Morgunblaðið - 22.04.1992, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. APRIL 1992
Gagnrýni á meðferð dómsmála, fyrningu þeirra og skipan ungra dómara:
Gagiirýnin er stundum rétt-
mæt en ástandið fer batnandi
- segir Valtýr Sigurðsson, formaður Dómarafélags íslands
VALTÝR Sig'urðsson, formaður Dómarafélags íslands, segir að
gagnrýni almennings á störf dómstóla eigi í sumum tilfellum fylli-
lega rétt á sér. Dráttur á meðferð dómsmála l\já dómara sé oft
ekki afsakanlegur og óverjandi sé ef mál fyrnist vegna aðgerðar-
leysis dómara. Þá sé eftirlit dómsmálayfirvalda og yfirmanna
dómstóla með störfum dómara fremur handahófskennt. Ástandið
hafi hins vegar mikið batnað í heild á síðasta áratug og dómarar
bindi miklar vonir við breytingar, sem verða á stöðu dómstólanna
þegar lög um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði taka
gildi þann 1. júlí næstkomandi.
Verð frá: 969.000,-
Greiðslukjör við allra hæfi
Til sýnis núna að Vatnagörðum 24
virka daga kl. 9:00 - 18:00 og
laugardaga kl. 11:00 - 15:00.
Nánari upplýsingar í síma 68 99 00
(0 j
Undanfarnar vikur hefur borið
nokkuð á gagnrýni á dómstólana.
Þar má nefna mál vegna innheimtu
áskriftargjalda tímaritsins Þjóðlífs.
Undirskriftalistar liggja víða
frammi, þar sem meðferð bæjarfóg-
etaembættisins á Akureyri á slíku
innheimtumáli er mótmælt, Skipan
ungra og óreyndra dómara í dóm-
arastörf á landsbyggðinni hefur
verið gagnrýnd og skýrt hefur ver-
ið frá ómerkingu Hæstaréttar á
málum ákveðins dómara, auk þess
sem hann var víttur fyrir málsmeð-
ferðina. Þá hefur komið fram, að
stórt sakamál hafi fyrnst í höndum
þessa dómara.
Valtýr Sigurðsson, formaður
Dómarafélags Íslands, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að gagnrýni
sem þessi ætti í sumum tilfellum
rétt á sér. Stjóm Dómarafélagsins
fylgdist með þessari gagnrýni sem
gagnrýni á dómstólakerfið í heild,
en hefði ekki tekið neitt einstakt
þessara mála til skoðunar. „Mitt
álit er hins vegar, að aðgerðir gegn
embættinu á Akureyri séu ekki rétt-
mætar,“ saðgi hann. „Það er til
dæmis röng ályktun hjá formanni
Neytendafélags Akureyrar, að
dómari hefði ekki átt að árita aðfar-
arstefnur hjá þeim aðilum, sem
ekki mættu fyrir bæjarþingið,
vegna þess að aðilar í öðnm hlið-
stæðum innheimtumálum sýndu
greiðslukvittanir. Ef engin gögn
lágu fyrir í þeim málum, um að
kröfur stefnanda væru greiddar,
hvíldi sú lagaskylda á dómara, að
fullnægðum . ákveðnum form- og
efnisskilyrðum, að árita stefnurnar.
Fulltrúi fógeta hafði svo við aðför
enga lagaheimild til að breyta
áskorunardómnum, þrátt fyrir að
skuldari sýndi þá kvittun fyrir að
krafan væri greidd. Þá reyndi hins
vegar á leiðbeiningarskyldu hans
um möguleika á áfrýjun til Hæsta-
réttar og ekki hefur verið sýnt fram,
á að hennar hafí ekki verið gætt.“
Valtýr sagði, að svo undarlegt,
sem það kynni að virðast í þessu
samhengi, þá væri það til trygging-
ar fyrir þegnana að dómari verður
að fara að lögum og hans persónu-
legu sjónarmið geta ekki að jafnaði
ráðið niðurstöðu máls. Hann sagði
að það sem væri alvarlegast í þessu
máli væri hins vegar það, að lög-
maður skyldi kreljast greiðslu á
kröfu, ef hann vissi að hún hefði
þegar verið greidd. „Slíkt er fá-
heyrt og ef svo reynist vera rétt
þá snýr þessi vandi fyrst og fremst
að stjórn Lögmannafélagsins. Kröf-
ur um úrbætur hefði því að mínu
mati átt að beina að því félagi, en
ekki embætti bæjarfógetans á Ak-
ureyri."
