Morgunblaðið - 22.04.1992, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 22.04.1992, Blaðsíða 45
hinstu hvílu, en hann andaðist 14. apríl eftir stutta en stranga sjúk- dómslegu. Guðmundur fæddist 6. ágúst 1911 að Ási í Hrunamannahreppi, sonur hjónanna Guðrúnar Stefáns- dóttur og Steindórs Eiríkssonar bónda þar. Hann var næstelstur í stórum barnahópi þeirra hjóna. Ungur að árum fór hann að vinna fyrir sér eins og sjálfsagt þótti í þá daga, fyrst heima hjá foreldrum sínum en síðar hleypti hann heim- draganum. Stundaði m.a. verka- mannavinnu og vertíðarstörf. Hann var alstaðar annálaður fyrir dugnað og harðfylgi. Síðan flutti hann til Reykjavíkur og bjó þar ávallt síðan. Árið 1947 kvæntist hann Guðbjörgu Jörgensdóttur og eignuðust þau þrjú börn, Önnu, Steindór og Guð- rúnu. En sambúð þeirra varð ekki löng, því Guðbjörg lést 1952. Þetta voru erfiðir tímar hjá Guðmundi en þá var hann svo lánsamur að kynn- ast eftirlifandi eiginkonu sinni, Þur- íði K. Hjálmtýsdóttur, og gengu þau í hjónaband 1958. Var það mikið gæfuspor því hún reyndist honum tryggur og traustur lífsförunautur allt til hinstu stundar. Þau hjón lögðu mjög hart að sér við að ljúka byggingu á eigm-ljúsnæði, sem þau reistu af miklum myndarskap. Stór var bamahópurinn á Langholtsvegi 95, því þau Sigríður eignuðust sam- an fímm mannvænleg börn, Guð- mund, Guðbjörg, Áslaugu, Elínu og Ólöfu. Guðmundi var ávallt mjög annt um hag bama sinna og vel- ferð heimilis síns og sinna. Frá ár- inu 1946 var atvinna hans vörubíla- akstur og var hann mjög vel liðinn og eftirsóttur til starfa. Guðmundur var mikill framkvæmdamaður og stórhuga að hveiju sem hann gekk og féll honum aldrei verk úr hendi og var að vinna hin ýmsu verk heima sem ekki hafði gefist tími til allt þar til hann veiktist, enda alla tíð verið einstaklega hraustur mað- ur. Guðmundur var mjög tónelskur og harmónikkan var þar efst á blaði, enda minnast margir þess er hann lék á sveitaböllum hér áður fyrr, eða á síldarárunum á Siglufirði þegar Guðmundur tók upp nikkuna eftir erfiðan vinnudag og lék langt fram á nótt. Oft minnist ég þess er hann sat heima á Langholtsveg- inum og spilaði sér og öðrum til ánægju. Hann sótti samkomur harmónikkufélaga þegar því varð við komið og hafði mikla ánægju af, enda félagslyndur maður. Guð- mundur var mjög barngóður og bamabarnahópurinn orðinn stór. Þegar þau komu á Langholtsveginn til afa og ömmu var mikið um dýrð- ir og munu þau aldrei gleyma þeim ánægjustundum. Eg tengdist þessu heimili er ég kynntist Áslaugu, dótt- ur þeirra, og áttum við þar okkar fyrstu búskaparár. Alla tíð síðan hef ég borið mikla virðingu fyrir þeim hjónum og á þeim mikið að þakka. Nú er við kveðjum Guðmund hinstu kveðju er margs að minnast, meira en hægt er að segja í örfáum orðum. Ég vil fyrir mína hönd og fjöl- skyldu minnar þakka allan þann hlýhug og hjálpsemi sem hann sýndi okkur. Þuríður mín, þinn missir er mikill. Ég votta þér og öðrum að- standendum mína dýpstu samúð. Megi Guð styrkja ykkur og styðja um ókomin ár. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Vald. Briem) Sigurður H. Einarsson Farðu vel, þú hrausta, hreina sál. Hyggjusterk með karlmanns geðið djarfa, Guð þig hvíldi, hvíldar var þér mál. Hún er guðs gjöf eptir lífsins starfa. Samt er þungt hið beiska dauðans boð, burt því kvaddist héðan fyrr enn varði. Góður faðir, húss síns styrktust stoð, stúrir sorgin yfir höggnu skarði. (Steingrimur Thorsteinsson) J.W.J. r ■Tl Minningarkort Bandalags fslenskra skáta Stmi: 91-23190 oasi MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1992 45 t Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN GUÐBJÖRG JÓNSDÓTTIR frá Geirsstöðum, sem andaðist í Sjúkrahúsi Akraness 12. þm., verður jarðsungin frá Akranes- kirkju föstudaginn 24. apríl kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Kristniboðssambandið. t Ástkær fóstra mín og amma okkar, GUÐLAUG JÓNSDÓTTIR frá Keflavík, sem andaðist fimmtudaginn 9. apríl sl., verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag miðvikudaginn 22. apríl kl. 13.30. Lilja Friðriksdóttir, Guðlaug Rún Margeirsdóttir, Hanna Dís Margeirsdóttir. Sigurður Jónsson, Guðmunda Vigdfs