500 tonn af
malbiki fyrir Malbikunarstöðina.
Átta tilboð bárust í malbik til
stöðvarinnar og voru sjö tilboðanna
miðuð við mismunandi listaverð og
eru því háð breytingum á olíumörk-
uðum. í bréfi Malbikunarstöðvar-
innar kemur fram, að ástæða hafi
verið til að kanna tvö tilboðanna,
þar sem þau þóttu áberandi hag-
stæðust. Annað var frá Klöckner,
Hollandi, fyrir hönd Petroleum del
Norte frá Spáni og hitt frá Olíufé-
laginu hf., fyrir hönd Esso í Frakk-
landi. Borið er saman listaverð til-
boðanna síðustu 27 mánuði og
kemur þar fram að tilboðin eru
mjög svipuð miðað við verð daginn
fyrir opnun tilboðanna. Klöckner
veitir 10 daga greiðslufrest en Esso
um 30 daga frest að meðaltali.
í bréfinu segir ennfremur: „As-
falt fyrir árið 1991 var keypt af
Esso í Frakklandi, en Klöckner og
Petroleum del Norte hafa ekki áður
verið þátttakendur í asfaltútboði
frá okkur, en samkvæmt gögnum,
sem við höfum fengið, má telja,
að þeir uppfylli þær kröfur, sem
gera þarf til afhendingar- og fram-
leiðsluaðila. Hins vegar verður að
teljast æskilegt, að umboðsmaður
sé til staðar hérlendis, þó að það
hafi ekki verið skilyrt í útboðinu.
Munur á tilboðunum er ekki mikill
og framvindan ekki augljós, en lagt
er til að tilboði frá Olíufélaginu hf.
fyrir hönd Esso í Frakklandi verði
. tekið og pantað verði lágmarks-
magn 8.500 tonn samkvæmt út-
boði, sem gerir samtals miðað við
listaverð 1. apríl um 55,8 milljónir
króna.“
VEÐUR
I/EÐURHORFUR I DAG, 22. APRIL
YFIRLIT: Yfir vestanverðu Grænlandshafi er kyrrstæð 990 mb lægð.
Um 1.300 km suðsuövestur í hafi er vaxandi 1.000 mb lægð á hreyfingu
norður og síðar norðvestur. Hiti breytist lítið í fyrstu, en ó morgun hlýn-
ar dálítið.
SPÁ: Allhvöss eða hvöss austanátt og rigning syðst á landinu en gola
og nokkuð bjart veður á Norðurlandi og á Vestfjörðum. Skúrir austan-
lands. Hiti á bilinu 4-9 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Austanátt, nokkuð hvöss
um sunnan- og vestanvert landið. Rigning víða um land, einkum suð-
austantil. Hiti á bilinu 3-8 stig.
Svarsimi Veöurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
•D
▼
Heiðskírt
/ / /
/ /
/ / /
Rigning
Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað
* / *
* /
/ * /
Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Alskýjað
*
V V V
Skúrir Slydduél Él
$
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyik,
heil fjöður er 2 vindstig.
10° Hitastig
v Súld
= Þoka
itig..
FÆRÐA VEGUM: <k 17so.gær,
Góð færð á vegum í nágrenni Reykjavíkur og um Suðurnes. Einnig um
Hellisheiði, Þrengsli og Mosfellsheiði. Vegir á Suðurlandi eru yfirleitt
þokkalega færir og fært er með suðurströndinni austur á Austfirði. Á
Austfjörðum er vlðast greiðfært og búið að moka heiðar sem urðu ófær-
ar í hretinu um páskana. Greiðfært er fyrír Hvalfjörð um vegi f Borgar-
firði, á Snæfellsnesi, um Dalasýslu og vestur í Reykhólasveit og Bratta-
brekka er fær. Frá Brjánslæk er fært til Patreksfjarðar og þaöan til Bíldu-
dals. Fært er um vegi á millí Þingeyrar og ísafjarðar og þaðan um Isa-
fjarðardjúp og Steingrímsfjarðarheiði. Greiðfært er um Holtavörðuheiði
til Hólmavíkur og Drangsness. Greiðfært um alla aðalvegi á Norður-
landi, og Lágheiði var mokuð i dag. Frá Akureyri er fært um Þingeyjar-
sýslur, f Mývatnssveit og með ströndinni til Vopnafjarðar. Möörudalsör-
æfí og Vopnafjarðarheiði voru mokuð í dag. Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA
U 12.00 í gær
hltl
UM HEIM
að ísl. tíma
veður
Akureyri 10 skýjað
Reykjavik 4 slydduél
Bergen 8 alskýjað
Helsinki snjóél
Kaupmannahöfn 10 skýjað
Narssarssuaq +10 léttskýjað
Nuuk +8 skýjað
Ósló 8 skýjað
Stokkhólmur 4 hálfskýjað
Þórshöfn 8 rigning
Algarve 23 heiðskírt
Amsterdam 14 skýjað
Barcelona 17 heiðskfrt
Berifn 11 skýjað
Chieago vantar
Feneyjar 16 heiðskírt
Frankfurt 14 skýjað
Glasgow ð skýjað
Hamborg 10 skýjað
London 15 skýjað
Los Angeles vantar
Lúxemborg 14 skýjað
Madríd 25 léttskýjað
Malaga vantar
Mallorca 22 heiðskírt
Montreal vantar
NewYork vantar
Orlando vantar
París 18 heiðsklrt
Madeira 23 léttskýjað
Róm 17 heiðskirt
Vln 10 léttskýjað
Washlngton vantar
Winnlpeg vantar
I DAG kl. 12.00
Heimiid: Veðurstofa (siands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 I gær)
STEKKJARBAKKI
BREIÐHOLT
SELJAHVERFI
Hafin verður lagning áfram
halds Breiðholtsbrautar í
átt að Suðurlandsvegi í ár
Vatnsenda-
hvarf
Elliðavatn
Breiðholtsbrautin
tengd Suðurlandsvegi
Ný brú verður smíðuð yfir Elliðaárnar
Á VEGAÁÆTLUN þessa árs er gert ráð fyrir að bjóða út lagningu
vegar er tengir Breiðholtsbraut við Suðurlandsveg við Rauðavatn.