Valtýr sagði að frá 1. júlí yrði
auðveldara að fást við mál sem
þessi, því þá tæki gildi lagaákvæði
um heimild til að endurupptaka
útivistarmál fyrir sama dómstóli.
„Þetta kemur í veg fyrir að leita
þurfi til Hæstaréttar, ef leiðrétta
þarf augljós mistök, sem verða þeg-
ar stefndi mætir ekki. í þessu felst
mikil framför og réttaröryggi og
það hefði nýst í þessu tilfelli. Þetta
gerir það einnig að verkum, að
störfum léttir af Hæstarétti við sh'k
einföld mál. Málmeðferð fýrir
Hæstarétti tekur nú langan tíma
og álag á dómara þar er gífurlegt.
Sem dæmi um það má nefna, að
um síðustu áramót biðu yfír 260
mál flutnings hjá réttinum. Þessi
biðtími er áhyggjuefni dómarastétt-
arinnar allrar."
Eftirlit með störfum dómara
handahófskennt
Valtýr sagði að gagnrýni á dóm-
stóla út af töfum á málarekstri
væri oft réttmæt. „Ég hef sjálfur
gagnrýnt í riti of lítið eftirlit dóms-
málayfírvalda og forstöðumanna
dómstóla með störfum dómara.
Dómarar njóta mikils sjálfstæðis
við dómstörf og þeim má ekki víkja
úr starfi nema með dómi. Þetta
eykur réttaröryggi þegnanna, þar
sem dómarar þurfa ekki að óttast
starfsmissi, þó þeir dæmi t.d. yfír-
völdum í óhag. Hins vegar mega
dómarar alls ekki misskilja þetta
sem sérréttindi dómarastéttinni
sem slíkri til handa.“
Fyrirsvarsmenn dómstólanna,
svo sem bæjarfógetar og sýslu-
menn, hafa nú eftirlitshlutverkið
með höndum og geta veitt dómara
áminningu. Dugi áminning ekki
getur ráðherra vikið dómara úr
starfí. Engar reglur eru hins vegar
til um meðferð þessa áminningar-
valds og meðferðin því mismunandi
milli embætta og því miður handa-
hófskennd, að sögn Valtýs. „Von-
andi verður breyting þarna á eftir
gildistöku aðskilnaðarlaga 1. júlí,
en þá verða dómstólarnir aðeins 8
í stað 29 og ætti það að leiða til
samræmingar þessára mála. Auk
þess fara dómstjórar hinna nýju
dómstóla ekki með önnur störf en
dómstörf og umsjón með þeim og
bera á þeim ábyrgð."
Valtýr sagði að almenningur
gæti kvartað til dómsmálaráðuneyt-
isins eða forstöðumanna dómstóla,
ef tilefni væri til. Umboðsmaður
Alþingis færi hins vegar ekki með
eftirlitshlutverk gagnvart dómstól-
unum, en það mætti hins vegar vel
spyija, hvort dómstólarnir ættu að
vera undanskildir slíku eftirliti.
Valtýr benti á, að ekki væri
hægt að segja að allir væru jafnir
fyrir lögunum, ef mál fyrntust í
höndum dómara. „Það er ótækt ef
menn geta jafnvel losnað undan
refsingu í málum bara við það eitt
að mál þeirra lenda hjá tilteknum
dómurum og fyrnast þar. Ekki eru
miklar líkur á því, nema í algjörum
undantekningartilvikum, að of mik-
ið vinnuálag dómara sé orsökin. Þar
kemur oftast eitthvað annað til.
Dómarar binda almennt vonir við
að nýju dómstólarnir standi sig bet-
ur að þessu leyti. Þá er vert að
benda á, að hvað sem allri gagn-
rýni líður, þá eigum við marga góða
dómara og umfram allt heiðarlega."
Borið hefur á gagnrýni vegna
þess, að ungir og óreyndir menn
hafa verið ráðnir í dómarastörf á
landsbyggðinni. Valtýr sagði, að í
nokkrum lögsagnarumdæmum
starfaði aðeins einn dómari. „Aug-
ljóst er að reynsluleysi getur háð
dómurum og vissulega væri æski-
legt að sérstaklega til þessara dóm-
(X^mstrong
Traust einangrunarefni
fyrir vatns og hitalagnir,
svo og kœlikerfi.
