Morgunblaðið - 22.04.1992, Blaðsíða 32
32
MORQUNBLAÐIÐ MIDVIKUDAGUR 22. APRÍL 1992
Verkalýðsfélagið Eining:
Hópur kvenna án at-
vinnu í allt að þijú ár
ÞÓ NOKKUR hópur kvenna í
Verkalýðsfélaginu Einingu hef-
ur verið á atvinnuleysisskrá í
600 tiI-800 daga, eða allt upp í
þijú ár.
Skátamessa
á sumardag-
inn fyrsta
SKÁTAMESSA verður að venju
í Akureyrarkirkju á sumardag-
inn fyrsta, sem er á morgun og
hefst hún kl. 11.00.
Bogi Pétursson forstöðumaður
sumarbúðanna við Ástjörn og
gangavörður við Gagnfræðaskól-
_ ann á Akureyri predikar í guðsþjón-
ustunni. Skátamessan verður með
hefðbundnu sniði, en það er gömul
hefð í bænum að skátar fjölmenna
í messu á sumardaginn fyrsta. Far-
ið verður í skrúðgöngu að kirkjunni
og aðstoða skátar í messunni og
þeir leiða einnig sönginn.
Þetta kom fram í máli Úlfhildar
Rögnvaldsdóttur á síðasta fundi
bæjarstjómar Akureyrar. Hún
sagði að þess væru dæmi að ein-
staklingur hefði verið skráður at-
vinnulaus í 795 daga. Bótadagar
á hveiju ári eru 260, en síðan dett-
ur fólk út af skrá í 16 vikur.
Úlfhildur sagði að þó nokkur
hópur kvenna í Einingu hefði verið
atvinnulaus í 600 og upp í 800
daga, þær væru fæddar á tímabil-
inu frá 1927 til 1938 og væru því
miður litlar líkur til að þessi hópur
kvenna fengi atvinnu.
Það hefði vakið athygli sína er
hún skoðaði gögn yfir atvinnulausa
Einingarfélaga að yfirleitt væru
eldri konur lengst á skránni, en
karlar sem lengi hefðu verið á at-
vinnuleysisskrá væru að jafnaði
yngri, fæddir á tímabilinu 1958 til
1962. Engir karlar hefðu þó verið
lengur en 500 daga á atvinnu-
leysisskrá.
Af 320 manns sem skráðir voru
atvinnulausir í lok síðasta mánaðar
voru 105 á aldrinum 16 til 25 ára
og af þeim hópi hefðu um 40%
verið án atvinnu í 13 til 25 vikur.
Nóg af hausum hjá Halldóri Magnússyni og Jóni Geir Sigurbjörnssyni hjá G. Ben. á Árskógsströnd.
G. Ben. á Árskógsströnd:
Páll Erland
kosinn for-
•maður Varðar
Aðalfundur Varðar, félags ungra
sjálfstæðismanna á Akureyri, var
haldinn fyrir nokkru og var þá
meðal annars kosin ný stjórn.
Kosningin fór þannig að Páll Er-
land var kjörinn formaður, Gísli Sím-
onarson varaformaður, Magnús Jó-
hannesson gjaldkeri, Friðrik Arnar-
son ritari, Olafur R. Jónsson spjald-
skrárritari, Einar Már Guðmundsson
meðstjórnandi og Magnús Sæmunds-
son meðstjórnandi.
Vörður hefur starfað af krafti í
vetur og meðal annars eru haldnir
fundir á hveiju mánudagskvöldi kl.
20 í húsnæði Sjálfstæðisflokksins í
Kaupvangi. (Fréttatilkynning)
Næg vinna í allan vet-
ur en kvóti á þrotum
MIKIL vinna hefur verið hjá fiskverkun G. Ben. á Árskógsströnd
í vetur, en þorskkvóti skipa fyrirtækisins er senn á þrotum og
munu þau á fara á rækjuveiðar. Samið hefur verið við Söltunarfé-
lag Dalvíkur um kaup á rækjunni, en fyrirtækið hefur á leigu
rækjuverksmiðju þrotabús Árvers hf. á Árskógsströnd.
Páll Erland
Rafn Gunnarsson hjá G. Ben.
sagði að almennt hefði atvinnu-
ástand verið þokkalegt í hreppnum
frá því hjól rækjuverksmiðjunnar
fóru að snúast að nýju eftir gjald-
þrotið. Hvað fiskverkun G. Ben.
varðaði hefði mikið verið að gera
í vetur og nánast unnið í tíu tíma
Gísli Ferdinandsson opnar
skóvinnustofu á Akureyri
GÍSLI Ferdinandsson hf. hefur
opnað skóvinnustofu í Hafnar-
stræti 88 á Akureyri. Þar mun
verða boðin svipuð þjónusta og
fyrirtækið býður í Reykjavík.
