Morgunblaðið - 22.04.1992, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.04.1992, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1992 Ástralíufararnir efri röð frá vinstri: Sig-urður Þór Sigurðsson véla- verkfræðingur hjá ísal, Einar Falur Ingólfsson blaðamaður á Morg- unblaðinu og Björn Marinó Pálmason mjólkurfræðingur. Fremri röð f.v.: Guðlaug Jóhannsdóttir aðstoðarfararstjóri, Halla Bachmann Ólafsdóttir héraðsdómari og Ómar Steindórsson flugvirki og farar- sijóri. Rotary; Fjögnr ungmenni til dvalar í Astralíu FJÖGUR íslensk ungmenni, á aldrinum 25-35 ára, og einn farar- sljóri og eiginkona hans, héldu nýlega til fimm vikna dvalar í Ástral- íu í boði Rotary-sjóðsins. Um er að ræða skiptihópadagskrá, en hing- að til lands koma í sumar sex áströlsk ungmenni og einn fararstjóri og dveljast hér í rúman einn mánuð, að sögn Gísla Jónssonar prófess- ors sem er formaður nefndar Rotary, sem sér um þessi samskipti. f FJARLÆGÐ Guðlaugur Hrafn Ólafsson og Ragnar Nikulásson í hlutverkum Daníels og Jóhanns. Þetta er í fimmta sinn sem ís- lensk ungmenni fara útan á vegum Rotary-sjóðsins. 400 slíkar heim- sóknir eru í gangi á hveiju ári en Rotary-sjóðurinn, sem er í Banda- ríkjunum, veltir árlega hátt í 40 milljónum dollara. Markmiðið er einkum að stuðla að auknum kynn- um milli þjóða. Þátttakendur þurfa að hafa unnið í viðurkenndri starfs- grein í minnst tvö ár og mega hvorki vera skyldir né tengdir fólki í Rot- ary-hreyfingunni. Um er að ræða samskipti milli tveggja Rot|py- umdæma, íslands og Sóuth Queens- land, Papua, Nýju Gíneu og Salóm- ónseyjanna. Að sögn Gísla er stíf áætlun í gangi þessar fimm vikur, þátttakendum eru kynnt land og þjóð og búið er á heimilum Rotary- félaga. Rotary-sjóðurinn greiðir fargjöld en umdæmið þar sem dval- ist er, sér um allt uppihald. Þátttakendur eru valdir þannig að hveijum Rotary-klúbbi er heim- ilt að leggja inn tvær umsóknir og nefndin velur úr þeim umsóknum sem berast sem voru 13 að þessu sinni. Fararstjóri verður Qmar Steindórsson og hans kona er Guð- laug Jóhannsdóttir. Aðrir þátttak- endur eru Halla Bachmann Ólafs- dóttir héraðsdómari, Björn Marinó Pálmason framkvæmdastjóri, Einar Falur Ingólfsson blaðamaður og Sigurður Þór Ásgeirsson vélaverk- fræðingur. _________Leiklist___________ Súsanna Svavarsdóttir Sjónvarpið, Allt gott. Höfundur: Davíð Oddsson. Leikstjóri: Hrafn Gunnlaugsson. Leikmynd og búningar: Karl Júliusson. Tónlist: Hilmar Örn Hilmarsson. Myndataka: Ari Kristinsson. „Allt gott“ er byggt á endur- minningum höfundar; minningum um þann tíma í lífi barnsins þegar heimurinn er ekki flóknari en það að hann er samsettur úr himni og jörðu. Það eru þessi ár, þegar maður er ekki orðinn nógu læs til að meðtaka flækjur fortíðar og sakleysið svo einlægt að einu væntingarnar sem maður gerir til framtíðarinnar er að fá eitthvað gott í munninn. Lífið er algert ,,nú“ og ekkert annað skiptir máli. Eg held að margir geti verið sam- mála um að einmitt sá tími er skemmtilegastur í lífinu — svo innilega áhyggjulaus. Sagan af þeim Jóa og Daníel, vini hans, í „Allt gott,“ sem eiga sér þá ósk heitasta að fá hvítt amerískt tyggjó, er virkilega sæt, án þess að vera á nokkurn hátt væmin. Strákarnir lifa nokkuð vemduðu og öruggu lífi, en eru að stíga sín fyrstu skref til sjálf- stæðis og uppgötva þarmeð hætt- urnar sem liggja utan við móður- faðminn eða lítinn guðrækinn heim ömmu — því eins og títt er, gleyma uppalendur stundum að kynna hætturnar fyrir börnunum. En í leikriti Davíðs er það Fúsi, ævin- týramaðurinn sem tekur áhættur í lífinu, sem gerir sér grein fyrir hvert strákarnir eru komnir. Hann þekkir hættumar og sviptir þeim Jóa og Daníel yfir fyrstu lífsreynsi- una. Frá höfundarins hálfu er sagan einlæg, vel uppbyggð og skemmti- leg: Á einfaldan hátt opinberar hann saklausa lífssýn drengjanna, guðrækna lífssýn ömmunnar, lífs- sýn Fúsa sem er meira utanveltu en utangarðs og lífssýn kaup- mannsfjölskyldunnar sem finnst eðlilegt að njóta forréttinda og