Morgunblaðið - 22.04.1992, Side 20
20_______________MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1992_
Island o g umhverfisráð-
stefna Sameinuðu þjóðanna
eftir Gunnar
G. Schram
Fyrir þremur árum ákváðu Sam-
einuðu þjóðirnar að hefja undirbún-
ing að víðtæku samstarfi þjóða
heims til þess að vernda umhverfi
mannsins á jörðinni. Það er flestum
ljóst, ekki sist okkur íslendingum,
hve brýn nauðsyn það er að stemma
stigu við hinum sívaxandi umhverf-
isspjöllum sem eiga sér stað víðs-
vegar um heim, mengun hafs og
andrúmslofts og eyðingu gróðurs
jarðar. Þau vandamál getur engin
þjóð leyst upp á eigin spýtur heldur
aðeins með samvinnu við aðrar
þjóðir.
Þessar eru ástæðurnar fyrir því
að ráðstefna SÞ um umhverfi og
þróun mun verða haldin í Brasilíu
3.-14. júní í sumar. Til þess að
undirstrika mikilvægi þessa áfanga
á leið til betra mannlífs á jörðinni
er þangað boðið þjóðhöfðingjum og
leiðtogum 160 ríkja samtakanna
sem munu með undirskriftum sín-
um staðfesta þær samþykktir og
alþjóðsamninga sem vonir standa
til að þar verði gerðir.
íslenskir fjölmiðlar hafa verið
ólatir við að fjalla um Ríóráðstefn-
una að undanfömu en fyrir ofan
garð og neðan hefur þó að mestu
farið hvert er hlutverk ráðstefnunn-
ar og hver þáttur íslands hefur
venð í undirbúningi hennar.
• í fyrsta lagi mun ráðstefnan sam-
þykkja yfirlýsingu um grundvallar-
reglur í umhverfísmálum, rétt og
skyldur allra ríkja gagnvart um-
hverfínu og verndun þess. Hér er
um hina svonefndu Ríóyfírlýsingu
að ræða sem byggir á grunni Stokk-
hólmsyfirlýsingarinnar í umhverfis-
málum sem samþykkt var 1972.
í öðru lagi verður þar gengið frá
ítarlegri framkvæmdaáætlun sem
ætlað er að vísa þjóðum heims veg-
inn í umhverfismálum næstu ára-
tugina, einkum að því er varðar
löggjöf og framkvæmdir. Hefur
þessi áætlun hlotið nafnið Agenda
21.
I þriðja lagi standa vonir til þess
að unnt verði að undirrita tvo skuld-
bindandi alþjóðsamninga á ráð-
stefnunni. Annar þeirra fjallar um
verndun andrúmsloftsins og varnir
gegn eyðingu ósonlagsins og gróð-
urhúsaáhrifum. Hinn fjallar um
vemdun og viðhald fjölbreytileika
lífs á jörðu, en árlega er hundruðum
tegunda útrýmt.
Þáttur íslands
Síðasti undirbúningsfundur Ríó-
ráðstefnunnar var haldinn í New
York nú í marsmánuði. Á þeim
fundi lögðu íslendingar megin-
áherslu á þá þætti framkvæmda-
áætlunarinnar sem varða verndun
hafsins gegn mengun og öðrum
umhverfísspjöllum, á skynsamlega
nýtingu lifandi auðlinda hafsins og
á vemdun andrúmsloftsins og
stefnuna í orkumálum.
Margar tillögur íslands voru
teknar til greina en öðrum hafnað
eða frestað til lokaafgreiðslu á Ríó-
fundinum. Verður hér í mjög stuttu
máli sagt frá þeim tillögum íslands
sem náðu fram að ganga á New
York-fundinum, og munu því vænt-
anlega fá brautargengi í lokasam-
þykktum ráðstefnunnar.
Verndun hafsins
Varðandi tillögur íslendinga um
verndun hafsins var fallist á að
boða til fundar um varnir gegn
mengun sjávar frá landi svo fljótt
sem unnt er. Hér er um mikilvægt
mál að ræða þar sem 70% af meng-
un hafsins eiga uppsprettu sína á
landi.
Þá var samþykkt íslensk tillaga
um að ríki hættu allri losun þrá-
virkra lífrænna efna sem safnast
saman í lífríki hafsins. Þetta ákvæði
var samþykkt en endanleg tíma-
setning bíður frekari ákvörðunar.