Starfsmenn nyrðra verða tveir
og er Elín Þórhallsdóttir, skó-
smiður frá Húsavík, útibússtjóri.
Elín rak skóvinnustofu á Húsavík
og mun afgreiðsla hennar, á Héð-
insbraut 3, áfram verða opin frá
kl. 15 til 18, en auk Húsavíkur
ætlar fyrirtækið sér að þjóna Ólafs-
firðingum með mótttöku og af-
greiðslu í apóteki staðarins og á
Dalvík mun fatahreinsunin Fernan
sjá um móttöku og afgreiðslu.
Stefnt er að því að veita sem besta
þjónustu við þessi byggðalög og
munu því verða reglulegar ferðir á
milli þessara staða.
i Gísli Ferdinandsson sérhæfir sig
í skóviðgerðum, sjúkraskósmíði,
innleggjasmíði, spelkugerð og
hækkunum á skóm. Stoðtækjafræð-
ingur fyrirtækisins mun hafa mót-
töku fyrir sérsmíði á skóm, spelkum
og máltöku fyrir sérsmíðuð innlegg
tvisvar í mánuði á Akureyri og oft-
ar ef þörf krefur. Ætlunin er að
"^Smíði á innleggjum fari fram fyrir
norðan, en til að byrja með verður
alla virka daga og stundum meira.
Nógur fiskur hefur verið í vet-
ur, en fyrirtækið gerir út tvö skip,
Arnþór og Sæþór. Nú er kvóti
þeirra senn á þrotum, Sæþór á
eftir um 30 tonn af þorski og
Arnþór á milli 50 og 60 tonn, auk
um 40 tonna af ýsu og 80 af ufsa.
Kvótanum verður miðlað á milli
skipanna á meðan hann endist.
Rafn sagði að þegar kvótinn
yrði búinn yrði farið á rækju og
hefði verið gengið frá samningi
um að Söltunarfélag Dalvíkur
keypti aflann til vinnslu, en fyrir
nokkru tók fyrirtækið þrotabú
rækjuverksmiðjunnar Árvers hf. á
Árskógsströnd á leigu. Jafnvel
kemur til greina að skip G. Ben.
veiði eitthvað af kvóta sem Söltun-
arfélagið hefur yfir að ráða.
Landsbankinn:
í sumar sagði Rafn að einnig
væri meiningin að hengja upp eitt-
hvað af Ítalíuskreið, en við það
myndi skapast töluverð vinna, auk
þess sem eftir ætti að vinna í
nokkrar vikur til viðbótar við haus-
ana, sem verið hefði nokkurs kon-
ar uppfyllingarverkefni með salt-
fiskverkuninni í vetur.
Um 50 manns vinna hjá G.
Ben. þar af eru um 30 í Iandi og
20 eru á skipunum.
Lést af
slysförum
Maðurinn sem lést í vinnu-
slysi í Eyjafjarðarsveit á mið-
vikudag fyrir páska hét Indriði
Kristjánsson, bóndi á Leyningi.
Hann fæddist 2. febrúar árið
1963. Hann var barnlaus, en
lætur eftir sig unnustu.
Starfsmenn POB
ráðnir fram í júlí
GENGIÐ hefur verið frá ráðningu flestra þeirra starfsmanna sem
unnu hjá Prentverki Odds Björnssonar, POB, en Landsbankinn
annast rekstur fyrirtækisins eftir að það var úrskurðað gjald-
þrota fyrir páska.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Gísli Gíslason, Elín Þórhallsdóttir, Gísli Ferdinandsson og Kolbeinn
Gíslason fyrir utan hina nýju skóvinnustofu í Hafnarstræti á Akur-
eyri.
smíði á skóm og spelkum fyrir sunn-
an.
Fyrirtækið var stofnað árið 1956
og stýrði Gísli Ferdinandsson því
allt þar til fyrir 12 árum að Kol-
beinn sonur hans tók við rekstrin-
um, en hann er stoðtækjafræðingur
og hófst þá jafnframt smíði á
sjúkraskóm, spelkum og innleggj-
um.
Eiríkur Jóhannsson hjá Lands-
bankanum, sem umsjón hefur með
rekstrinum fyrir hönd bankans,
sagði að flestir starfsmannanna
hefðu verið ráðnir að nýju, en
bankinn leigir rekstur prentverks-
ins í þrjá mánuði, eða fram í miðj-
an júlí næstkomandi. Um 20
starfsmenn vinna þar nú, en þeir
voru um 25.
Eiríkur sagði að verkefnastaðan
væri góð um þessar mundir og
væri fleiri verkefna nú leitað.
Hann sagði það ekki á stefnu-
skrá bankans að reka prentsmiðju
til lengri tíma og væri stefnt að
því að selja reksturinn, en nokkrir
aðilar hefðu sýnt því máli áhuga.