leggur áherslu á að aðrir viti það. Þessi margþætta afstaða til lífsins þrífst svo öll í einu og sama þorp- inu. Úrvinnslu verksins var ég ekki eins hrifin af. Drengirnir, Ragnar Nikulásson, sem leikur Jóhannes, og Guðlaugur Hrafn Ólafsson, sem leikur Daníel, stóðu sig ágætlega, en hefðu þurft lengri undirbúning. Til að skila sakleysi drengjanna hefðu þeir þurft að kunna nægi- lega vel á tökuvélina til að leika í meiri nærmynd. Skotin á þá.voru of löng og þá fær maður á tilfinn- inguna að leikararnir séu óöruggir — svipbrigðaleysi þeirra virkaði ekki sannfærandi. En þótt maður geti vel unað börnum þess að leika á sínum reynsluleysis forsendum — og not- ið þess að horfa á þau, verður ekki það sama sagt um fullorðna. Mér er í rauninni alveg óskiljanlegt að leikstjórinn skyldi ekki velja atvinnuleikara í hlutverk fullorðna fólksins í verkinu. Það er engum áhugamanni gerður greiði með því að kasta honum fyrir framan myndavél — jafnvel þótt hann geri býsna góða hluti á sviði. Enda var það svo, að svipbrigði, raddbeiting og allt látbragð var stirt og texta- meðferð ekki nógu skýr. Það fór ekki á milli mála að allt þetta fólk var að gera sitt besta, en hefur bara ekki þá tækni og reynslu að það nægði til að skila anda verks- ins. Mér fannst ég því fremur vera að horfa á sögu en að upplifa þá tilfinningu sem liggur henni að baki. Það er synd, því sagan hafði ágætis burði til að snerta mann. Umgjörð sögunnar var h'ka skemmtileg, búningar, leikmyndin og tónlistin undirstrikuðu andblæ hennar og tíma, þótt mér hafi fundist mega vera eitthvað af stemmningum úr þorpinu, fremur en að fylgja drengjunum alveg stíft eftir. Myndatakan var ágæt, en leið helst fyrir þær takmarkanir sem felast í því að sjónarhorn hennar er of þröngt, þegar samfé- lag sögunnar er annars vegar, en of vítt, þegar að persónunum kem- ur — það er að segja kemst ekki nógu nálægt þeim til að skila upp- lifun. Það verður allt svo fjarlægt. MEÐAL ANNARRA ORÐA Draiimsnillingnr eftir Njörð P. Njarðvík „Við eigum ekki nema einn mann,“ segir í íslandsklukkunni ... „Og aldrei um eilífð verður til neitt Island utan það ísland sem Arnas Arnæus hefur keypt fyrir sitt líf.“ Þessi óvænta yfirlýsing skálds- ins Jóns Marteinssonar kemur ósjálfrátt í huga mér nú, þegar Halldór Laxness verður níræður á morgun, sumardaginn fyrsta þegar harpa byijar. Árnas Arnæus (Árni Magnússon) helg- aði líf sitt söfnun hugsana og minninga þessarar þjóðar sem hefur fætt okkur af sér. Þann arf höfum við öll fengið í vöggugjöf og er okkur dýrmætari en við getum nokkurn tíma gert okkur grein fyrir. En enginn lifir af ein- um saman arfi, heldur af sjálfum sér. Til þess höfum við hlotið þennan arf að endurnýja hann í sífeilu, svo að hann verði í senn lifandi veruleiki okkur sjálfum og endumýjaður og aukinn arfur börnum okkar og svo kynslóð eft- ir kynslóð í hinu linnulausa fjarg- viðri - óstöðugleikans. „íslands/ óhamingju/ verður allt að vopni,“ segir í Ijóðkomi Bjama Thorarensens um Baldvin Einarsson. En þrátt fyrir þá grimmu staðreynd er samt eins og „hulinn verndarkraftur“ vaki yfir örlögum þessarar fámennu þjóðar. Var það þessi verndar- kraftur, sem sá til þess að við eignuðumst aftur bókménntir að færa heiminum til sönnunar á til- verurétti okkár meðal þjóða? Var það rökrétt þörf þjóðar sem er að rísa úr öskustó aldalangrar örbirgðar? Ef til vill. En ekki sýnd- ist beinlínis augljóst á fyrStu tveimur tugum þessarar aldar, áð heimufinn tæki tveim höndum óþekktum rithöfundum frá óþekktu landi sem báru fram Verk sín á óþekktri tungu. Jóhann Sig- uijónsson og Gunnar Gunnarsson ruddu þá braut, en þeir töldu óhjá- kvæmilegt að beita tungu herra- þjóðarinnar til að sigra heiminn. Þeim tókst það og það er ekki lít- ið afrek. Og litlu munaði að Hall- dór Laxness gengi svipaða braut vestur í Kaliforníu: En þá var sál mín þar sem holtið grátt og þúfan mosarauða býr við kal, og bæarfjallið blasir yfir dal, og berst í kvíða þjóðarhjartað smátt. Hin sérstaka rödd Ég held að