Þá var samþykkt íslensk tillaga um
að skora á Alþjóðasiglingamála-
stofnunina og Álþjóðakjarnorku-
málastofnunina að ljúka gerð
reglna um flutning á notuðu kjam-
orkueldsneyti með skipum, en haf-
inu stafar veruleg hætta af slíkum
flutningum. Þá var loks ákveðið að
skora á ríki Lundúnasamningsins
að hraða ákvarðanatöku um varp
geislavirks úrgangs í hafið með það
fyrir augum að breyta tímabundnu
banni í algert bann á árinu 1993.
Hvalamálin
Á fundinum náðist viðunandi
samkomulag um að nýta beri sjáv-
arspéndýr á sama hátt og aðrar líf-
verur hafsins.
Ríki sem ekki aðhyllast nýtingu
hvala geta látið það vera í eigin
lögsögu. Áttu íslendingar sinn þátt
í því að þetta samkomulag náðist,
en það byggir á m.a. ákvæðum
Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóð-
anna. Hefur hér mikilvægum
Gunnar G. Schram
„íslenskir fjölmiðlar
hafa verið ólatir við að
fjalla um Ríóráðstefn-
una að undanförnu en
fyrir ofan garð og neð-
an hefur þó að mestu
farið hvert er hlutverk
ráðstefnunnar. “
áfanga verið náð í þessu erfiða
deilumáli.
Verndun andrúmsloftsins
og orkumál
í orkumálum var m.a. samþykkt
tillaga íslands sem miðar að því að
fá þjóðir heims til að draga úr notk-
un olíu og kjarnorku við orkufram-
leiðslu, en auka þess í stað notkun
á nýjum og endurnýjanlegum orku-
gjöfum. Meðal þeirra orkugjafa er
vatnsorkan. Tillaga Íslands, um að
þjóðir heims ættu að leggja áherslu
á að dreifa slíkri orku frá löndum
sem yfir henni ráða til þeirra ríkja
sem háð eru olíu og kolum við orku-
framleiðslu var samþykkt. Þá báru
íslendingar einnig fram tillögu um
að þjóðir heims ættu að stuðla að
því að orkufrekur iðnaður yrði fyrst
og fremst byggður upp á svæðum
(eins og íslandi) sem búa yfir meng-
unarlausum og endurnýjanlegum
orkugjöfum, með það fyrir augum
að draga úr mengun á heimsvísu.
Þá bentu íslendingar á að fólks-
fjölgun í heiminum, lifnaðarhættir
og neysluvenjur væru megin rætur
þess umhverfisvanda sem við væri
að glíma. Tillága í þeim efnum sem
liður í verndun andrúmsloftsins
fékk þó ekki hljómgrunn. Enn er
ósamið um mörg mikilvæg atriði
varðandi vemd andrúmsloftsins,
ráðstafanir til að draga úr eyðingu
ósonlagsins og gróðurhúsaáhrifa.
Sama er að segja um verndun
skóga.
Loks skal hér getið tillögu ís-
lands sem var samþykkt um að SÞ
hefjist handa við gerð alþjóðasátt-
mála um réttindi og skyldur ríkja
á sviði umhverfís- og þróunarmála.
Því máli var fyrst hreyft af hálfu
utanríkisráðherra á allsheijarþingi
SÞ árið 1989.
Hlutverk Ríóráðstefnunnar
Sá misskilningur hefur verið á
ferli í blöðum og öðrum fjölmiðlum
að undanförnu að allur ágreiningur
þjóða heims í umhverfis- og þróun-
armálum sé nú leystur og ekki ann-
að eftir en samþykkja formlega
stefnu framtíðar í atkvæðagreiðslu.
Erfíðustu ágreiningsmálunum,
sem ekki tókst að semja um á New
York-fundinum, var vísað til ráð-
stefnunnar í Ríó þar sem lokatilraun
verður gerð til samkomulags. Um-
fangsmiklir samningafundir munu
því standa þar allt frá upphafi til
lokadags og þar ræðst loks hvort
ríkjum heims tekst að móta virka
og viturlega stefnu um verndun
umhverfisins sem í gildi verður
fram yfir aldamót.
Meðal þeirra mála sem enn á
eftir að ná samkomulagi um eru
ýmis mál sem varða mjög hags-
muni íslendinga. Tillaga Islands og
fleiri þjóða um bann við að kjarn-
orkuúrgangi sé komið fyrir í neðan-
sjávarbyrgjum mætti mótspyrnu og
kemur til lokaafgreiðslu á Ríófund-
inum. Sama er að segja um tillögu
íslands um aðgerðir til að tryggja
umhverfisvernd á höfunum gagn-
vart hernaðarumsvifum, m.a. vegna
kjarnorkukafbáta, sem mætti mik-
illi andstöðu og var vísað til áfram-
haldandi sáttaumleitana á Ríófund-
inum. Ekki náðist heldur samkomu-
lag um tillögu Kanada, íslands og
fleiri ríkja um neikvæð áhrif úthafs-
veiða á veiðar ríkja innan efnahags-
lögsögu sinnar, né um réttindi út-
hafsveiðiþjóða til aðgangs að van-
nýttum eða ónýttum fiskistofnum
innan efnahagslögsögunnar.