Sigurðardóttir, Kjartan Trausti Sigurðsson, Arnfinnur Ingi Sigurðsson, Þóranna Guðbjörg Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær sonur minn, unnusti, bróðir og mágur, INDRIÐI KRISTJÁNSSON, Leyningi, Eyjafjarðarsveit, sem lést af slysförum miðvikudaginn 15. apríl, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 24. apríl kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hins látna, er vinsamlega bent á björgun- arsveitirnar. Áslaug Kristjánsdóttir, Petra Kristjánsdóttir, Haukur Kristjánsson, Erlingur Kristjánsson, Vilhjálmur Kristjánsson, Sigrfður Sveinsdóttir, Kolbrún Elfarsdóttir, og systkinabörn. Gunnar Frímannsson, Þorkell Pétursson, Margrét Hólmsteinsdóttir, Pollý Brynjólfsdóttir t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNÍNA R. ÞORFINNSDÓTTIR kennari, Engihjalla 9, Kópavogi, verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju í dag, miðvikudag 22. apríl, kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Styrktarfélag lam- aðra og fatlaðra. Sveinn A. Sæmundsson, Ómar Þ. Ragnarsson, Helga Jóhannsdóttir, Edvard S. Ragnarsson, Jón R. Ragnarsson, Ólöf Ragnarsdóttir, Guðlaug Ragnarsdóttir, Sigurlaug Þ. Ragnarsdóttir, Alda Sveinsdóttir, Ólína Sveinsdóttir, Jóhanna Magnúsdóttir, Petra Baldursdóttir, Ólafur J. Sigurðsson, Sigurjón Leifsson, Jóhann Vilhjálmsson, Jón Ingi Ragnarsson, Trausti Finnbogason, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR STEINDÓRSSON vörubifreiðarstjóri, Langholtsvegi 95, Reykjavík, andaðist í Landspítalanum þann 14. apríl. Jarðarförin fer fram frá Langholtskirkju í dag, miðvikudaginn 22. apríl, kl. 15.00. Þuríður Hjálmtýsdóttir, Anna Guðmundsdóttir, Kjartan Ólafsson, Steindór Guðmundsson, Margrét Brynjólfsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Jóhannes Ragnarsson, Guðmundur Guðmundsson, Emilía G. Svavarsdóttir, Guðbjörg Guðmundsdóttir, Jóhann W. Jóhannsson, Áslaug Guðmundsdóttir, Sigurður H. Einarsson, Elín Guðmundsdóttir, Ólöf Guðmundsdóttir, Gunnar Jónsson, barnabörn og barnabarnabarn. t Þökkum auðsýnda samúð við fráfall og útför GUÐNA VIGFÚSSONAR. Helga Guðnadóttir, Hilmar Antonsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hluttekningu við fráfall og jarðarför sonar míns, föður okkar og 'bróður, LEIFS VILHJÁLMSSONAR. Sólveig Marfa Jónsdóttir, Bjarki Þröstur Leifsson, Linda Mjöll Leifsdóttir, Ágúst Fannar Leifsson, Hreinn Vilhjálmsson. t Bróðir okkar og frændi, MAGNÚS ÓLAFSSON, Æsufelli 6, verður jarðsunginn miðvikudaginn 22. apríl kl. 13.30frá Fossvogs- kirkju. Hallveig Ólafsdóttir, Bergþóra Ólafsdóttir, Ulfhildur Úlfarsdóttir, Soffía Vilhjálmsdóttir. + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim er sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ELSU DÓRU GUÐJÓNSSON, Laugarnesvegi 54. Þorvaldur Guðjónsson, Hulda Þorvaldsdóttir, Heiðar Þorleifsson, Ragnar V. Þorvaldsson, Guðjón S. Þorvaldsson, Jóhann H. Þorvaldsson, Anna Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar móður minnar og ömmu okkar, HULDU BJARNADÓTTUR, Kleppsvegi 50, Reykjavík. Ómar Konráðsson, Hafdís Huld Ómarsdóttir, Ásta Omarsdóttir, Ríkhard E. Ómarsson, Hrund Ómarsdóttir og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför elsku- legs eiginmanns, fósturföður, tengdaföður, sonar, bróður og mágs, SVERRIS KARLSSONAR, Skipholti 15. Sérstakar þakkir færum við stjórn, starfsfólki og félagsmönnum Blindrafélagsins. Kolbrún Gunnarsdóttir, Skúli Gunnarsson, Guðrún Ólafsdóttir, Ragnhildur Gunnarsdóttir, Björn Hjaltason, Nanna Einarsdóttir, Ólafur Karlsson, Sólveig Jónsdóttir, Ásbjörn Karlsson, Steinunn Hjartardóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför fósturmóður minnar, móður, tengda- móður, ömmu og langömmu, MARGRÉTAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Hólmavík, Austurströnd 10, Seltjarnarnesi, Grétar Vilmundarson, Inga Erlingsdóttir, Steinunn Guðbrandsdóttir, Hans Magnússon, Jóhann Guðbrandsson, Rósa Sigurðardóttir, Svanborg Guðbrandsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. * Lokað í dag, eftir hádegi, vegna útfarar MAGNÚSAR ÓLAFSSONAR, Æsufelli 6. Prjónastofan Peysan, Bolholti 6, Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.