enginn vildi nú hugsa þá hugsun til enda, að Halldór Laxness hefði gerst rit- höfundur á enska tungu. Hann valdi þá leið sem sýnist erfiðari: að sigra heiminn heima hjá sjálf- um sér á tungu forfeðra sinna. Og þegar betur er að hugað, þá blasir við að einmitt þessi leið er fallin til árangurs, þótt ógreiðfær sýnist. Til að sigra heiminn þurfa menn að sigrast á sjálfum sér. Þess Vegna þurfti Halldór Laxness að sigra þjóð sína sem rithöfund- ur. Frá Islandi þarf heimurinn ekki eftirlíkingu eða bergmál þess sem hann á gnótt af sjálfur, held- ur hina sérstöku rödd sem ekki heyrist annars staðar. Það skyldu þeir muna sem falla í stafi yfir einradda kór einkennalausrar íjölmiðlunar. íslenskur rithöfund- ur verður að Iæra á þá galdralæs- ingu sem lýkur upp launhirslum íslenskrar tungu og öllum afkim- um sem leynast í sameiginlegum minningum þjóðarinnar. Og þá öðlast hann þá lind sem aldrei þrýtur. í því er fólgið dýrmæti arfsins. Því að aldrei um eilífð verður til neitt ísland utan það Island sem við höfum keypt fyrir líf okkar. íslenska þjóðin var lengi að læra að skilja þessa hamhleypu sem lofsöng hana með því að segja henni til syndanna. Á fjórða ára- tugnum voru afköst hans með ólíkindum: Salka Valka (2 bindi), Sjálfstætt fólk (2 bindi) og Heims- ljós (4 bindi) auk fjöida annarra rita. Þjóðin stóð líkt og höggdofa, ýmist hreifst með eða snerist önd- verð gegn þeirri spegilmynd sem skáldið sýndi henni og mörgum þótti óþægileg sýn. Jafnvel er hann stóð á hátindi frægðar sinn- ar með bókmenntaverðlaun Nó- bels í höndum og hafði lagt heim- inn að fótum sér, jafnvel þá eimdi enn eftir. óþægindakennd sumra frammi fyrir sjálfsmyndinni, sem Halldór hafði neytt .þá til að horf- ast í augu við. En Halldór lét aldr- ei buga sig, ekkert stöðva sig í því verki sem var honum lífsnauð- syn. Hann vann verk sitt ótrauður og skeytti því engu, hvort hann bæri úr býtum lof annarra manna éða hæðni. Enginn einn maður Lífsstarf hans fáum við aldrei fullþakkað, því að það er í raun ekki hægt. Áhrif hans eru slík að hann bregður ekki aðeins „stórum svip yfir dálítið hverfi", heldur er lífssýn okkar og sjálfsvitund nú í raun óhugsandi án hans. ísland nútímans væri ekki það sem það er án hans. Enginn einn maður hefur haft eins mótandi áhrif á líf okkar og hugsun, kennt okkur að bera höfuðið hátt - þrátt fyrir allt. Það er í raun ofur eðlilegt að afmælisdag hans nú skuli bera upp á sumardaginn fyrsta, þegar harpa byijar. Því að hafi Island einhvern tíma átt sér vormann þá er það Halldór Laxness. Sumir segja að hann hafi verið of stór fyrir okkur. Það heyrir maður stundum í útlöndum. Eg var einu sinni spurður að því á blaðamann- afundi í Finnlandi hvort það væri ekki erfítt fyrir okkur íslenska rithöfunda að skrifa í skugga Laxness. Ég svaraði því til að við hefðum aldrei skrifað í skugga Halldórs heldur í birtunni af þeim ljóma sem stafaði af verkum hans. Að líkt og Halldór hefði einhvern tíma sagt að það væri huggun að geta aldrei skrifað eins vel og Snorri, þá væri það okkur huggun að geta aldrei skrifað eins vel og Halldór. í því væri fólgið að eiga sanna fyrirmynd. Á þessum degi er þakklætið efst í huga, þótt það sé ærið ófull- komið í sjálfu sér. Þakklæti fyrir þær stórkostlegu stundir sem Halldór hefur gefið mér við lestur bóka hans og íhugun um þær. Það þakklæti er blandað vissunni um að slíkur maður verður aldrei gamall þrátt fyrir aldur, því að hann er í eðli sínu síungur og sífij- ór, og sá arfur sem hann skilar okkar er óþijótandi lind sem held- ur áfram að streyma til okkar. Sjálfur hefur Halldór ort Is- lenskt vögguljóð á hörpu, og síð- asta erindi þess geymir þau orð sem mér finnst eiga best við hann sjálfan: Einsog hún gaf þér íslenskt blóð, úngi draumsnillíngur, megi loks þín litla þjóð leggja á hvarm þér fíngur, - á meðan Harpa hörpuljóð á hörpulaufið syngur. Höfimdur er rithöfundur og dóscnt í íslcnskum bókmcnntum við Háskóla íslands. » I L I k I i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.