Jafnframt er gert ráð fyrir nýrri brú yfir Elliðaár ofan við skeiðvöll-
inn í Víðidal. Áætlaður heildarkostnaður vegna framkvæmdanna er
um 200 milljónir, þar af er gert ráð fyrir 20 milljóna króna fjárveit-
ingu á þessu ári.
Um er að ræða tæplega tveggja
km veg frá Rauðavatni yfir Elliðaár
að Breiðholtsbraut, til móts við
Yrsufell og Völvufell en þar verður
hringtorg. Gert er ráð fyrir undir-
göngum undir veginn á tveimur
stöðum fyrir hestamenn og göngu-
fólk. Undirbúningur er þegar hafinn
og verður verkið boðið út í haust,
að sögn Rögnvaldar Jónssonar,
umdæmisverkfræðings Reykjanes-
umdæmis.
„Við höfum eingöngu fjárveitingu
til byijunarframkvæmda á þessu ári
en gert er ráð fyrir að þeim ljúki á
næsta ári,“ sagði hann. „Byggð
verður ný 50 metra brú yfir Elliðaá
og verður gert ráð fyrir tveimur
akreinum, einni í hvora átt í þessum
áfanga en í framtíðinni er gert ráð
fyrir tveimur akreinum í hvora átt.
Þegar þessi tenging er komin er
gert ráð fyrir að þeir sem koma
akandi úr Hafnarfirði, Garðabæ,
Kópavogi og Breiðholti velji þessa
leið þegar farið er um Suðurland.
Þetta styttir leiðina töluvert."
Verkið er boðið út í einum áfanga
og er gert ráð fyrir að framkvæmd-
ir heijist í haust.
i
\
i
i
Brotist inn í Búnaðarbankann:
Tveir teknir með
kúbein og sleggju
TVEIR MENN voru handteknir að morgni föstudagsins langa eftir
að þeir höfðu brotist inn í útibú Búnaðarbankans á Vesturgötu. í
fórum mannanna fundust tvö kúbein og sleggja sem notuð höfðu
verið við innbrotið.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni fór sjálfvirkt þjófavarnar-
kerfi í gang í bankanum eftir að
mönnunum tveimur hafði tekist að
komast inn í útibúið um glugga á
bakhlið þess. Þar brutu þeir upp
millihurð og rótuðu til á einni skrif-
stofunni en höfðu ekkert upp úr
krafsinu og raunar munu þeir hafa
flúið af vettvangi skömmu eftir að
þeim tókst að bijóta sér leið inn í
bankann.
Glöggur vegfarandi veitti athygli
rauðri bifreið sem ekið var frá bank-
anum og lét lögregluna vita af
henni. Skömmu síðar var bifreiðin
stöðvuð á Hringbrautinni. Við leit
í bifreiðinni fundust kúbeinin og
sleggjan og munstur á íþróttaskóm j
annars mannsins passaði við fótspor
sem fundust í mold bakvið bank-
ann. Að sögn lögreglu hafa menn-
irnir báðir komið við sögu hennar
áður.
Trilla og bátur dregin í
land vegna vélarbilana
BÁTURINN Katrín GK 98 lenti í vandræðum snemma í gærmorgun
þar sem hann var staddur um 6 sjómílur útaf Svörtuloftum á Snæ-
fellsnesi. Sjór hafði komið í vélarrúm og drepist á vélinni. Báturinn
þurfti því aðstoð við að komast í land. Þá varð trillan Sær KO 35
fyrir vélarbilun og var dregin í Iand í gær. Engin hætta var á ferðum
í þessum tilfellum.
Haft var samband við Björgun-
arsveit Slysavarnafélagsins á
Hellissandi sem fékk bátinn Esjar
SH 75 til aðstoðar Katrínu GK 98.
Esjar var með öll sín net um borð
og mátti ekki leggja þau fyrr en
kl. 10 í gærmorgun. Er Esjar hafði
lagt netin tók hann Katrínu í tog
og dró hana inn á Rif. Þangað var
komið um kl. 16 í gærdag.
Lítil tveggja tonna trilla, Sær
KO 35, varð fyrir vélarbilun á
Syðra-Hrauni vestur af Hvalfirði í
gær. Óskað var eftir bát til að draga
trilluna í land, en engin hætta var
á ferðum. Slysavarnafélagið bauðst
til að aðstoða trilluna, en áhöfnin
vildi enga fyrirhöfn heldur beið eft-
ir báti á landleið. Aðalbjörg II. RE
236 dró trilluna síðan að Gróttu þar
sem annar bátur frá Kópavogi dró
hana til heimahafnar.
i