Við þessir með reyr
mœlum með Arms
Gott að vinna me
■ níðsterkt.
Heildsala
Smásalo
i
<
PALLHÚS
HLAEHN LUXUS
Erum að fá nýja sendingu SHADOW CRUISER
pallhúsa. Þau hafa nú þegar slegið rækilega f
gegn fyrir hönnun og einstakan frágang.
Verð frá 487 til 730 þúsund krónur.
Höfum mikið úrval 7, 8 og 1 O feta húsa, með
ýmsum sérpöntuðum aukabúnaði sem við
álítum nenta íslenskum aðstæðum.
□ Springdýna í hjónarúmi.
□ Niðurfellanleg ur toppur.
□ Slökkvitæki.
□ 9 kg. gaskútur.
□ Klósett.
□ Viöarinnréttingar.
□ ísskápur fyrir gas eða 12v.
□ Rafdrifin vatnsdæla.
□ Sjálfvirk miðstöð fyrir gas og
1 2v sem blæs inn heitu loftíT
□ 3ja gashellu eldavéi. .
Sýningarhús við Borgartún 22 hjá^Radíó-
virkjanum og við Bifreiöabyggingar, Ármúla 34.
Upplýsingar í síma 37730 og 610450.
©
So/ffartii/i JJS//7I/6/0450
Lítill bátur vélarvana
út af Eyrarbakka
LÍTILL plastbátur, Ása HF-154, varð vélarvana rétt vestur af Eyrar-
bakka í fyrradag. Báturinn var dreginn til Þorlákshafnar. Tveir
menn voru um borð og amaði ekkert að þeim.
Mennirnir voru að fara með Asu
frá Stokkseyri til Þorlákshafnar
annan dag páska þegar vél bátsins
stöðaðist vestur af Eyrarbakka,
helst er talið að sjór hafi komist í
olíu. Hafnarvörður í Þorlákshöfn
heyrði hjálparbeiðni mannanna í
talstöðinni klukkan 11.15 um morg-
uninn og lét björgunarsveitina
Mannbjörg í Þorlákshöfn vita og
Tilkynningaskyldan bað bátinn
Særúnu, sem var við Knarrarósvita,
að fara til aðstoðar. Björgunarsveit-
armennirnir úr Þorlákshöfn voru
komnir af stað á björgunarbátnum
Draupni innan við tíu mínútum eft-
ir að hjálparbeiðni barst en þegar
þeir komu á staðinn var Særún
búin að koma taug í Ásu. Særún
átti í erfiðleikum með að draga
bátinn vegna þess hvað það reyndi
á litla bátinn. Tók þá Draupnir við
og dró Ásu til Þorlákshafnar. Þang-
að var komið um klukkan 13.
Kristján Friðgeirsson hjá Slysa-
varnafélagi íslands sagði að menn-
irnir hefðu verið heldur illa búnir
til sjóferðar og þeir orðnir kaldir
þegar þeim var bjargað, en jafnað
sig fljótt.
Stórhríð í Almannaskarði:
Um 25 bílar aðstoðaðir
SÍÐDEGIS á annan í páskum gerði stórhríð í Almannaskarði rétt
hjá Höfn í Hornafirði. Mikil umferð var um skarðið á þessum tíma
og þurftu lögregla, björgunarsveit og Vegagerðin að aðstoða um
25 fólksbíla niður úr skarðinu.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar á Höfn í Hornafirði hófst
veðrið um klukkan 3 um daginn.
Gekk á með snjókomu og 10-12
vindstigum. Veginum til og frá
skarðinu var lokað í fjóra tíma og
beið fjöldi bíla beggja megin skarðs-
ins eftir að komast leiðar sinnar.
Björgunarsveit SVFÍ var kölluð
út og héldu menn úr henni ásamt
lögreglu og vegagerðarmönnum,
samtals um 20 manns, upp í skarð-
ið þar sem bílarnir sátu fastir. Gekk
greiðlega að koma bílunum niður
skarðið og til Hafnar. Er veðrið
gekk niður um kvöldmatarleytið var
jarðýta fengin til að ryðja skarðið
og var það opnað fyrir umferð aftur
um klukkan 20.