Búast má við mjög aukinni ásókn
erlendra ríkja í stofna sem ganga
út úr íslensku efnahagslögsögunni
og því skiptir miklu að samkomulag
náist um þessi mál á Ríóráðstefn-
unni en þangað var deilunni vísað.
Loks er eitt mikilsverðasta atriði
í umhverfísvernd framtíðar enn
óleyst. Það er hvernig ríki hyggjast
fjármagna hina víðtæku fram-
kvæmdaáætlun í umhverfis- og þró-
unarmálum. Án nýrrar fjármögnun-
ar verður hún ekki annað en áhrifa-
laust pappírsgagn. Þeim málum
verður að ráða til lykta á Ríó-fund-
inum og vonir standa til að það
muni takast.
Um öll þessi óleystu vandamál
verður reynt að ná samkomulagi
án atkvæðagreiðslu, svo sem verið
hefur hingað til, og því er hér mik-
ið og erfitt verk fyrir höndum þá
11 daga sem ráðstefnan stendur.
Hvað er í húfi?
Verndun náttúruauðlinda, skyn-
samleg nýting þeirra og hreint haf
skiptir þjóð, sem byggir afkomu
sína að verulegu lejdi á matvæla-
framleiðslu, meira máli en flestar
aðrar. Nýjustu fréttir um hættuna
á verulegri eyðingu ósonlagsins yfir
íslandi og ófullnægjandi hömlur á
losun kjarnorkuúrgangs í Áafið sýn-
ir hve mikilvægt það er að fyrir
okkur Íslendinga að tilraun Samein-
uðu þjóðanna til nýrrar skipunar í
umhverfismálum takist.
Það mun ráðast í hinni erfiðu og
umfangsmiklu samningalotu á
fundinum í Ríó, þar sem Islendingar
munu leggja sitt lóð á vogaskálarn-
ar. Fyrr komast þessi mál ekki í
örugga höfn.
Höfundur er prófessor í
þjóðarrétti og annar formaður
undirbúningsnefndar
umhverfisráðstefnu SÞ.
-----♦ ♦ ♦-----
Útflutnings-
verðlaun for-
setans veitt
á morgun
UTFLUTNINGSVERÐLAUN for-
seta íslands verða veitt á morgun,
sumardaginn fyrsta við athöfn;
sem fram fer á Bessastöðum. I
fyrra hlutu þessi verðlaun Flug-
leiðir hf., en einnig hafa Marel
hf og Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna hlotið þessi verðlaun.
Verðlaunin eru veitt fyrir mark-
vert famlag til eflingar útflutnings-
verzlunar og gjaldeyrisöflunar ís-
lenszku þjóðarinnar. Uthlutunarregl-
ur kveða á um að verðlaunin skuli
veitt fyrirtækjum eða einstaklingum
íslenzkum eða erlendum fyrir árang-
ursríkt starf að útflutningi á íslenzk-
um vörum og þjónustu til annarra
landa. Veiting verðlaunanna tekur
mið af verðmætisaukningu útflutn-
ings, hlutdeild útflutnings í heildar-
sölu, markaðssetningu á nýjum
mörkuðum og fleiru.
Úthiutunarnefnd skipa; Brynjólfur
Sigurðsson prófessor, formaður,
Ólafur B. Thors frá landsnefnd Al-
þjóða verzlunarráðsins,, Þórunn
Sveinbjörnsdóttir frá ASÍ, Sveinn
Bjömsson frá embætti forseta ís-
lands og Ingjaldur Hannibalsson
framkvæmdastjóri útflutnihgsráðs
Islands.
VINKLAR Á TRÉ
HVERGI LÆGRI VERÐ
ÞÝZKIR GÆÐAVINKLAR
OG KAMBSAUMUR
ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI
EINKAUMBOÐ
t5 Þ.Þ0RGRÍMSS0N & C0
Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640
TIL LEIGU fi
HEKLUHÚSINU
LÆ
• * * 0
-0-
Upplýsingar gefur
Sigurður Gunnarsson
í síma 695500.
Laugavegur 170 -172, 3. hæð 973 m . Glæsilegt útsýni. Nýbygging, súlulaus.
11111111111 m 1111 iTm
tt
HH
B11l.fl.PUifil.Hi
11111 rrrmi
HEKLA
LAUGAVEG1174
SÍMI695500